Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 14
14 C FÖSTUÐAGUR 29. SEPTEMBER 2000 LEIKSTIÓRAR Atom Egoyan með mynd um leið- inlegasta mann á yfirborði jarðar Skyggnst inn í „ÞAÐ erfiðasta við kvikmyndagerð ^er að byggja söguna upp þannig að maður komist inn í upplifun sögu- persónanna af veröldinni í stað þess að skoða hana utan frá,“ segir Atom Egoyan, sem leikstýrir Ferðalagi Feliciu. „I mínum augum snýst kvikmyndagerð um að beita hinum yndislegu aðferðum ímyndar, bygg- ingar og hljóðs til að fanga upplifun persónanna en ekki bara gjörðir þeirra. Að veita áhorfendum innsýn í huga ungrar stúlku þegar hún upp- lifir æskuástina og tekst í kjölfarið á við þá óvissu og yfirsjónir sem fylgja brostnum tilfinningum." Ferðalag Feliciu er byggð á sam- nefndri skáldsögu Williams Trevors og fjallar um sautján ára stúlku (Elaine Cassidy) sem ferðast yfir Irska hafið til að leita uppi elskhuga sinn Johnny Lysaght (Peter McDonald) og segja honum frá því að hún sé ófrísk. I stað hans verður fyrir henni Hilditch (Bob Hoskins), einmana piparsveinn og skósafnari, sem er ekki allur þar sem hann er séður, einkum þegar heimilislausar stúlkur eru annars vegar. Þetta er hrollvekjandi spennumynd þar sem kafað er ofan í skúmaskot sál- arinnar og má Felicia þakka fyrir ef BÍÓBLAÐ MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDAHÁTÍÐ / R E Y K J A V I K Ferðalag Feliciu: Hrollvekjandi spennumynd. hún ratar úr myrkrinu. „Það er erfitt að leika svona ein: mana manneskju," segir Hoskins. „I fullri hreinskilni finnst mér ein- manaleiki skelfileg örlög og ég ótt- ast ekkert meira. Einangrun getur farið illa með fólk. Þegar ég hafði leikið þennan náunga í nokkra mán- uði var ég farinn að vakna á nótt- unni og athuga hvort ekki væri allt í lagi með fjölskyldu mína. En það var líka spaugilegt að fást við hlut- verk Hilditch, hann er einskonar blanda af Kobba kviðristi og Bangsímoni. Hann er einn af leiðin- legustu mönnum á yfirborði jarðar. Ef til vill ætti ég ekki að segja frá því en mér fannst alls ekki erfitt að setja mig inn í hlutverkið." Leikstjórinn Atom Egoyan er Brengluð tímaröð „Mérfinnst þaö hamlandi aö notatímanníbeinni samfellu," segirAtom Egoyan. „Þaö erhug- anum eölislægt aö hvarfla fram ogtil baka yfir ólíkar upplifanir ogtengja þær aðstæðum í sam- tímanum. Mérfinnst því eðlilegt aö rugla tímarööinni í myndum mfnum... Égersannfæröurum þaö að ef atriði eru brotin upp eöa virðast ótengd þá ýtir þaö undirskapandi oggagnvirka hugsun hjá áhorfendum sem raöa atrióunum saman.“ fæddur í Kaíró og ólst upp á vestur- strönd Kanada. Hann hefur leik- stýrt ótal kvikmyndum í gegnum tíðina, stendur þar upp úr The Sweet Hereafter (1997), auk þess að leikstýra stuttmyndum og semja óp- eru, Elsewhereless, ásamt tónskáld- inu Rodney Sharman. Egoyan hefur unnið til fjölda verðlauna og verið tilnefndur til óskarsverðlauna. A meðal mynda hans eru The Adjust- er (1991), Calendar (1993), Exotica (1994), Speaking Parts (1989), Family Viewing (1987) og Next of Kin (1984). Hvernig við hlógum: Brú milli kynslóðanna. Gianni Amelio leitar að gömlum og nýjum ítölskum hlátri og gráti Leikstjóri . mannuðannnar ÞRJÁR af fyrri myndum ítalska ieikstjórans Gianni Amelio voru aufúsugestir á Kvikmyndahátíð- inni í Reykjavík. Stolnu börnin, Opnar dyr og Ameríka báru allar vitni um samkennd hans með smæiingjum og innsýn í hlutskipti þeirra sem þurfa að berjast við þjóðfélagslegt ofurefli; systkini á vergangi í leit að tilverurétti ásamt ungum hermanni, þrjóskur dómari í glímu við fasista, snauðir, uppflosnaðir Albanir í leit að mannsæmandi lífi, þar sem svika- hrappar hafa tekið við af kúgunar- stjórn kommúnista. Gianni Amelio gerir um þetta fólk vandaðar og heillandi myndir, áhrifaríkar og tiifinningaþrungnar undir stillilegu ' yfirborði. I hátíðarmyndinni nú, Hvemig við hlógum eða Cosi ridevano, beinir hann sjónum sínum - og okkar - að persónum sem ramba á barmi gjárinnar sem leikstjórinn telur hafa myndast milli gömlu og nýju Ítalíu. Amelio, sem einnig skrifar handritið, segir hér sögu tveggja bræðra, sem hafa flust frá Sikiley til Tórínó, yfir sex ára tímabil. Myndin stingur niður fæti einn dag í lífi þeirra fyrir hvert ár sem líður frá 1958 til 1964 og ^kiptir henni niður í sex samsvar- andi kafla: Koma, Svik, Peningar, Bréf, Blóð og Fjölskyldur. Eldri bróðirinn er ólæs og óskrifandi og ber í brjósti tak- markalausan metnað um að yngri bróðir hans þurfi ekki að takast á við slíka fötlun í þjóðfélagi þar sem menntun er lykill að framtíð- Gamlir brandarar Mynd Amelios á rætur í smálet- ursdálki sem birtist í vinsælu tímariti á sjötta áratugnum, þar sem lesendur sendu inn gam- ansögur og brandara. Tímans rás mátti þannig mæla meö því hvernig kímnigáfa þjóðarinnar breyttist smám saman undir fyrirsögninni Hvernig viö hlóg- um... arvelferð - ekki til að auðgast af peningum heldur menningarlegri þekkingu. Hann vill að litli bróðir taki kennarapróf og gerist kennari og leggur mikið á sig til að það takist, svo mikið að fórnfýsi hans fer að nálgast mannfórnir. Amelio hefur sagst nálgast for- tíðina án glýju í augum, án reiði og umfram allt án jirédikana. „Mynd- in lýsir þeirri Italíu, sem ekki er lengur til, en reynir um leið að skilja betur þá Italíu sem við bú- um í núna. Svona hlógu menn fyrir mörgum árum og svona grétu þeir.“ Hann kveðst hafa viljað byggja „ástúðlega brú milli kyn- slóðanna“ á því tímaskeiði þegar Ítalía var „að breytast úr landbún- aðarþjóðfélagi í iðnvædda borgar- þjóð“. Hvernig við hlógum er sjötta bíómynd Giannis Amelio í fullri lengd en hann hefur einnig unnið talsvert fyrir sjónvarp. I aðalhlut- verkum eru Enrico Lo Verso og Francesco Giuffrida. Wim Wenders nær sér á strik með Buena Vista Social Club ÞAÐ man enginn nákvæmlega hvar næturklúbburinn Buena Vista Social Club stóð fyrir byltinguna í Havana á Kúbu. Bandaríski gítarleikarinn Ry Cooder safnaði hins vegar saman tónlistarmönnunum og söngvurunum af staðnum, sem flestir eru komnir við aldur, og tók upp breiðskífu sem notið hefur fádæma vinsælda um heim all- an, vann til að mynda til Grammy- verðlauna árið 1997. Það kom í hlut þýska leikstjórans Wim Wenders að fylgjast með öllu saman og gerði hann um það heimildarmynd, sem tilnefnd var til óskarsverðlauna í fyrra. Wend- ers og Cooder hafa þekkst í tuttugu ár og unnið saman að nokkrum kvik- myndum, m.a. Lokum ofbeldis. Að margra dómi er þetta besta kvikmynd sem Wenders hefur leik- stýrt í háa herrans tíð, allt frá því hann gerði snilldarmyndir á borð við Himinn yfir Berlín og París, Texas á áttunda áratugnum. Efniviðurinn er Wenders Buena Vista Social Club: Tónlistar- mynd frekar en heimildarmynd. heldur ekki af lakari endanum. Tón- listin er seiðmögnuð og galsafull, að sama skapi léttleikandi, þótt sjálfir séu tónlistarmennimir famir af létt- asta skeiði. Það er hrein unun að fylgjast með þeim Ibrahim Ferrer og Reuben Gonzalez, sem virðast gengnir aftur í bamdóm, ef marka má einlæga kátínuna í hverju brosi. „Kvikmyndin er frábmgðin heim- ildarmyndum, ég myndi frekar segja að hún væri tónlistarmynd. Reuben, Ibrahim, Omara [Portuondoj jaðra við að vera skáldsagnapersónur fyrir í nokkrum atriöum bera tilfinn- ingartónlistarmennina ofur- liöi. Ljóöið Dos Gardenias er sungiö af innlifun af tvíeykinu Ibrahim Ferrer og Omara Port- uondo, svo mikilli að Port- uondo tárfellir í miöri ballöö- unni og Ferrer þurrkar þau hlýlega af henni. Wenders hef- ur sagt aó þetta sé uppá- haldsatriði hans í myndinni. mér. Ég hef áður unnið heimildar- myndir í fullri lengd, en þetta vom meira persónulegar dagbækur," seg- irWenders Roy Disney færir okkur Fantasíu tyrir nýja öld isneys rætist Draumur ÞEGAR Walt Disney frumsýndi Fantasía árið 1940 varð tii fyrsta stórvirki, „stórmynd“, teiknimynd- anna. Upphaflega var ætlunin að hressa upp á vinsældir Mikka músar með stuttmyndinni Lærisveinn galdramannsins en hún óx og óx upp i ianga mynd sem markaði tímamót í kvikmyndasögunni. Þar tókst Walt Disney það ætlunarverk sitt að blanda teiknimynd saman við sígilda tónlist með áhrifamiklum og eftir- minnilegum hætti. En Disney ætlaði ekki að gera Fantasíu í eitt skipti fyr- ir öll. Hann hugðist gera nýja útgáfu af myndinni á hverju ári. En af því varð ekki af fjárhagslegum ástæðum, Disney til sárrar raunar. Nú hefur bróðir hins látna Walts, Roy Disney, beitt sér fyrir endurgerð þessa stór- virkis. Með Fantasía/2000 rætist þessi gamli draumur um endurgerð hins sígilda. í Fantasíu/2000 eru, auk gamalla kunningja þeirra sem séð hafa Fant- asíu, sjö ný atriði við tónlist meistar- anna og hefur gerð þeirra tekið níu ár. Að henni hafa unnið færustu Fantasia: Mikki mús blandarsérí meistaraverkin. teiknimyndasmiðir nútímans með fullkomnustu nútímatækni. Hvert þessara nýju atriða er kynnt með lif- andi fólki á borð við Steve Martin, Bette Midler, Itzhak Perlman, Qu- incy Jones, James Earl Jones, Ang- ela Lansbury og Penn & Teller. Þá koma fram tóniistarjöframir Leopold Stokowski og James Levine, en það var Stokowski sem vann að Fantasíu með Walt Disney og það er James „Ekki tónleikar, ekki revía eöa kabarett, heldur mikilfengleg blanda af gríni, hugmyndaflugi, ballett, drama, impressjón- isma, lit, hljóöi ogepískum ofsa.“ - Walt Disney, 1941. Levine sem annast tónlistarhlið Fantasíu/2000. Levine sá Fantasíu ungur drengur og þótti mikill heiður að þvi að vera beðinn um að vinna að endurgerð hennar. „Ég gat varla beð- ið með að segja já,“ segir hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.