Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 6
6 C FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Bjarni Armannsson, forstjóri Fjárfestingarbanka atvinnulifsins
Sótt um starfsleyfi
sem viðskiptabanki
Stjórn Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
mun á aðalfundi félagsins óska eftir heimild
hluthafa til þess að sækja um starfsleyfi
sem viðskiptabanki. Guðrún Hálfdánar-
dðttir ræddi við Bjarna Armannsson,
forstjóra FBA, um starfsemi bankans.
Bjarni Ármannsson: Teljum okkur vera búin að ná tökum á þeirri starfsemi
sem við lögðum upp með í byrjun og erum reiðubúin til að víkka út starf-
semina enn frekar m.a. með því að auka hlut okkar í hlutabréfaviðskiptum.
JÁRFESTINGARBANKI
atvinnulífsins mun á næstu
vikum sækja um starfsleyfi
sem viðskiptabanki. Samkvæmt
nýrri stefnu bankans verður þjón-
ustusvið hans víkkað út og fjár-
sterkum einstaklingum boðin fjár-
málaþjónusta.
Bjarni Armannsson, forstjóri,
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins,
segir að verði starfsleyfið veitt fái
bankinn allar þær heimildir sem
viðskiptabankar og sparisjóðir
hafa. „í raun er eini munurinn á
heimildum okkar í dag og þeirra að
þeir mega taka við innlánum til
ávöxtunar og vörslu frá almenningi
en við ekki. Umsóknin felur ekki í
sér að við séum að fara út í hefð-
bundið viðskiptabankamódel, s.s.
rekstur útibúa, en þetta er nauð-
synlegur liður í þeim þjónustuþátt-
um sem við ætlum okkur að veita.
Við munum nota Netið í sívaxandi
mæli sem dreifileið. Bæði til að
dreifa upplýsingum og sem vett-
vang til viðskipta."
Samkvæmt áætlun félagsins er
gert ráð fyrir að hagnaður ársins
2000 hjá FBA-samstæðunni fyrir
skatta verði 1.763 milljónir króna
eða 1.218 milljónir króna eftir
skatta. í þessum tölum er gert ráð
fyrir nokkru tapi af rekstri einka-
bankaþjónustu á fyrsta starfsári
hennar.
Útibúum banka fjölgar
frekar en fskkar
Mikið hefur verið rætt um að
fækka þurfi útibúum banka en
Bjarni bendir á að það hafi meira
verið í orði en á borði. „Þegar FBA
hóf starfsemi fyrir rúmum tveimur
árum var 181 útibú starfrækt hér á
landi en í dag eru þau 187. Þeim
hefur því frekar fjölgað en fækkað.
Ég tel nauðsynlegt að þeim verði
fækkað og má búast við því að sú
verði raunin ef um samþjöppun á
bankamarkaði verður að ræða.“
Ætlunin er að FBA muni beina
sjónum sínum frekar að fjársterk-
um aðilum og þeim sem eru mikið í
hlutabréfaviðskiptum heldur en
hefðbundinni innlánaþjónustu fyrir
almenning. Bjarni segir að við-
skiptavinum verði bæði boðið upp
á fjárvörslu og eignastýringu auk
þess sem bankinn muni efla tengsl-
in við viðskiptavini sína þannig að
stærri hluti af viðskiptum þeirra
fari í gegnum FBA. I dag sinnir
FBA fyrst og fremst lífeyrissjóð-
um og öðrum stofnanafjárfestum.
Svanbjörn Thoroddsen er fram-
kvæmdastjóri einkabankasviðs
FBA en Tómas Sigurðsson, sem
hefur verið forstöðumaður lög-
fræðisviðs FBA frá upphafi, hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
enska einkabankans R. Raphael &
Sons sem FBA er að ganga frá
kaupum á.
Að sögn Bjarna mun R. Raphael
sinna íslenskum og erlendum við-
skiptavinum sem vilja njóta einka-
bankaþjónustu en FBA muni þjóna
viðskiptavinum sem eru ekki nauð-
synlega fjársterkir einstaklingar
heldur einnig einstaklingum með
mikið tekjuflæði.
„Þegar FBA var stofnaður var
grundvallarhugsunin sú að vinna á
vaxtamun í útlánum til mjög stórra
viðskiptavina. Þeir viðskiptavinir
eru hins vegar í auknum mæli
farnir að fara beint út á verðbréfa-
markaðinn og sleppa milliliðnum,
það er bankanum. Það var því
tvennt í stöðunni. Annars vegar að
bjóða upp á samkeppnishæf kjör
og lækka kostnaðinn þannig að
bankinn væri samkeppnishæfur við
verðbréfamarkaðinn. Hins vegar
að nýta sér tækifærin á verðbréfa-
markaðnum. Sem við höfum gert
með því að stofna markaðsviðskipti
bankans sem gert var strax í upp-
hafi m.a. til að fara með félög í
hlutafjár- og skuldabréfaútboð og
aðstoða við skuldastýringu, gerð
afleiðusamninga og veitt aukna
ráðgjöf við áhættustýringar. Á
sama tíma hefur það gerst almennt
á fjármálamarkaðnum að hlutfalls-
lega lítill vöxtur hefur verið í inn-
lánum en mikill vöxtur í beinum
hlutabréfaviðskiptum. Við teljum
* fe
ICELANDAIR
www.icelandair.is
Gunnar Örn Kristjánsson
forstjóri Sölusambands islenskra fiskframleiðenda hf.
Við höldum
kostnaði vegna
viðskipta-
og söluferða
í lágmarki
„Við hjá SÍF eigum mikil samskipti við erlenda aðila.
Við erum alltaf að leita að nýjum mörkuðum fyrir íslenskar
saltfiskafurðir og efla samstarfið við erlenda viðskiptavini.
Að okkar dómi hefur sýnt sig að Saga Business Class fargjald
er hagkvæmasti ferðamátinn.“
A Saga Business Class bjóðast tíðar áætlunarferðir og
sveigjanleiki sem miða að því að stytta viðskiptaferðir og auka
þannig afköst starfsmanna, nýta tímann betur og draga úr
ferðakostnaði.
Á Saga Business Class er enginn bókunarfyrirvari og gilda
engin skilyrði um lágmarks- eða helgardvöl erlendis.
Netfang fyrir almennar upplýsingar: info@icelandair.is