Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 16
G
Samstarf um stjórnun
• Stjórnunarfélagið
og Gæðastjórnunarfé-
lagið hafa undirritaö
viljayfirlýsingu um víð-
tækt samstarf félag-
anna. Markmið sam-
starfsins erað efla
menntun og umræðu
um stjórnun á íslandi
og auka þjónustu við
félagsmenn beggja fé-
laga.
Samstarf félaganna
felur meðal annars í
sér að skrifstofa
beggja félaga verður á
sama stað. Skrifstof-
an verðurtil húsa í
Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7, þar sem
Stjórnunarfélagiö hef-
urverið til húsaog
mun skrifstofa Gæða-
stjórnunarfélagsins
hefja starfsemi þar
15. febrúar nk.
Framkvæmdastjóri hjá
MP Verðbréfum
• Auður Finnboga-
dóttirhefurverið ráðin
sem framkvæmda-
stjóri hjá MP Verðbréf-
um hf. Fyrir sem fram-
kvæmdastjóri er
Margeir Pétursson.
Auður er við-
skiptafræöingurog
hóf störf hjá MP Verð-
bréfum við stofnun fyr-
irtækisins á síðasta
ári.
Hún hefur starfað á
fjármálamarkaði frá
árinu 1993.
Nýir samningar Raf-
rænnar miðlunar
• Rafræn miðlun hf.
hefur undirritað
samninga við Gis-
ecke & Devrient og
Góðar lausnir ehf.
um rekstur og þjón-
ustu á útstöðvum
þýska fyrirtækisins
G&D. Gisecke &
Devrirent er einn af
megin samstarfsaö-
ilum banka og spari-
sjóða og kortafýrir-
tækja hér á landi um
KLINK myntkortakerf-
ið. Samningarnirfela
í sér réttindi til handa
Rafrænni miðlun hf.
á beinum innflutn-
ingi, dreifingu og sölu
búnaðar frá Gisecke
& Devrien.
íslandsbanki semur
við Opin kerfi
• ÍSLANDSBANKI hf.
og Opin kerfi hf. hafa
gert rammasamning
um uppfærslu bank-
ans á Microsoft-
hugbúnaði fyrir skrif-
stofur, netþjóna og
stýrikerfi bankans.
Samningurinn er svo-
kallaður „select“-
samningur sem er sér-
stök gerð af sölu-
samningi stóra
viðskiptavini.
Glefsir kaupir gröfu
• Kraftvélar ehf. um-
boðsaðili Komatsu á
íslandi afhenti nýlega
Glefsi ehf. Komatsu
PC210LC-6 beltagröfu
með ýtublaði. Vélin er
fyrsta beltagrafan í
Evrópu með þessum
útbúnaði, ogaf þvítil-
efni komu yfirmenn
Komatsu til landsins
til þess að vera við-
staddir afhendingu
vélarinnar.
formaöur GÍ, og Thom-
ast Möller, formaöur
SFÍ, gengu frá samn-
Ingnum.
KPMG og
Cisco i
samstarf
• Alþjóðlega endur-
skoöunar- og ráðgjaf-
arlyrirtækið KPMG hef-
ur í samvinnu við
Cisco Systems Inc.
stofnað alþjóölegt ráð-
gjafarfyrirtæki, KPMG
Consulting. Nýja fýrir-
tækið er eign KPMG
að 80% hluta en Cisco
Systems Inc. á
20%.Fyrstum sinn
mun þjónustan ein-
skorðast við Banda-
ríkin og Mexíkó. Síðar
áárinuergertráö fyrir
aðhúnteygi sigtil
Kanada, Suður-
Ameríku ogAsíu.
KPMG Consulting
mun lúta yfirstjórn
Stephen G. Butler,
stjórnarformanns
KPMG International,
en Rand Blazer og Rod
McGeary, sem hafa
veitt ráögjafarþjónustu
KPMG forstööu í
Bandaríkjunum, deila
með sér ábyrgö á
stjórnun KPMG Cons-
ulting.
Útflutningur - ekkert mál!
Navision Financials
Útflutningskerfi Strengs leysir allar þarfir útflytjenda
í öllum atvinnugreinum. í kerfinu er tenging við Toll,
EDI og öll skýrslugerð er fyrir hendi. Allt sem snýr
að útflutningi er teyst í sérlausnum frá Streng hf.
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 550 9000, www.strengur.is
FÓLK/Matthías H. Guðmundsson
Kínamúrinn
stendur upp úr
Matthías tók við
starfí fram-
kvæmdastjóra
fjármála- og stjórnunar-
sviðs Netverks í lok janúar.
Það hlýtur að vera ólíkt
að starfa sem framkvæmda-
stjóri Ágætis hf. og að
starfa hjá hátæknifyrir-
tæki?
„Já, þetta er gjörólíkt en
það er mjög gaman að
breyta til. Framtíðin er
spennandi, breytingamar
eru svo hraðar að ég hugsa
að mánuður hjá svona fyrir-
tæki sé eins og eitt ár hjá
venjulegu heildsölufyrir-
tæki! Netverk er hátækni-
fyrii'tæki á hugbúnaðarsviði
og við skilgreinum okkur
sem alþjóðlegt fyrirtæki.
Við seljum upplýsingahraða
og leggjum áherslu á samskipti,
bæði um GSM-kerfi og á Netinu.
Starf mitt felst í að sjá um fjármál
fyrirtækisins, skipulag, innra eft-
irlit, samskipti við fjárfesta og
fleira.“
Hver eru áhugamál fjármála-
stjórans?
„Það er skotveiði númer eitt,
tvö og þrjú. Við förum þrír saman
á veiðitímabilinu og skjótum
rjúpu, gæs og svartfugl. Ég hef
einnig mikinn áhuga á allri tegund
tónlistar en held mest upp á djass
og blús. Á ferðalögum mínum er-
lendis finnst mér heimsóknir á
djassklúbba standa upp úr. Fjöl-
skyldan skipar auðvitað stóran
sess einnig. Við keyptum okkur
hús í Kópavoginum fyrir tveimur
árum og ætlum að reyna að setja
garðinn í stand í sumar, smíða pall
og fleira.“
Hefurðu rjúpu íjólamatinn?
„Ég er reyndar af hamborgar-
hryggskynslóðinni en mér finnst
villibráðin mjög góð. Ég er nú
ekki stórtækur í veiðinni en mað-
ur á eitthvað í frystikistunni og
gefur líka vinum og vandamönn-
um.“
Hefurðu ferðast mikið?
„Já, ég hef farið töluvert upp á
hálendi íslands á veiðiferðum
Morgunblaöiö/Þorkell
—
► Matthías Hannes Guðmunds-
son er fæddur i Keflavík árið
1958. Hann útskrifaðist sem
viðskiptafræðingur af endur-
skoðunarsviði frá Háskóla ís-
lands árið 1983 og hefur auk
þess lokið ýmsum námskeiðum
er varða m.a. fjármál og tölvu-
mál. Matthías starfaði hjá SÍS á
árunum 1984-1991. Hann var
framkvæmdastjóri Ágætis hf. frá
1991 til 1999. Eiginkona Matt-
híasar er Gréta Kjartansdóttir,
þjónustufulltrúi hjá SPRON, og
eiga þau tvö böm, Kjartan
Hrafn, 15 ára, og Kristínu Ástu,
11 ára.
mínum. Ég hef einnig ferðast er-
lendis og sótt námskeið og ráð-
stefnur er varða fjármál, stjóm-
un, innra eftirlit og tölvumál."
Þú fórst í ferðalag með garð-
yrkjubændum á síðasta ári?
„Já, ég fór í 11 daga ferð til
Kína og Hong Kong í ágúst á síð-
asta ári. Við fórum á garðyrkju-
sýningu í Kunming, sem er í Suð-
ur-Kína. Þetta var mjög
ævintýraleg ferð og margt að
skoða. Ganga eftir Kínamúrnum
er þó eftirminnilegust."
BHpa
Fyrirtækjum og stofnunum
bjóðast nýir möguleikar til að
þjóna viðskiptavinum sínum.
Með WAP tækni er hægt að lesa
tölvupóst, skoða dagbækur, sinna
bankaviðskiptum og panta farseðla.
Islandssími er fyrsta fjarskipta-
fyrirtækið á Islandi með WAP gátt
fyrir GSM. Kynntu þér málið á;
www.islandssimi.is/wap
I:
Með WAP er hægt
að lesa tölvupóst,
skoða dagbækur,
sinnabanka-
viðskiptum og panta
vörur og þjónustu.
(slandssími hf. býður stórum og
smáum fyrirtækjum heildarlausnir
í fjarskiptum. Íslandssími býr yfir
Ijósleiðara-neti fyrir tal- og
gagnaflutninga. Gagnaveitan ehf.
og Islandsnet ehf. sem rekur Strik.is,
eru dótturfyrirtæki Islandssíma.
Íslandssími
Borgartúni 30-105 Reyjavík
Sími: 595 5000 - islandssimi.is
INNHERJISKRIFAR...
BANKIÁ BEINU
BRAUTINNI
• Árangurinn í rekstri íslandsbanka
vekur verulega athygli. Hagnaður-
inn af rekstri bankans hefur aldrei
veriö meiri og það vekur ekki sízt
eftirtekt að mikill hluti hagnaðar
bankans kemur af reglulegri starf-
semi en ekki sérstökum við-
skiptasamningum, sem bankinn
hefurátthlut í.
Valur Valsson, bankastjóri
íslandsbanka, sagði í samtali við
Morgunblaðið I gær, að arðsemi
eiginfjár væri yfir 26% og slíka arð-
semi sýndu aðeins arðsömustu
bankar á Vesturlöndum.
Almar Guðmundsson, hjá mark-
aösviöskiptum FBA, sagði í Morgun-
blaöinu í gær, að arösemi bankans
væri sú langbezta, sem þekktist hjá
viðskiptabönkunum hér.
Árangur sem þessi næst ekki fyr-
irtilviljun. Þaö er alveg Ijóst, að
markvisst hefur veriö unnið að því
að bæta vinnubrögð og starfshætti
í íslandsbanka og árangurinn er nú
að koma í Ijós með afgerandi hætti.
Þetta er að sjálfsögðu mikil viður-
kenning fyrir yfirstjórn bankans,
sem starfað hefurfrá upphafi undir
forystu Vals Valssonar.
Sú vartíðin aö gengi hlutabréfa í
íslandsbanka varkomið niðurfyrir
1. Þeir sem fjárfestu í bankanum
þá hafa hagnast vel á þeirri Ijárfest-
ingu. Á þeim árum lýstu ýmsir stórir
hluthafar í bankanum áhuga á að
selja bréf sín og sumir gerðu það.
Sú ráðstöfun hefur ekki veriö
skynsamleg í Ijósi þess, sem síöan
hefurgerzt.
HVAÐ VERÐUR UM
BÚNAÐARBANKANN?
• Ætla veröur að fjárfesting í
íslandsbanka sé góöur kostur um
þessar mundir. Gera má ráð fyrir að
skriöur komizt á áform um samein-
ingu bankans og Landsbankans á
næstu mánuðum, þráttfyrirþá
hnökra, sem upp komu á þeim
áformum seint á síðasta ári.
Möguleikar á hagræðingu í
rekstri sameinaðs banka eru aug-
Ijóslega miklir og þess vegna verður
að gera ráð fyrir, að hlutabréf í sam-
einuðum banka geti hækkaö mjög í
veröi, þegarfram líða stundir.
Yfirstjórn íslandsbanka hefur nú
orðið mikla reynslu f sameiningu
banka og íyfirstjórn Landsbankans
eru einnig hinir hæfustu menn. Þeg-
ar og ef þessir tveir bankar renna
saman má gera ráð fyrir að til verði
sterk rekstrareining.
Það er hins vegar Ijóst, aó þá
standa Búnaöarbanki og sparisjóð-
irnirframmifyrirvanda, sem ekki
blasir við, hvernig leyst verður úr.
Hver er líklegur samstarfsaðili Bún-
aðarbankans á fjármálamarkað-
num? Sumir segja Vátryggingafélag
íslands. Aðrir velta fyrir sér FBA.
Ekki eru miklar líkur á samstarfi
Búnaðarbankans og sparisjóö-
anna, þótt innan sparisjóðanna séu
menn, sem telja, að þeireigi að
kaupa Búnaðarbankann. Vandi
sparisjóöanna er hins vegar eins og
stundum áður, aö samstaða er ekki
nægilega mikil innan þeirra. Þess
vegna er ekki alveg Ijóst á þessari
stundu hvert stefnir í málefnum
þeirra og það á við um Búnaöar-
bankann einnig.
STARFSMENN MEÐ
Á NÓTUNUM
• Bankaráð íslandsbanka hefur
ákveðið að færa öllu starfsfólki
bankans hlutabréf íbankanum. Það
mun vafalaust hafa jákvæð áhrif á
starfsandann í bankanum.
En jafnframt er sú ákvöröun und-
irstrikun á því, að það færist í vöxt,
að starfsmenn verði meöeigendur
fyrirtækja. Líklegt má telja, að sú
aöferö að veita starfsfólki tækifæri
til að eignast hlutabréf í fyrirtækjum
muni breiðast út á næstu árum. Sú
þróun mun efla fyrirtækin mjög.