Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 4
4 C FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 BÍÓBLAÐ MORGUNBLAÐIÐ 1 K V 1 K M Y N D A H Á T í Ð E Y K J A V í K Þorfinnur Ómarsson, nú framkvæmdastjóri Kvik- m.. . ... m œg myndasjóðs íslands, var 12 ára forfallinn kvikmynda- áhugamaöur þegar Kvikmyndahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta skipti, árið 1978. Hann rifjar upp eftirminnilegar myndir og kynni sín af ýmsum gestum há- tíðarinnar sl. 22 ár. Jlllfllllilisí FYRSTA kvikmyndahátíðin var hvalreki á fjörur ungs kvikmyndaáhugamanns, sem fór á allt sem hreyfðist í bíó, á milli þess sem 8mm kvikmyndagerð var stunduð í bílskúrn- um heima fyrir. A þeim tíma voru íslensk kvikmyndahús fremur svifasein og sýndu myndir einu eða tveimur árum eftir að þær komu fram erlendis. Að vísu mátti sjá ýmsar óvenjulegri myndir á mánudagskvöldum í Háskólabíói og Fjalakötturinn, blessuð sé minning hans, hélt uppi merkjum listrænnar kvikmyndagerðar. Engu að síður kom strax í ljós að veruleg þörf var fyrir kvikmyndahátíð í höfuðborginni. Undir lok áttunda áratugarins dró loks til tíðinda í íslensku kvikmyndalífí. Ungir og þróttmiklir kvikmyndagerðarmenn streymdu heim frá útlöndum, ákveðnir í að láta drauma sína um kvikmyndagerð í heimalandinu ræt- ast. Það var því í takt við tíðarandann að sett var á laggirnar Kvikmyndahátíð innan Lista- hátíðar í Reykjavík. Strax við opnun fyrstu hátíðarinnar gaf þáverandi menntamálaráð- herra, Vilhjálmur Hjálmarsson, hátíðargest- um tímabæra gjöf; lagafrumvarp um stofnun Kvikmypdasjóðs Islands, sem hóf starfsemi ári síðar. Það má segja að fyrsta hátíðin hafi náð einu af takmarki sínu, þ.e. að vekja athygli á kvik- myndalistinni og þar með tilvist hátíðarinnar sjálfrar. Einhver eftirminnilegasti kvik- myndaskandall Islandssögunnar varð þegar hætt var við sýningu á pornógrafísku meist- araverki Nagisha Oshima, Veldi tilfínning- anna. Myndin hafði hlotið verðlaun í Cannes tveimur árum fyrr, en hafði einnig valdið miklum deilum víða um heim og raunar verið bönnuð í ýmsum púritanískum löndum í kringum okkur. Engu að síður hafa kvik- myndahátíðir oft rétt á að sýna sitthvað sem ekki fer endilega í almenna dreifíngu og að því leyti var bannið alræmda fremur hæpið. Raunar ber mönnum ekki alveg saman um hvað fór úrskeðis. Ef ég man rétt var myndin í raun ekki bönnuð af Kvikmyndaeftirlitinu, heldur þótti sýnt að saksóknari myndi leggja fram kæru um klám, ef af sýningunni yrði. Fulltrúar saksóknara og lögregluyfírvalda urðu að athlægi á meðal þjóðarinnar þegar þeir vildu endilega sjá myndina öðru sinni - svona til að vera vissir um að enginn annar mætti sjá myndina... Einhver frægasta og dapurlegasta forsjárhyggja sem um getur hér á landi. Niðurstaðan varð sú, að ekkert varð af sýn- ingunni. Því miður var ekki einfaldlega skellt á sýningu án heimildar. Hvað um það, Kvik- myndahátíð fékk ágæta kynningu og mikla aðsókn - sem tryggði tilvist hennar á næstu árum. Af einhverjum dularfullum ástæðum hefur hin meinta klámmynd ekki enn verið sýnd opinberlega hér á landi. Er í raun óskilj- anlegt að enn skuli engum hafa dottið í hug að sýna myndina, því ekki er hún klámfengnari en ýmislegt sem borið er á borð okkar í dag, t.d. Romance, sem sýnd var í bíó í fyrra og fæst nú á myndbandaleigum. Þannig gaf þessi fyrsta Kvikmyndahátíð tóninn fyrir Reykjavíkurhátíðina. Allar götur síðan hafa kvikmyndir, sem innihalda opin- skátt kynlíf, átt miklum vinsældum að fagna á meðal hátíðagesta. Er skemmst að minnast Sex - AnabelleChong Story á síðustu hátíð - mynd sem hefði örugglega ekki gengið jafn- vel á hefðbundnum sýningum. Þess háttar „frakkamyndir“ hafa samt - sem betur fer - ekki verið eina skrautfjöður Kvikmyndahátíðar í Reykjavík, öðru nær. Strax á fyrstu hátíðinni ’78 kenndi ýmissa grænna grasa; Wim Wenders kom með Am- eríska vininn og varð íslandsvinur fyrir vikið og sýning á Sweet Movie, eftir Dusan Makav- ejev, olli miklu fjaðrafoki og svona í sárabæt- ur fyrir Veldi tilfínninganna. Hinn sami Dus- an er gestur Kvikmyndahátíðar í ár og geta kvikmyndaáhugamenn spjallað við kappann á fundi með honum á laugardag. Mystery Train: Lestin sem leiddi til Cold Fever. Þegar gluggað er í dagskrá Kvikmyndahá- tíðar ’78 er kannski hvað skemmtilegast að sjá að þá þegar unnu að hátíðinni menn á borð við Friðrik Þór Friðriksson, Hrafn Gunn- laugsson og Thor Vilhjálmsson, að ógleymd- um þáverandi formanni framkvæmdastjórnar Listahátíðar, Davíð Oddssyni. Á þessum tíma var ákveðið að Kvikmynda- hátíð yrði haldin annað hvert ár - á móti Listahátíð, sem var í guðföðui-hlutverki fyrir hátíðina. Árið 1980 var sannkallað vor í lofti á Kvikmyndahátíð. Fyrstu kvikmyndirnar eftir stofnun Kvikmyndasjóðs höfðu slegið í gegn á meðal þjóðarinnar og kvikmyndagerðarmenn fylltust bjartsýni. Dagskráin varð enn metn- aðarfyllri, sérstaklega var hlutur Pólverjans Andrzej Wajda mikill, auk mynda frá síðari tíma góðkunningjum á borð við Satyajit Ray, Marguerite Duras og Carlos Saura. Að öðru leyti verð ég að viðurkenna að þessi hátíð er fyrir mína parta ekki mjög eftirminnileg í heild sinni. Svipað var uppi á teningnum ári síðar (nú var hátíðin haldin árlega). Kvikmyndahátíð veiddi hingað verk ýmissa helstu kvikmynda- skálda heims, s.s. Wajda, Rohmer, Tanner, Tavernier og Zanussi, og má segja að á þess- um tíma hafí hlutverk Kvikmyndahátíðar ein- mitt verið að sýna verk slíkra manna, auk þess sem sýnd voru eldri meistaraverk í bland. Þannig var nokkur „mánudagsmynda- bragur“ eða Fjalakattarlykt af Kvikmynda- hátíð. í dag eru hinsvegar hvorki mánudags- myndir né safnabíó (cinematek) á höfuð- borgarsvæðinu, sem er auðvitað með öllu ófært. Hátíðin 1983 er hvað eftirminnilegust fyrir að sýna okkur báðar myndirnar sem skiptu með sér Gullpálmanum í Cannes árið áður; tyrknesku myndina Yol og bandaríska mynd Grikkjans Costa-Gavras, Missing, með Jack Lemmon í toppformi (hlaut líka verðlaun í Cannes). Enda þótt myndirnar væru orðnar ársgamlar (einsog venja var á þeim tíma) urðu þær bæði vinsælar og tilefni mikilla um- ræðna af pólitískum toga. Einhverra hluta vegna fer myndum, sem fjalla um heimspóli- tísk málefni, fækkandi í seinni tíð. Líkt og umhverfi okkar sé orðið of fullkomið og kvik- myndaskáld finni ekki þörf til að tjá sig með þeim hætti. „There is no pain on the street, but only pain on the brain,“ sagði einhver snillingurinn. Opnunarmyndin árið 1984 var engin önnur en Hrafninn fíýgur eftir Hrafn Gunnlaugs- son. Fram að því höfðu íslenskar myndir ávallt leikið eitthvert hlutverk á kvikmynda- hátíðum, en árið 1984 voru einfaldlega allar 15 myndirnar frá upphafi Vorsins sýndar. Snjöll hugmynd á 5 ára afmæli Kvikmynda- sjóðs og svipuð hugmynd hefur reyndar kom- ið fram nú síðustu misserin, þ.e. að sýna allar 60 myndir síðustu 20 ára eða í það minnsta hluta þeirra, án þess að tekist hafi að sann- færa alla aðila um ágæti hugmyndarinnar. Skrýtið að hægt sé að standa að slíkum yfir- litssýningum í útlöndum en ekki hér á íslandi! Opnunin ‘84 rennur mönnum seint úr minni; febrúarslagveður og orrahríð einsog verst gerist á Klakanum. Og landinn vissi John Waters: „Brunnin kindahöfuð“ eftir- minnilegasti kossinn! ekki alveg hvernig átti að taka mynd Hrafns, hann var jú ekki að kvikmynda Islendinga- sögurnar, heldur eigin norðra með vísan í Kurosawa og Leone, og það var ekki fyrr en hún sló í gegn í Svíþjóð að Islendingar flykkt- ust á hana líka. Ýmsir gestir komu á þessa sömu hátíð, þeirra á meðal var bandaríski leikstjórinn John Waters sem kom hingað með þrjár myndir. Frábær fýr. Sléttum 10 árum síðar sat ég að snæðingi með þessum mikla háð- fugli á kvikmyndahátíðinni í Locarno og tók við hann ógleymanlegt viðtal, sem reyndar er enn óbirt. Sagði hann mér m.a. frá máltíð á Naustinu með nokkrum forkólfum íslenskrar kvikmyndagerðar, en í boði voru brunnin kindahöfuð, einsog hann orðaði það. Taldi hann þetta eftirminnilegasta koss lífs síns, en hann hefði gjarnan viljað vita hvort hann væri að kyssahrút eða ær ... Ári síðar kom annar sérvitringur hingað, Jean-Luc Godard, en Kvikmyndahátíð sýndi margar mynda hans á þessum árum. Reyndar er athyglisvert hve hlutur franskra kvik- mynda hefur minnkað á hátíðinni, enkannski segir það eitthvað um stöðu þeirra í dag. Eg veit það ekki. Árið 1985 var líka árið sem ég sá hina ógleymanlegu San Lorenzo nótt, eftir Taviani bræður, og Sjö samúraja aftur. Vin- sælasta myndin var þó, ef ég man rétt, Carm- en eftir Carlos Saura, sem orðinn var nánast fastagestur á Kvikmyndahátíð. Ef ég man rétt gekk myndin fyrir fullu húsi í Austurbæj- arbíói næstu vikurnar eftir að hátíðinni lauk. I endurminningunni er Kvikmyndahátíð 1987 ein sú albesta. Roman Polanski var gest- ur hátíðarinnar, þó aðeins með gamla mynd sína, Tess, í farteskinu og þarna voru Kaur- ismaki bræður kynntir fyrir íslenskum frændum sínum, sem og. Pedro Almodóvar sem bræddi hjörtu íslenskra kvikmynda- áhorfenda með Matador. Ein mesta kvik- myndaupplifun mín fyrr og síðar var þegar ég sá hina áhrifamiklu mynd Elem Klímovs, Komið og sjáið. Platoon hafði verið sýnd í bíó skömmu áður en varð einsog þrjúbíó við hlið- ina á þessu meistaraverki, enda gengu áhorf- endur út úr Laugarásbíói einsqg í jarðarför. Onnur ógleymanleg mynd er Ran, síðasta stórvirki Kurosawa að mínu mati, Hafi hátíðin 1987 verið góð, tókst henni samt að bæta sig tveimur árum síðar. Ein- hvem veginn finnst mér ’89 módelið líklega sú besta, kannski bara vegna þess að þá skrifaði ég um hátíðina og sá þarafleiðandi allar myndirnar og tókviðtal við alla gestina... Hvað um það. Ólíkt því sem áður var tókst hátíðinni að fá nýbakaða verðlaunamynd frá Cannes - ekki aðeins sigurvegara ársins þar á undan, Pelle sigurvegara, sem var reyndar einnig á hátíðinni. Þarna var nefnilega líka Mystery Train, eftir Jim Jarmusch, sem hlaut verðlaun í Cannes í maí ’89 og gott ef þetta var ekki bara frumsýning á eftir Cannes. Á meðal gesta Kvikmyndahátíðar var Jim Stark, framleiðandi mynda Jarmusch á þess- um tíma, og átti þetta eftir að verða örlagarík ferð fyrir hann og íslenska kvikmyndagerð. Samvinna hans og Friðriks Þórs var hand- söluð og úr varð Cold Fever nokkrum árum Sweet Movie: Sárabætur fyrir Veldi tilfinning- anna. síðar, mynd sem hefur líklega farið víðar en nokkur önnur íslensk. Nú hefur þessi sami Jim stigið öðrum fæti á Hofsós, hvar hann skrifar handrit að fleiri myndum fyrir fyrir- tæki sitt í New York. Áhorfendur 1989 kunnu vel að meta það sem fyrir þá var borið; Stutt mynd um dráp sem snillingurinn Kieslowski sótti í fimmta boðorðið, Salaam Bombay eftir Mira Nair, Blóðakrar, fyrsta og kannski besta mynd Kín- verjans Zhang Yimou, Himinn yfir Berlín, eftir góðkunningjann Wim Wenders - mynd sem átti eftir að hafa afgerandi áhrif á t.d. Börn náttúrunnar - og ýmsar fleiri. Hinsvegar brást „frakkamyndin" eftir- minnilega að þessu sinni. Sem áður segir hafa erótískar myndir oft gengið vel á Kvikmynda- hátíð, en Eldur í hjarta mínu, eftir hinn virta Alain Tanner, var uppnefnd eitthvað allt ann- að sökum tilgerðar og tilgangsleysis. Aðrir gestir þetta árið voru t.d. Jean Reno, Terence Stamp og István Szabo. Því miður var ég ekki til frásagnar af Kvik- myndahátíð næstu árin á eftir, enda búsettur þá í Frakklandi. Fylgdist reyndar með full- trúum hátíðarinnar í leit að myndum á kvik- myndahátíðinni í Cannes, en geymi þær sög- ur til betri tíma. Einhverra hluta vegna gekk hátíðin ’93 ekki sem skyldi, en uppfrá því var hafist handa við að breyta rekstrinum. Kvik- myndagerðarmenn vildu kljúfa hátíðina frá Listahátíð, enda varla nokkur rök fyrir þeirri tengingu lengur. Það var svo 1996 sem fyrsta „sjálfstæða" Kvikmyndahátíðin var haldin og tókst hún ótrúlega vel, miðað við takmarkaðan undh'- búning. Opnunarmyndin, Breaking the Wav- es, kom fersk frá Cannes og fjöldi annarra mynda fylgdi í kjölfarið. Ætli það hafi ekki verið þarna sem grunnur var lagður að kvik- myndagerð Hal Hartley á íslandi en var þá gestur hátíðarinnar. Eftir þetta hefur hátíðin verið haldin á hverju ári, sem er nauðsynlegt til að halda uppi dampi á þessu sviði. Hinsvegar býr þessi hátíð enn við algert fjársvelti og er ljóst að það verður að breytast hið fyrsta. Möguleik- arnir fyrir alþjóðlega kvikmyndahátíð eru fyrir hendi, en á það hefur í raun aldrei reynt. Kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur fyrir löngu sannað tilvist sína. Kvikmyndahátíðir eru haldnar í hundruðum borga heimsins ár- lega. Hátíðir sem skipta verulegu máli eru a.m.k. 100 talsins og er slagur á milli fram- leiðenda hvarvetna í heiminum um að koma myndum sínum þar á framfæri. Reykjavík gæti auðveldlega orðið vettvangur fyrir kvik- myndahátíð á heimsvísu. Er í raun með ólík- indum að ekki skuli hafa verið látið reyna á slíkan rekstur til þessa. Sem dæmi má nefna að í Gautaborg er rekin kvikmyndahátíð fyrir um 130 milljónir króna árlega og telja allir sem að henni koma það afar góða fjárfest- ingu. Ef Gautaborg getur það, hlýtur Reykja- vík að geta gert jafnvel betur! Nú skiptir þó mestu máli að hver maður geri skyldu sína og láti sjá sig á Kvikmyndhá- tíð anno 2000, bæði á myndunum sjálfum og ýmsum öðrum viðburðum og málþingum. Góða skemmtun!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.