Morgunblaðið - 05.09.2000, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ 1 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 B 9
KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA
Ekkert
þolinmóðui
Dönum á óv
Morgunblaðið/Ásdís
Óskabyrjun íslendinga dugði ekki gegn Dönum. Tryggvi Guðmundsson, Ríkharður Daðason, Auðun Helgason og Eiður Smári Guðjohnsen fagna markinu sem Eyjólfur Sverrisson
gerði, eftir að Peter Schmeichel varði skalla frá Ríkharði, en náði ekki að halda knettinum.
Dana og þeir Hermann Hreiðarsson
og Helgi Kolviðsson, sem fór af
miðjunni í stöðu hægri bakvarðar
þegar Auðun Helgason fór meiddur
af velli eftir hálftíma, lokuðu vængj-
unum ágætlega. Hermann var hins-
vegar of bráður á sér þegar hann
fékk boltann, ætlaði að gera of mik-
ið sjálfur og var t.d. víðsfjarri þegar
Danir brutust upp hans megin og
skoruðu sigurmarkið. Inni á miðj-
unni skiluðu Rúnar og Helgi
Kolviðsson varnarhlutverkinu vel,
eins Brynjar Bjöm þegar hann
hafði stöðuskipti við Helga þegar
Auðun fór af velli. Gallinn við
Brynjar er hinsvegar sá að hann
fær of margar aukaspymur á sig á
eigin vallarhelmingi og brottrekstur
hans, þó ósanngjarn væri, reyndist
dýrkeyptur. En miðjan var of föst í
varnarhlutverkinu, þó seinni hálf-
leikur væri betri að því leyti, og
vængmennirnir, Tryggvi Guðmun-
dsson og Þórður Guðjónsson, kom-
ust aldrei almennilega inn í leikinn,
sóknarlega séð. Þar með voru Rík-
harður og Eiður Smári einir á báti í
framlínunni, og náðu engri tengingu
við miðjumennina. Ríkharður vann
vel úr þeim háu boltum sem hann
fékk, Danirnir réðu sjaldan við
hann í loftinu öðruvísi en að brjóta á
honum, en sjaldnast var nokkur ís-
lenskur leikmaður í stöðu til að
vinna úr skallasendingum Ríkharðs.
„Annar boltinn" féll í flestum tilvik-
um fyrir fætur Dana. Eiður Smári
náði sér aldrei á strik og lét mótlæt-
ið slá sig út af laginu.
Fleiri íslensku leikmannanna létu
mótlætið fara of mikið í taugarnar á
sér. Fljótlega eftir jöfnunarmark
Dana fóru alltof margir að mótmæla
dómum og sýna önnur merki um
pirring og skort á einbeitingu og yf-
irvegun. Vissulega var franski dóm-
arinn einn sá slakasti sem hingað
hefur komið lengi en reyndh- leik-
menn eins og skipa íslenska liðið að
stórum hluta eiga að vita betur.
Leikskipulag íslands, 4-4-2, gekk
að mestu leyti upp, vamarlega séð.
Leikmennirnir vita nákvæmlega sín
hlutverk þegar mótherjinn er með
boltann og þeir hleyptu Dönum afar
sjaldan í umtalsverð skotfæri, en
lengi vel á laugardaginn var eins og
þeir hefðu litla hugmynd um hvað
ætti að gera þegar þeir fengju bolt-
ann sjálfir, eða þyrðu ekki að fram-
kvæma það. Það verður ekki bætt
með breyttu leikskipulagi - það
verður einungis bætt með öðru hug-
arfari og auknu sjálfstrausti leik-
mannanna sjálfra. Það er verkefnið
sem blasir við Atla Eðvaldssyni fyr-
ir heimsóknina til Tékklands 7.
október.
Liðið slitnaði of
mikið í sundur
ÁSGEIR Sigurvinsson landsliðsnefndarmaður og einn frægasti knatt-
spyrnumaður íslendinga sagði í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn að
þrátt fyrir tapið gegn Dönum mættu menn alls ekki hengja haus.
ér fannst eins og íslenska liðið hafi
aldrei náð takti í þessum leik
þrátt fyrir óskabyrjun. Liðið var að
slitna mikið í sundur og
við bökkuðum heldur
mikið eftir markið sem
við skoruðum. Þegar svo
gerist getur verið erfitt
að tengja saman miðjuna og framlínuna.
Ef við hefðum getað haldið út hálfleik-
Guömundur
Hilmarsson
skrifar
inn með 1:0 forystu hefði leikurinn get-
að þróast öðruvísi en því miður gekk
það ekki og Danirnir skoruðu frekar
ódýr mörk. I fyrsta markinu var færsl-
an ekki nógu góð og Tomasson varð
skyndilega einn á auðum sjó í víta-
teignum og seinna markið kom eftir
slæma þversendingu sem Danirnir
refsuðu okkur illilega með.“
Getur þú verið sammála um að þetta
Enn sigurmöguleiki á NM
ÞRÁTT fyrir ósigurinn gegn Dönum
eru íslendingar áfram í efsta sæti
Norðurlandamótsins og eiga enn sigur-
möguleika. Þar þarf þó að treysta á úr-
slití öðrum leikjum.
ísland er með 10 stig og hefur lokið
sínum leilgum. Finnar eru með 9 og
eiga eftir að mæta Svíum, og dugar
Finnum jafntefli í þeim leik til að verða
Norðurlandameistarar á betri marka-
tölu en ísland.
Svíar eiga einnig sigurmöguleika en
þeir eru með 4 stig eftir 3 leiki. Þeir
eiga eftir að mæta Finnum og Færey-
ingum og þurfa að vinna þá leiki með
____---------------------- +:i nA
fara uppfyrir Island á marakatölu. Ef
þeir vinna báða með einu marki og ná
ekki að skora fimm mörk samanlagt í
þeim, er ísland Norðurlandameistari.
Danir hafa lokið sínum leikjum og
eru með 6 stig, Norðmenn eru með 5 og
eiga eftir að mæta Færeyingum, sem
eru neðstir, án stiga, eftir þijá leiki.
hafi verið slakasti leikur íslenska
landsliðsins í nokkuð langan tíma?
„Að vissu leyti. Við megum ekki
gleyma því að það er tvennt ólíkt
að spila vináttuleiki og leiki í stór-
keppni. Danirnir voru betri aðil-
inn í þessum leik og áttu sigurinn
fyllilega skilinn en eftir þessa
góðu byrjun hefðum við með smá
heppni getað farið með sigur af
hólmi.“
Var búið að byggja of miklar
væntingar til íslenska liðsins fyrir
þennan leik?
„Það eru alltaf of miklar vænt-
ingar gerðar til íslenska landsliðs-
ins. Danirnir eru að koma í þessa
keppni með nýja þjálfara og það
er búið að „mótívera“ þá vel eftir
Evrópukeppnina í sumar þar sem
þeim gekk ekki sem skyldi. Við
vitum það í gegnum árin að Danir
eiga marga góða knattspyrnu-
menn og hafa verið með öflugt
landslið svo við þurfum að detta
niður á mjög góðan dag til að geta
unnið þá. Því miður var þetta ekki
dagurinn okkar í dag,“ sagði Ás-
geir.
EKKI lágu Danir í því frekar en fyrri daginn. Þrátt fyrir óskabyrjun
og 1:0 forystu eftir aðeins 12 mínútna leik mátti ísland þola tap,
1:2, í fyrsta leiknum í undankeppni HM og hefur því enn ekki tek-
ist að sigrast á Dönum í 17 viðureignum þjóðanna. Úrslitin voru
sanngjörn, Danir voru einfaldlega betri aðilinn megnið af leikn-
um og íslenska liðið lék langt undir getu miðað við undanfarna
leiki. Heppnin var þó á bandi Dana þegar þeir skoruðu sigur-
markið, auk þess sem Brynjar Björn Gunnarsson var hafður fyrir
rangri sök 17 mínútum fyrir leikslok og rekinn af velli. Niðurstað-
an er sú að þessi undankeppni HM hefst ekki eins vel og síðasta
Evrópukeppni, og ísland náði ekki að tryggja sér Norður-
landameistaratitilinn, sem hefði verið í höfn með sigri. Og Atli
Eðvaldsson beið sinn fyrsta ósigur sem landsliðsþjálfari íslands
- í sjötta leik.
Það er að sjálfsögðu til mikils
mælst að krefjast þriggja stiga
gegn Dönum þó á heimavelli sé. En
eins og þróun ís-
■■■■■■■ lenska liðsins hefur
Vfðir verið að undanfömu
Sigurðsson var það alls ekki
skrifar óraunhæf krafa fyr-
ir þennan leik að ná að minnsta
kosti einu stigi. Af hverju áttu Dan-
ir frekar að fara með þrjú stig héð-
an en Frakkar og Rússar? Til að
fylgja eftir árangrinum í síðustu
keppni - ná því markmiði sem talað
er um, að færast upp um styrkleika-
flokk, er fyrsta skrefið að tapa ekki
á heimavelli. Sama hver mótheijinn
er. Þessi ósigur setur strax strik í
reikninginn og töpuð stig á heima-
velli þarf að vinna upp á útivelli.
Þar verður ekki ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur í næsta leik,
gegn Tékkum í Prag, og það verður
að segjast eins og er að eins og ís-
lenska liðið spilaði þennan leik er
það ekki líklegt til að blanda sér í
baráttuna um efstu sæti riðilsins.
Fyrsta uppstillta atriðið
skilaði marki
Byrjunin var eins góð og hægt
var að biðja um. Vonir voru bundn-
ar við að uppstillt atriði yrðu Islandi
happadrjúg gegn Dönum vegna
meiri líkamsburða íslensku leik-
mannanna, og það fyrsta skilaði
árangri strax á 12. mínútu. Ríkharð-
ur Daðason, sem vann flest návígi í
loftinu við dönsku leikmennina, átti
hörkuskalla eftir aukaspyrnu og
Eyjólfur fylgdi á eftir og skoraði.
En það var eins og markið hefði
komið of snemma. íslensku leik-
mennimir fóru alltof snemma að
hugsa um að halda fengnum hlut.
Þeir drógu sig of aftarlega, skiluðu
reyndar vamarhlutverkinu mjög vel
með því að loka öllum leiðum fyrir
Danina og hleyptu þeim sjaldan inn
á hættuleg svæði, en hættunni var
boðið heim með því að liggja svona
aftarlega á vellinum. Danir áttu þó
aðeins tvö skot að íslenska markinu
allan fyrri hálfleikinn og skoruðu úr
öðm. Morten Bisgaard sprengdi
upp miðjuna vinstra megin, stórt bil
opnaðist milli miðju og varnar og
Jon Dahl Tomasson nýtti sér hik á
miðvörðunum og skoraði frá víta-
teig. Stærsta vandamálið var að ís-
lenska liðið hélt boltanum illa,
komst aldrei út úr varnarskelinni og
náði sárasjaldan að byggja upp
sóknir og færa sig framar á völlinn.
í stað þess að koma af stað spili -
besta leið til þess hefði verið að
koma Rúnari Kristinssyni inn í leik-
inn - var alltof mikið um langar
sendingar fram völlinn sem þýddu
aðeins eitt; Danir fengu boltann aft-
ur og héldu áfram að pressa að ís-
lenska markinu. Þeir gerðu lítið af
mistökum, misstu boltann sjaldan
og létu stöðuna í leiknum ekki tmfla
sig. Þeir biðu þolinmóðir eftir mark-
tækifæranum og höfðu greinilega
unnið sína heimavinnu vel. Það var
augljóst að ekkert í leik íslenska
liðsins kom þeim á óvart. En þrátt
fyrir að leikurinn þróaðist á þennan
veg átti Island helmingi fleiri mark-
skot í fyrri hálfleik en Danir, eða
fjögur, og Eiður Smári var nálægt
því að koma íslandi í 2:0 á 16. mín-
útu með skemmtilegri tilraun þegar
hann skaut yfir Peter Schmeichel af
40 metra færi, en rétt yfir þver-
slána.
Breyttur taktur en Danir
ekki í vandræðum
Eftir kraftmikla byrjun í síðari
hálfleik þar sem íslenska liðið hafði
fært sig framar á völlinn en áður
kom áfallið. Danir náðu skyndisókn,
komust inn í slæma sendingu á eig-
in vallarhelmingi, óðu upp og Bisga-
ard skoraði þegar hann fékk bolt-
ann í brjóstkassann, 2:1. Reiðarslag
- en íslenska liðið náði sínum besta
leikkafla í kjölfarið. Nú þurfti að
sækja og þá var það hægt. Rúnar
komst í gang, fór að fá boltann á
miðjunni og við það breyttist takt-
urinn í leiknum. En þrátt fyrir
nokkra pressu á köflum náðist
aldrei að skapa dauðafæri. Danir
léku af skynsemi, nú var komið að
þeim að loka öllum leiðum og það
reyndist ekki erfitt gegn frekar
hugmyndasnauðu íslensku liði sem
skorti sjálfstraustið sem geislaði af
því í Svíaleiknum á dögunum. Lang-
skot Rúnars í varnarmann og í horn
og skalli Tryggva beint á
Schmeichel vom einu umtalsverðu
marktilraunirnar. Þegar Brynjar
Bjöm Gunnarsson fékk rauða
spjaldið 17 mínútum fyrir leikslok,
fyrir engar sakir aðrar en þær að
vera á undan Jon Dahl Tomasson í
boltann, var ljóst að vonin um stig
var orðin lítil. Liðið sýndi samt
karakter þegar þarna var komið
sögu, leikmenn börðust sem aldrei
fyrr, tíu gegn ellefu, og náðu að
sækja talsvert að danska markinu á
lokakaflanum. En leikurinn opnað-
ist meira og Danir vora þrívegis ná-
lægt því að bæta við marki undir
lokin, Brian Steen Nielsen komst
næst því á síðustu sekúndunum
þegar hann skaut yfir úr ágætu
færi.
Vörnin var sterkasti
hluti liðsins
Aftasta vörnin var sterkasti hluti
íslenska liðsins og Ámi Gautur Ara-
son lék óaðfinnanlega fyrir aftan
hana. Mörkunum gat hann ekkert
gert við. Eyjólfur Sverrisson og
Pétur Marteinsson lentu sjaldan í
vandræðum gegn fremstu mönnum
ISLAND 1:2 DANMORK\
Leikskipulag: 4-4-2
Árni Gautur Arason jfH
Auðun Helgason
(Brynjar B. Gunnarsson 29.)
Undankeppni HM I knatt-
spyrnu, 1. umferð.
Laugardalsvöllur,
laugardaginn 2. sept., 2000
Leikskipulag: 4-3-3
Peter Schmeichel
Thomas Helveg
m
Rene Henriksen
Pétur Marteinsson m Vestan gola, sól, 14 stiga Thomas Gravesen
Eyjólfur Sverrisson m hiti. Völlurinn þokkalegur. Áhorfendur: 7.072 (uppselt) Jan Heintze mm
Hermann Hreiðarsson Þórður Guðjónsson (Helgi Sigurðsson 70.) Helgi Kolviðsson Rúnar Kristinsson Bjarne Goldbæk (Allan Nielsen 75.) Jon Dahl Tomasson Brian Steen Nielsen Dennis Rommedahl
m Dómari: Stéphane Bre, Frakklandi, 2. Aðstoðardómarar: Lionelle Dagorne og Jacques Mas m mm m
Tryggvi Guðmundsson (Jan Michaelsen 81.)
(Heiðar Helguson 70.) Skot á mark: 7 - 7 Ebbe Sand
Eiður Smári Guðjohnsen Hornspyrnur: 2 - 3 Morten Bisgaard m
RíkharðurDaðason m Rangstöður: 2 - 4 (Claus Jensen 70.)
1:0 (12.) Rúnar Kristinsson tók aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Dana,
vinstra megin. Hann sendi háa sendingu inn í vítateiginn þar sem
Ríkharður Daðason stökk hæst og átti hörkuskalla niður í markhornið
hægra megin. Peter Schmeichel gerði vel að verja, sló boltann í
stöng, en Eyjólfur Sverrisson var fyrstur að átta sig og skoraði af
stuttu færi.
1:1 (26.) Morten Bisgaard stakk sér skemmtilega á milli íslensku miðju-
mannanna vinstra megin og sendi á Jon Dahl Tomasson sem skaut
strax óverjandi skoti frá miðri vítateigslínu, neðst í hægra hornið.
1:2 (48.) Eftir misheppnaða sendingu íslendinga á vallarhelmingi Dana kom
snögg skyndisókn. Dennis Rommedahl óð upp hægri kantinn og
inn í vítateig þar sem hann skaut hörkuskoti. Arni Gautur Arason
varði vel, boltinn barst út í miðjan vítateig þar sem Brynjar Björn
Gunnarsson ætlaði að hreinsa frá en skaut boltanum beint í
brjóstkassann á Morten Bisgaard og þaðan þeyttist hann I netið.
Gul spjöld: Tryggvi Guðmundsson, ísiandi, (49.) fyrir brot.
Jon Dahl Tomasson, Danmörku, (54.) fyrir brot.
Brian Steen Nielsen, Danmörku, (62.) fyrir brot.
Peter Schmeichel, Danmörku, (79.) fyrirtafír.
Claus Jensen, Danmörku (90.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Brynjar Björn Gunnarsson, íslandi (73.) fyrir “brot”.
1
A
Metáhorf hjá
TV Danmarkl
Það var lengi óljóst hvort danska sjónvarpsstöðin TV Dan-
markl fengi leyfi til að sýna beint frá Laugardalsvellinum.
Aðeins 55% af dönsku þjóðinni nær útsendingum stöðvarinnar
og stangaðist það á við reglugerðir um sjónvarpsútendingar
frá stórmótum í knattspyrnu. Þrátt fyrir það var um hálf
milljón Dana fyrir framan sjónvarpstækin á laugardagskvöld
og fylgdust þar með landsleik íslendinga og Dana.
Eyjólfur Sverrisson, fyrirliði íslands
Ekki dóm-
aranum
að kenna
EYJÓLFUR Sverrisson, fyrirliði íslenska liðsins, var dapur eftir
leikinn gegn Dönum. Leikurinn sem gaf lof um svo mikið endaði
með sömu vonbrigðum og síðustu leikir íslands gegn Dönum.
Eyjólfur gaf þó svo sannarlega tóninn er hann skoraði af miklu
harðfyigi strax á 12. mínútu eftir góðan undirbúning Rúnars
Kristinssonar og Ríkharðar Daðasonar.
Þegar Eyjólfur var spurður
hvernig tilfinning hafi verið að
skora hjá Peter Schmeichelk, svar-
aði hann: „Hún var
EWr bara góð, sérstak-
IrísiBjörk lega þar sem við
Eysteinsdóttur komumst yfir og
ætluðum að halda
því. Hún var bara eins og hvert ann-
að mark, ekkert öðravísi."
Fannst þér varnarleikur ísienska
liðsins ganga upp?
„Ekki í heildina. Það vora kaflar
hjá okkur sem vora góðir. í fyrri
hálfleik voram við of aftarlega og
náðum ekki að halda öllu liðinu sam-
an nógu vel og það var of mikill laus-
leiki á liðinu. I seinni hálfleik ætluð-
um við svo að fara framar og voram
kannski of bráðir í byrjun og þeir
fengu þetta heppnismark þegar við
hreinsuðum í brjóstkassann á Denn-
is Rommedahl og inn í markið. Það
var náttúrlega gríðarlega svekkj-
andi. Eftir það settum við að vísu
pressu á þá og reyndum hvað við
gátum að jafna metin en höfðum
kannski ekki heppnina með okkur.“
Hvað gerðist í vöninni þegar ís-
land fékk fyrra markið á sig?
„Þetta var bara skot af 20 metra
færi og við voram bara ekki nógu
fljótir að fara í Jon Dahl. Mörkin
gerast yfírleitt þegar einhver mis-
tök eiga sér stað.“
Þar sem þú ert fyrirliði liðsins,
fannst þér réttilegt að Brynjar
skyldi hljóta rauða spjaldið?
„Nei, mér finnst náttúrlega aldrei
rautt spjald hjá mínum leikmönnum
sanngjarnt. Dómarinn dæmir leik-
inn og hann sér þetta kannski á sín-
um nótum og það er ekkert hægt að
breyta því enda hef ég aldrei vanið
mig á að kenna dómuram um þegar
ég tapa leik. Ég tjái mig aldrei um
dómarann, en ef ég ætti að gefa hon-
um einkunn fannst mér hann ekkert
góður en það er ekki útaf því sem
við töpuðum þessum leik. Hann átti
engan stórleik, en ekki við heldur."
Hvernig fannst þér þú koma út úr
þessum leikpersónulega?
„Ég er bara svekktur yfir því að
hafa tapað þessum leik og þá hefur
ekki gengið upp það sem maður ætl-
aði sér og þá er maður ekki ánægð-
ur með leikinn,“ sagði Eyjólfur.
Erfiðara að leika í
Reykjavík en Prag
Morten Olsen, landsliðsþjálfari
danska liðsins, var ánægður
með stigin þrjú sem liðið innbyrti á
íslandi. Olsen sagði jafnframt að
danska liðið hafi aðeins sýnt þriðj-
ung af eðlilegri getu í leiknum og að
leikurinn gegn Islandi væri erfiðara
verkefni en að mæta Tékkum á úti-
velli.
„íslendingar hafa náð hagstæð-
um úrslitum gegn sterkari þjóðum
en okkur hér í Reykjavík og ég er
sáttur við úrslit leiksins," sagði 01-
sen á blaðamannafundi eftir leikinn.
„Við sýndum styrk að jafna leik-
inn með góðu marki frá Tomasson
en ég er ekki ánægður með leik liðs-
ins í seinni hálfleik. Við hefðum get-
að tekið af skarið og framkvæmt
meira í sóknarleik okkar. Að mínu
mati er það erfiðara verkefni fyrir
okkur að leika hér í Reykjavík en
gegn Tékkum á útivelli. Islenska
liðið hefur náð góðum úrslitum á
sínum heimavelli og eftir að þeir
komust yfir gegn okkur var allt út-
lit fyrir að okkur gengi erfiðlega að
jafna leikinn. Danska liðið stjórnaði
leiknum að mestu og það var hluti
af okkar undirbúningi fyrir leikinn
að við ætluðum okkur að vera þolin-
móðir og nýta marktækifærin okk-
ar vel. Samt sem áður vorum við
ekki nógu ákveðnir eftir að íslenska
leikmanninum var vísað af velli og
það er hlutur sem við getum ekki
sætt okkur við. Liðið átti að geta
sótt mun meira einum fleiri og það
vantaði meiri hraðabreytingar á
hlaup leikmanna með og án bolta.
íslenska liðið skapaði ákveðna
hættu á lokakafla leiksins er þeir
fengu horn og aukaspyrnur en það
er helsti styrkur þeirra og ég veit
að íslenska liðið á eftir að ná góðum
úrslitum á heimavelli. Það er gott
veganesti að við náum hagstæðum
úrslitum í fyrsta leik okkar í undan-
keppni HM en við getum gert mun
betur,“ sagði Olsen.