Morgunblaðið - 28.09.2000, Qupperneq 4
4 B FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
oqp
MORGUNBLAÐIÐ
Freeman vann 100. gullið
GULLVERÐLAUN Cathy
Freeman í 400 m hlaupi kvenna
á mánudagskvöldið voru þau
100. sem Astralar vinna á Ól-
ympíuleikum og um leið þau
fyrstu sem þeir vinna í frjáls-
íþróttakeppni á Ólympíuleikum
síðan Debbie Flintoff-King sigr-
aði í 400 m grindahlaupi á Ól-
ympíuleikunum í Seoul 1988.
Fyrir sigurinn var Freeman
mikil hetja í augum landa sinn
en við sigurinn hefur dýrkun
þjóðar hennar aukist til muna
og nánast er talað um hana sem
dýrling.
Morgunblaðið/Sverrir
Þjóðverjinn Nils Schumann fagnaði óvænt sigri í 800 m hlaupi
í Sydney í gær.
Schumann
kom, sá
og sigraði
EiN óvæntustu úrslitin í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í
Sydney urðu í 800 metra hlaupi karla þar sem Nils Schumann, 22
ára gamall Þjóðverji, kom, sá og sigraði. Schumann, sem er
Evrópumeistari bæði innan- og utanhúss, skaut heimsmethafanum
Wilson Kipketer frá Danmörku aftur fyrir sig en Wilson hefur verið
nær ósigrandi í þessari grein á undanförnum árum og var spáð
ólympíugullinu.
Schumann átti frábært hlaup og
kom í mark á 1:45,08 mínút-
um en Kipketer, þrefaldur heims-
meistari í greininni, urðu á tækni-
leg mistök. Hann missti fremstu
menn of langt á undan sér og þó
svo að hann ætti góðan endasprett
tókst honum ekki að komast fram-
úr Þjóðverjanum sem var að
keppa á sínum fyrstu Ólympíuleik-
um.
Æfingarnar skiluðu sér
„Eg var að gæla við bronsið eða
silfrið en síðan stend ég uppi með
gull í höndunum. Þetta er ólýsan-
leg tilfinning og ég er í skýjunum.
Ég hef lagt hart að mér á æfingum
síðustu sex til sjö vikurnar og þær
æfingar hafa greinilega skilað
sér,“ sagði Schumann í sigurvímu
eftir hlaupið.
Mikil vonbrigði
hjá Kipketer
Úrslitin urðu Kipketer mikil
vonbrigði. Hann fékk ekki að
keppa á Ólympíuleikunum í
Atlanta fyrir fjórum árum þar sem
yfirvöld í Kenýa neituðu að skrifa
undir pappíra varðandi breytt rík-
isfang en Kipketer er með dansk-
an ríkisborgararétt. Kipketer átti
ólympíuOmeistaratitilinn í 800
metra hlaupinu í Atlanta vísan og
til að undirstrika getu sína bætti
hann 16 ára gamalt heimsmet Seb-
astians Coe í tvígang ári eftir leik-
ana. Kipketer lenti í mjög alvar-
legum veikindum fyrir tveimur
árum. Hann fékk malaríu og það
tók hann langan tíma að ná fyrri
styrk. Kipketer hefur átt góðu
gengi að fagna á þessu ári og nán-
ast hver einasti maður hafði spáði
honum ólympíumeistaratitlinum í
Sydney.
Nils
Schumann
Þýskalandi
Ólympíumeistari í 800 metra
hlaupi karla.
Fæddur: 20. maí 1978 í Bad
Frankenhausen í Þýskalandi.
Helstu afrek: Varð Evrópu-
meistari unglinga árið 1997.
■ Ári síðar varð hann Evrópu-
meistari bæði innan- og utan-
húss í karlaflokki.
■ Vann sigur í heimsbikar-
keppninni árið 1998 og hafnaði í
8. sæti á heimsmeistaramótinu
árið 1999.
Jón Arnar Magnússon tugþrautarmað-
ur segir að svo kunni að fara að hann
hætti keppni eftir vonbrigðin í Sydney
„VONBRIGÐIN eru gífurleg yfir að geta ekki lokið keppni. Allt mitt
starf síðastliðin fjögur ár hefur miðast að því að vera tilbúinn í slag-
inn hér,“ sagði Jón Arnar Magnússon tugþrautarmaður eftir að
hann hætti keppni eftir þriðju grein tugþrautarinnar, kúluvarp, eftir
að meiðsli í aftanverðu vinstra læri gerðu vart við sig í annarri um-
ferð langstökksins, en það var næsta grein á undan kúluvarpinu.
„Einnig er þetta hroðalegt áfall þar sem ég hef aldrei verið í betri
æfingu en um þessar mundir og mig langaði svo sannarlega til þess
að kýla á þetta núna. Þeim mun sorglegra er að svona smámeiðsli
slá mann út af laginu. Orð fá vart lýst vonbrigðum mínum nú og Ijóst
að ég verð talsverðan tíma að jafna mig á þessu áfalli,“ sagði Jón
Arnar ennfremur er Morgunblaðið hitti hann og greiniiegt var að
hann var talsvert sleginn út af laginu.
Jón sagðist ekki vita fyrir víst
hvaða áhrif þetta hefði á fram-
haldið hjá sér sem íþróttamanni. Allir
þeir samningar sem
jvgr hann gerði, bæði við
Benediktsson íyrirtæki á Sauðár-
skrifar króki, sveitarfélagið
frá Sydney 0g Aireksmannasjóð
ÍSÍ renna út nú í kjölfar leikanna.
Alls óvíst er hvað tekur við. „Nú þarf
ég bara að setjast niður og skoða
minn gang, athuga hvort maður vilji
standa í þessu áfram eður ei. Ég hafði
sagt áður að mig langaði til þess að
halda áfram að minnsta kosti í eitt ár
til viðbótar og vissulega get ég ekki
afskrifað þann möguleika. En ég held
að eftir þetta sem á undan er gengið
sé best að ég taki mér einhvern tíma
til þess að setja stöðuna niður fyrir
mér áður en ég slæ nokkru fostu.“
Jón segir að það taki virkilega á
sálarlífið að vera í sífelldri baráttu við
meiðsli þar sem eitt rekur annað. „í
byrjun þessa árs var ég að vona að
þessum meiðslakafla væri lokið, en
svo hefur ekki verið. í júlí tognaði
sinin í annarri ilinni og þá fór ég að
beita mér á annan hátt þannig að ég
fékk „smáskot“ í aftanverðan lær-
vöðvann. Þau virtust hins vegar vera
búin að jafna sig, að minnsta kosti
hafði ég ekkert fundið fyrir þeim síð-
ustu vikur, enda eru meiðslin nú ekki
á sama stað í lærinu.
Ég skil ekki af hverju þetta kemur
upp núna. Síðustu vikur hafa gengið
mjög vel. Viðbragðsæfmgar hafa ver-
ið mjög góðar og á æfingum hef ég
verið að jafna það sem ég á best í há-
markshraða í sprettum, þannig að ég
var heill.
í fyrstu grein þrautarinnar, 100
metra hlaupi, fann ég ekki fyrir
neinu, fannst það frekar auðvelt.
Þegar kom að öðru stökkinu í lang-
stökki fann ég strax fyrir sárum verk
í aftanverðu lærinu í aðhlaupinu."
Hvað veldur þessum ítrekuðu
meiðslum hér og þar?
„Ætli að það sé ekki aldurinn, ég er
nýkominn yfir þrítugt,“ segir Jón og
brosir, en Jón er 31 árs. „Að öllu
gamni slepptu, það bara hreinlega
veit ég ekki. Þangað til í fyrra hafði
ég sloppið mjög vel við öll meiðsli, en
síðan hefur alltaf eitthvað komið upp
á. Þess vegna er nauðsynlegt að setj-
ast aðeins niður og hugsa sinn gang
og ræða stöðuna við þá sem næstir
mér standa. Ég verð sennilega að
fara í allsherjar „klössun" ef ég ætla
mér að keppa áfram. Þetta er svo
sannarlega langt frá því að vera gam-
an,“ segir Jón og leggur áherslu á orð
sín.
Pessi endalausu meiðsli og það að
geta ítrekað ekki lokið keppni hlýtur
einnigað koma við sjálfstraustið?
„Það gerir það svo sannarlega. Nú
langar mig helst að komast heim
strax í dag, ekki vera héma og gera
ekki neitt. Það hefur langur tími farið
í undirbúning hér ytra og það kemur
ekkert út úr honum og það sem meira
er, maður getur ekkert gert við því.
Það þýðir ekkert annað en taka líf-
inu með ró, draga andann djúpt og
horfa síðan bara á björtu hhðarnar
því þetta á jú að vera leikur.“
ívinnufrá
níu til fimm
En þetta eratvinna þín ogafhenni
hefurþú lifibrauð, ekki satt?
„Satt er það og þegar það bregst
þá verða launin ekki þau sömu og
þegar vel gengur, en það þýðir ekkert
að hugsa um það á þessari stundu.“
Eru ekki lausir flestir styrktar-
samningar þínir frá og með þessum
leikum?
„Jú, þeir eru allir lausir núna.“
Pú stendur þá á krossgötum á ferl-
inum?
„Það geri ég svo sannarlega. Ég
geri frekar ráð fyrir því að fara að
vinna hefðbundna vinnu frá níu til
fimm fljótlega eftir að heim verður
komið. Það verður síðan að koma í
Morgunblaðið/Sverrir
Ijós hvort einhverjir vilji eitthvað
með mig hafa áfram, hvort þeir aðilar
finnist sem áhuga hafa.“
Værir þú til í að halda eitthvað
áfram?
„Ég hef mikinn áhuga á að halda
áfram, að minnsta kosti eitt ár til við-
bótar en þá er heimsmeistaramót. Ég
er í gríðarlega góðri æfingu þrátt fyr-
ir allt, þeirri bestu á ferlinum. Þannig
að ef maður nær sér heilum þannig að
ekkert er að þá langar mig að taka