Bóndi - 31.03.1851, Blaðsíða 8

Bóndi - 31.03.1851, Blaðsíða 8
56 um armi J»ess, en þversnúran eptir hinum, svo menn sjeu vissir um, að liornin verði rjett bœði að utan og innan og tóptin ekki hornskökk. Mönnum kemur ekki saman um, hvort betra sje að hafa torfveggina afar þykka eður ekki. Að flestum gömlum bæjar- húsum sjá menn að veggirnir eru fjarska þykkir og eru |>eir opt allt að 4. álna þykkir að neðan, en opt eru þeir mikið hlaðnir að sjer einkum að utanverðu. Jað telja menn kost á þykku veggjunum, að þeir grasgrói fljótara og betur en hinir þunnu. En valla ætlum vjer að veggir standi mikið betur eða lengur fyrir það, þó þeir sjeu mjög þykkir; því þegar vegg- irnir eru mjög þykkir, en hleðslan, ef til vill, heidur mjó, þá verður moldin svo fjarskamikil innan í veggjunuin, og er þá hætt við að hún sprengi veggina sundur, ekki sízt geti vatn lilaupið niður í þá. Vjer ætlum hvern vegg undir einu húsi nógu breiðan, sje hann 2^ al. að neðan, en sje hann millum tveggja húsa, þá 3. ál. breiðan. Margir liafa ætlað það betra, að draga veggina mikið að sjer, svo þeir verði mikið mjórri að ofan en neðan; en af sliku má gjöra svo mikið, að vegg- irnir standi ver en ekki betur eptir en áður; og ekki sízt af því sumir hafa þann sið að hlada vegginn næstum lóðrjettan að innanverðu, en lilaða liann svo mjög að sjer að utan, að hann verður frá £ til 1 al. mjórri að ofan en neðan. Jegar veggur er nú þannig hlaðinn, þá er auðskilið, að fyr en kom- ið er upp í miðjan vegg, þá er efsta lag hleðslunnar komið inn fyrir alla hleðslu að neðanverðu, svo að allt það sem þá er eptir af hleðslunni að utanverðu, hvilir á hinni lausu mold, er þá auðsætt, að þungi ytri hleðslunnar sígur á moldina, en moldin leitast aptur við að sprengja frá sjer hleðsluna að inn- anverðu. Sumir blaða vegginn dálítið að sjer bæði að utan og innan upp að miðju, siðan láta þeir bann slá sjer næstum því eins inikið út aptur, gjöra þeir þetta afþeirri ástæðu, að Iielzt vill siga bunga á miðju margra veggja; en þess er gætandi, að slíkt kemur optast til af því, að veggjunum er hroðað upp úr blautum strengjum, þeir hafðir fjarska þykkir, moldin troð- in of fast innan í þeim, og þeir ekki bundnirnógu vel. 5eg- ar menn hafa þjetta leirmold innan í veggi, þá verða menn að troða moldina svo, að miðja veggjarins verðí hjer um bil jafn- þjett hleðslunni, en ekki þjettari; og torfvegg má ekki binda minna en svo, að hann sje þverbundinn með fetsbreiðum streng,

x

Bóndi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bóndi
https://timarit.is/publication/76

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.