Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Brynjar Björn Gunnarsson fékk að sjá reisupassann í Laugardalnum ■ Morgunblaðið/Sverrir Vorum allt of varkárir Ríkharður Daðason átti stóran þátt í marki Eyjólfs Sverris- sonar. Eftir aukaspyrnu Rúnars Kristinssonar inn á Eftir vítateig Dana stökk Guðmund Ríkharður manna Hilmarsson hæst og átti góðan skalla að markinu sem virtist stefna í netið. Peter Schmeichel markvörður Dana gerði vel að verja en Eyjólfur var eins og oft áður réttur maður á réttum stað, náði frákastinu og skor- aði framhjá Schmeichel. „Ég átti nú von á því að ég fengi hressilega á kjammann þama frá Schmeichel þegar markið kom, af því mér fannst boltinn svo innarlega en hann hætti við. Ég náttúrulega horfði ekki á hann en bjóst við því að hann myndi taka mig út en ég varð að vona að ég yrði á undan og við fengum mark uppúr því,“ sagði Rík- harður. Þið náðuð ekki að nýta ykkur þessa óskabyrjun? „Nei, við gerðum það því miður ekki. Það var allt í lagi að vera var- kár í einhverjar mínútur eftir mark- ið og detta til baka en mér fannst við aldrei komast út úr því aftur. Við lágum allt of aftarlega og fyrir vikið gáfum við þeim tíma til að spila sinn leik. Ég hafði það á tilfinningunni að ef við hefðum komið hærra upp völl- inn hefðu Danimir spilað ömggt og langt fram og þar með hefðum við komist inn í leikinn." Voruð þiðþá ekki að spila það sem fyrir ykkur var lagt? „Jú. Við voram að spila 4:4:2 en við féllum í þá gryfju að falla of mikið til baka. Ég get vel skilið strákana í vöminni að þeir skildu bakka. Þeir voru með fljóta og leikna á móti sér en ég hefði viljað sjá okkur sækja meira fram á völlinn. Við gerðum það gegn Svíum með góðum árangri. Það var allt í lagi að fara í leikhléið með 1:1 en síðan fengum við verstu mögulegu byrjun sem hægt var að hugsa sér. Eftir það náðum við ekki að ógna þeim neitt verulega." Hvaða skýringar hefur þú á að lið- ið var ekki að spila betur. Voru of miklar væntingar tilykkar? „Nei, ég held að það sé ekki málið. Danirnir era með mjög gott lið. Þeir era öruggir á boltann og gátu haldið honum lengi innan sinna raða en þegar við unnum svo boltann af þeim ætluðum við kannski að gera allt um leið og reyna of erfíða hluti. Við verð- um að kyngja því að sigur Dana var verðskuldaður. Þeir vora einfaldlega betri og ég óska þeim til hamingju. Hvað okkar lið varðar þá verðum við bara að þjappa okkur saman og læra af þessum leik,“ sagði Ríkharður. Franski dómarinn Stéphane Bre, sem átti dapran leik, er hér búinn að vísa Brynjari Birni Gunn- arssyni, lengst til vinstri, af leikvelli. Pétur Hafliði Marteinsson, Rúnar Kristinsson og Ríkharður Daðason eru ekki sáttir við ákvörðunina. Fullkomlega lögleg tækling BRYNJAR Björn Gunnarsson fékk að líta rauða spjaldið hjá slök- um, frönskum dómara um miðjan síðari háifleik en Brynjar hafði þá betur í návígi við Jon Dahl Tomasson sem lá óvígur eftir. Eg ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar rauða spjaldið fór á loft og þetta var fáranleg ákvörðun hjá dómaranum. Ég fór fram fyrir manninn og tók boltann af honum og það má vera að ég hafi komið við leik- manninn að einhverju leyti. Þetta var fullkomlega lögleg tækl- ing enda tók ég boltann en ekki mann- inn og dómarinn átti ekki einu sinni að flauta aukaspyrnu," sagði Brynjar við Morgunblaðið eftir leikinn. Leikurirm spilaðist ekki eins og þið ætluðuð ykkur? „Við voram að hlaupa mikið og elta og náðum ekki að setja pressu á bolt- ann nógu vel. Eftir markið féllum við alltof aftarlega niður á völlinn með vamarlínuna og með því gerðum við þetta alltof erfitt fyrir okkur.“ Bæði mörkin sem þið fenguð á ykk- ur voru frekar ódýr. Það var grátlegt að fá annað mark á sig og það var mikið heppnismark. Þegar ég var að hreinsa þá skaut ég boltanum í einn sóknarmann þeirra og boltinn fór beint í netið. Fyrra markið sá ég af bekknum. Vörnin opnaðist illa og sóknarmaður Dan- anna fékk nægt rými tii að athafna sig og skjóta." Var þetta ekki í heildina séð sanngjarn sigur Dana? „Það er erfitt að kyngja því að segja að tap sé sanngjörn úrslit en í dag voru þetta sanngjörn úrslit. Við eigum að geta spilað miklu betur og það var mikill munur á þessum leik af okkar hálfu og leiknum gegn Svíum. Það er auðvitað slæmt að tapa fyrsta leik í svona keppni og það á heimavelli en við verðum bara að taka okkur saman í andlitinu fyrir næstu leiki,“ sagði Brynjar. Naumur sigur Tékka TÉKKAR unnu á laugardag nauman sigur, 1:0, á Búlgaríu en bæði þessi lið leika ásamt Islandi í þriðja riðli undankeppni HM. Karel Pborsky skoraði úr víta- spyrnu 17 mínútum fyrir leikslok eftir að hafa verið felldur í víta- teignum af Georgi Markov. Hinir reynslumiklu Tékkar vora betri aðilinn allan leikinn en náðu ekki að koma knettinum í markið ýmist vegna mistaka sóknarmanna fyrir framan mark- ið eða stórkostlegrar markvörslu Zdravko Zdravkovs. Zdravkov varði meðal annars nokkrum sinnum laglega frá hinum himin- háa framherja Tékka, Jan Koll- er. Lið Búlgaríu byrjaði rólega í leiknum og leikmenn virtust smeykir en óx ásmegin er leið á leikinn og fengu tvö ágætis marktækifæri. Stoicho Mladen- ov, þjálfari búlgarska liðsins, sagði liðið enn ungt og þyrfti meiri tíma til að sanna sig. N-írar mörðu sigur Rúmlega 8000 manns fylgdust með leik N-fra og Möltu sem endaði með 1:0 sigri N-íra á laugardag í þriðja riðli HM. Phil Gray sem kom inná sem vara- maður á 61. mínútu skoraði tæp- um tíu mínútum síðar en það var hans fyrsta landsliðsmark eftir tæplega fimm ára bið. George Mallia hefði getað skorað snemma fyrir Möltu en skaut framhjá úr ákjósanlegu færi. N- írar sýndu mikinn baráttuanda strax frá byrjun en náðu ekki að klára þau fjölmörgu marktæki- færi sem þeir fengu. Maltverjar neyddust til að verja einu sinni á línu áður en yf- ir lauk en það var ekki fyrr en á 70. mínútu sem varamaðurinn Gray bjargaði N-írum frá hneykslisjafntefli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.