Morgunblaðið - 31.03.2000, Qupperneq 6
'3 C FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000
BÍÓBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
r
: !lll
Péxur
Blöndal
Tíu litlir
negra-
strákar
LIFIRÐU áhugaverðu lífi? Mikiö
eróþægilegt að vera spurður
þessarar spurningar í morgun-
sárið áður en maður fær séryl-
volgan Brezel á lestarstöðinni
Zoologischer Garten. Lifi ég
áhugaverðu lífi?
Blaðamanni svelgist á
og verður litið á kær-
ustuna sína. Hún
yppir öxlum. Enginn
stuðningur par. Ásjónan
speglast í glugganum á lest-
inni. Nú eru tölurnar orðnar
tvær sem vantar á frakkann
og blaðamaður hefur ekki far-
ið f klippingu í nokkra mán-
uöi. Ætli það sé áhugavert?
Er hann kannski kominn yfir
mörk þess að vera lúði og
orðinn sérvitringur?
Sá sem spurði spurningar-
innar veitir líka svariö. Þaö er
framleiöandi sjónvarpsþátta
sem fjalla um líf venjulegra
meðaljóna á borð við blaöa-
mann. Til að koma til greina
þarf maður að skila inn úr-
drætti úr lífi sínu. Ef fram-
leiðandanum líkar lesturinn
kemst maður í náðina og fær
háar fjárhæðir fyrir hverja
mínútu sem þykir nógu merki-
leg til að sýna í sjónvarpi. Allt
út af því að það er í tísku að
sýna eitthvaö raunverulegt,
að vinirnir f sjónvarpinu séu
til. Heimildamyndir eru í
tísku, Truman er í tísku, Blair-
nornin svífur enn yfir vötnum
og svo er okkur fólkinu úr
hversdagsleikanum jafnvel
safnað saman á einn stað og
búinn til leikur svo hinir nenni
að horfa á.
Þættirnir Big Brother hafa
vakið miklar deilur í Þýska-
landi enda er nafniö ef til vill
skírskotun í firringu nútíma-
samfélagsins. Tíu þátttakend-
ur búa í einangrun í hundrað
daga, þar sem myndavélar
fylgjast með þeim allan sólar-
hringinn, jafnvel í sturtu og
uppi f rúmi.
Þeir tilnefna reglulega tvo
fulltrúa úr eigin röðum til að
senda heim og áhorfendur
velja á milli. Það myndast
mikil spenna á milli þeirra,
þeir baktala hver annan, eins
og í Tfu litlum negrastrákum
springur einn af öðrum á
limminu, þartil sá síðasti
slekkur Ijósiö og verður um
10 milljónum ríkari.
Það er veriö að leika
hættulega sálfræðileiki,
hrópa óánægjuraddir í Þýska-
landi og skora á þjóðina aö
sniðganga þættina. Þannig
var þetta líka þegar þættirnir
Robinson hófu göngu sína í
Svíþjóð og voru síöar teknir
upp í Danmörku. Þátttakend-
ur voru sendir til fjarlægrar
eyju, kepptu sín í milli og
völdu sjálfir hver yrði sendur
heim. Þrátt fyrir varnaðarorðin
fengu þættirnir svo mikiö
áhorf að þátttakendurnir urðu
landsfrægir og fengu jafnvel
umsjón með eigin sjónvar-
psþáttum í kjölfariö.
En samt var það sárt aö
vera sendur heim og vinna
ekki gullpottinn, einn af öðr-
um brustu þeir sem sendir
voru heim í grát og einn
framdi jafnvel sjálfsmorö.
Stóri bróðir glottir út í annaö.
Hann er bara að horfa á leiki
mannanna.
hann þrjár myndir sem settu hann
í fremstu röð kvikmyndaleikstjóra:
pókerdramað The Cincinnati Kid
með Steve McQueen, kaldastríðs-
kómedíuna The Russians Are
Coming, The Russians Are Com-
ing! og loks glæpamyndina In the
Heat of the Night, sem hafði fyrir
sögusvið kynþáttaátök í Suðurríkj-
unum og sagði af svörtum alríkis-
lögreglumanni sem leysti morð-
gátu með hjálp lögreglustjóra í
smábæ, kynþáttahatara mikils;
myndin hlaut fimm Óskara, þar á
meðal sem besta mynd (Jewison
var ekki tilnefndur fyrir leik-
stjórnina).
Jewison hefur síðan gert hinar
fjölbreytilegustu myndir sem sýna
áhuga hans á ólíkum viðfangsefn-
um og ólík efnistök hans sjálfs.
Hann stýrði McQueen á ný í The
Thomas Crown Affair, gerði söng-
leikinn Fiðlarann á þakinu að hinni
bestu skemmtun á hvíta tjaldinu,
gerði annan og byltingarkenndari
söngleik, Jesus Christ Superstar,
fjallaði um íþróttaofbeldi framtíð-
arinnar í Rollerball, spurningar
um réttvísi í ...And Justice of All
og loks um leyndarmál nunnu í
Agnesi barni guðs.
Eins og síðast talda myndin bar
með sér gerðist Jewison einskonar
áhugamaður um að færa kunn
leikrit á hvíta tjaldið og tókst að
„opna“ þau með miklum ágætum
eins og til dæmis A Soldier’s
Story, þar sem hann fjallaði enn
um kynþáttafordóma, auk þess
sem rómantíska gamanmyndin
Moonstruck, líklega kunnasta
mynd leikstjórans í seinni tíð, var
samin af leikritaskáldinu John
Patrick Shanley og hafði ósvikinn
leikritsblæ yfir sér.
Norman Jewison hefur á seinni
árum gengið erfiðlega að finna sér
verðug viðfangsefni eða þar til
söguna um Fellibylinn rak á fjörur
hans. Jewison hefur á sínum langa
ferli látið sig málefni svertingja í
Bandaríkjunum miklu skipta og
saga Fellibylsins var sem sniðin
fyrir hann. Ekki spillti að Denzel
Washington fer með titilhlutverkið
en hann lék fyrst fyrir Jewison í A
Soldier’s Story. Réttlætiskennd og
mannúð eru tvö orð sem lýsa með
einföldum hætti inntakinu í helstu
verkum Jewisons og eru svo áber-
andi þættir í nýju myndinni að það
má segja að hún sé að sumu leyti
summan af lífsstarfi hans í kvik-
myndunum.
Það er varla hægt að hugsa sér
ánægjulegri endurkomu leikstjóra
sem við höfum átt svo ánægjulega
samleið með á tjaldinu.
Þaö er líklega hár-
réttaö tala um end-
urkomu eins hæfi-
leikaríkasta
leikstjóra samtím-
ans þegar rætt er
um hina ævisögu-
legu mynd Hurri-
cane eftir Norman
Jewison, skrifar
Arnaldur Indriða-
son.
Sem dæmi um það hversu lengi
Jewison hefur starfað við kvik-
myndaleikstjórn er nærtækast að
nefna að þegar hann heyrði fyrst
um málareksturinn vegna hnefa-
leikakappans Rubin Fellibyls Car-
ters, sem er viðfangsefni Hurrica-
ne, var hann að leikstýra Sidney
Poitier og Rod Steiger í In the
Heat of the Night, einni bestu
mynd sem gerð hefur verið um
kynþáttahatur í Suðurríkjunum.
Það var árið 1966 en myndin var
frumsýnd ári síðar.
Ekki grunaði Jewison að hann
ætti eftir að filma ævi Rubin Cart-
ers 34 árum seinna en ferill leik-
stjórans frá því hann hóf að gera
bíómyndir á öndverðum sjöunda
áratugnum, er markaður af vand-
aðri atvinnumennsku og jafnvel í
sumum tilfellum snilldartöktum.
Hann er Kanadamaður fæddur í
Toronto árið 1926 og því 74 ára á
þessu ári og þar með einn elsti
starfandi kvikmyndaleikstjóri í
heiminum. Hann er líklega kunn-
astur fyrir að ná því besta fram í
leikurum sínum hverju sinni auk
þess sem hann er fyrst og fremst
góður sögumaður með auga fyrir
dramatískri byggingu.
Eins og svo margir af hans
Jewison leikstýrir Washington í The Hurricane: Uppreisn æru.
In the Heat Of The Night: Ungur Norman Jewison leikstýrir Rod Steiger og
Sldney Poitier.
kynslóð ólst hann upp við sjón-
varpsþáttagerð á fimmta og sjötta
áratugnum. Hann skrifaði og leik-
stýrði og jafnvel lék ef svo bar
undir í sjónvarpsþáttum en fyrsta
bíómyndin sem hann gerði var
Fourty Pounds of Trouble árið
1963. Á árunum 1965 til 1967 gerði
Endurkoma
Jewisons