Skírnir - 01.01.1897, Page 11
Gríska stríðið.
11
kom fyrir ekki; liðið hlýddi ekki. Sjálfur var hann síðaatur allra burtu
úr borginni; fðr með eimlestinni árla morguns til Farsala.
Delyannis forsætisráðherra varð nú frá völdum að víkja, en hann
hafði gert sitt til að spana landa sína út í j»etta feigðarflan þvert á mðti
vilja konungs og krðnprinsins. Tók nú Rallis við völdum, samvizkusam-
ari maður að vísu, en jafnfjarri þvi að bera nokkurt skyn á hernað.
Grikkjum hafði vegnað betur í stöku orustum, einkum vestur i Epír-
us í fyrstu. En það kom alt fyrir ekki. Þeir urðu að flýja frá Farsala,
gefa upp Volo og hrekjast loks hvervetna undan, svo að ekki var annað
fyrir að sjá, en að Tyrkir mundu loks geta haldið viðnámslitið til
Aþenu.
Stðrveldin höfðu látið Grikki vita, að ekki væri um að tala að þau
legðu þeim nokkurt líknarorð til friðarleitunar fyrri en þeir hefðu kvatt
heim Vassos ofursta frá Krít og setulið sitt alt þaðan. Rallis vildi halda
áfram í rauðan dauðann að verjast, en varð þð þess brátt áskynja, að
til þess voru engin föng. Kvaddi stjðrnin þá Vassos heim frá Krít og
lét stðrveldin vita, að hún vildi flytja lið sitt þaðan alt heim. Þetta
skildu stðrveldin svo sem nú vildi Grikkland beiðast miðlunar þeirra, og
12. Maí skoruðu þau á Tyrki og Grikki að hætta ófriði og kváðust skyldu
semja um frið með þeim. Grikkir þágu það þegar og Tyrkir kváðust og fúsir
til að gera vopnablé, en ekki nema það væri fyrirfram viðurkent, að
grundvöllurinn fyrir öllum friðarsamningstilraunum yrði að vera sá, að
Grikkir létu af höndum til Tyrkja alla Þessalíu(l), gyldu 10 milíðnir
tyrkneskra punda i hernaðarkostnaðar-bætur, numinn skyldi úr samning-
um réttarbðt sú, er Tyrkir höfðu verið áður neyddir tií að gefa grískum
þegnum í Tyrklandi o. s. frv. Þetta þðtti öllum stórveldum ðsvífin firn.
Stðð svo í stappi nokkra daga, og sðttu Tyrkir á meðan að Dómðko, en
þar hafði krónprinsinn gríski búist um með 30,000 liðsmanna, og
varðist þar vel, enda hafði þar góða aðstöðu. En að kveldi 17. Mai
sendi soldán skyndilega hershöfðingjum sínum boð og bauð þeim að hætta
öllum ðfriði. Hafði hann eigi skipast í fyrstu við kröfum stðrveldanna,
en þá símritaði Rússakeisari einka-orðsending til soldáns, og brá þá svo
við að soldán hlýddi þogar.
Svo tókust samningar um frið, og drðgst það fram undir jðl (16. Des.)
að þeir yrðu staðfestir til fullnaðar. Tyrkir fengu vígstöðvar nokkrar í
fjallgörðum álandamærumÞessalíuogurðu Grikkirað greiða 4 milíónir tyrk-
neskra punda í herkostnað (tyrkneskt pund er um 16 kr. 40 aura). Setu-