Alþýðublaðið - 09.05.1959, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 09.05.1959, Blaðsíða 4
V m&jŒcmymxs) 0tgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gisli J. Ást- þórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmars- son. Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri Pétur Péturs- son. Kitstjórnarsímar: 14991 og 14902. Auglýsingasími: 14906. Afgreiðslu- sani: 14900. Aðsetur: Aiþýðuhúsið. Prentsmiðja Alþýðubl. Hverfisg. 8—10 Ungir jafnaðarmenn UM ÞESSAR MUNÐIR á Samband ungra jafn aaarmanna þrjátíu ára afmæli, en fyrsta félagið hafði verið stofnað hér í Reykjavík tveimur árum áður en heildarsamtökin komu til sögunnar. Ung- ir jafnaðarmerin hafa miklu áorkað á þessu ára- ftkeiði og komið mörgum hugsjónamálum sínum í framkvæmd. Og framtíðarverkefnin ,!eru mörg. Samband ungra jafnaðarmanna hefur átt drjúgan þátt í baráttunni fyrir jafnaðarstefnunni á íslandi, þátt Alþýðuflokkinn í blíðu og stríðu og lagt hon- um til nýja starfskrafta og forystumenn. Er vissu- lega athyglisvert, að þingmenn og aðrir foringjar Alþýðuflokksins eru yngri að árum en liðsoddar I inna flokkanna. Alþýðuflokkurinn kann vel að meta æsku sína. Alþýðublaðið yill í tilefni þess- ara tímamóta í sögu Sambands ungra jafnaðar- raanna senda því kveðju og þakkir og árna unga fólkinu gæfu og gengis í framtíðarstarfinu. Alþýðuflokknum er mikils virði, að unga fólkið móti starf hans og stefnu. Og vissulega á íslenzk æska samleið með Alþýðuflokknum. Það sannast, ef athugaðir eru sigrar hans á undan- förnum áratugum. Þar er hvert mál æskunnar öðru merkari. ©g þeim hefur verið hrimdið í framkvæmd, þrátt fyrir öfluga andstöðu fram- an af og minnihlutaaðstÖðu Alþýðuflokksins í landinu. Honum hefur tekizt margt það, sem öðrum þjóðum gafst eftir að Alþýðuflokkurinn og verkalýðshreyfingin náði meirihluta. Af því má ráða, að þróunin hér myndi sýnu meiri og heiila vænlegri, ef Alþýðuflokkurinn nyti sama styrk- leika í þjóðfélaginu og samherjaflokkarnir úti í heimi. Þessu marki ber að keppa að, og Sam- hand ungra jafnaðarmanna mun fara í fylking- arbrjósti þeirrar sóknar. Hugsjónir jafnarstefnunnar hljóta að teljast á- hugamál unga fólksins á íslandi. Og Samband ungra jafnaðarmanna er vel til forystu fallið í bar óttu fyrir málefnum æskunnar. Þar ríkir frjálslyndi og sannur félagshugur. Ungir jafnaðarmenn lieiðra skoðanafrelsið og fylgja leikreglum ‘lýðræð isins. Undir því merki ætla þeir að vinna isína fram tíðarsigra og gera Alþýðuflokkinn á íslandi stóran og sterkan. Tiíkyiming um Samkvæmí 10. gr. Heilbrigðissamþykktar fyrir Kópa- vog er lóðaieigendum skylt að halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum. Umráðamenn lóða eru hér með áminntir um að flytja nú þegar burt af lóðum sínum allt, er veldur óþrifn- aði cg óprýði og hafa lokið því ,eigi síðar en 1. júní næstk. Hreinsunin verður að öðrum kosti framkvæmd á kostn að húseigenda. > Kópavogi, 30. apríl 1959. Heilbrigðisnefnd Kópavogs. Hinn NÝI FORSETI Kína heitir Liu Shao chi. Hann er efnaður bóndasonur frá Hun- anfylki, Svo undarlegt sem það er, þá ríkir óvissa um ald- ur hans. Sums staðar er sagt, að hann sé fæddur 1898, en á öðrum stöðum er því haldið fram, að hann sé fæddur 1905. Hann hefur sífellt unnið sér meiri tilrú í kommúnista- fJokknum. Á stúdentsárum sínum tók hann þátt í að skiou ieggia verkföll í Peking. Eftir byltinguna í Rússlandi hélt hann áfram námi í Moskvu, og er hann kom heim aftur, varð hann meðal helztu manna Kommúnistaflokksins í Kína. LlU SHAO CHI starfaði aðállega í verkalýðshreyfing- unni og 1925 varð hann for- maður kínverska verkalýðs- sambandsins. Eftir að leiðir skildu með kommúnistum og Chang kai-sjek 1927 var hann tekinn fastur fyrir ríkisfjand- samlegá starfsemi. En er hann var látinn laus aftur hélt hann enn áfram starfi sínu „neðan- jarðar“ eins og það er kallað. Um 1930 virðist hann hafa verið í Moskvu. Hann var fvrst í framboði, ásamt Mao Tse Ýung, sem kommúnistískur skipuleggj- ari í landbúnaðarhéruðunum, og 1933 varð hann formaður hms kommúnistíska verka- lýðssambands Kína. Árið 1956 var hann kosinn í miðstiórn kínverska kommúnistaflokks- ins. Samtímis varð hann för- maður fastanefndar alþýðu- þingsins, en hún fjallar um dagleg+ starf flokksins. Við því starfi hans hefur tekið Chou Teh hershöfðingi. ' >' ■ ... HtNN HÁI, granni og grá- hærði Liu Shao chi hefur lengi verið talinn helzti fræðimað- ur kínverska kommúnista- flokksins. Hann er svo fjöl- hæfur, að hann hefur einnig samið barnábækur og ævin- týri. Hins vegar er hann álit- inn kaldur og íhugull að því er varðar stjórnaraðgerðir. Erlendir menn, sem dvalizt hafa í Kína, halda því sumir fram, að hann hafi átt meira undir sér innan flokksins en sjálfur Mao. Vera má, að það hafi ekki verið fjarri sanni. Mao er gamall og þreyt+ur. og fyrir því hefur framkvæmda- .stjóri flokksins fengið meira svigrúm. Sjálfsagt hefur hann neytt tækifærisins til að tryggja sjálfum sér þá virð- ingu, að verða eftirmaður Mao. HáLDTÐ ER, að nýi forset- inn sé traustur Moskvufvlgj- andi. Þetta orð hefur raunar skiot um merkingu á síðustu árum. Það þýðir ekki sama nú og meðan Stalin lifði. Þétta gefur til kynna, að maðurinn búi yfir miklum hæfileikum til að aka seglum eftir vindi. Hann gætir þess vandlega, að króa sjálfan sig aldrei þannig af, að hann ekki eigi örugga leið til baka, ef á þarf að halda, hagar sér eins og ref- urinn, að gera sér jafnan fleiri en einn grensmunna til und- ankomu. Þrátt fyrir allt er víst, að nýi forsetinn er öruggur stal- inisti. Hann stóð við hlið Maos í hreinsunum í flokknum 1954 —55. Hann stóð fyrir hermd- arverkum gegn ákveðnum hópum í röðurn alþýðustétt- anna, og ekki er hann saldaus af afskiptum af alþýðudóm- stólum, nauðungarflutning- um, þvingunarvinnu eða „end urskólun“. Á Á HANN OG mikið starf að baki í utanríkismál- um. Það var hann, Liu Shao chi. sem var framkvæmda- st j óri kom múnistaf lokksins, er kínverskir kommúnistar bannfærðu u^1’pisnina í Ung- verjalandi, Það kvað hafa ver ið hann, sem stóð á bak við kröfuna um bað, að Rússar mættu ekki sleona hendinni af Póllandi Gomulka, og loks má bf)ð f'kki plevmast, aS það kvað hafa verið bann, sem var mestur andstæðingur hinnar ,,mildu“ stefnu, er Moskvu- stjórnin brá fyrir sig fyrst eft- ir Tát, Stalins. Það fer naumast á milli mála. að hinn nvi forseti er ósvikinn fvlgiandj hinnar „hörðu“ st.efnu. Ekki er þó vert, að telia þetta tilefni til neinna onádómp l'rnþá stefnu, sem verður ofan á í Peking í náinni frami'ð Þeir. sem til þekkia, eru engan veginn viss- ir í bessu efni. Menn kvnnu að freistast til að halda, að ráð Liu Shao chi færu í vöxt við hið nýia og virðulega em- bæiti. En svo barf alls ekki að verða. Hannes á h o r n i n u ★ Tugþúsundir nemenda standa í prófum. ★ Og sumir undirbúa rán dýraar lúxusferðir til útlanda. nema nokkrir áratugir síðan, að í þéssu efni ríkti skortur og vand ræðaástand. Manni varð þetta jafnvel enn ljósara en áður þeg- ar menntamálaráðherra flutti á- varp sitt í útvarpið vegna Thor- killi-hátíðarinnar 5. maí. ★ Kostar meira en nám og annar kosnaður heiían vétur. SKÖLANEMENDUR eru í prófum, þeir eru að búa sig und- Ir próf eða þeir eru að Ijúka prófum. Um leið og prófunum lýkur losna tugir þúsunda ungra íslendinga úr skólunum, að minnsta kosti um sinn. íslenzka þjóðin leggur fram mikið fé og mikið starf til þess að mennta og manna ungu kynslóðina. Sum- um finnst næstum um of af því að ekki sé um leið nógu vel hlúð að verklegri menntun. En hvað sem um það kann að vera, þá er það víst ,að hér á íslandi þarf enginn að fara á mis við mennt- un, sem annars hefur til að bera þá hæfileika, sem þarf til þess að geta öðlazt hana. Og er þar orð- inn mikill munur á. ÞETTA LEGGUR hin starf- andi kynslóð að mörkum til fram tíðarinnar. Hún skilar þarna arfi, sem liðnar kynslóðir gátu ekki látið í té — og eru ekki EN ÞETTA VAKTI athygli mína á Öðru, sem menn hafa skrifað mér um og rætt við mig undanfarið — og þó miklu fyrr, því að þetta mál hefur mjög borið á góma á undanförnum ár- um. Þetta eru hin dýru ferðalög skólanemenda að afloknum prófum. Þessi ferðalög tíðkast nú mjög, fy,r,st og fremst hjá þeim, semfaka fullnaðarpróf. — Ég hef áður minnzt á þetta. Það var fyrir nokkrum árum og þá að gefnu tilefni. Tilefnin jjefast enn. UTANLANDSFERÐIR nem- enda eru orðnar frægar — og sumar að endemum, eins og áð- ur hefur verið sagt £r.á. En hegð- un þesara nemenda er ekki að- i alatriðið, heldur það, hvort telja verður heppilegt að efnt sé til I rándýrra ferðalaga eftir fullnað I arpróf. Hér er eitt dæmi: Nem- andi í skóla, sem lýkur burtfar- arprófi innan skamms, skrifaði föður sínum fyrir nokkru og sagði honum frá því, að í ráði væri að fullnaðarprófsnemend- ur tækju sig saman og færu til útlanda. Átti að fljúga til Frakk lands og fara þaðan til Þýzka- lands, Ítalíu og víöar. Ferðin átti að kosta 11 000,00 — ellefu þús- und krónur. NEMANDINN sagði, að sig langaði ákaflega mikið, enda væri leitt að skerast úr leik. Spurði hann föður sinn, hvort nokkur möguleiki væri á því, að hann gæti hjálpað lionum til far arinnar. Föðurinn langaði til að hjálpa syninum, enda hafði pilt- urinn stundað námið af mikilli kostgæfni. En faðirinn átti ekki féð og varð því að taka það til Iáns. Sjálfur hefur hann lágar tekjur og verður upphæðin því skuldabaggi. ÞARNA TAKA um þrjátíu nemendur fullnaðarpróf. Kostn- aðurinn er því um þrjú hundruð þúsund krónur. Er þetta nokk- urt vit? Ncmendurnir greiða meira í eitt ferðalag en uppihald þeirra og nám kostar á ágætum skóla heilt námsár. —• Ýmsir deila á skólana fyrir annað eins og þetta. En þá er ekki hægt að saka. Þetta er runnið upp hjá nemendunum sjálfum. Þetta er ekki mál skólans, þó að segja megi að skólastjóri og kennarar . geti, kannski liaft áhrif í þessu sem öðru. ÓNEITANLEGA virðist sem námið sé ekki orðið aðalatriði þegar svona er komið. Hannes á horninu. I ' '-------------— 4 9. maí 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.