Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 13
MUKGUNHLADli) BiOBLAD FÖSTUDAGUK 29. SKFl’EMBEK 2000 U 13
Teiknimynd Hayaos Miyazaki
upp að hliðinni á Titanic í Japan
Átök náttúrunnar
HAYAO Miyazaki er fremsti og
frægasti teiknimyndahöfundur Jap-
ana. Mynd hans, Mononoke prins-
essa, er önnur af tveimur kvik-
myndum sem aflað hafa yfir 150
milljónir dollara í aðgangseyri í
heimalandinu; hin myndin er Titan-
ie.
Mononoke prinsessa er lauslega
byggð á japanskri þjóðtrú og gerist
á miðöldum, tímum ólgu og vopna-
skaks, tíma samúræjanna. I landinu
geisar styrjöld.
Tatara-gengið
veður um skóg-
ana og eyðir
þeim þar til hinn
mikli skógarguð
snýr vörn í sókn
og sendir risa-
vaxin skrímsli
gegn þeim. í af-
skekktu þorpi
hátt í fjöllum
Norður-Japan
býr Ashitaka,
síðasti ungi her-
maður Emishi-
gengisins, sem
er að deyja út.
Til þess að verja
þorp sitt verður
hann að drepa
skrímsli i líki
risabjarnar en
uppgötvar of seint að sá er í raun
varðguð skógarins. Þar með hefur
Ashitaka kallað yfir sig bölvun, sem
birtist í miklu öri á hægri handlegg.
Örið breiðist smátt og smátt út um
líkama hans og hann leggur út í
háskafullan leiðangur til að halda
lífi. Lykilpersóna í því ævintýri er
Mononoke prinsessa, ung kona sem
alist hefur upp með úlfum.
Viðfangsefni Miyasaki í þessari
mikilfenglegu teiknimynd er við-
leitni karla og kvenna til að lifa í
samlyndi og í sátt við náttúruna, og
þar þjónar prinsessan sem eins
konar tengiliður, sáttasemjari
hinna stríðandi afla. Miyasaki segir
það ekki hafa verið tilgang sinn að
draga upp sagnfræðilega rétta
mynd af Japan
miðalda, heldur
miklu fremur að
grafast fyrir um
rætur þeirrar,
að því er virðist,
óleysanlegu
togstreitu milli
náttúru landsins
og iðnvæddrar
siðmenningar
nútímans. Efnið
er því ekki síður
við hæfi fullorð-
inna en barna.
Sú útgáfa,
sem Kvikmynda-
hátíð í Reykja-
vík sýnir nú, er
bandarísk og úr
smiðju Mira-
max-fyrirtækis-
ins, sem fengið
hefur leikara á borð við Billy Crud-
up, Minnie Driver, Claire Danes,
Billy Bob Thomton, Jada Pinkett
og Gillian Anderson til að Ijá pers-
ónunum raddir sínar. Neil Gaiman
og Jack Fletcher sáu um handrits-
gerð þessarar útgáfu.
GERÐ Mononoke prinsessu
tók þrjú ár. Hún er sett sam-
an úr 144.000 handteikn-
uðum og tölvuteiknuöum
myndum og hefur engin jap-
önsk teiknimynd lagt jafn mik-
ið undir. Teiknimyndagerð er
stóriðnaður í Japan, ekki sfð-
ur fýrir sjónvarp en kvikmynda-
hús og er Hayao Miyazaki
ókrýndur konungur þess iðn-
aðar. Fyrri myndir hans voru
allar handteiknaðar og -málaö-
ar, en Mononoke prinsessa er
10% tölvuteiknuð.
Bruin: Forboðnar astir.
Gérard Depardieu leikstýrir í fyrsta sinn
Flóttafólk á bar og í bíó
FRANSKI leikarinn Gérard De-
pardieu er ekki hin dæmigerða
kvikmyndastjarna, þéttvaxinn, ef
ekki hreinlega feitur og prýddur
risastóru ljósaperunefi. En hann
er stjarna engu að síður, stjarna
vegna ótvíræðra leikhæfileika og
sterkrar nærveru á tjaldi og fær
yfir hundrað milljónir íslenskra
króna fyrir að leika í mynd. Nú
hefur Depardieu fært út kvíarnar
og leikstýrt sinni fyrstu bíómynd í
samstarfi við Frédéric Auburtin.
Myndin heitir Brúin eða Un
pont entre deux rives og gerist ár-
ið 1962. Depardieu leikur sjálfur
annað aðalhlutverkið á móti leik-
konunni Carole Bouquet, við-
kvæman mann sem misst hefur
sjálfstraustið og trúna á lífið vegna
Gérard Depardieu er afkasta-
mikill leikari og staðfestir að
vinnusemi sín stafi að sumu
leyti af því að hann afli fjár
með því að leika í fjölda bfó-
mynda til að standa straum
af helsta áhugamáli sfnu;
„ástríðufullum áhuga á víni“.
Depardieu er nefnilega vín-
bóndi og framleiðir 350.000
flöskur af víni árlega.
langvinns atvinnuleysis. Hann eyð-
ir flestum stundum við drykkju á
barnum en eiginkona hans, leikin
af Bouquet, flýr leiðindi síns lífs
inn í heim kvikmyndanna. Eitt
sinn þegar hún er stödd í kvik-
myndahúsi og grætur yfír West
Side Story hittir hún mann og
senn hefja þau ástarsamband. Eig-
inmaðurinn gerir allt sem hann
getur til að fá hana til að snúa aft-
ur heim til hans og sonar þeirra.
Leikkonan Carole Bouquet segir
um persónu sína: „Hún lifði gegn-
um kvikmyndirnar. En þegar hún
hefur fundið tilgang í eigin lífi þarf
hún ekki að fara i bíó. Ég man
sjálf eftir því þegar ég á aldrinum
tólf til tuttugu ára, að ég var ein-
mana og kvikmyndir urðu félags-
skapur minn. Ég fer enn oft í bíó
en ekki eins oft og þá.“
Jan Hrebejk með kvikmynd um vorið í Prag
Uppgjör við
kommúnis
TEKKNESKI leikstjórinn Jan Hreb-
ejk er fæddur árið 1967 og man varla
mikið eftir vorinu í Prag ári síðar þeg-
ar Rússar réðust inn í borgina og
kæfðu þá vonarglóð sem kviknað hafði
í tékknesku þjóðarsálinni. Atburðurinn
setti mark sitt á hann eins og aðra
Tékka, fyrir vikið bjó hann við ógnar- Cosy Dens: Togstreita tveggja fjölskyldna.
stjórn kommúnista í rúma tvo áratugi.
Það þarf því ekki að koma á óvart að innrás-
in í Prag árið 1968 hafi orðið honum efnivið-
ur í kvikmynd, hans uppgjör við kommún-
ismann.
Hrebejk segir söguna með því að stilla
tveim fjölskyldum hvorri gegn annarri. Ann-
ars vegar föðurnum Sebek, einföldum liðs-
foringja í hernum, sem á son á unglingsaldri
og styður kommúnista. Hins vegar Kraus,
sem barðist með andspyrnuhreyfingunni og
hefur slæmar minningar úr stríðinu; hann á
táningsdóttur og hefur horn í síðu kommún-
ista. Hvor um sig telur sig hafa algjörlega
rétt fyrir sér og lendir þeim ósjaldan saman,
jafnvel þótt eiginkonur þeirra, hálfþreyttar á
rembingnum, reyni að bera klæði á vopnin.
Eins og nærri má geta kviknar æskuást
milli unglinganna tveggja, sem eru lausir við
flokkadrættina úr stríðinu og eiga sameigin-
lega hrifningu á byltingakenndri og kapítal-
ískri „blómahreyíingunni" Þegar deilur inn-
an fjölskyldnanna rísa sem hæst ráðast
Sovétmenn inn í Prag með afdrifaríkum af-
leiðingum. Kvikmyndin hefur fengið frábær-
ar viðtökur í Tékklandi og var aðsóknin svip-
uð og á stórmyndina Titanic og verðlauna-
myndina Kolya.
„Til þess að gera kvikmynd á borð við
Heima er best þarf framúrskarandi leikara.
Við þurftum fólk sem gat ekki aðeins leikið
hlutverkin heldur lagt á vogarskálarnar eig-
Tónlist er mikilvægur þáttur í myndum
Hrebejks. I Heima er best er hún táknræn
fyrir kynslóöabiliö. Foreldrarnir, sem ólust
upp við rússneska þjóðlagatónlist, hlusta
aðeins á popptónlist sem hlotið hefur
náð fyrir eyrum yfirvalda. Unga fólkiö
hlustar á tékkneska útgáfu af rokktónlist
sem er ekki aöeins uppreisn gegn íhalds-
sömumTÍfsviðhorfum foreldrann^ og
kommúriistaflokksins, heldurgefurtil
kynna hrifningu á vestrænum gildum og
andúð á ríkjandi stjórnmálaástandi.
in persónuleika og reynslu. Við vorum svo
lánsamir að frambærilegustu kvikmynda-
stjörnur Tékklands féllust á að leika í mynd-
inni,“ segir Hrebejk. Hann lærði í kvik-
myndaskóla í Prag og gerði fyrst
söngvamyndina Big Beat (1993), sem gerist
í lok sjötta áratugarins þegar rokktónlistin
barst til Tékklands. Hún vann til fjögurra
tékkneskra ljóna, sem eru virtustu verðlaun
í Tékklandi, m.a. fyrir bestu leikstjórn og
sem besta mynd. Hann vinnur um þessar
mundir að ljúfsárri gamanmynd sem gerist í
seinni heimsstyrjöldinni og nefnist „Við
verðum að standa saman.“
Martha Fiennes ræðstekki á garðinn þar
sem hann er lægstur
Púskín, Ónegín,
Tchaikovsky, Tiennes...
EVGENÍ Ónegín er sannarlega
eitt af höfuðverkum bókmennt-
anna. Þjóðskáld Rússa Aleksander
Púskín lauk við söguljóðið árið
1931. Þar dró hann upp skarpa
mynd af rússneskri náttúru og
samtíma sínum, svo mjög að einn
gagnrýnenda kallaði ljóðið „al-
fræði um lífið í Rússlandi“. Martha
Fiennes er því ekki að ráðast á
garðinn þar sem hann er lægstur í
fyrstu kvikmynd sem hún leikstýr-
ir.
Ónegín (Ralph Fiennes) er ófull-
nægður og sjálfumglaður ungur
maður sem segir skilið við Péturs-
borg þegar hann erfir sveitasetur
auðugs frænda síns. Þar kynnist hann sveitunga
sínum Vladimir Lensky (Toby Stephens) og
Olgu unnustu hans (Lenu Headey). En það er
systir Olgu, Tatyana Larina (Liv Tyler), sem
hefur mest áhrif á hann. Tatyana tjáir honum
ást sína, en hann vill ekkert með hana hafa og
snýr aftur til Pétursborgar. Nokkrum árum síð-
ar fer Ónegín í aftur í sveitina og hittir Tatyönu,
sem þá er gift öðrum manni. Það rennur upp
íyrir honum að hjarta hans er gagntekið af ást
til hennar, - en það er um seinan.
Sama ár og Évgení Ónegín var gefinn út fór
að síga á ógæfuhliðina hjá Púskín. Hann giftíst
eyðslusamri og skapríkri daðurdrós sem kom
honum á vonarvöl og dró úr honum allt vinnu-
þrek. Hún naut þess að oma sér við hlýjar
augnagotur karlpeningsins, jafnvel keisarinn
sjálfur hafði augastað á henni. Púskín reyndi að
öðlast sálarfrið með því að ferðast út á land en í
hvert skipti sem hann sneri aftur til Pét-
ursborgar jókst óhamingja hans. Svo fór að
Púskín skoraði einn af áleitnustu aðdáendum
konu sinnar á hólm. Hann beið bana í einvíginu
og deildi þar með örlögum sögu-
persónunnar Ónegín.
Evgení Ónegín hefur vakið
mörgum innblástur. Turgenjev,
Tolstoj og Dostojevski lýstu því oft
yfir að Púskín hefði verið þeirra
lærifaðir. En sagan hafði ef til vill
mest áhrif á líf tónskáldsins
Tchaikovsky. Þrátt fyrir að honum
litist ekkert á hugmyndina í fyrstu
samdi hann óperu byggða á ljóðinu
á átta mánuðum. Á þeim tíma barst
honum einlægt bréf frá kvenkyns
aðdáanda sem tjáði honum ást sína,
ekki ósvipað Tatyönu. Tchaikovsky
var samkynhneigður og má ætla að
hrifning hans á Tatyönu hafi ráðið
úrslitum um að hann giftist konunni. Eins og’
nærri má geta varð það ekki farsælt hjónaband.
Fiennes-fjölskyldan á heiðurinn af Ónegín.
Stórleikarinn Ralph, sem tvívegis hefur verið
tilnefndur til óskarsverðlauna, er íramleiðandi
og fer með aðalhlutverk, systir hans, Martha,
leikstýrir og bróðir hans, Magnús, semur tón-
hstina. Martin Donovan er í hlutverki prinsins
Nikitin, sem giftist Tatyönu. Donovan er kunn-
astur fyrir að leika í fjórum af myndum jaðar-
leikstjórans Hals Hartley.
MTV-kynslóðin
Martha Fiennes hóf ferilinn á því að leik-
stýra auglýsingum ogtónlistarmynd-
böndum. Leikkonan LivTyler haslaði sér
völl á sama vettvangi; hún var sæt stelpa
í rokkmyndböndum Aerosmith þar sem
faðir hennar Steve Tyler nær jafnvel meiri
teygju á gúmmíkjaftinn en sjálfur Jagger.
Ralph Fiennes í titil-
hlutverkinu: Ófull-
nægður ungur maður.