Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1897, Blaðsíða 1

Skírnir - 01.01.1897, Blaðsíða 1
Frá öðrum löndum. Áttavísun. „Það eru fáeinar af stðrþjððum heimsins, sem í rauu- inni ráða lögum og lofum á jörð vorri. . . . Til þess að skilja deilumál þau, er árlega bólar á þjóða milli í heiminum, er því alveg nauðsynlegt að þekkja nokkuð til ástands þess og hugsunarháttar, er skapar sumar höfuðstefnur þessara stðrþjðða." Þessi orð ritaði ég í inngangi Skírnisfrétta frá útlöndum í fyrra, og samkvæmt þeim reit ég þá kaflann „frá öðrum löndum.“ Menn heflr in síðari ár greint á um það, hvort „Skirnir" ætti lífi að halda eða ekki, og skoðanirnar um það virtust orðnar aokkuð jafn-skiftar. Þðtt blöðum vorum láti enn mjög misjafnt að segja útlendar fréttir, þá eru þær þó nú orðið svo ýtarlega sagðar í þeim tveim blöðum, er bezt segja fréttir, að menn eiga þar kost á að lesa lengri frásögn um útlend- ar fréttir, heldur en auðið er að koma fyrir á það rúm, sem „Skírni" er afmarkað í þessu skyni (um 2 arkir). Og tilgangslitið virðist það óneit- anlega að Bðkmentafélagið gefi út svo að segja endurprentun inB sama máls, sem blöðin hafa fiutt. Öðru máli er að gegna, ef fréttaþáttur Skírnis bindur sig aðallega við að vinsa úr þá viðburði, er líklegastir eru til að festa sér framtíðar- sæti í mannkynssögunni, og skýra samhengi þeirra við fortíðina og áhrif þeirra á samtíð og framtíð. Með þvi einu mðti getnr „Skírnir" til lengd- ar varið tilveru-rétt sinn, að hann verði jöfnum höndum fræðandi skýring og skipulegt yfirlit samtíðar-sögunnar. Með því mðti getur hann fengið langvinnari þýðing sem sögurit, heldur en eintðm árbðk nýliðins árs. — Sakir rúmsins verða að eins tekin fyrir fá atriði hvert ár til ýtarlegri skýringar, og ættu því allir að varðveita ritið; því að hver árgangur getur þð geymt trððleik, sem til má visa mörgum árum síðar, er viðburð- ir gefa tilefni til. a

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.