Morgunblaðið - 05.09.2000, Side 12

Morgunblaðið - 05.09.2000, Side 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Batahorfur góð- ar hja Hauki Inga HAUKUR Ingi Guðnason, knatt- spyrnumaður, sem meiddist illa á læri í leik með KR-ingum gegn Grindvíkingum á dögun- um verður að hvfla næstu 5-7 vikurnar. „Læknarnir voru nokkuð ánægðir með batann hjá mér og batahorfurnar eru góðar. Það er búið að leysast nokkuð vel Ur blóðpokunum og kekkjunum en vöðvinn er rifinn á nokkrum stöðum. Ég var auðvitað hrædd- ur um að ég þyrfti að gangast undir aðgerð en sem betur fer þarf ég þess ekki. Nú tekur við að byggja vöðvann upp og passa að fara ekki of fljótt af stað,“ sagði Haukur Ingi við Morgun- blaðið í gær en hann var þá nýkominn Ur læknisskoðun. Haukur Ingi á eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool en leigusamningur KR við Liverpool lýkur þann 24. sept- ember. „Ég spila eðlilega ekki meira með KR f sumar þannig að ég fer líklega bráðum að koma mér út til Englands. Ég á að vísu eftir að ræða við KR og Liverpool um þau mál,“ sagði Haukur Ingi. Helgi fer aftur til Peterborough Helgi Valur Daníelsson knatt- spymumaður, sem svo sannar- lega hefur slegið í gegn með Fylkis- mönnum í sumar fær ekkert frí þegar tímabilinu hér heima lýkur í haust. Helgi hefur verið á leigusamningi hjá Fylki í sumar, en hann er samn- ingsbundinn enska 2. deildarliðinu Peterborough og skrifaði í vor undir nýjan þriggja ára samning við félag- ið. Helgi mun því halda til Englands um leið og Fylkismenn hafa lokið tímabilinu. „Ég mun auðvitað reyna að kom- ast í liðið hjá Peterborough en ég veit að það verður ekki létt þar sem tíma- bihð er byrjað á Englandi. Ég veit svo ekki alveg hvar ég stend gagn- vart liðinu. Fyrst félagið leyfði mér að spila hér heima í allt sumar þá seg- ir það manni að ég er kannski alveg inni í myndinni hjá knattspymustjór- anum. Ég á þrjú ár eftir af samning- num en ég neita því ekki að ég hef áhuga á að skoða eitthvað annað,“ sagði Helgi Valur við Morgunblaðið þar sem hann var staddur á Flughót- elinu í Keflavík ásamt félögum sínum í U-21 árs landsliðinu sem mætir Dönum í Kaplakrika á morgun. Morgunblaðið/Asdís Stúlkurnar í Breiðablik fögnuðu meistaratitlinum vel og innilega í Garðabæ, eftir sigurinn á Stjörnunni. Guðmundur Hilmarsson skrifar < JÖRUNDUR Áki Sveinsson, þjálfari Breiðabliks, var í sjöunda himni þegar Morgun- blaðið náði tali af honum skömmu eftir að Blikar höfðu tryggt sér íslandsmeistaratitil- inn. „Ég er geysilegar stoltur af mínum stelpum og þær eiga þennan titil svo sannarlega skilinn. Ég vissi það að þetta yrði mjög erfitt tímabil. Við áttum erfiða leiki snemma í fyrri umferðinni. Þegar við töpuðum fyrir KR vor- um við staðráðin í að vinna hvern einasta leik sem eftir var og við yrðum að gera það til þess að vera í þessari stöðu í dag. Það tókst næstum því. Við gerðum jafntefli gegn ÍBV í Eyjum en frá því við unn- um KR í vesturbænum var þetta komið í okkar hendur. Það var lykil- inn að þessum titli og eftir þann sigur þurftum við ekki að stóla á nein önn- ur lið heldur en okkur sjálf,“ sagði JörundurÁki. Var ekkert erfítt að undirbúa stelpumar fyrir þennan leik? ,ÁlIs ekki. Ég sem gamall Stjömu- maður vissi að þetta yrði mjög erfíð- . ur leikur. Stjarnan fékk skell í síð- asta heimaleik sínum og liðið ætlaði ekki að láta það gerast aftur. Við fengum hetjulega mótspyrau frá Stjömustelpunum og þurftum virki- lega að hafa fyrir þessum sigri. Við lögðum upp með það að reyna að koma marki á þær sem fyrst. Það tókst og auðvitað létti það pressunni > af stelpunum.“ Stoltur af stelpunum Petta er búið að skemmtilegt Is- kindsmót? „Deildin er búin að vera mjög skemmtileg. Hún var virkilega spennandi og gaman að sjá að breiddin er að aukast í kvennaboltan- um. Það er gaman þegar mótið er að ráðast í síðustu umferðinni og ég er bjartsýnn fyrir hönd kvennaknatt- spyraunnar hér á landi.“ Hvað tekur við hjá þér eftir tíma- bilið? „Tímabilið er ekki alveg búið. Við eigum eftir stórleik gegn KR í úr- slitaleik bikarkeppninnar og að sjálf- sögðu stefnum við að sigri í þeim leik. Ég er ennþá starfandi hjá Breiða- bliki. Samningur minn við félagið er að renna út svo skoða ég bara stöð- una þegar tímabilið er búið,“ sagði Jörundur. Þakka þetta mikilli breidd Margrét Ólafsdóttir hefur verið lykilleikmaður í liði Breiðabliks mörg undanfarin ár en hún er einn fárra leikmanna í liðinu sem varð meistari síðast með liðinu fyrir þremur árum. „Það var tími til kominn að ná bik- amum aftur í Kópavoginn. Ég þakka þennan titil þeirri miklu breidd sem er hjá okkur. Þó svo að við höfum misst þrjár stelpur til útlanda fyrir skömmu kom bara maður í manns stað. Það var svolítið stress í okkur fyrir þennan leik en það var mikill léttir að ná að skora í byrjun leiksins. Eftir það var þetta eiginlega aldrei í hættu. Ég mundi segja að við höfum stigið stórt skref í átt að þessum titli þegar við unnum KR i vesturbænum og við lögðum þann leik upp sem úr- slitaleik mótsins. Nú er þetta að baki og næsta verkefni er bikarúrslita- leikurinn gegn KR. Þar ætlum við að undirstika hvaða lið er best á land- inu,“ sagði Margrét Ólafsdóttir. Fyrsti titillinn „Ég er alveg í skýjunum, enda er þetta í fyrsta skipti sem ég verð ís- landsmeistari. Þetta var erfiður leik- ur. Stjörnustelpurnar börðust vel og gáfu okkúr aldrei írið. Ég þakka þennan titil góðri liðsheild. Við höf- um náð mjög vel saman í sumar og höfum uppskorið eftir því. Það var auðvitað gaman að skora markið sem réð úrslitunum. Það kom mér á óvart að boltihn skyldi fara inn en að sama skapi var það mjög ánægjulegt," sagði hinn skæða Rakel Ögmunds- dóttir sem skoraði sigurmarkið með glæsilegu skoti. í fagnaðarlátunum sýndi Rakel bol undir keppnistreyj- unni sem á stóð „I love Jesus“. Lét plata mig Sigfríður Sophusdóttir stóð á milli stanganna í marki Breiðabliks þrjár síðustu umferðimar en hún var köll- uð til leiks þegar Þóra B. Helgadóttir hélt til Bandaríkjanna. Sigfríður lagði skóna á hilluna fyrir tveimur ár- um en hún var í sigursælu liði Blika áður en KR-ingar tóku við hlutverki Breiðabliks sem besta lið landsins. „Ég var búin að leggja skóna á hill- una fyrir tveimur árum og ég ætlaði aldrei að koma aftur í boltann. Ein- hverra hluta vegna lét ég plata mig en auðvitað er gaman að bæta einum íslandsmeistaratitli í safnið. Þetta átti reyndar ekki að vera nema einn leikur en nú eru þeir orðnir þrír og verða kannski fleiri. Ég hef varla hreyft mig í þijú ár og auðvitað er ég svolítið ryðguð. Ég hef hins vegar ekki miklar áhyggjur því ég er með öflugan vamarmúr fyrir framan mig. Síðasti deildarleikur Sigrúnar SIGRIJN Óttarsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, lék sinn sfðasta deildarleik fyrir Breiðablik þeg- ar liðið tryggði sér íslan- dsmeistaratitilinn með því að sigra Stjörnuna, 1:0. Sigrún hef- ur verið fyrirliði Breiðabliks all- ar götur síðan 1991 en þetta var sjötti íslandsmeistaratitill henn- ar með félaginu en hún varð fs- landsmeistari, 1991, 1992, 1994, 1995, 1996 og 2000. Sigrún lýkur svo ferlinum þegar hún leiðir Iið sitt til Ieiks í úrslitaleik bikarkeppninnar en Breiðablik og KR eigast við í úr- slitaieik 17. september nk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.