Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 8
8 U FOSTUDAUUK29.SEPTEMBEK2000 BIOBLAB MOKGUNKLAÐID T í LEIKSTJORAR Chen Kaige gerirsögulega kvik- mynd um fyrsta keisarann f Kína Minnist fórnarlamba /' öllum styrjqldum Tilræði við keisarann nefnist nýjasta kvik- mynd kínverska leikstjórans Chen Kaige ogerfrægasta leikkona Kínverja, Gong Li, í aðalhlutverki. Pétur Blöndal var við- staddur blaðamannafund þar sem þau töluðu um stríð ogfrið, manndráp og hug- sjónir, að ógleymdri ástinni. KINVERSKI leikstjórinn Chen Kaige er kunnastur á Vesturlönd- um fyrir myndina Farvel frilla mín (1993), sem fékk afbragðs viðtökur hjá gagnrýnendum. Síðasta mynd hans Temptress Moon (1996) fékk á hinn bóginn dræmari viðtökur og hafði Kaige því hugsað sér að næsta kvikmynd sín yrði ódýr og gerði borgarlífinu skil. Kínverskum yfir- völdum ieist illa á það. Stafaði það af ótta við að hann færi ómjúkum höndum um kínverskt samfélag. Málalyktir urðu þær að hann leitaði rúm tvö þúsund ár aftur í tímann og gerði sögulega kvikmynd upp á 700 milljónir. Er ekki að kenna mannkynssögu Kvikmyndin Tilræði við keisar- ann gerist á tímabilinu 403 til 221 f.Kr. Sunduriynd óvinaríki mynd- uðu Kína. Shi Huangdi, leiðtogi Qin, kom fram á sjónarsviðið árið 221 f.Kr., sigraði volduga andstæðinga sína og varð keisari yfir gjörvöllu Kína. Umfangsmikil miðstýringar- stefna í Qin keisaradæminu, ásamt þungbærum stríðsrekstri, skapaði Shi marga óvini. Honum var steypt af stóli árið 202 f.Kr. Þungamiðjan í kvikmynd Kaiges er samband Shi (Li Xueijin) við ást- konu sína, Zhou (Gong Li). Zhou segir skilið við hann þegar hún getur ekki lengur sætt sig við miskunnarlaust ofbeldið sem hann beitir til að sameina Kína. I bræði sinni leitar hún til leigumorðingja, sem sestur er í helgan stein, Jing Ke (Zhang Fengyi) og biður hann að myrða keisarann. Hann neitar í fyrstu, en fyrir þrábeiðni Zhou og aíf ótta við að ættjörð sín, Yan, verði innlimuð í nýja keisaradæmið, ákveður hann að myrða á ný. Kaige hefur fengið nokkra gagn- rýni fyrir að fylgja ekki sögulegum staðreyndum við gerð myndarinn- ar, ekki síst þar sem sagan er al- þekkt í Kína. „Ég er ekki að reyna að kenna fólki mannkynssöguna," svarar Kaige þessari gagnrýni. „Ég hafði aldrei í hyggju að gera eftir- mynd af mannkynssögunni. Þvert á Tilræði við keisarann: Ekki eftirmynd afsögunni. móti beitti ég nálgun Shakespeares í þeim skilningi að sagan byggist meira á persónusköpun en söguleg- um atburðum." Skírskotun til stríðsins í Júgóslavíu Hann segist hafa fundið hvatann að því að ráðast í gerð myndarinnar í samtímanum. „Ef þú rifjar upp at- burðina í Júgóslavíu þá skilurðu af hverju mig langaði til að gera þessa kvikmynd,“ segir hann. „Ég dáist að fyrsta keisaranum í Kína fyrir að vera sá leiðtogi sem gerði alvöru úr sameiningunni. En ég er alveg and- snúinn því hvernig hann fór að. Ég held að of margir stjórnmálamenn í heiminum hugsi fyrst um sjálfa sig og segi: „Mig langar til að gera þetta, mig langar til að gera þetta...“ Svo ætlast þeir til að fólk hlýði. Spurningin er sú hvernig best er að ná settum markmiðum. Hvaða valkostir eru í boði. Keisarinn gríp- ur til ofbeldis og þvingar þannig sínum ásetningi upp á aðra. Ég hef aldrei verið hlynntur því að hafa vit fyrir fólki. Við gerð myndarinnar hafði ég þann einlæga ásetning að minnast fórnarlamba í þeim stríð- um sem háð hafa verið. Þetta er kvikmynd um stríð og frið, dráp og ofbeldi, en einnig ást. Ég vildi breiða út boðskap ástarinnar og jafnframt gera fólki ljóst hversu mjög mér er í nöp við harðýðgi." Gong Li segist ekki hafa leikið hlutverk af þessu tagi áður, sem minnir óneitanlega á hlutverk kvenna í sumum Islendingasagn- Lou Ye erfulltrúi kínverskra neðanjarðarmynda Ástin k vikmyn daás tin KÍNVERSKAR neðanjarðarmynd- ir, sem ekki eru gerðar samkvæmt forskriftum skriffinna og ritskoð- ara í Peking, sækja gjarnan þrótt sinn í viðurkenningu á Vesturlönd- um. I framvarðarsveit slíkra leik- stjóra er Lou Ye sem nú er á miðj- um fertugsaldri. Hann hefur gert tvær bíómyndir í fullri lengd en einnig starfað í sjónvarpi og fram- leiddi m.a. athyglisverða sjón- varpssyrpu þar sem tíu starfs- bræður hans af „sjöttu kynslóð" kínverskra leikstjóra fengu tæki- færi til að skapa án tillits til stjórnmála eða viðtekinna hefða. Fyrri bíómynd Lou Ye heitir Helgarelskendur (1996) en Kvik- myndahátíð í Reykjavík sýnir Suzhoufljótið (2000). Myndin er ástarsaga þar sem höfundur gerir tilraunir með myndmál rétt eins og Wong Kar-wai. Suzhoufljótið er manngerð samgönguæð sem tengir Shanghai-borg við miðlendi Kína og myndin gerist í úthverfum við ána, lýsir ástarsambandi mynd- bandahöfundar og ungrar konu sem starfar sem skemmtikraftur í sjúskuðum næturklúbbi þar sem Fantasía kvikmyndanna 1 „Kvikmyndir eru fantasíur," segir Lou Ye. „Og lengi hafa menn reynt að nota þennan miðil fantasíunnar til að segja eitthvaö um raunveru- leikann. hún syndir eins og hafmeyja í búri. Samhliða ástarsögu þeirra er sögð önnur ástarsaga sem myndbanda- höfundurinn segir í fyrstu pers- ónu. í raun eru þijár fyrstu pers- ónur í myndinni: Sögumaðurinn, myndavélin og leikstjórinn sjálfur sem viðurkennir að myndin sé sj álfsævisöguleg. Frásögnin getur því orðið nokk- uð ruglingsleg en fyrirmyndir hennar eru verk Scorsese og Godards. Lou Ye vildi skapa róm- antíska spennumynd sem ekki að- eins tjáði hug hans til ástarinnar heldur einnig til kvikmyndanna. Suzhoufljótið: Tilraunakennd ástarsaga. anna. „Zhao er einföld í háttum og er búsett í höllinni. Hún heldur við keisarann þótt hún sé ekki eigin- kona hans og hún notar ást sína til að hafa áhrif á hann og reyna að vinna hann á sitt band. Þegar það gengur ekki og grimmdarverk hans virðast engan endi ætla að taka, grípur hún til örþrifaráða. Það var ekki erfitt að undirbúa sig fyrir hlutverkið. Ég þurfti bara að sýna konu sem hefði einfalda lífssýn og væri samkvæm sjálfri sér.“ Aðspurður um hvernig hann kunni við Shi Huangdi segist Kaige hafa einblínt á mannlega hlið keisarans. „í byrjun myndarinnar er hann mjög viðfelldin manneskja, talar fjálglega um hugsjónir sínar og sannfærir Zhou um að það sé mikilvægt að sameina Kína í eitt ríki. En þegar hugsjónir hans verða að veruleika verður úr því harm- leikur og hann verður ekki samur maður eftir að manndrápin byrja.“ Leið eins og morðingja Sjálfur hefur Kaige ekki farið varhluta af átökum. „Ég var sendur til mjög afskekkts héraðs úti á landi í menningarbyltingunni," segir hann. „Héraðið var undir stjórn Frakklands áður fyrr og járn- brautakerfið var skilvirkara en ann- ars staðar í Kína, sem nýttist í skógarhöggi. Starf mitt fólst í að höggva niður tré,“ segir hann og setur upp ólundarsvip. „Mér leið næstum eins og morðingja. Við hjuggum niður heilan skóg. Þetta fékk á mig en ég átti engra kosta völ. Eftir það gekk ég í herinn," heldur hann áfram. „Ég barðist gegn Bandaríkja- mönnum í Laos í hálft ár. Það var skelfileg lífsreynsla því hersveitin varð fyrir sprengjuárás frá B-52. Ég þraukaði það. Eftir það fór ég aftur til Peking, fékk vinnu á rann- sóknastofu og sá um loftræstikerfið. í byrjun menningarbyltingarinnar var skólum lokað svo ég hafði ekki tækifæri til að mennta mig. Þegar hún var yfirstaðin bauðst það á nýj- an leik. Faðir minn var kvikmynda- gerðarmaður og ætli það hafi ekki valdið því að ég fór með nokkrum vinum mínum í kvikmyndaskóla." En hvað finnst Kaige um atburð- ina á Torgi hins himneska friðar? „Ég held að mér leyfist ekki að tala um atburðina fyrir tíu árum,“ svar- ar hann. „Ég vil bara að segja að mín kynslóð gekk í gegnum erfiða tíma í menningarbyltingunni. Ég ólst upp á þeim tíma. Við lærðum margt af því, en alls ekki nóg. Ég vona að núna hafi kínverska þjóðin lært nógu mikið til að forðast að sagan endurtaki sig.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.