Alþýðublaðið - 25.08.1959, Side 4
£íl©XlöOœim)
Ctgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjórar: Benediki Grondal, Gísli J. Ast-
þórsson og Helgi Sæmundsson (áb.). Fulltrúi ritstjórnar: Sigvaldi Hjálm-
arsson. Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. Ritstjórnarsímar: 14901 og
14902. Auglýsingasími: 14906. Afgreiðslusími: 14900. Aðsetur: Alpyou-
húsið. Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10.
Ómetanlegur þjóðarauður
MENNTAMÁLARÁÐ ÍSLANDS hefur ný-
lega úthlutað fimm nýstúdentum styrkjum, er
nema 20 þúsund krónum hver, til náms við er-
lenda háskóla. Afburðamenn á stúdentsprófi
ganga fyrir þessum styrkjum og njóta þeirra í allt
að fimm ár. Og við þessa nýbreytni eru vissulega
miklar vonir bundnár. Með þessu móti er hægt
að beina þeim, sem fram úr skara í menntaskólum
okkar, að sérstöku námi, en slíku verður naumast
við komið með öðrum ráðstöfunum. Hins vegar
liggur í augum uppi, að þjóðfélag okkar þarfnast
mjög í framtíðimni ýmis konar sérmenntunar og
hlýtur að verða sér úti um menn í hlutverk
hennar. Ennfremur er mikils virði, að beztu náms
menn okkar hafi að slíkum styrkjum að keppa og
sjái fram á öryggi og markaða braut að unnum
sigri.
Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra er
forgöngumaður þessa máls, og nú mun mennta
málaráðuneytið vinna að því, að nýstúdentar
fái hliðstæða aðstdðu við nám í Háskóla ís-
lands. Það er alveg eins þýðingarmikið og
styrkja frábæra námsmenn til framhaldsmennt
unar erlendis. Vilji þeir leggja stund á fræði,
sem eins er hægt að nema hér og erlendis eða
jafnvel betur, á að setja þeim í sjálfsvald,
hvorn kostinn þeir velja. Og Háskóla íslands
er milcils virði, að hann sé í þessu efni lagður
að líku við erlenda háskóla. Þannig er honum
tryggð samkeppni um heztu námsmenn stú-
dentahópsins ár hvert. Nægir að minna á nauð
syn þess, að afburðamenn, sem vilja nema nor-
ræn fræði, helgi sig því verkefni í stað þess að
leita til útlanda af því að betri fyrirgreiðsía
stendur þar til boða. Fleiri dæmi mætti nefna,
bn þetta sannar, hvað haft er í huga varðandi
þessa tímabæru og þörfu nýbreytni mennta-
málaráðherra og menntamálaráðs.
íslendingum ætti að vera mdkið fagnaðarefni,
hvílíkur vaxtarbroddur u-nga fólkið er. Upplýsing-
ar menntamálaráðs um námsafrek nýstúdentanna
fimm, sem styrkina hljóta í ár, tala síriu máli. ís
lenzk æska er ágætu atgervi búin til líkama og sál-
ar, og sennilega hefur hún aldrei skarað eins fram
úr og nú í starfi ög námi, þó að sitthvað megi að
einstaklingum finna. Þetta er ómetanlegur þjóðar-
auður. Og hann á að varðveita og ávaxta sem bezt.
Unga fólkið verðskuldar, að samfélagið sannfærist
um kosti þess og hæfileika og láti það njóta þeirra.
Þannig er bezt hægt að tryggja íslandi giftusam-
legan árangur af lífi og starfi þeirrar kynslóðar,
'sem kemur til með að erfa landið á næstu árum og
áratugum.
U T S A L h
Strigaskór — Tunguboriisur
Sléttbotnaðir kvenskór
Kvenskór með kvarthæl,
lítið númer. ' _
Skóverzlun Þórðar
Aðalstræti 18.
S,
IaMBÚÐ Breta og Frakka
hefur farið dagversnandi síð-
ustu mánuði. Veldur þetta
nokkrum áhyggjum meðal
stjómmálamanna beggja land
anna, en ekkert virðist gert í
einlægni til þess að jafna á-
greining ríkisstjómanna og
blöð landanna hnakkrífast og
vanda sízt kveðjurnar. Ósam-
komulag þetta er ekki opin-
bert, enda situr brezka þingið
ekki eins og, stendur og því
ekki rætt-um deilur forráða-
mannanna. En starfsmenn ut-
anríkisráðuneytisins brezka
hafa látið í ljós ugg vegna
þróunar mála. Reynt hefur
verið eftir mætti að halda
skoðanamismuninum leynd-
um og jafnvel verið látið
í það skína af hálfu Breta, að
stjómmálamenn í London eigi
enga sök á ágreiningnum
heldur forráðamenn Banda-
ríkjanna.
heimsótti hana síðast, og veld-
ur þar mestu, að de Gaulle er
kominn til valda í Frakklandi.
Eins og málin liggja nú fyrir
er engu líkara en vesturveldin
séu skipt í tvær blokkir, Eng-
land—Bandaríkin annars veg-
ar og Frakkland—Þýzkaland
hins vegar, og það. sem mestu
ræður um mótsetningar þess-
ara ríkja er, að Bretar—Banda
ríkjamenn, sem em kjamorku
veldi og ráða yfir vetnisvopn-
um, gera allt, sem í þeirra
valdi stendur til að koma í
veg fyrir að Frakkland—•
Þýzkaland geri tilraunir með
kjamorkuvopn, sem Frakkar
hiafa þegar fullgert. Kjarn-
orkuklúbburinn er þröngur
inngangs og það virðist skoð-
un meðlimanna þriggja, að
meðlimatalan skuli vera þrír
og ekki fleiri.
K,
M,
•ARGAR ástæður liggja
að því, að deilumálin hafa
komið fram í dagsljósið síð-
ustu dagana. í fyrsta lagi mun
Eisenhower forseti Bandaríkj-
anna ræða við Macmillan á
undan de Gaulle, er hann kem
ur til Evrópu í lok mánaðar-
ins til þess að ræða við for-
ustumenn vesturveldanna áð-
ur en Krústjov kemur vestur
um haf í næsta mánuði. Ekki
er samt búizt við, að Macmill-
an geri óþarflega mikið úr á-
greiningi Evrópuþjóðanna, en
hann mun vafalítið skýra Eis-
enhower frá afstöðu Frakka
og gera tilraun til að túlka
málstað þeirra frá sjónarmiði
Breta. Þá verður ekki hjá því
komizt, að Bretar verði að
marka skýrar afstöðu sína til
meginlandsþjóðanna en verið
hefur.
IRAFA de Gaulle um end-
urskipulagningu Atlantshafs-
bandalagsins hefur valdið
Bretum og Bandaríkjamönn-
Versnandi
de Gaulle.
s,
?Ú EVRÓPA, sem Eisen-
hower heimsækir nú, hefur
breytzt mikið frá því hann
MacmiIIan.
um þungum áhyggjum og
raunar hafa viðbrögð þeirra
við henni valdið stórtjóni þeg-
ar.
Helztu ágreiningsefni Breta
og Frakka er,u efnahagsleg, —
Bretar eru ekki meðlimir sam
eiginlega markaðsins og
Frakkar áttu ríkastan þátt í
að gera tillögur Breta um frí-
verzlunarsvæði Vestur-Evr-
ópu að engu. Vaxandi sam-
starf Frakka og Þjóðverja hef
ur emnig valdið kólnandi sam
búð Breta við báðar þessar
þjóðir.
Þessi vandamál verða vænt-
anlega helzta umræðuefni Eis-
enhowers og vestrænna stjórn
málamanna og mun móta af-
stöðu hans í viðræðunum við
Krústjov.
Economist íelur Ike
rfiðar viðræður við de Gaulle
a
LONDON, 21. ág. (NTB-REUT-
ER). Viðræður Eisenhowers við
hinn franska starfsbróður sinn
de GauIIe verða erfiðustu samn
ingaviðræður, sem hann á í
vændnm í Evrópu, segir viku-
blaðið Economist í dag. Eisen-
hower verður að sannfæra de
Gaulle um, að opinber rof á
sambandinu við NATO muni
skaða Fraklca miklu meira en
aðra meðlimi bandalagsins, seg-
ir blaðið.
Þegar öllu er á botninn hvolft
er Frakkland háð NATO, t.d. að
þvi er snertir að halda uppi
vörnum í Evrópu á meðan
franski herinn er önnum kaf-
inn í Afríku, en slíkt hefði ver-
ið óhugsandi á öldum þeim, er
Frakkar voru raunverulega
„sjálfstætt stórveldi“, segir þlað
ið.
Blaðið telur, að góð rök megi
færa fyrir því, að leita skuli
ráða Frakka meira innan NATO
og gera Frakka meðábyrga að
því er snertir notkun atóm-
vopna, en hins vegar verði að
minna de Gaulle á, að hversu
ágætar sem hugsanir hans um
einingu Evrópu og evrópska
forgöngu mála kunni að vera,
séðar frá frönsku sjónarmiði,
hljóti þær að vera sjálf-eyðandi,
þar eð aðeins sé hægt að sam-
eina Evrópu á kostnað hinnar
amerísku forustu hins frjálsa
heims.
„Adenauer kanzlari getur e.
t.v. fylgt Frökkum í því að
sameina Evrópu efnahagslega
gegn Bretum, en rof franskra
tengsía við Washington munu
hafa í för með sér slit þýzkra
tengsla við Frakka“, segir Eco-
nomist.
RERGRINE Worstone rit-
aði nýlega grein í Daily Tele-
graph. Þar telur hann orsök
ágreiningsins mismunandi af-
stöðu Breta. Frakka og Þjóð-
verja til spennunnar milli
austurs og v'<urs. Frakkar
og Þjóðverjar leggja höfuð-
áherzlu á sameiningu Evrópu.
En Bretar vilja fyrst af öllu
draga úr spennu í alþjóðamál-
um með samningum við Sovét
ríkin. Bretar hafa meiri á-
hyggjur af vetnisstyrjöld en
að sameina Evrópu til að fyr-
irbyggja vetnisstyrjöld. Frakk
ar og Þjóðverjar telja að við-
ræður við Rússa geti leitt til
frekari skiptingar Yestur-Evr-
ópu og líta svo á, að afstaða
Breta leiði til þess að tengsl
Vestur-Þýzkalands við Evr-
ópu losni ef henni verði fram-
fylst.
E,
Iljart-anlegt þakklæti til allra .þeirra, sem. sendu
naér r heillaskeyti eða sýridu mér önnur vmahót á
áttatíu og fímm ára áfmseli mínu h'inn 14. ágúst.1959.
• ; • ■' ■■■' iu.ú. v. Ágúst Jósefsstm.:
■F ÞESSAR hugleiðingar
Worstone fara nærri sanni svo
sem trúlegt er, þá er augljóst
að íhaldsmennirnir brezku
: ■ liafa varpað kenningmxi Churc
hills um hlutverk Þjóðverja í
" sámstárfi'véstrænha þjóðá fyr
ir borð í von um að notfæra
sér' skoðanaágreining vestan
jámtjaldsins sér til framdrátt-
ar. • ‘
4 25. ágúst 1959 — Alþýðublaðið