Morgunblaðið - 26.11.2000, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 B 17
Churchill heilsar herflokkum sem ganga hjá heiðurspalli hans við Suðurlandsbraut.
Fréttamenn og Ijósmyndarar stand álengdar. Með Churchill á pallinum eru Curtis
yfirhershöfðingi á íslandi og æðstu yfirmenn breska hersins, sem fylgdu for-
sætisráðherranum, ásamt Franklin D. Roosevelt yngri sem stóð til hlés og sést ekki
vel á myndinni.
þjóða kleift að njóta vemdar hans á
þessari leið. Þá voru einnig uppi
áætlanir um að flytja eldsneyti og
varning á leið til Bretlands á milli
skipa hér á landi.
I breska þinginu kallaði Churchill
komu bandaríska herliðsins til fs-
lands einn mikilvægasta atburðinn
frá stríðsbyrjun. Honum var vel
Ijóst að nú yrði þess ekki langt að
bíða að til tíðinda drægi milli
bandaríska flotans og þýskra kaf-
báta á hafinu milli íslands og
Bandaríkjanna sem myndi hafa af-
gerandi áhrif á almenningsálitið í
Bandaríkjunum til stuðnings fullri
þátttöku í styrjöldinni. Þar hitti
hann naglann á höfuðið eins og kom
í ljós á næstu mánuðum er þrjú
bandarísk herskip urðu fyrir ár-
ásum kafbáta á siglingaleið skipa-
lesta til íslands.
Roosevelt og Churchill réðu ráð-
um sínum á skipsfjöl á Placentina-
flóa á Nýfundnalandi dagana 9.-12.
ágúst. Hefur ráðstefna þessi verið
nefnd Atlantshafsráðstefnan enda
lögðu þeir þar meðal annars ráðin á
um verkaskiptingu við fylgd skipa-
lesta á Norður-Atlantshafi í anda
þeirra áætlana sem Bandaríkjafloti
hafði þegar gert og hófust í septem-
ber. Nýtt athafnasvæði Bandaríkja-
flota markaðist nú af 26. breiddar-
gráðu með sveig austur fyrir ísland
sem var vel innan þýska hafnbann-
svæðisins.
Að lokinni ráðstefnunni undan
Nýfundnalandi hélt Churchill ásamt
föruneyti áleiðis til Islands. Þar
hafði bandarískt herlið tekið sér
stöðu við hlið breskra vopnabræðra
og gæfist því einstakt tækifæri til
að sýna heiminum, og ekki síst
Bretum, að Bandaríkjamenn hefðu
þegar fylkt sér með Bretum. í för
með bresku og kanadísku skipunum
slógust bandarísku tundurspillarnir
USS Rhind og USS Myrant sem
önnuðust fylgd skipalesta á þessari
leið og veita skyldu aðstoð ef ráðist
yrði á bresku herskipadeildina. í
áhöfn Myrant var ungur sjóliðsfor-
ingi af lægstu gráðu, Franklin Del-
ano Roosevelt yngri, sonur Roos-
evelt forseta, og var hann
útnefndur sérlegur tengslaforingi
og aðstoðarmaður breska forsætis-
ráðherrans í heimsókn hans til
Reykjavíkur laugardaginn 16.
ágúst.
Farkostur Churchills, orrustu-
skipið HMS Prince of Wales, lagð-
ist við akkeri í Hvalfirði árla morg-
uns og flutti kanadíski tundurspillir
HMCS Assinibone forsætisráðherr-
ann og fylgdarlið hans til Reykja-
víkur. A innanverðri Suðurlands-
braut, sem var eini steinsteypti
langi vegarkaflinn í nágrenni borg-
arinnar, hófu liðssveitir Breta,
Norðmanna og Bandaríkjamanna
ásamt áströlskum og nýsjálenskum
flugmönnum úr breska flughernum
að raða sér upp til liðskönnunar.
Churchill hóf heimsókn sína sam-
kvæmt siðareglum á fundi með
Sveini Björnssyni ríksstjóra og rík-
isstjórn Islands í Alþingishúsinu og
flutti stutt ávarp af svölum hússins.
Hélt hann að því loknu inn á Suður-
landsbraut þar sem hann gekk
meðfram a.m.k. hluta af tveggja
kílómetra langri, óslitinni röð her-
manna og kannaði liðið. Hermanna-
röðin náði inn að gatnamótum Suð-
urlandsbrautar og Langholtsvegar
og þar steig Churchill og fylgdarlið
á heiðurspall og heilsaði hverjum
herflokknum á fætur öðrum sem
marséraði hjá austur brautina und-
ir hergöngulögum lúðrasveita.
Hersýningin tók hartnær klukku-
stund og ritaði Churchill síðar að
hergöngulag bandarísku land-
gönguliðanna hefði snert sig svo
mjög að hann hefði átt bágt með að
bægja því úr huga sér. Með
Churchill á pallinum stóðu æðstu
yfirmenn breska hersins sem voru í
fylgdarliði hans ásamt sjóliðsfor-
ingjanum unga, Franklin D. Roos-
evelt yngri, til áréttingar þeirri ein-
ingu Bretlands og Bandaríkjanna
sem Churchill fagnaði þennan dag.
Að hersýningunni lokinni hélt
Churchill til hádegsiverðar í Höfða
sem var bústaður breska sendiherr-
ans Howards Smiths og Francis M.
Shepherds aðalræðismanns. Shep-
herd segir svo frá í óprentuðum
endurminningum sínum að köttur-
inn á heimilinu hafi gert sér dælt
við forsætisráðherrann og legið í
kjöltu hans á meðan matast var. Er
halda skyldi á brott í bifreið sendi-
herrans að hádegisverði loknum
hafi Churchill hlaupið aftur inn í
húsið til að kveðja köttinn. Church-
ill og fylgdarlið heimsóttu hermenn
á Reykjavíkurflugvelli og skoðuðu
framkvæmdir þar en að því búnu
var haldið í höfuðstöðvar breska
hersins við Elliðaár. Þaðan var
haldið í heimsókn til hersveita í
Mosfellssveit og skoðað jarðhita-
svæðið að Reykjum eins og þekkt
er.
Heimsókninni lauk um klukkan
fimm síðdegis er Churchill steig
aftur á skipsfjöl og kvöddu hann
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra og Harry 0. Curtis hershöfð-
ingja á hafnarbakkanum. I Hval-
firði heilsaði Churehill upp á
áhafnir nokkurra breski-a herskipa,
þ.á m. orrustuskipsins HMS Rodn-
ey og tundurspillis sem bar nafn
hans, HMS Churchill, og hélt við
svo búið á farkosti sínum áleiðis til
Bretlands sama kvöld.
Eins og við vai' að búast sögðu
fjölmiðlar í Bretlandi ítarlega frá
heimsókn Churchills til íslands þar
sem liðsmenn Breska samveldisins
og Bandaríkjamenn hefðu snúið
bökum saman gegn sameiginlegum
óvini og er ekki að efa að sá frétta-
flutningur átti þátt í að efla
baráttuþrek landa hans og glæða
með þeim vonir um fullnaðarsigur í
styijöldinni eins og til var ætlast.
Verslun með rafvörur og vinnustaðabúnað
HQ RAFLAGNIRÍSLANDSehf. SÖLU- OG ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI Hamarshöfða 1, s. 511 1122
guðrún íEÍva
Vm Ceícf og
vícf fajócfum
núju
starfsfóÚzí
veŒomícf í
fiójínn
vííjum vícf
jmfzfza
vufsfzvpta-
vínum aócfar
móttöízur á
ofzfzar fursta
starjsárí
Qagga
gggjg
O-fanna Ósf
Tímapantanir
í&ímw 544 4900
"Bcejarlind 14-16
J
Tónleikar
í hvert sinn sem hönd þín nálgast BeoSound 3000
opnast glerhurðirnar hljóðlega og dauft Ijós kviknar.
BeoSound 3000 erfullkomið hljómflutningstæki með
geislaspilara og FM/AM útvarpi.
Það er alltaf notalegt að nálgast BeoSound 3000.
BeoSound 3000 frá Bang & Olufsen: 128.400 kr.
Heimabíó
BeoVision Avant 28” eða 32“ breiðtjaldssjónvarp á
rafknúnum snúningsfæti með innbyggðu fjölkerfa
Nicam stereo myndbandstæki og öflugum hátölurum.
Með BeoVision Avant kemstu ekki nær því að fara í
bíó án þess að standa upp úr hægindastólnum.
BeoVision Avant frá Bang & Olufsen frá: 419.000 kr.
Málfrelsi
BeoCom 6000 er ekki eingöngu þráðlaus sími. Hann sýnir
þér hver er að reyna að ná í þig og þú ákveður hvort þú
svarar. Einnig geturðu tengt allt að 5 önnur símtæki við
sömu línuna og haft þína eigin símstöð á heimilinu.
Með BeoCom 6000 fær fjölskyldan eitthvað að tala um.
BeoCom 6000 frá Bang & Olufsen: 30.900 kr.
BANG S. OLUFSEN