Morgunblaðið - 28.09.2000, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
—^ QQP
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000 B 9
Athyglis-
verðar
breytingar
á reglum
HELSTU breytingar á leik-
reglum körfuknattleiksins
eru styttri tími á skotklukku
og breyttur leiktími. í stað 30
sekúndna skotklukku verður
nú leikið með 24 sekúndna
skotklukku og má búast við
auknum hraða í sóknarað-
gerðum liðanna í kjölfar
breytingarinnar. Vekja má
athygli á því að skotklukkan
er ekki endumýjuð fyrr en
knöttur snertir körfuhring.
Ef skotklukkan rennur út eft-
ir að knöttur hefur yfirgefið
hönd leikmannsins sem skýt-
ur að körfu eiga ddmarar
leiksins tvo möguleika; ef
boltinn fer ofan í er karfan
dæmd gild en ef boltinn fer
ekki ofan í körfuna er það
leikbrot og vamarliðið á bolt-
ann. Leiktíminn verður nú
4x10 mínútur sem er sami
leiktúni og áður en verður
leikinn f 4 leikhlutum og 15
mínútna hálfleikur verður á
milli 2. og 3. leikhluta. Liðin
hafa nú 8 sekúndur til að
koma knettinum af vamar-
helmingi slnum og yfir á
sdknarhelming (yfír miðju) og
knötturinn verður að snerta
leikmami á söknarhelming
eða gdlfið á sdknarhelming á
skemmri tíma en 8 sekúndum.
Ef dæmd er tæknivilla á leik-
mann fá andstæðingarnir eitt
vítaskot í stað tveggja áður
og að vítaskotinu loknu er
tekið innkast við miðlínu.
Glæsilegur
endasprettur
OLGA Shisigina frá Kazakhst-
an vann frekar óvæntan sigur í
100 metra grindahlaupi
kvenna. Hún átti glæsifegan
endaprett og skaust fram úr
Glory Alozie frá Nígeríu á sið-
asta metranum en fyrirfram
var Alozie talinn sigurstrang-
leg í hlaupinu.
Shisigina, sem varð fyrsta konan
frá Asíu til að vinna heims-
meistaratitil í frjálsum íþróttum,
fagnaði gríðarlega
enda hefur hún
mátt þola ýmis-
legt á keppnisferli
sínum. Fyrir fjórum árum var hún
fundin sek um að hafa neytt ólög-
legra lyfja og var dæmd í tveggja
ára keppnisbann. Hún lét þetta ekki
slá sig út af laginu og mætti sterk til
leiks eftir bannið. Á síðasta ári
tryggði hún sér heimsmeistaratitil-
inn innanhúss og að vinna til verð-
launa á Ólympíuleikunum var eitt-
hvað sem hún stefndi að.
100 M GRINDAHLAUP KVENNA
Shishigina
Kazakhstan
Ólympíumeistari í 100
metra grindahlaupi
kvenna.
Fædd: 23. desember
1968 í Kazahkstan. Gift
og á tveggja ára son.
Helstu afrek: Varð í öðru
sæti á heimsmeistara-
mótinu árið 1995. Vann
heimsmeistaratitilinn
innanhúss árið 1999 og
varð fjórða á heims-
meistaramótinu utan-
húss. Hefur tvívegis orð-
ið Asíumeistari, 1994 og
1998.
■ Var dæmt í tveggja
ára keppnisbann árið
1996 þegar hún féll á
lyfjaprófi og var svipt
tveimur Asíumetum.
-
m
m
Unnustinn lést I bíislysi
Alozie, sem varð í öðru sæti á
heimsmeistaramótinu á síðasta ári,
virtist á góðri leið með að tryggja
sér gullið en hún hugði ekki að sér
og missti Shisiginu fram úr sér á
síðustu stundu. Á tímabili var ekki
víst hvort Alozie yrði með á Ólymp-
íuleikunum en skömmu áður en leik-
arnir hófust lést unnusti hennar í
bílslysi í Sydney. Þetta hörmulega
slys setti óneitanlega strik í reikn-
AP
Olga Shishigina hljóp sigurhring með þjóðfána sinn eftir 100 m grindahlaupið.
inginn hjá þessari frábæru hlaupa-
konu og sjálfsagt hefur það haft
áhrif á hana í úrslitahlaupinu.
„Þessi verðlaun eru mér mjög
mikilvæg. Ég hugsaði um að hætta
við að keppa en Guð hvatti mig til að
vera með. Vinir mínir hafa hjálpað
mér mikið í þessum erfiðleikum og
það hefur verið ómetanlegt,“ sagði
Alozie.
Bandaríska stúlkan Gail Devers
var talin eiga möguleika á að blanda
sér í baráttuna um gullið en henni
mistókst að tryggja sér sæti í úr-
slitahlaupinu. Devers, sem varð Ól-
ympíumeistari i 100 metra hlaupi í
Barcelona árið 1992 og í Atlanta
fjórum árum síðar, varð fyrir
meiðslum á gullmóti í Brussel í síð-
asta mánuði og þar með gat hún
ekki beitt sér að fullu í Sydney. „Eg
hélt að þetta yrði allt í lagi en þegar
ég hljóp upp úr startblokkinni fann
ég að eitthvað gerðist. Ég fann mik-
ið til þegar ég fór yfir fyrstu grind-
ina og sá verkur varð meiri þegar á
hlaupið leið,“ sagði Devers eftir
undanúrslitahlaupið en hún féll á
síðustu grindina og þar með var
draumur hennar úti.
KR 2. sæti
„Meistaramir verða sterkir í vetur
með tilkomu Hermanns Haukssonar
og Amar Kárason og Jón Amór Stef-
ánsson verða með frá upphafi móts, -
allt frábærir leikmenn. Það sem er
mest spennandi við KR er hvemig
þeim tekst að leysa brotthvarf Dan-
ans, Jespers Sörensens, en hann
stýrði liðinu af mikilli festu í fyrra.
Keith Vassel mun vera á leið til KR
en ekki víst hvenær hann kemur og
með Ólaf Ormsson, Jonathan Bow,
Steinar Kaldal og alla ungu strákana
held ég að KR verði í úrslitum á flest-
um vígstöðum gegn Keflavík.
Njarðvík 1. sæti
„Brenton Birmingham er kominn
„heim“ til Njarðvíkur og danskur
miðherji á að taka við hlutverki Frið-
riks Stefánssonar. Það sem er
stærsta spumingarmerkið er tvöfalt
hlutverk Friðriks Ragnarssonar og
Teits Örlygssonar, sem leikmenn og
þjálfarar. Þeir eru að stíga sín fyrstu
spor sem þjálfarar og kröfurnar til
þeirra sem leikmanna eru einnig
miklar og spurning hvemig þeim
tekst að sameina hlutverkin. Logi
Gunnarsson er í sama gæðaflokki og
Teitur á yngri ámm og það verður
gaman að fylgjast með hvemig til
tekst í Njarðvík í vetur. Þeir eiga nóg
af leikmönnum sem geta skorað og ef
allt gengur vel þá verða þeir í topp-
baráttunni.“
Jafnt mót og spennandi
breytingar
„Það er nú alltaf sagt á haustin að
mótið verði það mest spennandi frá
upphafi og ég verð að taka undir
þann frasa. Tvö lið virðast áberandi
slökust og þrjú lið virðast vera sterk-
ust en þau lið sem á milli em geta
gert góða hluti. Breytingar á skot-
klukkunni gera leikinn markvissari,
menn verða að taka fyrsta góða skot-
ið sem gefst en 8 sekúndna reglan á
kannski eftir að hafa meiri áhrif og
lið fara eflaust að pressa meira en oft
áður. Útlendingamir em sem oftar
spurningarmerki og þeirra þáttur er
alltaf gríðarlega mikilvægur í vel-
gengni liðanna,“ sagði Eggert.
Elsta konan til að vinna gull
AP
Ellina Zvereva fagnar sigri sínum ásamt samherja.
ELLINA Zvereva frá Hvíta-Rússlandi braut blað í sögu Ólympíu-
leikanna í gær með því að verða elsta konan til að vinna til gull-
verðlauna í frjálsum íþróttum. Zvereva, sem heldur upp á 40 ára
afmæli sitt í nóvember, sigraði í kringlukasti en sigurkast hennar
mældist 68,40 metrar. Zereva bætti met Liu Manoliu frá Rúmen-
íu en hún var 36 ára og 76 daga gömul þegar hún varð ólympíu-
meistari í kringlukasti á Ólympíuleikunum í Mexikó árið 1968.
Olympíuleikarnir í Sydney era
þriðju leikarnir sem Zvereva
tekur þátt í en hún keppti fyrst árið
1988. Hún varð í fimmta sæti á Ól-
ympíuleikunum í Seoul árið 1988 en
fékk ekki að taka þátt í Barcelona
fjóram áram síðar þar sem hún var í
12 mánaða keppnisbanni vegna lyfja-
áts. Á Ólympíuleikunum í Atlanta
vann hún til verðlauna en þar hafnaði
hún í þriðja sæti.
Gríska stúlkan Anastasia Keles-
dou varð önnur með 65,71 metra og
bronsverðlaunin fóra til Irinu Ja-
tchenko en hún kastaði kringlunni
65,20 metra. Ólympíumeistarinn frá
því í Atlanta fyrir fjóram áram,
þýska stúlkan Ilke Wyludda, varð að
láta sér lynda sjöunda sætið en hún
kastaði 63,16 metra. í sætinu á und-
an varð landi hennar og heimsmeist-
ari, Franka Dietzsch sem kastaði
63,18 metra.
Zvereva er engin smásmíði. Hún
er 1,82 metrar á hæð og vegur 92 kg.
Sigurkast hennar kom í þriðju um-
ferð úrslitakeppninnar en lengsta
kast hennar í undankeppninni hefði
ekki dugað til að vinna gullið.
„Mér finnst ég ekki vera neitt
gömul og aldurinn á ekki að koma í
veg fyrir að maður komist í fremstu
röð. Ég hef ákaflega gaman af þessu
og er auðvitað mjög stolt af þessum
árangri. Ég stefndi á verða í einu af
þremur efstu sætunum,“ sagði Zer-
eva sem hóf keppni í kringlukasti
fyrir 21 ári. Þessi stóra og stæðilega
íþróttakona á 13 ára dóttur og hún
hefur hyggju að bæta öðra bami við
þegar sigurvíman
verður farin af henni
eftir Ólympíuleikana.
Flestir tippuðu á að
gullið færi til Nicoletu Grasu frá
Rúmeniu. Hún hefur kastað lengst
allra í ár, 68,70 metra en öllum á
óvart tókst henni ekki að komast í úr-
slitakeppnina þar sem hún kastaði
aðeins 58,87 metra í undankeppninni.
Ellina Zvereva
Hvíta-Rússlandi
Ólympíumeistari í kringlukasti kvenna.
Fædd: 16. nóvember í Dolgoprudny, Hvita-Rússlandi.
Helstu afrek: Vann til gullverðlauna á heimsmeistaramótinu í
Gautaborg árið 1995. Hafnaði í þriðja sæti á Olympíuleikunum í
Atlanta fyrir fjórum árum og í fimmta sæti í Seoul árið 1988.
■ Féll á lyfjaprófi árið 1992 og missti af Ólympíuleikunum það
sama ár. Hóf keppni að nýju ári síðar.
■ Er elsta konan til að vinna til gullverðlauna á Ólympíuleikum.