Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 17
AJrtíÚS! H y 8M STtSö AS Ht ] DA'Ctl JTÍ()'I
MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 C 17
KVIKMYNDAHÁ T í Ð
í R E Y K J A V í K
mæli mín í tengslum við réttarhöld-
in [þegar Lydon höfðaði mál gegn
McLaren vegna þess að hann taldi
að umboðsmaðurinn hefði komið
óheiðarlega fram. Lydon vann út-
gáfuréttinn á öllum upptökum, jafnt
tónlist sem kvikmyndum, með Sex
Pistols.]
Þá voru mikil málaferli og skotin
gengu í allar áttir, en ég reyndi að
taka ekki þátt í þeirri orrahríð held-
ur vera heiðarlegur og lýsa því
hversu mikilvægur Lydon hefði
verið hljómsveitinni. Jafnvel þótt
hljómsveitin sjálf hefði vitaskuld
verið það sem mestu máli skipti. Eg
veit að John las yí'ir allar þessar
blaðsíður af vitnisburði þeirra sem
unnið höfðu með Sex Pistols og ég
hélt að minnsta kosti uppi vörnum
fyrir hann þar sem það skipti veru-
lega máli. Eg held að það hafi hjálp-
að upp á sakirnar. Enda hafði okkur
komið ágætlega saman áður en allt
fór í háaloft."
Var það banadægur tónlistarinn-
ar þegar Sex Pistols fór af sviðinu í
San Francisco árið 1978?
„Að mínum dómi er hún ekki skil-
in við,“ svarar Temple og hristir
höfuðið. „Eg get nefnt sem dæmi
Primal Scream, sem er í uppáhaldi
hjá mér, og að það er verið að búa til
ótal áhugaverða hljóma. Nú stend-
ur leitin yfir að meiningu; tónlistin
er til staðar.“
Hvernig leið þér þegar Sex Pist-
ols fór aftur í tónleikaferð árið
1996?
„Ekki mjög vel,“ svarar hann og
hlær. „Ég var lagður af stað í bíln-
um og ætlaði að horfa á þá, en sneri
við á miðri leið. Ég ú of skýrar og
dýrmætar minningar um þá. En ég
heyrði út undan mér að þeir hefðu
haldið mjög góða tónleika, margir
létu sig hafa að mæta og voru hrifn-
- ir. Ég óska þeim alls góðs. Mér
skilst að trommuleikarinn hafi verið
á kúpunni og þeir hafi gert þetta til
þess að hjálpa honum. Sem er höfð-
inglega gert. En ég vil heldur muna
þá eins og þeir eru í þessari kvik-
mynd.“
Af hverju vildirðu ekki að sæist
framan í meðlimi sveitarinnar í
þeim viðtölum sem tekin voru sér-
staklega fyrir myndina ?
„Af því að ég þoli ekki gamlar og
hrukkóttar rokkstjörnur,“ svarar
hann. „Ekki að þeir séu alslæmir;
þær líta dálítið út eins og banka-
ræningjar sem sluppu úr klóm
réttvísinnar. En þetta er líka
brandai'i. Það er þó nokkuð um þá í
myndinni og ég vona að hún verði
fyndin fyrir bragðið.“
Pað kom mér einna mest á óvart í
myndinni þegar Johnny Lydon
byrjar að gráta vegna Sid Vicious.
Það eru liðin tuttugu ár síðan hann
lést!
„Það sýnir hversu djúpt er á
væntumþykjunni," segir Temple.
„Mér líkar þetta við myndina. Það
síðasta sem maður býst við er
Kleenex-mynd um Sex Pistols.
Enda var ég að velta fyrir mér að
dreifa litlum stjórnleysingja-kleen-
ex-bréfklútum til áhorfenda."
Bjóstu viðþessu?
„Þetta kom mér á óvart og sló
mig eiginlega út af laginu. Hann
varð mjög reiður og sagði: „Þú
komst mér til að gráta. Ég vil ekki
að það komi fram í myndinni. Þú
mátt ekki nota þetta.“ Þetta voru
fyrstu viðbrögð hans. En auðvitað
var þetta það fyrsta sem ég klippti
inn í myndina þegar ég kom heim.
Mér fannst það alveg frábært; að
hafa náð myndum af Lydon grát-
andi. En hann er orðinn nógu stór
til að þurfa ekki að hafa áhyggjur af
því. Atriðið er hrífandi og sýnir að
hann óttaðist um Sid, jafnvel áður
en hljómsveitin kom til sögunnar."
Hvað um þinn feril? Þú virtist
vera að ná miklu flugi eftir Absolute
Beginners og Stóra rokksvindlið.
Síðan ... hvað gerðist? .
„Nú, ég skemmti inér konung-
lega,“ svarar Temple makindalega.
„Ég neytti fullt af eiturlyfjum, eign-
aðist fullt af börnum..." Hann glott-
ir. „Nei, ég virtist vera á frama-
brautinni, en vildi ekki fara þá leið.“
Afhverju ekki?
„Mér þykir of vænt um sannleik-
ann til að verða eitthvað sem ég hef
aldrei haft áhuga á að verða. Ég hef
horft upp á of marga verða skop-
stæling af því sem þeir voru og
reynt að forðast það sjálfur. Svo
hefur mér líka lærst að gnótt fjár
eykur ekki endilega á vellíðan. Mað-
ur hefur það ágætt svo lengi sem
maður á nóg og þarf ekki að svelta.“
Þú sveltur ekki núna?
„Mér líður bærilega,“ svarar
hann. „Ég fékk mér samloku í
morgun.“
Frédéric Fonteyne meó kvikmynd um klámfengna rómantík
Maður elskar
KO
„ÞAÐ sem skapar ástarsögu í mín-
um huga er að hún hefur upphaf,
miðbik og endi. Og það er endirinn
sem gerh- söguna þess virði að segja
hana,“ segir Belginn Frédéric Font-
eyne, leikstjóri myndarinnar Klám-
fengin kynni (1998).
Það sem heillaði hann við handrit
Philippe Blasband, sem skrifaði
einnig handritið að fyrri mynd Font-
eyne, Max og Bóbó (1997), var sag-
an, að þetta væri „sönn ástarsaga!
Þetta eru venjulegar manneskjur.
Við þekkjum ekki nöfnin á þeim eða
fortíð þeirra. Við vitum bara að
þetta eru maður og kona sem hafa
eina ástæðu til að hittast, - kynlíf.
Þrána eftir því að fullnægja þeim
kynórum sem þau eiga sameigin-
lega. Og svo verða þau ástfangin..."
Nathalie Baye og Sergi Lopez eru
í aðalhlutverkum í Klámfengnum
kynnum, sem vakti mikla athygli á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyr-
ir tveim árum. Myndin fjallar um
par, kynlíf og ást. Það er vart hægt
að segja miklu meira um söguþráð-
inn. „A undirbúningstímabilinu bað
ég Frédéric Fonteyne að segja mér
við hvað hún [aðalkvenpersónan]
starfaði, hver væri fortíð hennar
o.s.frv," segir Baye.
„En ég gerði mér fljótlega grein
fyrir að það væri ekki mikilvægt.
Við fáum nokki’ar vísbendingar þeg-
ar við sjáum íbúðina hennar. Hún
heyiir hvorki til millistéttar né
verkalýðsstéttar ... eða neinnar
annarrar ef út í það er farið. I þess-
ari sögu eru „hann“ og „hún“ aðeins
urom
klámfengnari
„Það sem heillar mig mest
af öllu eru litlu þagnirnar...
og það sem býr á bak við
orðin,“ segir leikstjórinn
Frédérie Fonteyne. „Éghef
þörf fyrir að kvikmynda and-
lit... fólk sem á í samræó-
um og rifjar upp minningar.
Það erí þeim skilningi sem
rómantík er kiámfengin.
Hún er berstrípuð; hneyksl-
anleg vegna þess aö tilfinn--
ingarnar eru svo nánar.
Það snýst ekki um kyniíf,
það snýst um orð.“
Klámfengin kynni: Maður elskar
konu...
til í ástúðlegu augnaráði hvors ann-
ars. Þau eru alltaf í nálægð hvort við
annað. Þessi skortur á nákvæmni
gerði mér gott. Ég gat sleppt mér
lausri í tilfinninguna sem fylgdi
hverju augnabliki."
Ætli það sé ekki við hæfi að leik-
stjórinn fái síðasta orðið. „Ástar-
fundir manns og konu - hugmynd
sem hver einasti handritshöfundur
hefur fengið þegar hann vaknar í
svitabaði um miðja nótt og punktar í
minnisbókina sem hann geymir við
rúmið,“ segir Fonteyne. „Hugmynd-
in snilldarlega sem hann les morg-
uninn eftir er þannig: „Maður elskar
konu.““
j
t
8V2 kona upp úr kokkabókum Peters Greenaways
„ÞAÐ var alltaf ætlunin að 8V2 kona
yrði kjarnyrtur gamanleikur," segii'
leikstjórinn, málarinn og rithöfund-
urinn Peter Greenaway um nýjustu
kvikmynd sína. Hún fjallar um feðga
sem leitast við að fullnægja kynór-
um sínum í formi átta og hálfrar
konu á sveitasetri föðurins. Kynórar
þeirra feðga eru sígildir og sóttir í
bókmenntir, myndlist, leikhús, þjóð-
lífið, fjölmiðla og sannarlega í kvik-
myndir.
Eins og nærri má geta er titillinn
skírskotun í draumkennda kvik-
mynd italska leikstjórans Fellinis og
mótast nokkrar kvenpersónur af
þeirri fyrirmynd. Þá þai-f vart að
orðlengja að andi Madame Butterfly
svífur yfir vötnum, austurlenska
konan sem er tæld og yfirgefin af
vestrænum karlmanni. Þá koma
fleiri við sögu, t.d. ritari í karlmanns-
fötum, skírlíf nunna, ófríska frjó-
sama konan, skyldurækin ráðskona
og lostafull vændiskona, sem inn við
beinið er góðmennskan holdi klædd.
„Kvikmyndin er óður til Fellinis
sem fann upp á og skapaði svo marg-
ar minnistæður kvenpersónur í kvik-
myndum sínum,“ segir Greenaway.
„Þá sérstaklega í rómuðu sjálfs-
ævisögulegu verki hans - Fellini
átta og hálfur - þar sem kynlífs-
draumar karlmannsins rætast með
persónu Mastroianni, en sagt var að
8V2 Fellinis erekki ei
nafngift nýjustu myndar
Greenaways. Það spilar líka inn
í aö titillinn 8% kona ýjar að
hróplegu misrétti og æpandi
pólitísku óréttlæti og ekki loku
fyrir það skotiö að sumir
hneykslist. „Við ætlum að færa
okkur það í nyt, sem best vió
getum," segirGreenawayglað-
hlakkalegur.
Fellini sæi sjálfan sig í honum.“
Greenaway hefur gert níu kvik-
myndir auk ótal annarra verkefna,
sem of langt mál væri að telja upp
hér. Það er ekki alltaf auðvelt að
greina á milli listgreina þegar hann
er annars vegar, en hann er lærður
málari og hefur verið óhræddur við
8 V2. kona: Kynórum fullnægt.
að valsa um menningarsviðið að eig-
in geðþótta. Næsta verkefni hans,
Ferðataska Tulse Lupe, verður risa-
vaxið á sviði margmiðlunar og teng-
ist kvikmyndum, sjónvarpi, CD-
RomogNetinu.
En hann er samur við sig í 8‘/2
konu hvað varðar sterkar og drottn-
unargjarnar konur, sem þykja jafn-
an einkenna persónusköpun í mynd-
um hans. „Það kemur á daginn, og er
alls ekki óvænt, að konumar geta
hlaupið mun hraðar en karlarnir, og
öðlast frelsi með því að útkeyra kyn-
óra karlanna og skipta þeim út fyrir
sína eigin. Darwinisti myndi líklega
segja að þeir kynórar, sem kynntir
eru til sögunnar, séu óhjákvæmileg
þróun hjá báðum kynjum."
t
*
r
—r