Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 10
10 C FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Fjöregg fyrirtækisins
't'LEST fyrirtæki í dag eru með
tölvur, tengdar saman á neti og
gögn geymd á sameiginlegu gagna-
geymslusvæði.
Tölvumar eru orðnar svo mikil-
vægur hluti af vinnu og starfsemi
fyrirtækisins að ef eitthvað bjátar á
í tölvunni þá er erfitt að halda uppi
eðlilegri starfsemi. Það má ekki
gleymast að það eru ekki tölvurnar
sem eru mikilvægastar, heldur
gögnin sem við nálgumst með að-
stoð þeirra. Tölvurnar eru einungis
verkfæri sem við getum nýtt okkur
til að vinna með gögn fyrirtækisins.
Ef við hefðum ekki aðgang að
gögnunum eða ef eitthvað kæmi
í nútíma þjóðfélagi
koma tölvur við sögu í
svo til flestu sem við er-
um að gera og það mun
aukast frekar en hitt,
skrifar Sigurður
Erlingsson.
fyrir þau, t.d. að þau kæmust í
rangar hendur, gæti það haft úr-
slitaþýðingu fyrir fyrirtækið. Það
er því mjög mikilvægt að hlúa vel
að þessu fjöreggi fyrirtækisins.
Verðmæti fyrirtækis er oftast í
beinum tengslum við verðmæti
gagna þess, eins og þekking (Know
how), viðskiptaskrá, formúlur og
uppskriftir, viðskiptaáætlanir,
teikningar o.fl.
En hvernig ætli sé staðið að
verndun upplýsinga hjá fyrirtækj-
um á Islandi í dag? Líklega er mjög
margt sem er ekki eins og best
væri á kosið, við skerum okkur lík-
lega ekki mikið úr frá öðrum lönd-
um þar sem reynslan er að stjórn-
endur fyrirtækja fría sig oftar en
ekki frá því að hugsa um þessi mál
og fela þau í hendur umsjónar-
manna tölvukerfa,
þó svo að í flestum
eða öllum tilfellum
sé ábyrgðin stjórn-
endanna en ekki
tölvuumsjónarmann-
sins. I lok dagsins
er það stjórnandi
fyrirtækisins sem
ber ábyrgð og þarf
að marka stefnuna.
(En ég ætla ekki að
skoða það frekar
hér, heldur velta
upp hverjar eru
mögulegar hættur.)
Er fyrirtækið iokað
en ólæst
Með tengingu við Intemetið hef-
ur opnast gátt sem möguleg er fyr-
ir utanaðkomandi aðila að nýta sér
til að komast inn í tölvu-
kerfí fyrirtækja.
Flestir sem em með
tengingu við Internetið
hafa komið sér upp ör-
yggisvörnum, sem era í
flestum tilfellum svokall-
aðir eldveggir. Eldvegg-
ir eiga að hindra heim-
sóknir óæskilegra aðila
inn í tölvukerfi og gera
það í flestum tilfellum.
En nauðsynlegt er að
skoða þann hluta örygg-
isins reglulega og endur-
meta hvort hann uppfylli
nútíma kröfur, því það
er mikil þróun á þessu
sviði eins og öðmm, og
eldveggir geta einnig orðið úreltir.
Einnig eru fjölmörg atriði sem
þarf að skoða, því eldveggir em
þannig byggðir að þeir stjórna að-
gengi tölvubúnaðar inn á tölvunet
fyrirtækisins, en gera ekki greinar-
mun á þeim sem sitja fyrir aftan
lyklaborðið á viðkomandi tölvum,
sem hafa aðgangsheimildir inn á
tölvunetið. Ef eldveggur er eina ör-
yggislausn fyrirtækisins, þá má
líkja því við að hurðum fyrirtæisins
sé lokað að kvöldi en skildar eftir
með lélega læsingu eða í sumum til-
fellum alveg ólæstar.
Við öryggisúttekt á tölvukerfum,
hefur oftar en ekki komið í ljós að
ekki hefur verið til heildaryfirsýn
yfir hvaða gáttir vom opnar út úr
netkerfi fyrirtækisins. Fyrirtæki
taldi sig vera að uppfylla allar kröf-
ur um aðgengi utanaðkomandi, en
yfirsást að tölva sem starfsmaður
hafði var tengd með mótaldi við al-
menna símkerfið og því komin opin
gátt framhjá öllum öryggisvörnum.
Mikil aukning er í notkun Inter-
netsins sem samskiptaform í við-
skiptum, en til þess að það sé við-
unandi lausn verður að skoða vel
alla öryggisþætti, það verður að
breyta þessu samskiptaformi frá
leikfangi yfir í alvöru viðskipta-
verkfæri, þar sem öllum öryggis-
kröfum er fullnægt. í dag eru menn
því miður að nýta Internetið til
samskipta með trúnaðargögn, í
„Ieikfanga“-samskiptaformi.
Hver les
póstinn þinn?
Hefurðu velt því fyrir þér þegar
þú ert að senda í rafpóst (E-mail),
hverjir koma til með að lesa hann?
Þú getur allavega verið viss um að
sá möguleiki er fyrir hendi að þau
gögn sem þú sendir frá þér geta
verið aðgengileg mjög mörgum á
leiðinni til viðtakanda. Það er t.d.
talið að yfir 140.000 manns, víðs-
vegar um heiminn, hafi það að fullu
starfi að skima á skipulagðan hátt
póst sem sendur er í rafrænu formi,
afkastageta er yfir 2 milljónir
skeyta á klukkustund. Vertu viss
um að það sem þú sendir frá þér sé
eitthvað sem þér sé sama um að
gæti lent í höndum annarra, jafnvel
samkeppnisaðila. Rafræn póst-
samskipti eru í dag mjög óöruggur
hluti tölvukerfisins, sem vissulega
Silki-damask
í metratali
í úrvali
Póstsendum
Skólavördustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050.
Fardu fram íir sjálfum þér...
... með alvöru Internettemgimgu é læ^ra verdi en áður
Síminn býður fjölbreyttar heildarlausnir í Internettengingum fyrir
lítil sem stórfyrirtæki á enn lægra verði en áður hefur boðist.
Ráðgjafar okkar aðstoða fyrirtæki við að finna þá lausn sem þau
leita að. Hvort sem meiri áhersla er lögð á gæði tenginga eða hagkvæmt
verð erum við með lausnina.
www úimiuiúia Mfju^du í iiLdtici
Sigurður
Erlingsson