Morgunblaðið - 05.09.2000, Side 11

Morgunblaðið - 05.09.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 B 11 KNATTSPYRNA Danir spiluðu einfalt ! I I Lárus Orri að ná sér LÁRUS Orri Sigurðsson er á batavegi eftir að hafa slitið krossbönd í leik með liði sínu West Bromwich Albion gegn Stockport fyrir sex mánuðum. Gary Megson, knattspyrnu- stjóri WBA, sagði staðarblaðinu Express & Star í gær að Lárus muni leika með varaliði WBÁ á morgun gegn Old- ham. „Lárus hefur komið okkur á óvart með fljótum bata og það er friskandi að sjá hann aftur á æfíngu með restinni af hópnum. Ég get ekki séð af hverju Lárus ætti ekki að geta leikið með varaliðinu á morgun,“ sagði Megson. Upp- haflega var reiknað með að Lárus gæti ekki byijað að leika aftur fyrr en um áramót en hann hefur náð sér ótrúlega fljótt. Lárus hefur ekki snert bolta síðan hann var borinn af velli eftir slæma tæklingu gegn Kevin Francis í mars en Isem kunnugt er var hann valinn leikmaður ársins af áhang- endum WBA þrátt fyrir að geta ekki lokið tímabilinu. Meðan félagar Lárusar voru í sumarfríi var hann á fullu í endurhæfingu og stífum æfíngum. Megson vill ekki selja neina pressu á Lárus en vonast til að hann geti leikið með aðalliðinu í lok september. Hverju fannst þér Danir vera Ibestir í? „Þeir voru bara mjög hreyfan- legir og létu boltann ganga og spil- uðu einfalt. Varnarmennirnir hjá þeim yfirleitt unnu boltann mjög vel og spiluðu einfalt inn á miðjuna eins og til dæmis Thomas Helveg bakvörður. Þeir voru líka mjög ró- legir og yfirvegaðir. Það var eins og þeir vissu nákvæmlega til hvers þeir væru komnir hingað og það var að ná í stig, ekki endilega spila fallega knattspyrnu og það gerðu Iþeir á mjög fagmannlegan hátt.“ Finnst þér meira búa í íslenska liðinu? Ríkharður Daðason umkringdur dönskum leikmönnum. Morgunblaðið/Sverrir Kjaftshöggin koma inná milli úrslitum og við verðum bara að halda áfram. Það má alltaf búast við einu og einu kjaftshöggi. Þessi heimavöllur er búinn að vera mikið vopn fyrir okkur og verður það áfram.“ Fannst þér heyrast nógu mikið í áhorfendum? „Það fer eftir við hvað maður er að miða. Það er önnur stemmning á landsliðsleikjum en félagsleikj- um en kannski hefði mátt vera meiri stuðningur." ARNÓR Guðjohnsen fylgdist með íslandi bíða lægri hlut gegn Dönum á laugardag. Arnór hefur mikla reynslu af landsleikjum þar sem hann lék sjálfur 73 leiki fyrir íslands hönd. „Ég hef séð betri landsleiki. Það var svekkjandi að tapa þessu niður eftir að komast yfir. Mér fannst við byrja ekkert ósvipað og á móti Svíunum, bökk- uðum og vörðumst aftarlega. Við gerðum það ágætlega í leiknum en hins vegar þegar við fengum boltann hefðum við mátt sækja hraðar fram og á fleiri mönnum. Eins og leikurinn þróaðist hefði ég viljað sjá strákana verjast framar," sagði þessi kunni snillingur. Arnór lék lengi sem framherji með íslenska landsliðinu. Hann var spurður hvort erfitt væri vera í því hlut- Eftjr verki í leik í heims- Irisi Björk meistarakeppni. Eysteinsdóttur „Það var miklu erf- iðara hér áður fyi'r þegar við vorum miklu meira í vörn. Ætli það hafi ekki verið í kringum 70 prósent af mínum landsleikjum sem við hreinlega lágum í vörn og treystum á skyndisóknir ásamt því að ná ein- um og einum leik inná milli þar sem gekk ágætlega. Ég veit nátt- úrlega hvernig það er að spila með landsliðinu í sókninni og það er oft mjög erfitt." Fannst þér íslenska liðið geta gert betur eða var það danska svona miklu betra? „Nei, alls ekki og eftir að við komust yfir hafði ég það á tilfinn- ingunni að þessi leikur myndi ekki tapast en svo snerist blaðið við og jöfnunarmarkið var aigjört kjafts- högg. Annað markið sem þeir skoruðu kom strax eftir hálfleikinn og það var smáheppnisstimpill yfir því en kannski, ef ég á að vera sanngjarn, þá voru Danir betri í þessum leik. „Já, við höfum séð íslenska liðið í undanförnum leikjum spila miklu betur en þetta og náð frábærum Óvænt í Færeyjum FÆREYINGAR náðu óvæntu jafntefli í fyrsta leik sínum í fyrsta riðli undankeppni HM á laugardag. Slóvenar komust í 2:0 en Uni Arge og Ossur Hansen komu gestunum aldeilis á óvart og skoruðu sitt hvort markið á síðustu þremur mínútum leiksins og jöfnuðu leikinn. Glæsilegt mark Jóhannesar Karls JÓHANNES Karl Guðjónsson skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu af 30 metra færi á sunnudaginn þegar lið hans RKC Waalwijk sigraði Roosendaal, 2:1, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þetta var fyrsta mark leiksins og vendipunktur hans. RKC er í þriðja sæti deildarinnar með sex stig eftir þrjá leiki en fyrir ofan eru Nijmegen með 7 stig og Feyenoord með 6 stig. Ólafur Gottskálksson varði vítaspymu Stuttu áður hafði Milan Osterc leikið í gegnum færeysku vörnina og skorað annað mark Slóvena gegn gangi leiksins. Saso Udovic skoraði fyrra mark Slóvena á 25. mínútu. Ungverjar komu á óvart Ungverjar komu á óvart og náðu jafntefli á heimavelli gegn Itölum, Isilfurliðinu á Evrópumótinu í sum- ar. ítalir, sem voru að leika sinn fyrsta leik undir stjórn Giovanni Trappatoni, náðu tvívegis foryst- unni með mörkum frá Filippo Inzaghi en Ferenc Horvarth, leik- maður Enegie Cottbus í Þýska- landi, jafnaði metin í tvígang. Paolo Maldini fyrirliði ítala jafnaði landsleikjametið, en hann lék sinn (< 112. landsleik sem eru jafnmargir og Dino Zoff, fyrrum landsliðs- þjálfari ítala, lék á milli stanganna hjá ítölum á árum áður. Rúmenar f basli Rúmenar lentu í miklum vand- ræðum með Litháa á heimavelli sínum í Búkarest. Það var ekki fyrr en á 89. mínútu sem varamað- urinn Ionel Ganea tókst að tryggja Rúmenum sigur með skallamarkið. Þetta var 9. mark Ganea í 17 leikj- um fyrir rúmenska landsliðið en hann tryggði eins og frægt er Rúmenum sigur á Englendingum á Evrópumótinu með marki úr vítaspyrnu á lokamínútunni. Lítill áhugi var á leiknum og mættu að- eins 4.000 manns á völlinn. Ástæð- una má eflaust rekja til þess að goðið, Gheorghe Hagi, ákvað að leggja landsliðsskóna á hilluna eft- ir Evrópumótið í sumar svo og varnarjaxlinn Gheorge Popescu. Auðvelt hjá Portúgölum Portúgalar, sem unnu hug og hjarta margra knattspyrnuáhuga- manna með skemmtilegri spila- mennsku á Evrópumótinu í sumar, unnu öruggan sigur á Eistum í Tallinn, 1:3. Portúgalar sýndu svipuð tilþrif og á Evrópumótinu og þeir Rui Costa og Luis Figo skoruðu báðir falleg mörk og Ricargo Pinto setti svo punktinn yfir i-ið með því að koma Portúgöl- um í 3:0 áður en heimamenn náðu að klóra í bakkann. Hollendingar sluppu með skrekkinn Hollendingar léku sinn fyrsta leik undir stjórn Luis van Gaal og máttu þakka fyrir jafntefli á heimavelli gegn írum. Robbie Keane og Jason McAteer komu ír- um í 2:0 og Hollendingar vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Þeir lögðu þó ekki árar í bát og tókst að jafna metin á síðustu 20 mín- útum leiksins. Jöfnunarmarkið var sérlega glæsilegt en þrumuskot Giovanni van Bronckhorst af 25 metra færi þandi netmöskvana. ÓLAFUR Gottskálksson var í að- alhlutverki í liði Brentford sem gerði markalaust jafntefli gegn Wycombe í ensku 2. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Ólafur sýndi snilldartilþrif strax í upphafí leiks þegar hann varði úr dauðafæri og í byrjun síðari hálfleiks gerði hann sér Iítið fyrir og varði vítaspyrnu. fvar Ingimarsson lék cinnig allan Ieikinn með Brentford. Ron Noades, knattspyrnustjóri Brentford, lýsti yfír sérstakri ánægju með frammistöðu Ólafs en hann gagnrýndi sjónvarps- stöðina Sky harkalega fyrir um- fjöllun sína í garð Ólafs eftir 2:6 tapleik Brentford gegn Bristol Rovers í siðustu viku. „Ólafur hefur verið frábær það sem af er tímabilinu og umfjöllun Sky á dögunum var mjög ósanngjörn," sagði Noades.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.