Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 19
LANDIÐ
Fj ölmenni
kvaddi Islending
í Dölum
FJÖLMENNI kvaddi áhöfn vík-
ingaskipsins íslendings á laugar-
dag þegar skipið hélt frá Dölum í
siglingu sína í kjölfar Eiríks
rauða og Leifs Eirikssonar til
Grænlands og Norður-Ameríku.
Áhöfnin byrjaði daginn á Eiríks-
stöðum og sigldi úr smábátahöfn-
inni í Búðardal klukkan rúmlega
14.
Sveitarstjórn Dalabyggðar
bauð áhöfninni og gestum til há-
degisverðar að víkingasið í ný-
reistum tilgátubæ Eiríks rauða
og Þjóðhildar á Eiríksstöðum en
þar er talið að Leifur sonur
þeirra hafi fæðst. Meðal annarra
gesta voru Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra, Charles J.
Furey ferðamálaráðherra
Nýfundnalands, sem hér er í
opinberri heimsókn, og Bjarni
Tryggvason geimfari. fslenskur
matur var borinn fram í trogum,
meðal annars súrmatur, lamba-
læri, lax, svartfugl, svartfugls-
egg, harðfiskur og hákarl, og öl
kneyfað úr hornum. Var þetta
fyrsta athöfnin í tilgátubænum og
tilgangurinn að hjálpa áhöfninni
að fara í huganum 1000 ár aftur í
tímann og upplifa aðstæður og
tíðaranda sem þá var.
Sagan hófst í Dölum
Gunnar Marel Eggertsson,
skipasmiður og skipstjóri íslend-
ings, sagði við athöfn sem haldin
var við smábátahöfnina í Búðar-
dal við brottför skipsins að aldrei
hefði annað komið til greina en
að hefja ferðina formlega á Eir-
iksstöðum, þar sem landafunda-
ferðirnar hófust. Sturla Böðvars-
son samgönguráðherra sagði að
saga landafundanna fyrir 1000
árum sem nú væri minnst hefði
hafist í Dölum og við Breiðafjörð
og hana þyrfti að varðveita með
því að halda á lofti arfleifðinni og
hún næði vonandi eyrum sífellt
fleiri. Hann sagði að tilgangurinn
með siglingu íslendings væri að
vekja athygli umheimsins á því
að það hafí verið íslenskir menn
sem fyrstir Evrópumanna stigu á
land í Norður-Ameríku og að
kynna ísland vestanhafs sem við-
komustað ferðafólks. Charles J.
Furey ferðamálaráðherra
Nýfundnalands sagði að mikil há-
tíðarhöld yrðu á Nýfundnalandi
þegar íslendingur kæmi þangað.
Skipið kemur til L’anse aux Mea-
dows, Leifsbúða, 28. júlí. „Sé
ykkur í Nýja heiminum," sagði
ráðherrann og beindi orðum sín-
um til áhafnar íslendings.
Sigurður Rúnar Friðjónsson
oddviti bað Gunnar Marel og
áhöfn Islendings fyrir gjöf frá
Dalabyggð til landstjórnarinnar í'
Grænlandi en hún er nákvæmt
líkan af tilgátubænum á Eiríks-
stöðum, steypt í brons. Gjöfin
verður afhent í Brattahlfð þegar
Islendingur kemur þangað 15.
júlí í tengslum við hátiðarhöldin
Morgunblaðið/Golli
Margir Dalamenn hafa komið sér upp víkingabúningum til að nota á Leifshátíðinni á Eiríksstöðum í ágúst, með-
al annars notuðu börnin handavinnutímana til sauma. Þau skörtuðu búningum sínum þegar íslendingur sigldi
frá Búðardal en drengirnir notuðu tímann til að skylmast á meðan fúllorðna fólkið hlustaði á ræðurnar.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra leysti landfestar íslendings í
höfninni í Búðardal og viðstaddir klöppuðu fyrir áhöfninni sem þar með
lagði formlega upp í langa siglingu til Grænlands og Norður-Ameríku.
sem standa til 17. júlí. Þá afhenti
Páll Bergþórsson áhöfninni fornt
siglingatæki sem hann hafði látið
smfða.
Áhöfninni var óskað góðrar
farar og skipstjórinn fór með sjó-
ferðabæn. Að svo búnu leysti
samgönguráðherra landfestar
vfkingaskipsins og það sigldi út
Hvammsfjörð með ræðara úr
Dalabyggð og áfram út á Breiða-
fjörð þöndum seglum.
Islendingur bi'ður nú f Ólafs-
víkurhöfn eftir góðum aðstæðum
til að sigla en mikill fs er við
Grænland. Gunnar Marel skip-
stjóri sagði í gær að lagt yrði í
hann fyrir eða um helgi og taldi
líklegt að farið yrði beina leið til
Bröttuhlíðar.
nýja lágfargjaldaflugfélagið í eigu british airways
250 kr. aukaafsláttur ef
bókað er á www.go-fly.com
flugfar á lægsta verði selst hratt, samt sem áður er enn hægt að fá flugfar frá aðeins 14.000 kr. báðar leiðir
london stansted • alicante • barcelóna • bilbao • bologna • kaupmannahöfn • edinborg ■ faro • ibiza • lissabon • madrid • malaga • mílanó • napolí • palma • prag • róm ■ feneyjar
!
miðast við eftirspurn I samkvæmt skilmálum