Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Danir mun
leiknari en Svíar
„VIÐ á miðjunni vorum of aftarlega og duttum alveg niður í varn-
armennina og þetta var ekki alveg eins og við ætluðum okkur að
gera. Sérstaklega eftir markið okkar duttum við ósjálfrátt aftar
og vorum kannski aðeins að reyna að hvíla okkur. Það hefði
kannski verið betra að standa aðeins framar á vellinum,“ sagði
Rúnar Kristinsson súr á svip eftir leikinn gegn Dönum.
rátt fyrir að íslenska liðið hafi
legið full aftarlega í fyrri hálf-
leik má geta þess að Island hafði
yfir, 4:2, í mark-
skotum í hálfleik.
IrisiBjörk ”Leikur , okkar
Eysteinsdóttur byggist a þvi að við
séum allir fyrir aft-
an boltann þannig að við getum
varist þeim vel. Þeir áttu erfitt
með að finna glufur á vörninni og
skapa færi en þeir voru mikið með
boltann og þetta voru rosalega
mikil hlaup á okkur. Þetta var
ótrúlega erfitt,“ sagði Rúnar sem
fannst þónokkur munur á liði Svía
og Dana. „Munurinn á Dönum og
Svíum er sá að Danir eru mikið ör-
uggari með boltann. Þeir eru allir
leiknir, með rosalega góða tækni
og fljóta kantmenn og það gerir
vinnuna ennþá erfiðari. Svíarnir
voru aftur á móti aðeins klaufalegri
með boltann og auðveldara að ná af
þeim boltanum.“
Þrátt fyrir það brugðust atriði í
leik íslenska liðsins sem gengu upp
á móti Svíum en erfitt er að finna
ástæðuna á bak við það. „Kannski
er ástæðan sú að við vorum aftar á
vellinum, vörðumst aftar og vorum
kannski ekki eins þolinmóðir og á
móti Svíum. Það er samt erfitt að
segja til um það akkúrat núna,“
sagði Rúnar aðeins örfáum mínút-
um eftir að flautað var til leiksloka.
Besti kafli íslenska liðsins kom
er um 20 mínútur voru til leiksloka.
Liðið fór að sækja meira og spurðu
menn sig hvers vegna það hefði
ekki gerst fyrr. „Aiveg eins og við
fórum að bakka eftir að komast í
1:0 fóru Danirnir að bakka þegar
þeir komust yfir til að reyna að
halda fengnum hlut. Þó svo að við
værum einum manni færri reynd-
um við að kýla boltann eins langt
fram og við gátum og nota stóru
mennina okkar til að skalla áfram
og vinna annan boltann þar og
skapa okkur færi. Eg held að það
sé eðlilegt að þótt lið sé einum
færri þá gerist það yfirleitt að lið
sem eru með nauma forystu bakka
þegar lítið er eftir,“ sagði Rúnar
sem var ekki alveg nógu ánægður
með eigin framgöngu í leiknum.
„Ég er ekkert voðalega sáttur. Við
vorum lítið með boltann í fyrri
hálfleik. Þau skipti sem við unnum
hann vorum við oft pressaðir og
þurftum að losa okkur við boltann.
Við náðum aldrei að taka boltann
niður til að byrja að spila þannig að
ég var lítið með í fyrri hálfleik. í
seinni hálfleik var ég mun meira
með og við reyndum aðeins að spila
meira. Ég er sáttur við seinni hálf-
leikinn en ekki þann fyrri,“ sagði
þessi reynslumikii miðjumaður.
FOLK
ára og Qögurra leikja markaleysi
gegn Dönum þegar hann skoraði fyr-
ir ísland á 12. mínútu. Þetta var
fyrsta mark Islands í 447 leikmínútur
gegn Danmörku, eða síðan Matthías
Hallgrimsson jafnaði metin í Ála-
borg árið 1974. Þá unnu Danir 2:1,
rétt eins og á laugardaginn.
mEYJÓLFUR skoraði sitt 8. mark
fyrir ísland í leiknum og er þar með
kominn í 9.-14. sæti yfir markahæstu
leikmenn íslands frá upphafi. Jafnir
honum eru Atli Eðvaldsson, Sigurð-
ur Grétarsson, Guðmundur Steins-
son, Marteinn Geirsson og Helgi Sig-
urðsson. Þeir eru enn ekki
hálfdrættingar a við markahæsta
landsliðsmann íslands frá upphafi,
Ríkharð Jónsson, sem skoraði 17
mörk.
■ HELGI Sigurðsson og Heiðar
Helguson, tveir af þremur vara-
mönnum Islands, mættu samheijum
sínum í leiknum. I dönsku vöminni
var Rene Henriksen, félagi Helga hjá
Panathinaikos og fimm mínútum á
eftir Heiðari kom inn á annar leik-
maður Watford, Allan Nielsen.
■ VALLARÞULINUM á Laugar-
dalsvelli urðu á skondin mistök þegar
hann kynnti Atla Eðvaldsson, lands-
liðsþjálfara íslands, skömmu áður en
leikurinn hófst Kynnti hann Atla
með þessum orðum: ,Atli Eðvalds-
son, þjálfari KR, nei, þjálfari íslands."
■ ATHYGLI vakti þegar Auðun
Helgason, hægri bakvörður íslenska
landsliðsins, þurfti að yfirgefa leik-
völlinn áður en hálf klukkustund var
liðinn af leik Islands og Danmerkur á
Laugardalsvelli. Astæðan var að
ökkli Auðuns bólgnaði upp eftir að
hafa orðið fyrir höggi í upphafi leiks.
Auðun meiddist á ökklanum á æfingu
með landsliðinu á fimmtudaginn og
var tæpur fyrir leildnn.
Morgunblaðið/Arnaldur
Hermann Hreiðarsson og Rúnar Kristinsson sækja að John Dahl Tomasson, sem er ættaður frá íslandi
og kom mikið við sögu í leiknum.
Eigum að geta
haldið boltan-
um betur
HERMANN Hreiðarsson lék í
stöðu vinstri bakvarðar. Hann
var, líkt og félagar hans, ekki
allskostar sáttur við leik íslenska
liðsins en leikur danska liðsins
kom honum ekki á óvart.
„Þeir hafa ailtaf spilað
skemmtilegan fótbolta, þeir
halda boltanum vel og spila þetta
á jörðinni. Þeir voru kannski
ekkert að skapa sér mikið af fær-
um en við spiluðum ekki nógu
góðan leik. Þetta small ekki hjá
okkur, það er alveg ljóst. Það var
fullmikið bil milli varnar og
miðju og við náðum ekki að halda
boltanum nógu vel. Við vorum
bara að verjast.“
Fannst þér við hefðum þurft að
vera aðeins framar á vellinum?
„Já, það Ieikur enginn vafi á
því. Ég held að við hefðum þurft
að reyna að setja aðeins meiri
pressu á þá til að vinna boltann
oftar. Við vorum voða Iítið með
boltann."
Er erfitt að láta sækja svona
mikið gegn sér, verða menn
þreyttir?
„Við erum nú kannski vanir
því. Það er engin spurning að við
erum með þannig mannskap að
við eigum að geta haldið boltan-
um betur en það bara gekk ekki í
dag.“
Fannst þér of mikil pressa sett
á ykkur fyrir leikinn?
„Nei alís ekki. Við komum bara
mjög vel stemmdir í þennan leik.
Þeim til hróss spiluðu þeir bara
ágætis leik en við getum gert
betur, það er engin spurning,“
sagði Hermann.
ísland ekki
inni í EM-
hugmynd-
um Dana
Knattspymusamband Dan-
merkur hefur farið þess á leit
við Michael Laudrup, aðstoð-
annann Mortens Olsen
landsliðsþjálfara Dana, að
hann verði í forsvari fyrir um-
sókn Norðurlandaþjóðanna
um að halda Evrópumót
landsliða árið 2008. Hug-
myndir Dana ganga út á að
Danmörk, Noregur, Svíþjóð
og Finnland haldi keppnina en
ekkei-t er þar minnst á aðrar
Norðurlandaþjóðir. Laudrup
hefur að sögn danska blaðsins
Berlingske Tidende tekið vel í
þessa umleitan.
,Áður en ég tók við starfi
aðstoðarlandsliðsþjálfara
voru margir sem vildu að ég
yrði eins konar knattspymu-
sendiherra Danmerkur,"
sagði Laudmp, „en mér leist
ekki vel á hugmyndina þá. En
ef slíkt hlutverk af minni hálfu
myndi hjálpa til við að koma
Evrópukeppninni til Dan-
merkur þá vil ég gjaman taka
það að mér.“
Ekki verður tekin ákvörðun
um hvar keppnin verður hald-
in fyrr en eftir þijú ár og er
allur undirbúningur að hugs-
aniégri uffiSÓkn á frumstigi.
Auk umsóknar Norðurland-
anna er talið að tvær aðrar
umsóknir séu í undirbúningi:
annars vegar umsókn Rússa
og hins vegar sameiginleg
umsókn Skotlands, Irlands og
Wales.