Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 10

Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Sagnaþulurinn Morgunblaðið/Sigurgeir Þegar Steindór var unglingur vann hann við gerð hafnargarðsins á Hörgeyri. Síðar var sett þar listaverk eftir son hans, Grím Marinó. Eg hafði háskalega gott minni og skrifaði aldrei neitt hjá mér. En ég fór illa með fengið pund. Hefði get- að lært hefði ég viljað, en mér fannst ekki taka því. Ég átti ekki að lifa nema stutt. Það var búist við því að ég hrykki upp af þá og þegar,“ sagði Steindór Jónsson, þegar blaðamaður heimsótti hann á heimili hans í Kópa- vogi. Steindór fæddist á Steinum undir Eyjafjöllum 24. september 1908, son- ur hjónanna Jóns Einarssonar og Jó- hönnu Magnúsdóttur. Þau Jón og Jó- hanna eignuðust sjö syni og tvær dætur og var Steindór næstyngstur. Önnur dætranna dó rétt eftir fæðingu og komust því átta böm til manns. Langlífi er í ættinni og hver ættliður spannar mörg ár. „Langafi minn, Þorvaldur í Stóra-Klofa, var fæddur 1749. Magnús Þorvaldsson afi minn var síðasta bam hans og mamma var síðasta bam afa.“ ón, faðir Steindórs, missti heilsuna áður en Steindór fæddist. Hann fékk slæma liðagikt og gat illa unnið erfiðisvinnu eftir það. Hann reyndi að afla tekna með því að binda inn bækur og blöð, en sú vinna var stopul. Það má nærri geta hvað heilsubrestur húsbóndans þýddi fyrir bammarga almúgafjölskyldu á þessum árum. Lífsbaráttan var því hörð hjá foreldr- um Steindórs. „Þetta var þriðji bær- inn sem þau byggðu upp, því jarðnæði lá ekki á lausu. Þetta var alveg skelfi- legt,“ segir Steindór. Þó minnist Steindór þess ekld að hafa verið svangur í uppvextinum, en lystarlítill og heilsutæpur. „Það var náttúrlega skortur, en ekki svo mikill. Við lentum víst á hreppnum eftir að pabbi missti heilsuna. Mamma var ekki neinu lík með dugnað. Hún fór mjög snemma á íjörur á morgnana. Á vetuma rak oft fisk, að ég tali ekki um loðnu. Stund- um vom það einhver ósköp. Þá var um að gera að vera á undan hrafnin- um. Loðnan var sneypt - slitinn af henni hausinn - og þá dróst slorið inn- an úr. Svo var ýmist hleypt upp á henni eða hún þurrkuð á grjótveggj- um. Það var allt nýtt af fiskinum. Mamma fór alla leið suður með sjó með eitt hross í taumi til þess að afla okkur matar. Hún fór suður í Garð til systur sinnar og í Njarðvíkunum bjó önnur systir hennar, Sigríður móðir Ástu málara. Mamma fékk allt mögu- legt í þessum ferðum. Bæði mat og efni til bókbands fyrir pabba. Ég man hvað mér þótti mikið lostæti þegar ég smakkaði íyrst saltaða grásleppu. Steindór Jónsson, er 92 ára gamall, hefur fótavist hvern dag, ekur um á Trabant-bíl og hefur aldrei liðið betur en eftir að hann varð áttræður. Guðni Einars- son og Ragnar Axelsson heimsóttu Steindór í Kópavoginn. Mamma var afskaplega lygilega dugleg, ekki stærri kona.“ - Varð móðir þín öldruð? „Ég held að hún hafi ekki orðið nema rúmlega áttræð.“ il að létta á heimilinu voru sumir bræðranna sendir annað í vist. Sigurjón bróðir Steindórs ólst upp á Fit og þegar elsti bróðirinn, Einar, var farinn að stálpast og orðinn til snúninga, þá fór hann með föðursyst- ur sinni og hennar manni út í Gríms- nes og ólst þar upp. Hann dó fyrir nokkrum árum nærri 102 ára. Stein- dór segir að Einar hafi munað jarð- skjálftana 1896. „Hann var ekki nema þriggja eða fjögurra ára þá, en mundi þetta vegna þess að hann vaknaði úti í kirkjugarði á Steinum. Það varð að flýja bæinn og gekk óskaplega mikið á. Það hrundi svo mikið úr fjallinu." Sjálfur segist Steindór muna eftir jarðskjálftanum 1912 og þá hrundi líka mikið úr Eyjafjöllum. „Ég man að ég var úti á stöðli þar sem kýmar voru mjólkaðar. Steinamir komu hoppandi niður brekkumar. Það var dálítið tilkomumikið! Það hmndi mest hjá hellinum þar sem áður var þing- staður.' Þegar ég man fyrst þá var geymt í honum hey og fénaður. Svo kom fyrir að skip vora sett þar upp.“ Þegar Steindór var á sjötta ári varð hann haltur og nijög þjáður í vinstra fæti. Það var óttast að þetta væra berklar. „Mamma fór með mig út að Stórólfshvoli, til Guðmundar Guðfinnssonar héraðslæknis og síðar augnlæknis. Hann sá ekki hvað að mér gekk svo við mamma héldum áfram með hestvagninum alla leið til Reykjavíkur. Þar sá ég fyrst bíla,“ segir Steindór. Rannsóknin í Reykja- vík leiddi ekki í ljós hvað að Steindóri amaði, en þó sýndi hún að ekki var um berkla að ræða. „Ég varð að ganga við hækju heilt misseri, þegar ég var á sjötta árinu. Það var smíðaður sér- stakur skór á hægri löppina svo hin næði ekki niður. Ég var alla tíð haltur og fann til. Það hvarf þegar ég varð gamall maður,“ segir Steindór. teindór var ekki orðinn tíu ára þegar Bergþóra systir hans gift- ist Guðjóni Jónssyni, síðar á Reykjum í Vestmannaeyjum, og fluttu þau að Rimhúsum undir Eyjafjöllum. Rim- hús höfðu þá verið í eyði um skeið. Guðjón bróðir þeirra Steindórs og Bergþóra hjálpaði til við uppbygging- una og flutti Steindór með þeim og móður sinni að Rimhúsum. Faðir hans var þá látinn skömmu áður. Steindór segist muna greinilega eftir því þegar Kötlugosið byrjaði 1918. „Ég fór með Guðjóni bróður austur frá Bjömskoti og að Rimhús- um og þá var dimmt úti af öskufalli. Allt í kringum okkur vora eins og sí- felld stjömuhröp, reglulega tilkomu- miki]. Það vora eldglæringar í þessu.“ Steindór segir að Eyfellingar hafi ekki verið hræddir við gosið, enda ástæðulaust að óttast annað en ösku- fall. „Það þurfti að kveikja ljós um miðjan daginn þegar öskufallið var mest úr Kötlu. Frændi okkar, Magn- ús Þorvaldsson aðventisti, var þama á ferð að selja bækur, boða sína trú og rækta frændsemi. Við vorum syst- kinasynir. Hann var með ýmsar fróð- legar bækin- í farteskinu. Ég man eft- ir bók með myndum af bílum, sem ég held að þeir hafi kallað sjálfrennunga. Mér er minnisstætt að Magnús teppt- ist hjá okkur heilan dag því þá var ekki ratljóst vegna öskufalls." teindór segir að trú á huldufólk hafi verið almenn undir Eyjafjöll- um. „Maður komst ekki hjá því að trúa á huldufólk undir Fjöllunum. Það var talað um það sem sjálfsagðan hlut. Ég þekkti einn sem var trúlofað- ur huldustelpu. Hann var hálfgerður þverhaus, blessaður karlinn. Svo slitnaði upp úr sambandinu, því hún hafði svohtið öðra vísi trú en hann. Alltaf er mannskepnan eins,“ segir Steindór og hlær. En sá Steindór huldufólk? „Ég sá þetta beint ekki, heldur heyrði ég það. Þegar ég var krakki hlustaði ég tímunum saman á tónlist sem enginn heyrði annar. Þetta var ónáttúralegt og það var sullað í mig einhveiju bölvuðu sulli gegn þessu. Síðan er ég algjör þurs á tónlist." Steindór segir að í sullinu hafi aðal- lega verið sót og þess háttar góðgæti. Hann segist aldrei síðan hafa heyrt viðlíka tónlist og barst úr hulduheim- um forðum. „Sigurjón bróðir lék sér við huldu- krakka þegar hann var lítill á Fit. Það fór vígt vatn í augun á honum og þá hætti hann að sjá þetta. Það var al- gengt að setja vígt vatn í augu við sjóndepru. En Siguijón var það sem kallað var skyggn og það eltist af hon- um, hvort sem það var vígða vatninu að þakka eða ekíd. Það var geysimikill átrúnaður á vígðu vatni. Það er tilfell- ið að það er ekki tómt bull.“ Steindór segir að huldufólkið hafi verið búið að raflýsa löngu á undan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.