Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1897, Blaðsíða 12

Skírnir - 01.01.1897, Blaðsíða 12
12 Gríska striðið Iið skyldu Tyrkir me»a hafa í Pessalíu um sinn, en verða á hrott með það innan mánaðar, eftir að stórveldin álita herkostnaðinn að fullu trygð- an (en það varð innan missiris). Stórveldin skyldu setja fjármálanefnd í Aþenu til að sjá um skilvisa greiðslu á rikisskuldum Grikkja; skyldi gríska þingið með lögum ávísa nefndinni ákveðnar ríkistekjur, er til þessa skulu ganga unz skuldunum er lokið. Yarð Grikkland þannig ráðsvifting- ur í (jármálum og verður það um nokkur ár, og telja flestir það lán landsins, því að fjárhagur ríkisins hefir verið í mestu ðreiðu. Br það margra mál, að líkt þyrfti að fara með fleiri ðráði-riki, svo sem Spán og Italíu t. d. Allir höfðu við því búizt, er Grikkir flönuðu í ðfrið þennan, að þeir mundu lægri hlut bíða. En hitt hafði fám eður engum til hugar komið að ófarir þeirra mundu verða svo gersamlegar á lítilli svipstundu, eins og raun varð á. Orsakir þess hafa verið ýmislega raktar, og satt að segja var þungt ámæli lagt á Grikki í fyrstu í ýmsum útlendum blöðum fyrir dugleysi og onda bleyðuskap. Síðan herfrððir menn, er við voru ðfriðinn og kunn- ugir voru öllum atvikum, komu heim til sín aftur eftir ðfriðinn og hafa skýrt frá áliti sínu um málið, hefir dðmurinn fallið víða nokkuð á annan veg. Af því sem höf. þessara frétta hefir lesið um málið, þykir honum fátt eða ekkert sennilegar ritað, en það er H. Angell, höfuðsmað- ur i herliði Norðmanna, heflr ritað, og kemur það líka vel heim við það sem sannfrððir enskir menn og amerískir hafa ritað. Ein orsökin til ðfara Grikkja, og hún ekki hvað minst, var sú, hve algerlega þeir voru ðviðbúnir ófriði. Foringjar þeirra allvel að sér bók- lega en hafa engar verklegar æfingar haft; það vanrækt af herstjðrninni. Liðsmenn ðbreyttir alveg ðæfðir; pappírslög skylda menn til heræflnga i tvö ár, en þingmenn hafa fundið vegu til að smádraga fir því og útvega mönnum, hver úr sínu kjördæmi, undanþágur frá þjónustu og stytting æfinga; gerðu það til að geðjast kjósendum og afla sér atkvæðafylgis. Herinn því óæfður alveg. Ráðgjafaskifti verða á Grikklandi einu sinni til sex sinnum á ári, og í hvert sinn verða mannaskifti í hershöfðingja- ráðinu. Landið heflr þannig ekkert stöðugt hershöfðingjaráð. Forðaböra- stjðrn gat ekki heitið að til væri, og skorti því herinn frá öndverðu klæði og vistir; en sjaldan er harðsnúið hungrað lið. Og það sem verra er, um allan heim hættir hermönnum til að dæma alla herstjðrn sína og foringja eftir því, hvernig viðurgerningurinn er. En Grikkir eru af

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.