Alþýðublaðið - 03.11.1959, Side 3
g sýmng
USA-BALLETTINN sýndi í
fyrsta sinn í ÞjóSleikhúsinu á
sunnudagskvöld og er óhætt að
fullyrSa aS þetta sé ein glæsi-
legasta og lish'ænasta sýning,
sem sézt hefur á íslenzku leik-
sviði. Fagnaðarlátum leikhús-
gesta ætlaði aldrei að linna í
lok sýningar.
Ballettflokkurinn kom hing-
að seint á laugardagskvöld og
yar þvf mjög skammur tími til
æfinga: — en allt tókst samt vél.
Undirleikur Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar vár með ágætum
Og hinar hröðu skiptingar á
leiksviðinu gengu fljótt og vel
<og ljósatækninni var beitt af
mikilíi smekkvísi. í hléinu var
stjórnandi flokksins, Jerome
Robbins, kynntur fyrir forseta
íslands.
VEIZLA Á EFTIR
Að sýningu lokinni bauð þjóð
leikhússtjóri öllum þeim, sem
að sýningunni stóðu, upp á
hressingu í Kristallssal Þjóðleik
hússins. Þar voru einnig boðnir
menntamálaráðherra, utanríkis
ráðherra og ameríski sendiherr
ann. Þjóðleikhússtjóri ávarpaði
ballettflokkinn og þakkaði
stjórnanda hans, Jerome Rob-
ins, fyrir komuna og sagði að
þetta væri ein skemmtilegasta
og listrænasta danssýning, sem.
hér hefði nokkurn tíma sést.
Stjórnandi þakkaði og gat þess,
að það hefði verið flokknum á-
nægjuefni að koma til ísiands.
r r
NÝ útvarpssaga
hefst kl. 20.35 í
kvöld: Sólarhring-
ur eftir Stefán Júl
íusson (höfundur
les), Kl. 21 María
Maxkan syngur ís-
lenzk lög. Kl.
21.30 Með köldu
blóði (Sigurbjörn
Einarsson biskup).
Kl. 22.10 Trygg-
ingamál (Guðjón
Hansson trygginga
fræðingur). Kl. 22.30 Lög unga
fólksins. Kl. 23.25 Dagskrárlok.
FYRSTU bækur Bókaútgáfu
Menningarsjóðs á þessu ári rru
komrnar á markaðinn. Eru þetta
fjórar bækur, þar á meðal þjóð
sag'nabók Ásgríms. í henni eru
myndir, fi,- Ásgrímur hefur gert
við 30 þjóðsögur og þjóðsögurn
ar sjálfar eru prentaðar með.
Gils Guðmundsson, forstjóri
Bókaútgáfu Menningarsjóðs,
ræddi við blaðamenn í gæi' og
skýrði þeim frá þessum' bókum
útgáfunnar. Fer frásögn hans
hér á eftir:
50 HEILSÍÐUMYNDIR
í Þjóðsagnabók Ásgríms eru
50 heilsíðumyndir eftir Ásgrím
er hann hefur gert við 30 bjóð-
sögur. Inngangsorð hefur Einar
Ólafur Sveinsson ritað. Upp-
haflega var geit ráð fyrir, að
m.yndamót í bókina yrðu gerð
erlendis, en horfið var frá því
og ákveðið að vinna bókin að
öllu levti hér. Voru myndamót-
in garð í Prentmót h.f., en bók-
in prentuð. í Odda og bundin í
Sveinabókbandinu. Kvaðst Gils
þeirrar skoðunar, að verkið
hefði tekizt mjög vel og væri
þeim, er unnið hefðu það, til
sóma.
NORÐLENZKI SKÓLINN
Þá er komin út á vegum.
Menningarsjóðs bókin Norð-
lenzki skólinn eftir Sigurð höit
inn Guðmundsson skólameist-
ara á Akureyri. Var bókin til í
handriti, er Sigurður lézt, en
Þórarinn Björnsson skólameist-
ari hefur búið bókina til prent-
unar. í bókinni er rakin saga
Hólaskóla, Möðruvallaskóia og
Menntaskólans á Akureyri.
Þá er enn fremur komið út á
vegum Menningarsjóðs þriðja
og síðasta bindið af verkum
Pálma heitinns Hannessonar
rektors. Nefnist það Mannraun-
ir. Eru í bindi þessu ýmsar rit-
fferðir og ræður Pálma heitins
Hannessonar. Fremst í bókinni
er minningargrein um Pálma
eftir Jóhannes Áskelsson.
Og fjórða: bókin, sem út ex*
komin á vegum Menningar-
sjóðs, er Grafið úr gleymsku.
eftir Árna Óla. Eru það þjóð-
lífsmyndir frá ýmsum tímum.
! Sumt í bókinni hefur birzt áður
í Lesbók Morgunblaðsins.
tinni stórgjö
ÞESSA dagana er staddur
hér á landi Ludvig G. Braat-
hen, útgerðarmaður og flug-
vélaeigandi. Braathen er Is-
lendingum að góðu kunnur,
einkum vegna höfðinglegra
gjafa hans til skógræktarinn-
ar og samvinnu hans við Loft-
leiðir. Nú hefur Braathen enn
einu sinni gefið Skógrækt rík-
isins 10 þúsund norskar krón-
«r, sem verja á til skógræktar
og hefur hann þá gefið alls 50
þúsund norskar krónur á 4 ár-
«m.
Blaðamenn voru kynntir fyr-
ir Braathen á fundi í fyrradag,
Sem þeir Hákon Bjarnason,
skógræktarstjóri, Kristján Guð
laugsson, Alfreð Elíasson og
Sigurður Magnússon hjá Loft-
leiðum héldu.
Á fundinum færði Hákon
Bjarnason Braathen þakkir
fyrir hinar höfðinglegu gjafir
!hans og þann áhuga sem hann
sýndi á málefnum íslenzku
skógræktarinnar. Jafnframt
skýrði Hákon frá því, að þegar
væri búið að gróðursetja 115
þúsund trjáplöntur í Braat-
henskógi í Skorradal. Sagði
hann, að nýjum Braathenskógi
yrði komið upp í Haukadal eða
Vífilsstaðahlíð.
Þeir Kristján Guðlaugsson,
form. stjórnar Loftleiða, og Al-
freð Elíasson, framkvæmda-
stjóri Loftleiða, ræddu sam-
starf félagsins við Braathen og
fóru miklum viðurkenningar-
orðum um hann og færðu hon-
um þakkir fyrir samstarfið,
sem þeir kváðu vera forkunn-
ar gott og ánægjulegt. Sem
kunnugt er, sér Braathen um
viðhald á flugvélum Löftleiða,
en tekið var skýrt fram á
inum, að Braathen sé ekki með
eigandi í félaginu.
Loks flutti -Braathen stutta
ræðu og ræddi fyrst .um
ræktina, sem hann kvað mjög
þýðingarmikla fyrir þjóðarbú-
skap Norðmanna. Sagði hartn,
að á íslandi væri hægt að
rækta mikla nytjáskóga og
kvaðst vona að ráðamenn
kæmu auga á hina miklu þjóð-
hagslega þýðingu þeirra.
Einnig þakkaði Braathen hið
góða samstarf við Loftleiðir.
Hann ræddi og um framtíð
flugsins og kvað það sína
un, að í framtíðinni myndu
farmflutningar í lofti stói'auk-
ast. Sagði Braathen að íslend-
ingar hefðu mikla möguleika
til þátttöku í framtíðarverk-
efnum flugsins.
9 nýir cióseníar
við Háskólann
HINN 24. október 1959 voru
eftirgireindir læknar skipaðir
dósentar í læknadeild Háskóla
fslands: Dr. med. Friðrik Ein-
arsson, Haukur Kristjánsson,
Kristbjörn Tryggvason, Krist-
ján Sveinsson, Ólafuir Bjarna-
son, Stefán Ólafsson og Theó-
dór Skúlason. Sama dag voru
þeir K. Guðmundur Guðmunds
son tryggingafræðingur og
SvaVar Pálsson, löggiltur end-
urskoðandi, skipaðir dósentar í
laga- og viðskiptadeild.
Jafnaðarmenn unnu verulega á.
KOSNINGAR til Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands fóru fram
síðastliðinn laugardag. Mark-
verðustu úrslit þeirra kosninga
urðu þau, að Vöku-íhaldið
missti me'i.'ihluta sinn, sem það
hefur haft undanfarin þrjú ár,
og hins vegar veruleg fylgis-
aukning jafnaðarmanna eða úr
9,6% gildra atkvæða í 12,3%
Það kemur ef til vill spánskt fyrir í augum sumva, að
koma með jólaglugga 1. nóvember. En sannleikurinn er
sá að einmitt núna er rétti tíminn, að kaupa jólagjafir
fyrir æítingja og vini erlendis. Til hægðarauka fýíir
viðskiptavini sína annast minjagripadeild Rammagcrð-
arinnar um sendingar „um allan heim.“
WWWWWWWWWWMW'twwwwwwwwwwww
Úrslit urðu annars sem hér
segir:
A-listi Stúdentafélags jafnað
armanna hlaut 68 atkvæði eða
12,3% og einn mann kjörinn,
Jónatan Sveinsson, stud. jur.
B-listi framsóknar, þjóðvarn-
ar og kommúnista hlaut 159 at-
kvæði éða 28,6% og þrjá menn
kjöina, Jón Jakobsson, stud.
jur., Vilborgu Harðardóttur,
stud. philol. og Jóhann Gunn-
arsson, stud. philol.
C-listi óháðra vinstri manna
hlaut 91 atkvæði eða 16,4% cg
einn mann kjörinn, Þórarin Ó1
afsson, stud. med.
D-listi Vöku-íhaldsins hlaut
237 atkvæði eða 42,7% og fjóra
menn kjörna, Árna Grétar
Finnsson, stud. jur., Jóhann G.
Þorbergsson, stud. med., Njörð
P. Njarðvík, stud. mag. og
Grétar Br. Kristjánssn, stud.
jur.
Á kjörskrá voru rúmlega 800
m gild atkvæði voru 555.
’JRSLIT í FYRRA.
1 Stúdentaráðskosningunum í
'yrra hlaut A-listi Stúdentafé-
ags jafnaðarmanna 59 atkvæði
ða 9,6% og 1 mann kjörinn, B-
isti framsóknarmanna hlaut
J.03 atkvæði eða 16,7% og 1
mann kjörinn, C-listi kommún-
ista og Þjóðvernar hlaut 146 at-
kvæ-ði eða 23,5% og 2 menn
kjörna og D-listi Vöku-íhalds-
ins hlaut 294 atkvæði eða 47,7 %>
og meíin kjörna.
Gild atkvæði voru þá 616.
Alþýðublaðið — 3. nóv. 1959 J