Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 2000 fHargunMafrtö ■ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER BLAÐ Brunei send- ir einn á ÓL ÞÁTTASKIL verða í i'þróttasög-u Brunei í Sydney en þá eignast hið auðuga smáríki í fyrsta sinn kepp- anda á Ólympíuleikum. Það var þó ekki með mikilli ánægju sem ólymp- íunefnd landsins sendi keppanda til Sydney; yfir höfði nefndarinnar hékk hótun Alþjóðaólympíunefndar- innar um að Brunei yrði vísað úr ól- ympíufjölskyldunni sendi það ekki íþróttamenn til leikanna. „Við ætluðum bara að senda fuli- trúa í ólympíunefndinni til að ganga inn á leikvanginn við setningar- athöfnina, eins og í Atlanta. En nú er það ekki hægt, við megum ekki ganga inn nema taka þátt í íþrótta- keppninni,“ segir Dato Paduka Talib Haji Berudin, ritari ólympíunefndar Brunei. „Vandinn er að við erum ekki sterkir í ólympískum íþróttum. Við eigum góða karatemenn en til allrar óhamingju er ekki keppt í þeirri íþrótt á leikunum," segir Berudin. Ákvað ólympíunefnd Brunei ekki fyrr en í síðustu viku að senda kepp- anda til Sydney. Fyrir valinu varð spretthlauparinn Hassan Ali en hann mun keppa í 100 metra hlaupi. Er hann ekki sagður eiga möguleika á að komast áfram úr sínum riðli. „Við vitum að hann á enga sigurmögu- leika en við urðum að senda ein- hvern,“ segir Berudin. Honum til fulltingis verða fimm bruneiskir aðstoðarmenn undir for- ystu Hadi Sufri Bolkiah prins, bróð- ur soldánsins af Brunei, þjóðhöfð- ingja landsins. Ætla þeir þó ekki að búa í ólympíuþorpinu, þar verður Hassan Ali einn að hírast því fylgd- armennirnir ætla að halda til á glæsihóteli í miðborg Sydney. Morgunblaðið/Þorkell Grindvíkingar fögnuðu geysilega eftir að þeir tryggðu sér sigur í Deildabikarkeppni KSÍ á Laugardalsvellinum í gærkvöldi, með því að leggja Valsmenn að velii í úrslitaleik, 4:0. Gindvíkingar hömpuðu fyrsta stóra bikarnum sínum. Sjá umsögn um leikinn á B3. Guðrún í áttunda sæti á nýjum heimslista Alþjóðafrjálsíþróttasambandið, IAAF, hefur gefið út nýjan styrkleikalista þar sem tekið er mið af árangri keppenda að undan- förnu. Guðrún Árnardóttir, Ár- manni, hefur færst upp um 21 sæti á heildarlista IAAF og er nú í 96. sæti yfir bestu frjálsíþróttakonur heims. I 400 metra grindahlaupi er árangur Guðrúnar athygliverður en þar er hún í 8. sæti á lista IAAF og íslandsmet Guðrúnar sem sett var í London hinn 5. ágúst síðastliðinn er 15. besti tími ársins í greininni, en þegar tekið er tillit til besta árangurs hlaupara á listanum er Guðrún í 8. sæti. Magnús Aron Hallgrímsson kringlukastari fer upp um átta sæti frá því listi IAAF var birtur síðast og er Magnús í 60. sæti á lista yfir stigahæstu einstakl- ingana í kringlukasti. Lengsta kast Magnúsar í ár kom um miðj- an júní í Helsinborg í Svíþjóð og mældist kastið 63,09 metrar og er það jafnframt 147. lengsta kastið í heiminum það sem af er árinu. Vala Flosadóttir stendur í stað í 14. sæti heimslistans yfir stiga- hæstu stangarstökkvarana og Þór- ey Edda Elísdóttir er númer 36 á sama lista og hækkar um fjögur sæti. Besta stökk Völu í ár er 4,30 metrar og náði hún því í Gauta- borg í Svíþjóð í byrjun júlí en ein- um mánuði fyrr hafði Þórey Edda náð sínum besta árangri í ár er hún stökk yfir 4,30 metra í Vell- inge í Svíþjóð. Jón Arnar Magnússon, sem keppir í tugþraut, náði 8.206 stig- um á móti í Götzis í Austurríki í byrjun júní og er það 20. besti ár- angur ársins en Islandsmet Jóns Arnars, 8.573 stig sett í Götzis árið 1998, hefði skilað honum í 7. sæti heimslistans í ár. BRENTON BIRMINGHAM TIL NJARÐVIKUR /B2 1 i INTER SPORT INTER SPORT INTER SPORT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.