Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 4

Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 4
1 B SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR DR. SEUSS er líklega þekktastur hér heima fyrir söguna Kötturinn með hött- inn, sem fyrst kom út undir lok sjötta áratugarins. Þá hafði hann skrifað How the Grinch Stole Christmas eða Tröll- ið sem stal jólunum sem fjallaði um hellisbúa í háu fjalli er horfir niður á bæjarbúa í nærliggjandi plássi undirbúa jólin og þolir illa gleðina og fagnaðarlætin. Þegar jólin nálgast eina ferðina enn ákveður hann að dulbúa sig og eyðileggja jólin fyrir öllu ham- ingjusama fólkinu. The Grinch var frumsýnd í Bandaríkjunum um síðustu helgi og naut mikilla vinsælda, tók inn um 55 milljónir dollara fyrstu sýningarhelgina sem mun vera fimmta mesta aðsókn sem mynd fær fyrstu helgina; virðist sem dr. Seuss ætli að stela þessum jólum frá keppinautum sínum. Jim Carrey fer með titilhlutverk- ið en leikstjóri er Ron Howard, Anthony Hopkins er sögumaður og með önnur hlutverk fara m.a. Molly Shannon og Bill Irwin. Carrey breytist í tröll Theodor S. Geisel, öðru nafni dr. Seuss, ætlaði sögum sínum aldrei að vera kvikmyndaðar. Hann var ekki ánægður með hvernig í upphafi sjötta áratugar- ins staðið var að kvikmyndun 5000 fingra dr. T, sem byggðist á verki hans og hann var sérstak- lega ánægður með teiknimyndaút- gáfu af The Grinch sem gerð var árið 1966 og taldi að ekki væri hægt að gera betur. Geisel lést árið 1991 og neitaði ekkja hans, Audrey, öllum þeim sem báðu um að fá að kvikmynda verk hans. Þegar hin nýja tölvutækni kom til sögunnar á öndverðum tíunda áratugnum sá hún tækifæri til þess að kvikmynda sögur bónda síns heitins með nýjum og bylt- ingarkenndum hætti. Hún gerði á endanum samning við framleiðandann Brian Grazer, sem á kvikmyndafyrirtækið Im- agine ásamt leikstjóranum Ron Howard og Howard tók að sér leikstjórnina. Carrey var sjálf- kjörinn í hlutverk tröllsins í fjall- inu. „Jólin voru ekki komin fyrir en maður var búinn að lesa bók- ina einu sinni enn og horfa á teiknimyndina í sjónvarpinu,“ er haft eftir leikaranum. „Þegar ég frétti af þessu kvikmyndaverkefni var eins og draumur hefði ræst. Eg hafði ekki einu sinni getað ímyndað mér að ég ætti eftir að leika þetta hlutverk." Hann varð að sanna sig fyrir ekkjunni Audrey, sem heimsótti Carrey á tökustað The Man on the Moon þar sem leikarinn var í hlutverki grínarans Andy Kauf- mans. Carrey lifði sig svo inn í hlutverk Kaufmans á meðan á tökum myndarinnar stóð að hann sjálfur birtist fóiki mjög sjaldan svo það sem Audrey sá var Kaufman að herma eftir Carrey að Ieika tröllið. „Þetta var svolítið flókið allt saman,“ er haft eftir Carrey. Audrey var ekki í neinum vafa og samþykkti gamanleikarann í titilhlutverkið. „Án nokkurrar förðunar breytt- ist hann í tröllið frammi fyrir mér,“ segir ekkjan. Helsta vandamálið sem blasti við framleiðendunum var að skapa þann undurfurðulega og óútreiknanlega heim sem dr. Seuss var þekktur fyrir í þeim 44 barnabókum sem hann skildi eftir sig. Myndin var öll tekin í kvik- myndaveri hjá Universai-kvik- myndafyrirtækinu í Hollywood. „Þetta er raunveruleg veröld en bara ekki sú veröld sem við þekkjum,“ segir Howard að hafi verið leiðarljós hönnuðanna undir hans jrfirstjóm. 250 milljónir eintaka Theodor S. Geisel eða dr. Seuss var vanur að segja „mannvera er mannvera hversu smá sem hún Presslink Hann merkti fyrstu teikning- arnar sínar með heitinu Dr. Theophrastus Seuss til þess að setja vísindalegan svip á dýrasög- urnar. Heitið þróaðist síðar meir í dr. Seuss, sem var ættarnafn móður hans, og var á fyrstu bók- inni sem hann gaf út árið 1937. Og hugsa sér að ég skyldi sjá það á Mulberry-stræti! Þegar hann lést hafði hann samið 44 barnabækur. Kötturinn með höttinn átti eftir að hafa gíf- urleg áhrif á barnabókmenntirn- ar. Útgefandi uppeldislegs efnis fyrir börn hvatti dr. Seuss til þess að skrifa bók sem innihélt aðeins 225 orð en gæti samt heillað unga lesendur og úr varð sagan um köttinn, sem seldist í milljónum eintaka. Höfundurinn varð á endanum heiðursdoktor við ekki færri en sjö háskóla og hreppti Pulitzer- verðlaunin í bókmenntum árið 1984. Þegar hann lést árið 1991 höfðu selst meira en 250 milljónir eintaka af bókum hans. Barnastjarna í leikstjórastólinn Leikstjórinn Ron Howard er einn af þessum bandarísku kvik- myndagerðarmönnum sem eru dæmigerð afurð Hollywood-kerf- isins. Myndirnar hans eru fyrst og fremst söluvara skreyttar stór- stjörnum,, sem raka inn hundruð milljónir idollara. Síðasta mynd hans var háðsádeilan EdTv með Matthew McConaughey en þar á undan gerði hann tryllinn Rans- om með Mel Gibson. Líklega er hann þó þekktastur fyrir geim- ferðamyndina Apollo 13 þar sem Tom Hanks fór á kostum sem leiðangursstjóri í misheppnaðri tunglferð. Howard er mjög faglegur leik- stjóri, myndir hans eru hnökra- lausar í framsetningu en geisla ekki beint af frumleika eða áræðni. Hann hefur alla sína ævi verið viðloðandi skemmtanaiðn- aðinn í Bandaríkjunum, fyrst sem sjónvarpsstjarna í gaman- þætti Andy Griffiths og síðar sem Richie Cunningham í Happy Days. Flestar barnastjörnur í sjónvarpi og kvikmyndum vestra eiga í talsverðum vandræðum með að fullorðnast og halda öllu sínu sem fullorðnir leikarar. Howard fór öðruvísi að hlutun- um. Þegar hann þroskaðist hætti hann einfaldlega að leika en lagði fyrir sig leikstjórn í stað- inn. Eitthvað lék hann í kvik- myndum áður en hann hætti því alveg m.a. í The Shootist árið 1976 á móti vestrahetjunni John Wayne. Howard gekk eins og svo marg- ir aðrir leikstjórar, sem síðar áttu eftir að skapa sér nafn í drauma- borginni, í skóla hjá B-mynda framleiðandanum Roger Corman og gerði sína fyrstu bíómynd hjá honum, Grand Theft Auto, árið 1977. Hann var aðeins 23 ára gamall og fjöldi léttra gamanmynda fylgdi á eftir: Night Shift, Splash, Cocoon, Gungh Ho og loks Willow, æv- intýramynd sem hann gerði fyrir George Lucas. Myndir Howards urðu metnaðarfyllri eftir að hann stofnaði Imagine með Brian Grazer og hann gerði m.a. Far and Away með Tom Cruise og Backdraft með Kurt Russell. The Grinch stefnir í að verða vinsælasta mynd Ron Howards til þessa enda vinsælasti gamanleikari samtím- ans honum til aðstoðar í þetta sinn. „Hann hefur ótrúlegt hugmyndaflug,“ segir leikstjórinn um leikarann sinn. „Krafturinn er ótak- markaður og líkamlegt atgervi einstakt. Það kom enginn annar til greina í hlutverkið en hann.“ Seuss. nýja mynd um síðustu helgi með Jim Carrey í aðalhlut- verki sem heitir The Grinch og byggist á sögu eftir barnabókahöfundinn dr. Bókin vinsæla um það þegar Trölli stal jólununi er nú komin út á latínu, og kannski ekki tilviljun nú þegar kvik- myndin er að slá í gegn. Reuters er. Börnin vilja allt það sama og við sem erum fullorðin; þau vilja hlæja, vera ögrað, skemmta sér og fyllast hrifningu." Geisel fæddist í Bandaríkjun- um árið 1904. Hann gekk í Dart- mouth-háskóla og gerðist rit- stjóri brandarablaðs skólans en fyrirrennari hans í því starfi var Norman Maclean, höfundur m.a. A River Run Through It. Geisel nam síðar við Oxford-háskóla áð- ur en hann hóf störf við auglýs- ingar auk þess sem hann byrjaði að semja myndasögur í tímaritið Judge þar sem komu fyrst fram hinar undarlega sköpuðu verur höfundarins. Jim Carrey bregður á leik með gamanleikaran- um Rodney Dangerfield við frumsýningu mynd- arinnar, „Dr. Seuss’ How the Grinch Stole Christmas" fyrr í mánuðinum. Audrey Geisel, ekkja Theodor Geisel, öðru nafni Dr. Seuss, fagnar Josh Ryan Evans sem einmitt leikur í myndinni. Atriði úr myndinni um jólaþjófinn Trölla. Dr. Seuss stelur]OLUtlUtyi 1 /1*1 «1 i • X • T\ - Bandaríski leikstjórinn Ron Howard var barnastjarna í sjónvarpi en er nú einn af helstu leikstjórum drauma- verksmiðjunnar í Hollywood að sögn Arnaldar Indriða- sonar. Howard sendi frá sér Quom°po \n'n/ic,'os0v.cs HoAaihe 6WNCHUS CnwsTl AbhocáJeriT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.