Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 8
8 C FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Verðbréfafyrirtæki telja Flugleiðir hf. einn besta fj árfestingarkostinn á íslenska markaðnum Morgunblaðið/Jim Smart Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. Hagræðingaraðgerðir undir stjdrn hans skila félaginu betri afkomu að mati verðbréfafyrirtækja. Telja öfluga rekstrar- hagræöingu að skila sér Verðbréfafyrirtæki hafa mælt mjög með kaupum á hlutabréfum í Flugleiðum. Félag- ið skilaði 151 milljónar króna hagnaði árið 1998, en verðbréfafyrirtækin spá því að hagnaðurinn hjá félaginu á síðasta ári verði 1,8-2 milljarðar króna. Hallur Þorsteinsson kynnti sér hvað hér liggur að baki. Vérulegar sveiflur hafa verið í rekstri Flugleiða á til- tölulega skömmum tíma og þannig var reksturinn á fyrri hluta ársins 1998 hinn erfiðasti í sögu félagsins í rúman áratug, en á síðari hluta ársins tókst að snúa rekstrinum við og rekstrarafkoman seinnihluta ársins varð hagstæðari en nokkru sinni á þessu tímabili. Hagnaður af rekstrinum árið 1998 varð 151 milljón króna, en árið 1997 varð 295 milljóna króna tap af rekstrinum. Fyrstu níu mánuði síð- asta árs skilaði rekstur Flugleiða og dótturfyrirtækja félagsins tæplega 2,1 milljarðs króna hagnaði eftir skatta, en á sama tímabili ársins 1998 nam hagnaður af rekstrinum tæplega 340 milljónum króna. Velta Flugleiðasamstæðunnar á íyrstu níu mánuðum ársins 1999 nam um 23,8 milljörðum króna borið saman við 21,6 milljarða á sama tímabili ársins áður. Hagnaður samstæðunnar af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 1.492 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins, en var á sama tímabili 1998 567 milljónir króna. Afkoman af reglulegri starfsemi fyrir skatta batnaði því um 925 milljónir króna. Allar líkur eru á því að reksturinn síðustu þrjá mánuði ársins 1999 hafi verið mjög þungur íyrir Flugleiðir, en þar veldur mestu að eldsneytis- verð hefur verið í hámarki og eins er um að ræða tímabil þar sem sæta- nýting er mjög léleg. Erlend flugfé- lög eru byrjuð að birta afkomutölur íyrir þrjá síðustu mánuði ársins 1999 og samkvæmt þeim varð um 7,5 milljarða króna tap hjá British Airways og hjá hollenska flugfélag- inu KLM varð tapið af reglulegri starfsemi um 2,2 milljarðar króna. í báðum tilfellum er tapið að stórum hluta rakið tU hækkunar á flugvéla- eldsneyti, en það hefur hækkað um rúmlega 40% undanfarin misseri. Hefur náð sér í myndarlegan söluhagnað á árinu Það sem helst liggur að baki af- komuspám verðbréfafyrirtækjanna varðandi Flugleiðir er að hjá félag- inu hafa undanfarið átt sér stað verulegar hagræðingaraðgerðir sem eru að skila því betri afkomu. í níu mánaða uppgjöri félagsins hafði af- koma af reglulegri starfsemi móður- og dótturfélaga batnað um 925 millj- ónir króna og þar munaði mest um að tekjur móðurfélagsins hækkuðu um 5,2%, en á sama tíma hækkuðu rekstrargjöld um 3,3%. Farþega- og fraktflutningatekjur jukust mikið á tímabilinu, sem hafði veruleg áhrif á tekjuliði félagsins og nettófjár- magnsgjöld lækkuðu á milli ára. í ársbyrjun 1999 var tilkynnt að Flugleiðir hefðu selt fasteignafyrir- tækinu Þyrpingu hf. byggingar Hót- els Loftleiða og Hótels Esju, en gerður var samningur til 15 ára um að Flugleiðahótel hf., dótturfélag Flugleiða, myndi leigja byggingarn- ar af Þyrpingu. Bókfært verð eign- anna í reikningum Flugleiða var rúmlega 700 milljónir króna, en sölu- verðið til Þyrpingar liðlega tveir milljarðar. Með sölunni innleystu Flugleiðir dulda eign umfram bók- færð verðmæti að fjárhæð tæplega 1,3 milljarðar króna og jókst eigið fé félagsins sem því nam. I mars var tilkynnt um að Flug- leiðir hefðu selt fjármögnunarfyrir- tækinu Bouillion Aviation Services í Seattle í Bandaríkjunum Boeing 737-400 flugvél, en leigt vélina aftur af kaupandanum til starfsrækslu í þrjú ár. Hagnaður Flugleiða vegna sölunnar var um 250 milljónir króna. í maí tóku gildi skipulagsbreytingar sem eiga að endurspegla skiptingu móðurfélagsins í sex afkomueining- ar, aukna áherslu á markmiðsáætl- anir í allri samstæðunni og aukið vægi upplýsingaþróunar og upplýs- ingatækni í rekstrinum. I júlí var tilkynnt að Flugleiðir hefðu eignast hlut í alþjóðafjar- skiptafyrirtækinu Equant, en hlut- urinn kom til vegna aðildar Flug- leiða að fjarskiptafyrirtæki flug- félaga, SITA, og viðskipta við SITA undanfarin átta ár. Miðað við mark- aðsverðmæti þegar Flugleiðir eign- uðust hlutinn var verðmæti bréfa fé- lagsins í Equant um 1,4 milljarðar króna. I desember var svo tilkynnt um að Flugleiðir hefðu selt 34% af hlut sínum í Equant og var söluverð bréfanna að frádregnum sölukostn- aði 430 milljónir króna. Flugleiðir hafa þannig náð í myndariegan sölu- hagnað á árinu og bjartsýnin á af- komu félagsins felst ekki hvað síst í því. Stórbætt leidakerf i Svana Huld Linnet hjá Búnaðar- bankanum Verðbréfum bendir á að undanfarin ár hafi leiðakerfi Flug- leiða verið byggt upp og stórbætt. Þannig hafi félagið náð að nýta sæta- framboð mun betur en áður, við- skiptamannamarkaður félagsins (Saga Class) hafi stækkað auk þess sem félagið hafi náð að markaðssetja ferðir til íslands utan háannatíma. í lok síðasta árs gerði félagið sam- starfssamning við SAS sem komst að fullu til framkvæmda nú í janúar, en samningurinn felur í sér samstarf í flugi milli Skandinavíu og Bandaríkj- anna. „Þessi samningur styrkir Flug- leiðir í samkeppni yfir Norður-Atl- antshaf þar sem félagið kemst inn í sterkt sölukerfi SAS. Markmið Flugleiða er að auka viðskipta- mannamarkað sinn enn frekar en fé- lagið er með lága hlutdeild á þeim markaði. Á undanfömum misserum hefur farþegum á viðskiptafarrými fjölgað umtalsvert og með enn sterk- ara leiðakerfi er útlit fyrir að svo verði áfram,“ segir Svana Huld. Hún bendir á að um tveir þriðju hlutar af heildartekjum Flugleiða og meginhluti lána félagsins sé í erlend- um myntum og auk þess vegi elds- neytiskostnaður þungt í rekstrinum. „Undanfama mánuði hefur hrá- olíuverð farið hækkandi og ekki er fyrirsjáanleg breyting þar á. Elds- neytiskostnaður Flugleiða er 7% af heildarútgjöldum félagsins. Til að takast á við verðsveiflur í hráolíu- verði á heimsmarkaði hefrn- félagið sett sér þá stefnu að verja 35-60% kostnaðarins með samningum 12-18 mánuði fram í tímann,“ segir Svana Huld. Hún bendir á að auk þess sem hrá- olíuverð hafi farið hækkandi hafi evra lækkað undanfama mánuði. Gengisáhætta sé þó nokkur hjá fé- laginu þar sem meginhluti tekna og gjalda sé í erlendri mynt og það sé markmið Flugleiða að helmingur áætlaðs sjóðstreymis sé varinn til 12 mánaða í senn. Flugleiðir hafi verið að bæta áhættustýringu sína undan- farið og síðastliðið sumar hafi verið stofnuð ný deild til að takast á við það verkefni. „í dag er markaðsvirði Flugleiða rúmir 11 milljarðar og innra virði fé- lagsins 3,75. Félagið á þó nokkuð af duldum eignum og má þar nefna hlutabréf í Equant og flugvélaflota félagsins. Gengi bréfa Equant hefur hækkað um 13% frá áramótum og er nú í sögulegu hámarki. Flugleiðir eiga þrjár Boeing 757-200 vélar og má ætla að markaðsverð þeirra sé töluvert hærra en bókfært verð vél- anna. Ef tekið er mið af duldum eignum félagsins er innra virði í kringum markaðsverð þess. Það er Ijóst að stefna Flugleiða er orðin skýr og leiðakerfið er að styrkjast og er því mikilvægasta verkefni stjórnenda í komandi fram- tíð að stýra daglegum rekstri,“ segir Svana Huld Linnet. Stórbætt áhættu- og fjárstýring Almar Guðmundsson hjá mark- aðsviðskiptum Fjárfestingarbanka atvinnulífsins segir ljóst að mikil hagræðing hafi komið fram í rekstri Flugleiða að undanförnu, og þess hafi sérstaklega séð stað í sex mán- aða uppgjöri félagsins í fyrra. „Hluti af þeirri hagræðingu felst í betri nýtingu leiðakerfisins, en það hefur verið í uppbyggingu síðustu ár. Annað sem hefur skipt miklu máli er stórbætt áhættu- og fjárstýring. Fjármagnsliðirnir hafa farið batn- andi hjá þeim, auk þess sem þeim virðist að nokkru leyti hafa tekist að verja sig gagnvart hækkandi verði á flugvélaeldsneyti. Það sýndi níu mánaða uppgjörið. Reksturinn er sem sagt batnandi, en hafa verður í huga að áhættan felst í því að rekstr- arumhverfi félagsins er sveiflu- kennt, eins og sést vel á sögulegum afkomutölum," segir Almar. Varðandi markaðsverð Flugleiða segir hann að FBA geri ráð fyrir 935 milljóna króna hagnaði af reglulegri starfsemi og 2.305 milljóna króna heildarhagnaði í fyrra. „Markaðsverð félagsins er nú í kringum 11,5 milljarðar króna miðað við gengið 4,97. Við mæltum með kaupum á Flugleiðum þegar gengið var í 4,39, en þá sýndist okkur mark- aðsverð geta verið nokkuð nærri endurmetnu eigin fé. Síðan þá hefur markaðsverðið hækkað um 13%. Miðað við núverandi markaðsverð og spá okkar um hagnað af reglulegri starfsemi í fyrra, þá er V/H-gildið á félaginu 12,3. V/H-gildi erlendra flugvéla er almennt ekki hærra en 10-12. Við teljum þó að rekstrarbati síðustu ára geri Flugleiðir að góðum fjárfestingarkosti til lengri tíma, en verðlagning félagsins kallar þó á áframhaldandi bata af reglulegri starfsemi, og í því samhengi er rétt fyrir fjárfesta að vera meðvitaðir um sveiflukennt rekstrarumhverfi fé- lagsins," segir Almar Guðmundsson. Markaðsvirði félagsins nálægt innra virði Heiðar Guðjónsson hjá íslands- banka F&M segir að greining fyrir- tækisins á Flugleiðum bendi til þess að markaðsvirði félagsins sé nálægt innra virði þess. „Það þýðir að eignir félagsins í dag standa undir markaðsverði þess. Það hlýst af því að vantalið er í bók- um verðmæti í lendingarleyfum á fjölsóttum flugvöllum, auk þess sem flugflotinn og hlutabréf í eigu félags- ins eru vanmetin. Ef markaðsvirði er nálægt innra virði, eða jafnvel fyrir neðan, er um áhættulitla fjárfest- ingu að ræða vegna þess að ef rekst- urinn skilar ekki nægilega miklu er hægt að losa um eignir, eða leysa fé- lagið upp, til þess að standa undir markaðsvirði félagsins. Við eigum þó alls ekki von á því að Flugleiðir verði leyst upp og því segir rekstrarvirði meira um arðsemi fjárfestingar í bréfum félagsins en upplausnarvirði. Til lengri tíma litið mun sú endur- skipulagning sem átt hefur sér stað hjá félaginu skila því auknum arði. Hins vegar koma til skakkaföll núna vegna gríðarlegra olíuverðshækkana á seinni helmingi sfðasta árs. Varað var við harðri samkeppni á Atlants- hafsleiðum í fréttatilkynningu sem fylgdi 9 mánaða uppgjöri félagsins, og ef afkoma síðasta ársfjórðungs 1999 verður slök, eins og ég býst við, þarf það þar af leiðandi ekki að koma áóvart. Flugleiðir hafa lagt í talsverðan markaðskostnað við að skipta um ímynd á félaginu. Auglýsingaherferð og annað sem tengist nýrri markaðs- setningu kemur til gjalda nú en mun vonandi skila félaginu auknum tekjum í framtíðinni. Ég tel þannig Flugleiðir vera áfram í uppbygging- arfasa og að hluthafar geti ekki vænst að innleysa mikinn hagnað af rekstrinum á þessu ári,“ segir Heið- ar. Hann segist búast við því að af- koma í ársuppgjöri Flugleiða verði ekki jafn góð og væntingar markaðs- aðila standi til. Til skemmri tíma búist hann þess vegna við lækkunum á gengi félagsins. „Fjárfestar sem ætla sér að inn- leysa hagnað af rekstri Flugleiða þurfa að sýna þolinmæði. Og hún er af skornum skammti á innlendum fjármálamarkaði,“ segir Heiðar Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.