Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 1
Seinkun * Sótt um starfs- Skilar öflug
frestar leyfi sem rekstrarhag-
framþróun > viðskiptabanki ræðing sér
Stefnt að rafrænni skrán- ingu verðbréfa/12 Viðtai við Bjarna Ármannsson, forstjóra FBA/6 Verðbréfamiðlarar spá góðri afkomu Fiugleiða/8
FÓLK
KÍNAMÚRINN
STENDUR
UPPÚR
INNLENT
KPMG OG
ERNST&
YOUNG
SAMEINAST
u
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
* Fimmtudagur 10. febi*úar 2000
EVRA
DOLLAR
75,00
74,00
73,00
72,00
71,00
70,00 r——i-----------1--------i----—i
12,1 19.1 26.1 2.2 9.2
ÚA með 157
milljónir í hagnað
• ÚA skilaði á liðnu ári 270 milljóna króna
hagnaði af reglu- legri starfsemi fyrir
skatta. Að teknu tilliti til 102 milljóna króna
í reiknaðan tekjuskatt og 10 milljóna króna
gjaldfærslu vegna óreglulegra liða nemur
hagnaöurinn 157 milljónum króna. Veltufé
frá rekstri nam 776 milljónum króna á ár-
inu sem er mesta fjármunamyndun á einu
ári í sögu félagsins./2
Irving Oil
með lóð í
Reykjanesbæ
• Austnesi ehf., umboðsaðila kanadíska
olíufélagsins IrvingOil, hefur verið úthlutaö
lóð undireldsneytisbirgöastöö á tanka-
svæðinu í suð-vesturhluta Helguvíkur
Dönsku sementsverksmiójunni Aalborg
Portland AS hefur einnig verið úthlutað lóð í
Reykjanesbæ. /2
mMHiL-Lma— rnm—i
Kr. Kr. Kr.
I37íTBdíRnRTriBS a83«M,*:|ir.»®aj*y5w®t^9:rnrrTa i Ss atTT.T.II
Dollari 73,43000 73,23000 73,63000
Sterlpund. 118,33000 118,02000 118,64000
Kan. dollari 50,81000 50,65000 50,97000
Dönsk kr. 9,76200 9,73400 9,79000
Norsk kr. 8,99700 8,97100 9,02300
Sænsk kr. 8,56400 8,53900 8,58900
Finn. mark 12,22220 12,18430 12,26010
Fr. franki 11,07850 11,04410 11,11290
Belg. franki 1,80140 1,79580 1,80700
Sv. franki 45,15000 45,03000 45,27000
Holl. gyllini 32,97620 32,87380 33,07860
Þýskt mark 37,15560 37,04030 37,27090
ít. líra 0,03753 0,03741 0,03765
Austurr. sch. 5,28110 5,26470 5,29750
Port. escudo 0,36250 0,36140 0,36360
Sp. peseti 0,43680 0,43540 0,43820
Jap. jen 0,67480 0,67260 0,67700
írskt pund 92,27190 91,98550 92,55830
SDR (Sérst.) 99,10000 98,80000 99,40000
Evra 72,67000 72,44000 72,90000
Grlsk drakma 0,21840 0,21770 0,21910
Tollgengi fyrir febrúar er sölugengi 31. Janúar.
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 562 3270
íslandssimi kaupir meirihluta í Internet á íslandi, INTIS
Stefnt að samlegðaráhrif-
um og efldri starfsemi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÍSLANDSSÍMI hf. hefur keypt
um 70% hlut í Internet á Islandi
hf, INTIS. Seljendur eru Kögun
hf., Háskóli íslands og smærri
hluthafar. Eftir kaupin er ríkið
og stofnanir þess annar stærsti
hluthafinn í INTIS með saman-
lagðan hlut á bilinu 22-23%,
segir Eyþórs Arnalds, fram-
kvæmdastjóra Íslandssíma hf., í
samtali við Morgunblaðið. Hann
vill aðspurður ekki gefa upp
kaupverð að svo stöddu, en seg-
ir að aðilar viðskiptanna hafi
verið sáttir við verðið.
Eyþór segir að ástæður kaup-
anna séu þær að möguleiki sé á
miklum _ samlegðaráhrifum í
rekstri Íslandssíma og INTIS.
„INTIS hefur fjöldamarga
viðskiptavini meðal fyrirtækja,
en þar erum við að einbeita
okkur. Við erum að bjóða heild-
arlausn í gagnaflutningum, en
INTIS býður netsamband. Það
er mjög viðeigandi að nú geta
viðskiptavinir INTIS fengið enn
betri og fjölbreyttari þjónustu
en áður. Við höfum yfir að ráða
ýmsu sem þeir hafa ekki. Við
höfum til dæmis flutningskerfí í
ljósleiðaragagnaflutningsnetinu,
við eigum hlut í sæstrengnum.“
Að sögn Eyþórs er INTIS
frumkvöðull að netþjónustu á
íslandi, en það hóf nettengingu
til útlanda fyrr en aðrir hér-
lendis. „Meginstarfsemi fyrir-
tækisins hefur verið á tveimur
sviðum. Annars vegar hafa þeir
rekið nettengingar til stærri að-
ila, fyrirtækja og stofnana, og
hins vegar sér INTIS um út-
hlutun ,,.is“ netléna," segir Ey-
þór.
Hann segir að INTIS hafi
rekið nettenginguna frá Islandi
til útlanda, en leigt aðgang að
sæstrengnum CANTAT af
Landssímanum. „Við keyptum
hins vegar hlut í sæstrengnum
nú nýlega fyrir hundruð millj-
óna, og búumst við að INTIS
leigi af Islandssíma. Mér finnst
mjög líklegt að við bjóðum þetta
á betra verði en Landssíminn.
Það er hluti af þessu,“ segir Ey-
þór Arnalds.
„Við höfum einnig hug á að
blása auknu lífi í starfsemi
INTIS, og sérstaklega hvað
varðar netlénin. Þar er hægt að
gera spennandi hluti. Við erum
því ekki að kaupa okkur við-
skipti heldur erum við að kaupa
INTIS til að efla starfsemina
þar.“
Þegar hann er spurður nánar
út í tækifæri sem tengjast út-
hlutun .is netléna segist Eyþór
halda að mikill vöxtur verði í út-
hlutun léna hérlendis, og einnig
sé hægt að bjóða fleiri þjón-
ustugerðir með úthlutuninni.
„Ég held að það sé hægt að
færa þessa þjónustu frekar út á
vefinn, og færa þetta í nútíma-
legra form,“ segir Eyþór.
„Ég held að það sé að verða
ákveðin grundvallarbreyting á
markaðnum með þessum við-
skiptum. Það hafa verið margir
litlir aðilar á þessum markaði,
en ég tel að við séum að styrkja
Islandssíma til muna, og að
aukin samkeppni hafi þjappað
fyrirtækinu vel saman,“ segir
Eyþór.
Internet á íslandi er staðsett
í Tæknigarði í Dunhaga í
Reykjavík, og segir Eyþór að
starfsmenn INTIS séu sjö um
þessar mundir í sex stöðugild-
um.
fslenskl (ífeyrissjöðurinn er traustur lífeyrissjðður í vörslu Landsbréfa hf. Með aðild að íslenska
lífeyrissjóðnum tryggir þú þér fjölbreytta þjðnustu og góða ávöxtun lífeyris. Hafðu samband við
sérfræðinga Landsbréfa í lífeyrismálum eða ráðgjafa f næsta Landsbanka.