Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 C 5
VIÐSKIPTI
verði beinn aðili að öðru hvoru er-
lendu félaganna þó haldið sé sam-
bandi við báða, og muni nota
lausnir frá því fyrirtæki en fá hug-
myndir frá báðum eftir því sem
kostur er.
„Það má bæta því við að al-
þjóðavæðing er áberandi á þessu
sviði, þar sem fyrirtæki eru að
sameinast milli landa. KPMG fyr-
irtæki eru að sameinast milli
landa. Það á einnig við um Ernst
& Young. Með þessari sameiningu
erum við betur í stakk búin til að
taka þátt í þessari alþjóðavæðingu
og auknu samstarfi milli fyrir-
tækja, og jafnvel samruna þegar
tímar líða,“ segir Ólafur.
„Á þessu sviði eru landamæri að
falla eins og á öðrum vígstöðvum,"
segir Símon.
Erna Bryndís bætir við, varð-
andi samrunaferli endurskoðunar-
fyrirtækja milli landa, að sjónir
þeirra muni ekki einungis beinast
að Norðurlöndum, enda muni fyr-
irtæki renna saman á mun stærra
svæði.
Sameining flýtir fyrir innleið-
ingu sérhæfingar og þekkingar
Jón Eiríksson, löggiltur endur-
skoðandi og varaformaður stjórnar
KPMG Endurskoðunar hf., segist
telja að sameiningin muni flýta
fyrir innleiðingu þeirrar sérhæf-
ingar og þekkingar sem unnið hafi
verið að. „Hjá okkar samstarfsað-
ilum erlendis, KPMG og Ernst &
Young er mikil sérhæfing að verða
algengari og umhverfi að breytast.
Ég held að með stærra fyrirtæki
verðum við öflugri þátttakendur í
því samstarfi, og sameiningin flýtir
fyrir því að við getum tileinkað
okkur slíka sérþekkingu sem
skiptir miklu máli,“ segir Jón.
Starfsemi KPMG og Ernst &
Young er nú á þremur stöðum á
höfuðborgarsvæðinu. Ólafur Nils-
son segir að stefnt sé að því að
koma starfseminni allri á einn stað
í Reykjavík í framtíðinni, þó engar
ákvarðanir hafi verið teknar þar að
lútandi.
Þau segja að eftir sameiningu
félaganna tveggja verði þrjú fyrir-
tæki stærst á þessum markaði.
Auk þess sameinaða félags sem
hér um ræðir verði það Pricewat-
erhouseCoopers og Deloitte &
Touche, en á seinasta ári samein-
uðust fulltrúar Andersen World-
wide og Deloitte & Touche í eitt
félag undir nafni þess síðarnefnda.
„Þessi þrjú fyrirtæki eru orðin
langstærst og eru bæði á söguleg-
um forsendum og núverandi full-
FBA selur
íEssó
• FLÖGGUN var á Veröbréfaþingi
íslands í gaer vegna kaupa og
sölu á hlut í Olíufélaginu hf.,
Essó. Þannig tilkynnti Fjárfest
ingarbanki atvinnulífsins hf. aö
eignarhlutur hans í félaginu heföi
fariö úr 10,37% í 5,18%. Eins til-
kynnti eignarhaldsfélagið Kjalar
ehf., sem aö stærstum hluta er í
eigu Ólafs Ólafssonarforstjóra
Samskipa hf., aö hlutureignar-
haldsfélagsins í Olíufélaginu
heföi aukist úr 1,01% í um 6,2%.
Ólafur Ólafsson segir í samtali
viö Morgunblaðiö aö ástæöan
fyrir kaupum Kjalars ehf. í Olíufé-
laginu sé sú aö fyrirtækið sé
mjög verömikiö fyrirtæki sem
eigi mikla möguleika. „Fyrirtækiö
hefur veriö mjög stööugt og far-
sælt, ogteljum viö aö þaö sé
áhugaveröur fjárfestingarkostur
fyrirokkur," segirólafur.
Leiðrétting
• í GREININNI „Málsatvik hafa mikil
áhrif", sem birtistí Viöskiptablaöi
Morgunblaösins síöastliöinn fimmtu-
dag, varfariö ónákvæmt meö stað-
reyndir þegar sagt var að SÍS væri
meöal fýrirtækja sem oröið heföu
gjaldþrota. Hiö rétta mun vera aö
gengiö vartil nauöungarsamninga
vegna skulda félagsins, og er Sam-
band íslenskra samvinnufélaga enn til
sem lögaöili þó starfsemi hjá félaginu
sé lítil. Beöist er velviröingar á þessu
mishermi.
trúar „hinna fimm stóru“ á al-
þjóðavettvangi," segir Símon Á.
Gunnarsson.
Ætlunin að reka fjölskyldu-
og jafnréttisstefnu
Talið berst að því hvort samrun-
inn muni leiða af sér miklar breyt-
ingar fyrir starfsfólk fyrirtækj-
anna tveggja.
Ólafur Nilsson segir að eftir
samrunann verði fyrirtækið betur
búið til að bjóða starfsfólki upp á
símenntun, í tengslum við alþjóða-
fyrirtækin. Því ætti vinnustaðurinn
að verða eftirsóknarverðari.
Erna Bryndís bætir við að einn-
ig sé ætlunin að reka virka fjöl-
skyldu- og jafnréttisstefnu. „Þann-
ig að þetta verði fyrirtæki sem er
fjölskylduvænlegt, eins og er að
ryðja sér til rúms t.d. í Banda-
ríkjunum. Þar er rætt um „lífsjafn-
vægi“, en með því er átt við að fólk
gefi af sér í vinnunni, en verði
einnig að fá að lifa sínu fjölskyldu-
og einkalífi. Það leiði af sér aukna
ánægju sem skili betra verki,“ seg-
ir Erna Bryndís.
Jón Eiríksson segir að lokum að
forráðamenn KPMG og Ernst &
Young hér á landi líti samrunann
mjög björtum augum. „Við sjáum
þetta sem mjög spennandi tæki-
færi, enda er mikið að gerast í
þessum efnum hjá þeim erlendu
félögum sem við erum samstarfs-
aðilar að. Með því að við stækkum
hér á þessum markaði sjáum við
okkur sem virkari þáttakendur
sem gefi gott tækifæri fyrir starfs-
menn og ekki síður fyrir viðskipta-
vini,“ segir Jón Eiríksson að lok-
um.
Eigendaskipti
á Fríhöfn-Sport
SPORTVORUBUÐIN í Leifsstöð,
Fríhöfn-Sport, hefur verið seld.
Ólafur H. Jónsson, fyrrum eigandi
verslunarinnar, segir í samtali við
Morgunblaðið að reksturinn hafi
gengið erfiðlega, sérstaklega sök-
um mikils stofnkostnaðar. Kaup-
andi er AKS ehf., hlutafélag í eigu
hjónanna Einars Sigfússonar og
Önnu K. Sigþórsdóttur.
Að sögn Ólafs var erfitt að reka
svo litla einingu sem sportbúðin
er. „Stofnkostnaður var mun meiri
en á öðrum stöðum, því byggja
þurfti verslunina upp frá grunni.
Þetta var aðalástæðan fyrir söl-
unni,“ segir Ólafur.
Anna og Einar ráku áður
Sportkringluna og eiga nú tæpan
þriðjungshlut í útivistarverslun-
inni Nanoq í Kringlunni. Verslunin
Fríhöfn-Sport er lokuð eins og er
en að sögn Einars mun reksturinn
hefjast að nýju í lok febrúar eða
byrjun mars. „Við munum bjóða
mikið úrval af íþróttavörum og ég
er bjartsýnn á að reksturinn gangi
betur en áður var,“ segir Einar.
Þó hanr» sé fjarska fallegur...
\
\
...máttu ekkí gleyma að
kíkja undir húddíð
Vefur fyrirtækis er gárfesting eins og hver önnur og um
hana gilda sömu lögmál og allar aðrar Qárfestingar.
Ef ekki á að fara illa verður að hugsa fram í tímann
og vanda valið.
\
\
\
\
\
\
\
i
I
Rétt eins og góður vefur skilar fyrirtækinu útlögðum
kostnaði margfalt til baka pá mun lélegur vefur kosta pig
ómældar upphæðir I viðhaldskostnað, viðbætur, vinnu-
stöðvanir vegna bilana og glataðar tekjur sem betri vefur
hefði skilað.
Netið er ört vaxandi páttur I ímynd og starfsemi fyrirtækja.
Þörfin á frambærilegum vef er brýn enda nota sífellt fleiri
netið sem fyrsta áfangastað pegar peir leita að upplýsingum
um fyrirtæki, vörur eða pjónustu.
Vefurinn er andlit fyrirtækisins á netinu. Hann
á ekkert eríndi í hendur fúskara.
EJS vinnur samkvæmt ISO 9001 vottuðu gæðakerfi -f EJS hf. 563 3000 www.ejs.is
I
I
I
I
I
I
I
l
/
/
/
/
/
/
-