Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 C 7
9 „Erlendir aðilar eiga meira en 25%
hlut í FBA og því má bankinn ekki eiga
beinan hlut í sjávarútvegsfyrirtæki. Ég
sé fyrir mér að FBA verði að stofna sér-
stakt félag til þess að geta keypt hluta-
fé í sjávarútvegsfyrirtækjum. Þvi ef við
gerum það ekki þá vantar ansi mikið
upp á að starfsemi fjármálafyrirtækis
eins og FBA sé með eðlilegum hætti“ á
okkur vera búin að ná tökum á
þeirri starfsemi sem við lögðum
upp með í byrjun og erum reiðu-
búin til þess að víkka út okkar
starfsemi enn frekar meðal annars
með því að auka hlut okkar í hluta-
bréfaviðskiptum. Það er engin laun-
ung á því að við munum áfram fjár-
festa í fólki og tæknibúnaði og
Netinu sem dreifileið,“ segir Bjami.
íslensk reikningsskil til trafala
á alþjóðlegum mörkuðum
FBA hefur sótt eftir fjármagni á
alþjóðlegum vettvangi og má þar
nefna að fyrr í vikunni gekk bank-
inn frá skuldabréfaútgáfu upp á 125
milljónir evra eða sem svarar til
rúmlega 9 milljarða íslenskra
króna. Að sögn Bjarna var mikil
eftirspurn eftir bréfunum og breið-
ur hópur erlendra fjárfesta sem tók
þátt í útboðinu.
Þegar FBA kynnti fyrir fulltrú-
um fjármálafyrirtækja og stofnana-
fjárfesta í síðustu viku afkomu
bankans kom fram í máli forstjóra
FBA að íslenskar reikningsskilaað-
ferðir eru ólíkar þeim aðferðum
sem almennt eru notaðar á alþjóð-
legum markaði. Samkvæmt íslensk-
um reikningsskilareglum eru notuð
verðbólgureikningsskil.
Að sögn Bjarna geta menn haft
allar skoðanir á því hvort verðbólg-
ureikningsskil endurspegli á ná-
kvæmari hátt raunbreytingu eigin
fjár eða ekki. „Fyrir fyrirtæki eins
og FBA, sem er í alþjóðlegri sam-
keppni og er að sækja fjármagn á
alþjóðlegan markað, þá eru reikn-
ingsskil sem ekki eru hefðbundin á
þeim mörkuðum sem við erum að
sækja inn á til trafala. Að sama
skapi, ef við horfum á samkeppni á
innlendum markaði, þá er þessi teg-
und af reikningsskilum þeim í hag
sem viðhafa hefðbundið viðskipta-
módel, þ.e. eru með fjárfestingar í
varanlegum rekstrarfjármunum
eins og fasteignum og tækjum. Þvi
á slíkar eignir eru reiknaðar tekju-
færslur meðan á peningalegar eign-
ir er reiknuð gjaldfærsla. Þannig að
við erum til að mynda með 480
milljóna gjaldfærslu á þessu ári. Eg
er sannfærður um að enginn hinna
bankanna, án þess að hafa séð árs-
reikninga þeirra, mun hafa nálægt
þeirri fjárhæð. Hér er því um að
ræða tæplega hálfan milljarð, sem
auðvitað hverfur ekki, en færist
beint yfir eigið fé félagsins.
Jafnframt getur verið mjög erfitt
fyrir okkur að skýra þessa aðferð
út fyrir viðskiptavinum okkar er-
lendis. Þetta er í raun sama skýr-
ingin og á því af hverju lítið gengur
að selja íslensk verðtryggð skulda-
bréf þó svo þau séu á margan hátt
mjög góð og henti inn í eignasöfn.
Þ.e.a.s. erlendir fjárfestar eiga erf-
itt með að skilja verðbótaþáttinn.
Hann er óhefðbundinn og fyrir jafn
lítið og eftir er að slægjast í þessu
tilliti mun þessi menntunarstefna
lítið ganga eftir.
Ég trúi ekki öðru að samfélag
endurskoðenda muni taka þetta til
endurskoðunar og Alþingi sam-
þykki breytingar á íslenskum
reikningsskilalögum. Það þarf að
breyta þessu og hætta með verð-
bólgureikningsskil."
Eignaraðild erlendra aðila
í islenskum sjávarútvegi
Skiptar skoðanir eru um erlendar
fjárfestingar í íslenskum sjávarút-
vegi og fínnst sumum að banna eigi
þær með öllu. Aðrir vilja heimila
eign upp að vissu marki og enn aðr-
ir vilja leyfa útlendingum að fjár-
festa eins mikið og þeir hafa áhuga
á og þannig gætu útlendingar eign-
ast ráðandi hlut í íslenskum sjávar-
útvegsfyrirtækjum.
<?>
ímpra
Samkvæmt lögum um fjárfest-
ingu erlendra aðila í atvinnurekstri,
lög nr. 34/1991, 4 gr. 1 mgr., er
eignaraðild útlendinga í sjávarút-
vegi takmörkuð. Samkvæmt lögun-
um mega þeir aðilar, sem eru að
meira en 25% í eigu erlendra aðila
sé miðað við hlutafé eða stofnfé,
ekki stunda fiskveiðar í efnahags-
lögsögu íslands eða eiga og reka
fyrirtæki til vinnslu sjávarafurða
hér á landi. Fari eignarhlutur ís-
lensks lögaðila ekki yfir 5% má
eignarhlutur erlendra aðila þó vera
allt að 33%.
í viðtali við Morgunblaðið 20.
október 1998 segir Stefán Halldórs-
son, framkvæmdastjóri Verðbréfa-
þings íslands, að æskilegt sé fyrir
íslenskan verðbréfamarkað að eng-
ar hömlur eða sérstök hlunnindi
tengist viðskiptum með hlutabréf.
„Sem hlunnindi má nefna skattaleg
hlunnindi og sem hömlur má nefna
að útlendingar mega ekki kaupa í
sjávarútvegsfyrirtækjum. Hvort
tveggja er óheppilegt og sem lang-
tímasjónarmið er best fyrir mark-
aðinn að það sé jafnræði og allir
fjárfestingarkostir standi jafnt að
vígi,“ segir Stefán.
Sem dæmi um þær ýmsu myndir
sem takmarkanirnar taka á sig má
nefna að þegar rætt var um mögu-
leg kaup sænska SE-bankans á hlut
í Landsbankanum þá hefðu þau
kaup ekki mátt eiga sér stað að jafn
stórum hluta og til stóð þar sem
VÍS, sem Landsbankinn á stóran
hlut í, á hlut í sjávarútvegsfyrir-
tækjum.
FBA óheimilt að eiga beinan
hlut I sjávarútvegi
Að sögn Bjarna geta íslensk fé-
#
NÝSKÖPUN ARSjÓÖUR
ATVINNU LÍFSINS
VÖRUÞRÓUN
ERTU MEÐ HUGMYND AÐ NÝRRIVÖRU
EÐA NÝRRI TEGUND ÞJÓNUSTU?
Verkefninu Vöruþróun er ætlað að veita fyrirtækjum í öllum
atvinnugreinum aðstoð við að þróa samkeppnishæfa vöru fyrir
innanlandsmarkað eða til útflutnings.
Tilgangur verkefnisins er:
» m Íúistoða við stjómun vftruþróun»jv«f4cyf«i»im
* Að vítvúó «ð f«ðliagum úrtausmim við þröun vömmvar
« Að koma vðfimni ð msrkAð inm»n ivéðgla ftra
Fyrirtæki sem verða fyrir valinu eiga möguleika á áhættuláni
frá Nýsköpunarsjóði.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2000.
Nánari upplýsingar um verkefnið er á netslóð þess:
www.impra.is/voruthroun eða í síma 570 7100, Anna Margrét Jóhannesdóttir
i UndMi'iiui
Námskeið Navís-Landsteina vorönn 2000
febrúar Grunnur í Navision Financials 16.2 mars 16.3 apríl maí 5.4 18.5
Framhald í Navision Financials 24.-25.2 22.-23.3 12.-13.4 25.-26.5
Verkbókhald Financials 6.3 6.4
Tollakerfi, innkaup og lánardrottnar 30.3 30.5
C/ODBC tengill 3-5
Glugga- og skýrsluhönnun 10.-12.5
Verslunarkerfið Retail Back Office 27.-29.3 15.-17.5
Forritunarnámskeið í Navision Financials 13.3 - 29.5 kvöld- og helgarnámskeið
NAVisio^nanclaU Navii-Unditelnar hf ötjéfhélsi 5, itö Seykjavfk Sfml | jö jööö www.tandstelnarJs
lög, sem eru í meira en 25% eigu
útleridinga, og vilja eignast hlut í ís-
lensku sjávarútvegsfyrirtæki, valið
að stofna annað innlent félag sem
er þá að fullu í eigu íslenska félags-
ins og má þar af leiðandi eiga í sjáv-
arútvegsfyrirtæki þrátt fyrir að
móðurfélagið megi það ekki.
Erlendir aðilar eiga meira en
25% hlut í FBA og því má bankinn
ekki eiga beinan hlut í sjávarút-
vegsfyrirtæki. Meðal stórra hlut-
hafa í bankanum eru FBA Holding
SA sem átti skv. hluthafahsta um
síðustu áramót 29,04%, Partimonde
Holdings Anstalt 4,15% og Lisfield
Holding með 3,63%. Þessi þrjú fé-
lög, sem eru skráð erlendis, eiga
því tæplega 37% hlut í FBA.
Bjarni segir nauðsynlegt fyrir
FBA að geta átt hlut í sjávarút-
vegsfyrirtækjum þó það væri ekki
nema til að geta rækt hlutverk sitt í
miðlun með hlutabréf í sjávarút-
vegsfyrirtækj um.
Hamlar starfsemi FBA sem
fjármálafyrirtækis
„Það er ekki bara FBA sem get-
ur lent í aðstæðum sem þessum
heldur hvaða fyrirtæki sem er á
markaði. Ég sé fyrir mér að FBA
verði að stofna sérstakt félag til
þess að geta keypt hlutafé í sjávar-
útvegsfyrirtækjum. Því ef við ger-
um það ekki þá vantar ansi mikið
upp á að starfsemi fjármálafyrh--
tækis eins og FBA sé með eðlileg-
um hætti. Það má því af þessu
draga þá ályktun að ef erlendur að-
ili vill eignast verulegan hlut í ís-
lenskum sjávarútvegi þá getur
hann það þrátt fyrir núverandi
lagasetningu," segir Bjarni Ár-
mannsson.
FJARFESTU I AUKINNI
ÞEKKINGU OG ARANGRI
GÆÐASALA
Að námskeiði loknu getur þú...
- náð betri tengslum við viðskiptavini
- framkallað gæðasölu
- forðast algeng grundvallarmistök
- vitað hver eru fjögur mikilvægustu atriðin f fari góðs sölumanns
að mati viðskiptavinarins
- stórbætt sjálfsfmynd þína
- haldið eldmóði þínum stöðugum
- tekið betur á móti gagnrýni frá viðskiptavini
- orðið betri mannþekkjari
- verið hæfari að loka sölu
- kynnt þína vöru, hugmynd og þjónustu með betri árangri
- snúið neikvæðum viðskiptavini yfir i jákvæðan
- skilgreint kaupmerki frá viðskiptavininum
- stýrt viðskiptavini yfir í það svar sem þú vilt fá
- aukið gæði sölunnar
- byggt upp betri og traustari viðskiptasambönd
- aukið gæði i þjónustu
- aukið söluna með einföldum aðferðum
- fengið ánægðari viðskiptavini sem aftur er besta auglýsingin
- og margt, margt fleira
NÁMSKEIÐIÐ GÆÐASALA VERÐUR
HALDIÐ Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
Skráning stendur yfir
- Takmarkaður
sætafjöldi
Fyrirlesari er Gunnar Andri Þórisson en hann hefur
haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um allt land
við frábærar undirtektir þátttakenda.
www.gunnarandri.com
jM 8ÖLUKENNSLA GUNNARS ANURA
Einkaþjálfun • Námskeið • Ráðgjöf • Fyrirlestrar
n Við höfum sameiginlegt markmið - að þér gangi vel!
Reykjavík
21-22. febrúar
frá kl. 09:00-12:30
23-24.febrúar
frá kl. 19:30-22:30
Keflavík
12.febrúar
frá kl. 10:00-17:00
(ef næg þátttaka fæst)
Selfoss
16-17.febrúar
frá kl. 19:30-22:30
(ef næg þátttaka fæst)
Simi: 561-3530/ 897-3167 Fax: 561 3538
Netfang: gunnarandri@gunnarandri.com