Alþýðublaðið - 27.10.1959, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 27.10.1959, Blaðsíða 12
40. árg. — Þriðjudagur 27. október 1959 —1 233. tbl. LONDON. — London hefur eignazt sinn vinstri bakka eins og París, hann er bara hægra megin við Thames. Vinstri bakkinn í London heitir Chelsea og þar búa hundruð listamanna, rithöf- unda og beatnika. Og Lon- don er að missa það álit, sem hún hefur haft, að vera virðuleg, gömul borg. Chelsea hefur löngum ver ið listamannahverfi en það er nýtilkomið, að fjölmenn- „Vinstri hakkinn í London” ur hópur bóhema hafa sezt þar að á hinum mörgu smá- veitingahúsum og klúbbum liverfisins. Hvergi í Eng- landi hittast upprennandi spekingar yfir expresso- kaffi til að ræða vandamál alheimsins, nema í Chelsea. En þótt Chelsea sé lista- mannahverfi þykir það mjög fínt hverfi og fína fólkið hópast þangað á kvöldum og eykur enn á litauðugan blæ staðarins. í Chelsea er mikill fjöldi erlendra matsölustaða og er Soho. algerlega að hverfa í skuggann í þeim efnum. Chelsea er líka eina hverfið utan West End þar sem leik- húslff er í London. WASHINGTON, okt. (UPI). - Bandarísk geimrannsóknar- nefnd hefur skilað áliti til bandaríska þingsins varðandi margvíslegar aðferðir til þess að heyja styrjöld. Meðal ann- ars er getið um möguleikana á efnafræðilegri styrjöld, líf- fræðilegri, sájfræðilegri, styrjöld, sem háð yrði með bylgjum, annað hvort hljóð- bylgjum cða mikróbylgjum um það að ræða að drepa fólk heldur að gera það óvirkt um tíma. Aðrir sérfræðingar at- huga hvort hægt sé að nota gagnþyngdarlögmál eða gagn- segulmagn til styrjaldar- reksturs. Enn aðrir athuga hvort tækilegt sé að breyta veðurfari eftir þörfum, eða bræða ísinn á skautunum í hernaðarlegum tilgangi. Sú þjóð, sem réði yfir tækjum til slíks, stæði óneitanlega vel að vígi í styrjöld. Gyðfingar Ein furðulegasta staðreynd sögunnar NEW YORK, okt. (UPI). — Ein furðulegasta staðreynd sögunnar er tilvera 12 milljón Gyðinga, sem enn halda fast við trú sína og erfðavenjur þrátt fyrir árþúsunda ofsókn- ir og dreiíingu um lönd jarð- ar. Á vissum tímabilum hef- ur blátt áfram verið unnið skipulega að þ\í að útrýma þessu fólki og er skemmst að minnast aðgerða þýzkra naz- ista fyrir og í síðari heimsT etyrjöldinni og æðisgenginnar baráttu kommúnista austan járntjalds gegn þeim. Gyðingar liafa ekki aðeins 2 barnslík, en þó ekki það, sem leitað var að. SÆNSK STÚLKA, sem eignaðist barn fyrir nokk- ru, hefur látið þá ógæfu henda sig að farga barn- inu og fJeygja því svo í stöðuvatn nokkurt. Þetta var stúlkubarn, og það var þfiggja vikna gamalt, — þegar móðirin vann ódæð- ið. Eftir að hún hafðí ját- að á sig glæpinn, var far- ið' að leita í vatninu og það slætt fram og aftur. Ekki tókst að finna barns- Jíkið, en hins vegar fund- ust |tvö önnur badnslík í.vatninu. MHWMWWMWMVVVmwVVl lifað af ofsóknir 3500- ára, heldur einnig haft ómetanlega þýðingu fyrir alla vestræna menningu og úr þeirtra hópi hafa komið margir af fremstu hugsuðum allra alda. Gyðingatrúin er raunveru- lega skýringin á þessu fyrir- bæri. Samkvæmt henni eru Gyðingar hin útvalda þjóð, kjörin af Guði til þess að færa öllum þjóðum blessun. Gamla testamentið er saga um viðskipti Guðs og hans út- völdú þjóðar, hvernig hann leysti þá úr þrælahúsinu í Egyptalandi, hvernig hann fyrir milligöngu Móses setti þéim boðorðin og hvernig liann gegnum marga spámenn og leiðtoga og líka miklar hörmungar, leiddi þeim fyr- ir sjónir hlutverk það, sem þeim ber að fara með. Kristnir jnenn trúa, að Jesús Kristur hafi verið sá frelsari, sem Gyðingar væntu og með því að taka hann af lífi, hafi Gyðingar fyrirgert framííð sinni sem Ijósberend- ur mannkyns og hin kristna kirkja sé hið nýja Israel. Gyðingar andmæla því að Kristur hafi verið hinn smurði en margir þeirra virða hann sem merkilegan hugsuð. Réttrúaðir Gyðingar telja, að frelsarinn, messias, sé enn ó- kominn, en aðrir halda því fram, að ekki sé að vænta persónulegs messiasar heldur muni Guð á einhvern hátt nota Gyðingaþjóðina til þess að fær-a öllum þjóðum frið og blessun. Eins og mörg önnur trúar- brögð hefur Gyðingatrúin endurlífgast á síðustu árum. Árbók bandarískra Gyðinga er nýkomin út. Þar er talið, að 5.260.000 Gyðingar séu í Bandaríkjunum eða fast að helmingur allra Gyðinga. í Israel eru 1.8 milljónir, í So- vétríkjunum tvær milljónir og hálf önnur milljón í öðr- um löndum Austur-Evrópu. Gyðingar í Bandaríkjunum búa langflestir í stórborgun- um á Austurströndinni og 40 prósent þeirra í New York. Talið er að helmingur manna af Gyðingaættum í Banda- ríkjunum ræki trú sína. Þrjár hreyfingar eru nú innan Gyð- ingatrúar. Rétttrúaðir trúa því, að lögmálið sé allt í fullu gildi og halda beri hvern stafkrók í því enda sé það komið beint frá Guði. Þeir fylgja nákvæmlega öllum boðum lögmálsins. Frjálslýndir Gyðingar telja að aðlaga verði lögmálið breyttum lifnaðarháttum og segja, að sum fyrirmæli lög- málsins sé mjög erfitt að rækja. íhaldssaniir Gyðingar eru eins konar millistig milli þessara tveggja hópa. Allar skák° irnar í bið A SKAKMÓTINU í Belgrad fóru allar skákirnar í 27. um- ferð í bið. Staðan í skákunum var þannig í gærkvöldi, að Keir- es átti vinningsstöðu á móti Gligoric, Smyslov betri stöðu á móti Friðrik Ólafssyni, Tal betri stöðu móti Fischer, og Benkö heldur betra tafl á móti Petrosjan. (dauðageislum). Nefndin rannsakaði mögu- leikana á slíkum og þvílíkum styrjaldarrekstri Og segir í á- litinu, að margir hafa mikla andúð á slíkum athugunum en ekki verði komist hjá ;því að kanna þessi mál vel og verið geti, að slík styrjöld se mannlegri en notkun þeirra vopna, sem mest ber á nú. Sérfræðingar í sálfræðileg- um styrjaldarrekstri og líf- fræðilegum segja, að ekki sé ÆVINTYRI NÝJA LONDON, Conn., okt, (UPI). — Lífið um borð í kaf- bátum er æsandi, bæði fyrir áhöfnina og aðra. Tökum til dæmis að fyrir stuttu rakst kjarnorkukafbáturinn Sea- dragon á hval. Enginn veit hvernig hvalnum reiddi af, en Seadragon varð að fara upp í slipp með bilað stýri og skrúfu. Annar kjarnorkukafbátur, hinn frægi Nautilus, olli nokkrum togaramönnum all- miklum áhyggjum fyrir þrem- ur árum er hann sigldi í vörpuna. Áhöfnin á kafbátn- um vissi ekkert hvað gerzt hafði, en setti á fulla ferð með togarann í eftirdragi, en sem betur fór slitnaði varpaia brátt frá bæði togaranum og kafbátnum, sjómönnijnum til mikils léttis. Þá var það þegar kafbát- urinn Sea Dog rakst á lieli- koptann. Helikoptinn var að færa kafbátsmönnum póst ea vindgusa hrakti hann á stjórnpall bátsins og þótt eng- ar skemmdir vrðu, varð kopt- inn að fara til sama Iands án þess að skila áf sér póstinum, Framhald á.lO. síða RÚSSNESKIR verk- fræðingar telja að mögu- legt sé að bæta loftslag á norðurhveli jarðar með því að bræða ísinn á norð- urskautssvæðinu. Moskvu blaðið Pravda skýrði ný- lega frá því að rússneskir verkfræðingar liafi full- gert áætlun um að byggja risastíflu við Beringshaf og síðan með kjarnorku að dæla hlýjum sjó úr Kyrrahafinu til þess að bræða íiorðúrskautsísinn. Ætti þá að niildast veður- far í þeim löndum, sem hlýna mjög í Síberíu og Norður-Kína og þar skap- Hlyviðri eða ísöld þar að liggja. Vísinda- mennirnir halda því fram, að með því móti mundi aðist betri aðstaða.til ak- uryrkju. En bandaríski veður- fræðingurinn Wexler var- ar alvarlega við því að gera nokkrar slíkar til- raunir, enda viti enginn fyrir víst hvaða afleiðing- ar það muni hafa. Wexler segir, að hafa beri í huga, að við ísbráðnunina mundi gufa upp gífurlegt magn af vatni en það mundi aftur leiða af sér meiri snjókomu og ný ís- öld hefjast. wmwvwmmmwvwwmmmwwwwwwmmwwi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.