Skírnir - 01.07.1897, Qupperneq 12
14
Löggjöf og landstjórn.
Heiðursmerlci fengu: Dr. med. .7. Jónassen landlæknir, riddarakross
hinnar frakknesku heiðurBfylkingar (23. júní), prófastur Valdimar Briern
riddarakross dannebrogsorðunnar (1. sept.), skólastjóri Torfi Bjarnason
riddarakroBS dannebrogsorðunnar (s. d.), Hallgrímur Jónsson, bóndi á
Staðarfelli, heiðursmorki dannebrogsmanna (s. d.).
Heiðursgjafir úr styrktarsjóði Kristjáns IX. fengu bændurnir Stefán
Bjarnason á Hvítanesi og Eristján Jðnsson á Hliðsnesi, 140 kr. hvor,
fyrir framúrskarandi dugnað og framkvæmdir í jarðabótum.
Itirkjumál. A prestastefnunni, 29. júní, kom fram frumvarp til
endurskoðaðrar handbókar, frá nefnd þeirri, er kosin var til að fjalla um
það mál fyrir nokkrum árum (1892). Br ætlast til að prestar um land
allt, gjöri atbugasemdír við frumvarp þetta og verði það áBamt athugasemd-
unum lagt fyrir prestastefnuna næst til úrslita. £>ar var og rætt um innheimtu
á tekjum presta, samþykkti fundurinn fyrir sitt leyti að hún yrði falin
sýslumönnum, en frumvarp, er gekk í þessa stefnu, náði eigi samþykki
hjá alþingi. Merkasta málið, er prestastefna þessi hafði með höndum, var
um þjóðkirkju og fríkirkju hjer á landi, hefur það eigi fyr komið þar til
umræðu, þótt um það hafi verið allmikið ritað og rætt hin seinni ár;
virðist svo sem allur þorri manna hneigist að skilnaði ríkis og kirkju;
mál þetta var allmikið rætt á prestastefnunni, en frestað þó sem von var.
Fyrirlestur fyrir fundarmönnum flutti Þórhallur lektor Bjarnarson um
Melanchthon. Prestastefnuna sóttu 33 prestar auk stiptsyfirvalda.
Nokkrar smábreytingar voru gjörðar á kirkjulegri löggjöf, eins og
sjá má á lagaskránni hjer að framan (sbr. lögin 8—10, 18—19), en eng-
ar þeirra hafa neina almenna þýðingu. Konungssamþykki fjekkst 13. mars
fyrir því að Búland i Skaptártungu verði framvegis undanþegið prest-
mötugjaldi, gegn 1040 kr. gjaldi i eitt skipti. Konungsúrskurðnr kom
og (25. júni) fyrir því að sóknarpresturinn i Helgafellsprestakalli skuli
búa í Stykkishóimi eða þar í grennd. Leyfð voru (11. marz) makaskipti
á kirkjujörðum Tjarnarkirkju á Vatnsnesi, Yesturhópshólum með Þorfinns-
stöðum, fyrir Neðri-Þverá og Þernnmýri. Enn fremur var leyfð sala á
nokkrum kirkjujörðum: Birnunesi (Kvíabekkjarkirkjueign), Melum með
Melaleiti (Saurbæjar á Hvalfjarðarströnd), Hvammshlíð (Höskuldsstaða)
Kjaransvík (HoltB í Önundarfirði), Kross í Haukadal (Hvamms i Norður-
árdal). Lántökur voru og loyfðar til handa eigi færri en 15 prestaköll-
um.