Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 C 9 Wong Kar-wai er krónprinsinn í asísk Landkönnuðurí kvikmyndalista i kvikmyndagerð heimi rinnar stuði fyrir ást: Nýjasta og erótískasta verk Wongs. Fallnir englar (1995) er mynd- brotasafn um titilpersónurnar, furðufugla af ýmsu tagi, en beinir einkum athygli að tvemur stefjum; það fyrra blandar saman örvænting- arfullu kynlífi og öfgafullu ofbeldi, hið síðara er harmrænn farsi eða farsakenndur harmleikur um þrá- hyggju. Lukkulegir saman (1997) færði Wong leikstjóraverðlaunin í Cann- es. Þar segir hann frá tveimur hommum frá Hong Kong sem eru staddir í Argentínu og elskast eins og þeir séu að berjast. Samband þeirra gæti verið líking fyrir sam- band Hong Kong og Kína, þ.e. að vera samanen sundur. En leikstjór- inn segir: „Fyrir mig er þetta ekki mynd um samkynhneigð, heldur ástarsaga um það að vera einmana með öðrum, hamingjusamur með sjálfum sér og sinni fortíð.“ í stuði fyrir ást (2000) er nýjasta mynd Wongs og hreppti verðlaun í Cannes sl. vor fyrir leik og töku. Hún gerist í Hong Kong árið 1962 og segir frá ritstjóra einum sem flyt- ur með eiginkonu sinni í nýtt hús- næði. 1 sama hús flytur einnig ung kona ásamt sínum eiginmanni. Mak- amir eru báðir langdvölum í burtu, þau hafa félagsskap hvort af öðru í vaxandi mæli og komast að því að makamir eiga í ástarævintýri. Myndin er sögð viðkvæmasta og erótískasta verk Wongs til þessa. ÞAÐ er ekki seinna vænna en íslenskir kvik- myndaáhuga- menn kynnist verkum hins 42 ára Hong Kong- búa Wongs Kar- wai. Hann á að- eins sjö kvik- myndir í fullri lengd að baki og fáum við að sjá þrjár þeirra hér á hátíðinni. Engu að síður er hann talinn helsti framlínumaður asískra samtíma- kvikmynda, jafn- vel nútímakvikmynda yfirleitt. Eins og gagnrýnandi New York Times hefur sagt: „Wong hugsar með myndavélinni og með hverri nýrri mynd virðist hann skapa nýtt stafróf fyrir miðilinn. Enginn getur klippt innan atriða eins og hann, tjáð til- finningasveiflur með klippingu...“ Wong Kar-wai fæddist í Shanghai en fluttist fimm ára að aldri til Hong Kong ásamt fjölskyldu sinni. Þar nam hann grafíska hönnun en fékk mikinn áhuga á ljósmyndun, einkum verkum ljósmyndara eins og Roberts Frank, Henris Cartier: Bresson og Richards Avedon. í framhaldinu stundaði hann nám í gerð sjónvarpsleikrita og hóf störf sem aðstoðarmaður við gerð slíkra mynda hjá sjónvarpsstöð í Hong Kong. Fljótlega fór hann að skrifa eigin sjónvarpsmyndahandrit og síðar kvikmyndahandrit fyrir aðra leikstjóra, ekki síst Patrick Tam, sem tók þennan unga hæfileika- mann upp á sína arma og framleiddi fyrstu bíómynd hans, Meðan tárin streyma (1988). Myndin var valin í Gagnrýnendavikuna á Cannes-há- tíðinni. Næsta mynd á eftir, Villtir dagar (1991), staðfesti þær vonir sem frumraunin vakti og var víða verðlaunuð. Wong gengur í verkum sínum þvert á ýmsar hefðir í kvikmynda- Reglur fyrir þann sem brýtur reglur Kínversk stjómvöld settu árið 1996 nýjar reglur fyrir kvik- myndagerðarmenn: Ef menn ætla að gera mynd í Kína þurfa þeir fyrst að afhenda yfirvöldum handrit sem sé alveg eins og sú mynd sem gerð verður eftir því. Um þessar reglur segir Wong Kar-wai: „Ég veit ekki hvaða ðhrif reglurnar hafa á aðra kvikmyndageröarmenn en sjálfur styðst ég aldrei við handrit!" gerð. Frumraun- in, Meðan tárin streyma, er eina mynd hans sem byggist á skrif- uðu handriti. Hann er umfram allt brautryðj- andi stílisti, skapar ásamt tökumanni sín- um, Astralanum Christopher Doyle, marg- brotið myndmál þar sem svart- hvítt slæst við undarlega nakt- ar litasamsetn- ingar, hraðar tökuhreyfingar í kyrru landslagi laða fram sérstætt existensíalískt leiksvið fyrir sögur um einsemd, ein- angrun og flóknar siðferðislegar spurningar, gjarnan kryddaðar of- beldi. Og fjölmiðlar á Vesturlöndum voru ekki lengi að finna stimpilinn: Hinn kínverski Quentin Tarantino! Allt þetta speglast í myndunum þremur sem hér verða sýndar. Fallnir englar: Furðufuglar ísviðsljósinu. Lukkulegir saman: Astarsaga um einmanaleika. Takeshi Kitano sækir fyrirmynd Kikujiros í föður sinn Kihujiro: / móðurleit. Byrjaði JAPANSKI leikstjórinn Takeshi Kitano festi sig í sessi fyrir alvöru á alþjóðavettvangi með kvikmyndinni Flugeldar sem vann gulUjónið í Feneyjum árið 1997. Leikstjórnarferillinn hófst óvænt árið 1989. Þá var honum boðið að leik- stýra Ofbeldisfullri löggu þegar leikstjórinn for- fallaðist. Kitano endurskrifaði handritið og mót- aði hvassan og kaldhæðinn stfl, sem átti eftir að verða hans aðalsmeriri í yakuza-glæpamyndum á borð við Á suðupunkti (1990) og Sónatína (1993). Kitano varð alræmdur fyrir grafísk of- beldisatriði og ískalt yfirbragð í aðalhlutverki mynda sem hann leikstýrði og skrifaði handritið að. Hann breytti þó út af þeim stfl í myndunum Sena við sjóinn (1991), Færðu eitthvað? (1995) og Krakkar koma heim (1996). Kikujiro er eitt af stflbrotum Kitano. Masao litli hefur engan til að leika sér við. Gert hefur verið hlé á fótboltaæfingum og vinir hans eru famir á ströndina. Það er jafnvel enn leiðinlegra en ella fyrir þennan níu ára dreng að búa hjá ömmu sinni. Hann leggur því af stað í leit að móður sinni, sem hann hefur aldrei hitt, með mynd og heimilisfang í farteskinu. Þar sem hann er lítt fjáður er Kikujiro fenginn til að fylgja honum. í fyrstu virðast þeir ekki eiga vel saman, Kikujiro er grófur, hávær og alltaf í auraleit. í ofanálag virðist honum vera í nöp við krakka. En þeir lenda í ótrúlegustu ævintýrum saman og smátt og smátt kemur í ljós að þeir bæta hvor annan upp. Fyrirmyndina að persónunni Kikujiro sækir Kitano í föður sinn, sem hann hefur sagt að hafi BÖrn og flækingshundar Kitano segist ekki hafa átt í neinum | erfiöleikum með að ná því besta úr ungum mótleikara sínum. „Þetta var ekki ósvipað því að kvikmynda flæk- ingshund og vilja ná mynd af honum j brosandi," segir hann. „Maður þarf i bara að leggja girnilegt bein fyrir fram- ' an hundinn. Svo ég keypti stundum I leikföng handa stráknum til að halda honum viö efnið." verið dulur og óreglusamur. í æsku dáðist hann mjög að föður sínum sem var húsamálari og gerði lakkaða trémuni, auk þess að vera fjár- hættuspilari og eiga í erfiðleikum með að sjá fjölskyldu sinni farborða, hvað þá greiða húsa- leiguna. Móðir Kitanos var aftur á móti reglu- semin uppmáluð og taldi hún son sinn á að fara í háskólanám. Hann hætti áður en náminu lauk og réði sig í ýmis lausastörf, eins og að vinna kassastarf á fatafelluknæpu. Það var á kabarett í næsta nágrenni sem hann lærði að dansa og steppa og ýmsa líkamstján- ingu, sem varð kjaminn í reglulegu uppistandi hans í japönsku sjónvarpi, en þar treður hann upp átta sinnum í viku. Þá hefúr hann gefið út nokkrar skáldsögur og smásagnasafn, ritgerðir og ljóð, auk þess að teikna skrípasögur og vera listmálari. Má sjá nokkur af verkum hans í Flugeldum og Kikujiro. Loks má geta þess að Kitano fjármagnar áhugamannalið í hafnabolta og keppir stundum sjálfur með liðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.