Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 B 15»
AKSTURSIÞROTTIR
Morgunblaðið/Gunnlaugur E. Briem
Feðgarnir Rúnar og Jón Ragnarsson gáfu ekkert eftir.
Öruggur akstur hjá
Rúnari og Jóni
ÍSLANDSMEISTARARNIR frá því í fyrra, feðgarnir Rúnar Jónsson
og Jón Ragnarsson á Subaru Impreza innsigluðu sigur sinn i al-
þjóðarallinu á laugardaginn eftir þriggja daga keppni og eru þeir
þar með komnir með aðra höndina á Islandsmeistaratitilinn því
fátt getur komið í veg fyrir titilvörn þeirra. í öðru sæti voru þeir
Baldur Jónsson og Geir Óskar Hjartarson á Subaru Legacy, tæp-
um þremur mínútum á eftir þeim Rúnari og Jóni og í þriðja sæti
urðu þeir Páll Halldór Halldórsson og Jóhannes Jóhannesson á
Mitsubishi Lancer en þeir voru 52 sekúndur frá öðru sæti.
Gunnlaugur
EinarBriem
skrifar
Ifjórða sæti höfnuðu Sigurður
Bragi Guðmundsson og Rögn-
valdur Pálmason á Rover Metro og í
því flmmta urðu
Hjörleifur Hilmars-
son og Páll Kári
Pálsson á Mitsubishi
Lancer en einungis
sjö sekúndur skildu á milli þessara
áhafna eftir 325 kílómetra akstur á
sérleiðum. Steingímur Ingason og
Karl Jóhann Ásgeirsson sigruðu í
flokki bíla með drif á einum öxli.
Nokkuð var um bilanir hjá ökumönn-
um, bæði Baldur og Geir á Legacy og
Páll Halldór og Jóhannes á Lancer
þurftu að gh'ma við vandamál allt
rallið og sökum þess var kannski
hraðinn í rallinu minni en ella ásamt
því að Hjörtur P. Jónsson og Isak
Guðjónsson á Toyota Corolla WRC
voru ekki með í keppninni. Gátu því
Rúnar og Jón ráðið ferðinni og komu
þeir bílnum í mark nánast í sama
ástandi og þegar keppni hófst.
„Þetta var mjög erfið keppni en
jafnframt þægilegt að keyra,“ sagði
Rúnar Jónsson að keppni lokinni.
„Við gátum stjórnað hraðanum á
keppninni út í gegn. Baldur var í smá
erfiðleikum með bílinn á köflum
þannig að við gátum leyft okkur að
stjórna keppninni og hlífðum bílnum
þar sem við átti en tókum á honum á
sumum leiðum. Annars fórum við ör-
uggt og vel í gegnum þetta enda
rallýið langt og nauðsynlegt að hugsa
fram til síðasta dags. Það þýðir ekk-
ert að vera með bílinn hálfslappan
fyrir síðasta daginn þannig að við
þurftum að ákveða fyrir rallýið
hvernig við ætluðum að keyra keppn-
ina út í gegn en spila jafnframt á
stöðuna sem upp kom. Þetta þróað-
ist, kannski ekki fyrir aðra, en fyrir
mig, eins og maður hafði pantað
þetta, þetta var alveg eins og við vild-
um hafa það,“ sagði Rúnar.
Aðstoðarmenn eiga stóran hlut
Sagði Rúnar að án allra viðgerðar-
og aðstoðarmanna hefðu þeir ekki
náð þessum árangri því það liggur
meira á bak við rallý en að aka bíln-
um og sagði hann að þeir ættu hrós
skilið. í keppni sem þessari fylgja
hverjum rallýbíl að minnsta kosti
þrír til fjórir viðgerðarbílar og fjöld-
inn allur af viðgerðarmönnum.
Staðan vænleg
Fátt getur komið í veg fyrii- að
Rúnar og Jón verði íslandsmeistarar
en sá möguleiki er fyrir hendi að
Baldur og Geir sigri í næstu keppni
og Rúnar og Jón heltist úr lestinni.
Þá verða þeir Baldur og Geir
Islandsmeistarar. í sumar hefur það
sýnt sig að allt getur gerst og því
verður næsta keppni, sem er eftir
þrjár vikur, að leiða það í ljós hver
verður íslandsmeistari í ár en eitt er
öruggt að titillinn verður áfram í
vörslu sömu fjölskyldunnar því Bald-
ur er bróðm Rúnars og sonur Jóns.
Baldur og Geir eru til alls líklegir en
þeim gekk ekki sem skyldi í þessari
keppni sökum bilana.
Algjört basl
„Þetta rallý var eitt stórt basl frá a
til ö en það hafðist," sagði Baldur.
„Við rétt komumst í mark í lokin. Það
hefði ekki mátt vera ein sérleið í við-
bót því þá hefðum við ekki náð að
ljúka keppni, þetta rétt slapp. Við
verðum að sætta okkur við þetta sæti
enda var maður búinn að gera það í
gær þótt ég hefði viljað berjast um
fyrsta sætið, en það kemur rallý eftir
þetta rallý,“ sagði Baldur, ánægður
með að hafa lokið keppni því tölvu-
heili bílsins hefur verið að stríða
þeim allt rallið og fór bilunin versn-
andi eftir því sem á rallið leið. Baldur
og Geir gátu fyrir algera tilviljun
fundið út hvað ætti að gera til að heil-
inn myndi vinna eðlilega. Á einni sér-
leiðinni var Geir orðinn svo piiTaður
yfir því að bfllinn komst ekkert áfram
að hann sparkaði á þann stað þar sem
heilinn er í bflnum og þá tók bfllinn
við sér. Var þetta óspart notað það
sem eftir var af keppninni og sagði
Baldur að Geir hefði verið kominn
með krampa í fótinn á síðustu sérleið
eftir að hafa haldið við heilann allan
tímann.
Hálfbremsulaus og án túrbínu
Páll Halldór og Jóhannes urðu fyr-
ir því að bfll þeirra varð hálfbremsu-
laus á öðrum degi og urðu þeir að
reiða sig á frambremsur þar sem aft-
urbremsurnar voru meira og minna
úr sambandi. Töpuðu þeir miklum
tíma sökum þessa. Þeir náðu að gera
við bremsurnar í viðgerðarhléi um
kvöldið og voru þeir staðráðnir í að
ná þeim Baldri og Geir á síðustu sér-
leiðunum. „Við ætluðum að gera
heiðarlega tilraun til að ná Baldri og
það byrjaði vel á fyrstu sérleið á síð-
asta degi og svo á annarri leið um
Kaldadal. Þá ætluðum við að bæta
dálítið í en ókum útaf og töpuðum við
það tíu til fimmtán sekúndum við að
komast inn á veginn aftur. Svo héld-
um við að bfllinn væri í algjöru ólagi
og keyrðum bara rólega það sem eft-
ir var, vorum ekkert að rembast.
Þannig að rallið var búið þá og við
reyndum bara að halda haus en þá
gaf túrbínan sig á næstsíðustu leið
um Kleifarvatn og við kláruðum
Djúpavatnsleiðina á dóli, við áttum
ekki möguleika á öðru sætinu. Það
var gaman að geta lokið keppni úr því
sem komið var en það var ekki ætlun-
in að lenda í þriðja sæti, okkur lang-
aði að vinna - við gerum það næst.
Svo virðist sem flestir ökumenn
séu sáttir við sín úrslit þótt flestir en
Rúnar og Jón hafi ætlað að gera bet-
ur en með tímanum æxlaðist rallið á
þann veg að ökumenn voru ánægðir
að Ijúka keppni eftir svona langt rallý
og voru því ánægðir með sitt sæti,“
sagði Páll. Sigurður Bragi og Rögn-
valdur á Rover Metro hafa ekki ekið
mikið í sumar og voru þeir því seinir í
gang og töpuðu þeir miklum tímum á
fyrstu leiðum en voru ánægðir með
að sigra á síðustu sérleið rallsins um
Djúpavatn og jafnframt þá erfiðustu,
en þeir áttu í hörkubaráttu við þá
Hjörleif og Pál Kára á Mitsubishi
Lancer.
PUNKTAR
■ BRESKU hermennimir luku allir
keppni á Land Rover-jeppum sín-
um en þeir urðu ekki síðastir þar
sem Dali (Öm) ók á Trabant sínum
hálftíma lengur en hermennimir.
Það tók Dala rúmar fimm klukku-
stundir að aka 20 sérleiðir á meðan
Rúnar og Jón óku sömu leið á rétt
undir þremur tímunum.
■ SÁ undarlegi atburður átti sér
stað á sérleið um Tröllháls að einn
af Land Rover-jeppum bresku her-
mannanna staðnæmdist skyndilega
og hljóp bflstjórinn út í vegkant til
að sinna líkamlegum þörfum sín-
um. Þeir töpuðu einni og hálfri mín-
útu á þessu frekar óvænta stoppi.
■ TRABANTINN hans Dala hefur
að minnsta kosti tíu sinnum færri
hestöfl en Subaru Rúnars þar sem
Trabant er 30 hestöfl.
■ ÆVAR Ingólfsson og Ómar
Björnsson sem óku á Toyota Hilux
veltu bifreið sinni á Gunnarsholti
og sökum þess hversu vegurinn er
niðurgrafinn komst enginn fram
hjá þeim og þurftu sjö áhafnir að
velta bflnum við þar sem hann var
skorðaður milli grasbakka.
■ ALLAR sérleiðir voru ræstar á
réttum tíma nema leiðin um Geit-
háls sökum þess að lítill hópur ein-
staklinga gat ekki sýnt þessari
íþrótt þann skilning að loka þyrfti
vegum í stuttan tíma þrátt fyrir að
öll tilskilin leyfi hefðu verið til stað-
ar.
isisport.is
Upptýsingar
tsima 580 2525
Textavarp ÍÚ 110-113
RÚV281, 283 og 284
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
Þrefaldur
vinningur í
næstu viku
Jókertölur vikunnar
4 7 7 4 3
Tívolítölur vikunnar
098812 111185
106400 618852
Næsta ferð verður farín 8. september
OT^ OQ\ Söluland 1.
"y ”/ vinningsins
bónustölur var Danmörk
Alltafá
miövilaidögum
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
vg> mbl.is
_/\LL.TAf= GITTH\SAG NÝTT