Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 C 11
&
væri vert að skoða frekar. En í dag
eru til fjöldamargar lausnir til að
tryggja örugg og virk samskipti.
Hver misnotar
gögnin þín?
Könnun sem gerð var í Banda-
ríkjunum, birti þær óvæntu niður-
stöður að fyrirtækjum stæði mest
ógn af stuldi og misnotkun á trún-
aðargögnum fyrirtækisins innan
fyrirtækisins sjálfs. Flestir vernda
sig mjög vel fyrir utanaðkomandi
ásókn, en telja sig nokkuð örygga
með samskipti innanhúss og gera
oft of litlar öryggiskröfur þar. T.d.
er of algengt að aðgengi og notkun
starfsmanna með gögn sé rúmt og
jafnvel óskilgreint.
Engin regla er á því hvernig að-
gengi starfsmaður hefur að trún-
aðargögnum.
I dag eru til margskonar örygg-
isverkfæri sem t.d. hindra starfs-
menn og aðra aðila sem eru að
vinna á tölvukerfi fyrirtækisins að
afrita ákveðin gögn á diskling,
senda í tölvupósti eða á prentara
eða önnur jaðartæki. Þessi þáttur
er oft of lítið skoðaður. Mjög mikið
af trúnaðargögnum lekur þessa
leið til samkeppnisaðila, yfirleitt
án nokkurar vitneskju stjórnenda
fyrirtækisins. Samkvæmt könnun-
um er talið að yfir 70% fyrirtækja
hafi orðið fyrir skaða vegna gagna
sem hafa verið misnotuð eða horfið
vegna tölvuglæpa. Þessi þáttur á
eftir að hækka á komandi árum ef
ekkert er að gert.
I dag eru margar öryggislausnir
sem hægt er að setja upp til að
byrgja þessa brunna.
Innanhússnetið
galoplð
Aðgengi þeirra sem eru á tölvu-
neti fyrirtækisins er oft skilgreint
þannig að hver um sig hefur sitt
svæði þar sem viðkomandi geymir
gögnin sín. Einnig eru skilgreind
svæði þar sem trúnaðargögn eru
geymd og að því hafa að jafnaði
einungis yfirmenn viðkomandi fyr-
irtækis aðgang. Þegar einhver,
sem hefur aðgang að þessum gögn-
um, ætlar að skoða þau, þá leggja
þau upp í ferðalag eftir netkerfi
fyrirtækisins. Á þessari leið eru
þau ekki óhult fyrir óviðkomandi
aðila. Hægt er að nálgast á Intern-
etinu lítil forrit sem oftast ganga
undir nafninu „sniffer“. Ef einhver
aðili sem er tengdur inn á tölvunet
fyrirtækisins hefur svona forrit á
tölvunni sinni getur hann á mjög
einfaldan hátt fylgst með og lesið
öll þau gögn sem ferðast um frá
öruggum geymslustað á netþjóni
fyrirtækisins í tölvu þess sem er að
fara að skoða þau. Það eru einnig
til lausnir til að vernda þessa sam-
skiptaleið og ætti sú lausn ekki síð-
ur að vera til staðar frekar en eld-
veggur. Því þetta verndar einnig
fyrir aðilum sem gætu náð að
tengjast utanfrá.
Fartölvur verða
algengari
Með auknum ferðalögum verða
fartölvur algengari hjá starfs-
mönnum fyrirtækja.
Oftar en ekki innihalda þessar
tölvur gögn sem ekki eru ætluð
fyrir aðra en notanda hennar. Með
því að setja upp tölvuöryggiskerfi í
fartölvuna, er hægt að gera hana
algjörlega óaðgengilega fyrir aðra
en þann sem hefur réttu aðgangs-
heimildina. Öll gögn eru ólesanleg
og tölvan sjálf alveg ónothæf fyrir
aðra. Þessi öryggislausn ætti skil-
yrðislaust að vera í öllum fartölv-
um hjá fyrirtækjum.
Veiklr
hlekkir
Þessi stutta grein hefur vonandi
vakið nokkra til umhugsunar um
að það eru ennþá veikir hlekkir,
fjöregg fyrirtækisins er ekki í eins
vernduðu umhverfi og ætla mætti.
Dragðu ekki of lengi að leita eftir
staðfestingu á að þau gögn sem þú
þarft að tryggja séu í öruggu um-
hverfi.
Höfundur er tölvu- og kerfísfræðing-
ur og framkvæmdastjóri Rittækni,
tölvuöryggi - hugbúnaðarlausnir.
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Frœðsluhorn
Langtímafjárfestar eru þelr fjárfestar kallaðlr sem líta ávallt til lengrl tíma. Þelr
kaupa tiltekin hlutabréf og sitja á þelm þó að llla gangl hjá vlðkomandi félagl. í
mörgum tilfellum elnbeita þér sér að fáum fyrirtækjum.
Langtímafjárfestar og
spákaupmenn
Öndveröir þeim eru „spákaup-
menn“ sem gjarnan hafa skjót-
fenginn gróöa að leiöarljósi. Þeir
kaupa hlutabréf sem þeir búast
viö aö muni hækka mikiö á
skömmum tíma. Gerist þaö eru
þeir fljótir til aö losa hlut sinn í
félaginu. Sums staöar er þekkt
að spákaupmenn kaupi hluta-
bréf í félögum til þess aö hluta
þau í sundur. Ef illa horfir
stökkva þeir gjarnan af skútunni.
Flestir eigendur hlutabréfa eru
þó líklega einhvers staðar á milli
þess að vera langtímafjárfestar
og spákaupmenn. Þessirfjár-
festar kaupa hlutabréf til lengri
tíma en hafa þó ekkert á móti
þvf aö selja gefist möguleiki á
góðum hagnaöi.
Einstaklingar sem kaupa hluta-
bréf gera þaö líka af mörgum
ástæöum. Sem dæmi um nokkr-
ar ástæöur eru góö ávöxtun
veröbréfa, skattaafsláttur, fjár-
festir vill eiga hlutabréf í tilteknu
fyrirtæki eöa vill leggja sitt af
mörkum til uppbyggingar at-
vinnulífs.
Suma langar jafnvel bara aö
sitja aöalfundi félaga.
Aukin umsvif Tölvumiðlunar
TÖLVUMIÐLUN hf. og systurfyr-
irtæki þess, Tölvuþekking hf., eMR
hf. og Míkró ehf., veltu á síðasta ári
um 300 milljónum króna. Fyrirtækin
vinna náið saman að þróun, þjónustu
og markaðssetningu hugbúnaðar
fyrir innanlandsmarkað og erlendan
markað, og starfa hjá þeim um 45
starfsmenn, segir í fréttatilkynningu
frá Tölvumiðlun.
Á seinasta ári var lokið svokölluðu
EJS-verkefni, sem fól í sér að um
500 notendur EJS-launakerfis
skiptu yfir í H-Laun frá Tölvumiðl-
un. Meðal fyrirtækja sem það gerðu
má nefna Norðurál, SPRON, Penn-
ann, Háskólann í Reykjavík, Globus-
Vélaver og Keflavíkurverktaka. Um
10 manns starfa nú beint og óbeint
við H-Laun og eru launagreiðendur
sem nota kerfið orðnir um 1.200 tals-
ins, segir í fréttatilkynningunni.
Aöalfundur Nýherja 2000
Aðalfundur Nýherja hf. verður haldinn fimmtudaginn 10.
febrúar 2000. Fundurinn verður í Sunnusal Hótel Sögu og
hefst klukkan 15:00.
Dagskrá
• Venjuleg aðalfundarstörf
• Tillögur:
Heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum skv. 55. grein
hlutafélagalaga.
• Önnur mál; löglega upp borin.
• Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
• Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa
umboð, verða að gera það skriflega.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
Slmi: 569 7700
www.nyherji.is
NÝHERJI
Fy rirtækjaþj ónusta Flu^f éla^sins
FUNDARFERÐIR
05f atlt er til reiðu á fundarstað
Nýjuinj í þjónustu við íslensk fyrirtæki hvar sem er á landinu.
Við bjóðum fyrirtækjum saman í pakka flugfar og
FlO?Íð 0? TUÍldað fundaraðstöðu í dagsferðum til fimm helstu
áfangastaða Flugfélags íslands sem eru:
ísafjörður
Akureyri
Egilsstaðir
Höfn í Hornafirði
Vestmannaeyjar
Fljúgið að morgni, vinnið á fundi yfir daginn og snúið aftur heim um kvöldið.
Fundaraðstaða er í samstarfshótelum okkar á framangreindum áfangastöðum.
Eitt símtal - 09 við sjáum um allan undirbunin?
Við pöntum flugfar, akstur til og frá flugvelli á fundarstað, fundar-
aðstöðu og veitingar og sjáum til þess að allur búnaður verði til reiðu á
fundarstað. Pöntum gistingu, sé þess óskað, og tökum að okkur að
skipuleggja skoðunarferðir eða aðrar útivistarferðir á fundarstað.
Viltu ná umtalsverðum áran^ri á næsta fundi?
Hafðu strax samband við okkur í síma 570 3606
eða í tölvupósti: flugkort@airiceland.is
Fínn kostur á ferialöjum
FLUGFELAG ISLANDS
Air Iceland
Flugfélag fslands, Reykjavíkurflugvelli, sími 570 3030, fax 570 3001, www.flugfelag.is