Bóndi - 31.03.1851, Blaðsíða 10

Bóndi - 31.03.1851, Blaðsíða 10
58 um |iau, sem fjærri liggj3 bæjum, á eybi söndum og aldrei eða allsjaldan hafa fsömu vöð, ekki árið, ekki missirið, nje mánuðinn og stundum valla vikuna út. En meðþví jeg er orðinn nærsta vanur slíkum vötnum, þá kemur mjer til hugar að leggja til nokkur þau ráð, er mjer liafa vel gefizt, og hafa mætti þá inenn fara yfir vötn — helzt þau er menn ekki þekkja neitt á—, hvort heldur að eru lausir menn, eður á lausum hestum, ellegar með lest. ftliklu minni vandi er að velja vatnið fyrir jiann sem er á lausum hesti, heldur en hinn, sem er með lest og með vand- asömum flutningi, eins og öllum gefur að skylja, þó þarf gætni við hvorutveggja. Vötn þau er helzt eru vandasöm yfirferðar, eru einkum með þrennu móti. 1. 3>au sem eru straumhörð og liggja á störgrýttum aurum. 2. 5au sem renna á jökulbleytu. 3 3>au sem renna á sandbleytu, —og skal nú talað lítið eitt um hvert þessara vatna um sig —. 1. pau vötn sem falla á stóryrýttum aurum. J>egar maður sjer fyrst til vatnsins, skal þangað halda sem mest ber á þvi eður breiðast sýnist, og aðgjæta þar sem það fer fyrst að slá sjer út eður kljúfa sig úr megin álnum, hvort þeir álarnir sjeu ekki færir rjett þar sem þeir klofna, því opt ber það við að skábrot mindast þar, á þann veginn sem undan veitir eður til sjáfar; en bágt er að lýsa auðkennum þeim eð- ur merkjum af hverjum sjá megi til hlýtar hvort vatnið sje fært eður ekki, slíkt er hægra að sýna en segja; þó eru straum- köst á yfirborði vatnsins því stórgjörðari sein það er dýpra, en því smágjörðari, og vatnið þeim mun sljettara, sem það er grynnra. En fyrir því að svo torvelt, er að lýsa því til hlýtar sem gætu orðið ókunmigum mönnum til leiðkeiningar, í að velja vöð á völn- um og ríða þau. Báðir þessir menn urðu við tilmælum bans; og befur hann mælst til að ritgjörðirnar yrðu prentaðar í tímariti þessu; en sökum rúm- leysis getmn vjer ekki tekið í þettað sinn neraa styttri ritgjörðina; cn verði ritinu halilið áfram lengur en til nærsta vors, þá viljum vjer sjá til, að hin ritg.jörðin, sem er lengri og því nokkuð greinilegri, verði líka prentuð í ritinu seinna meir. En þótt reglur þessar geti verið til nokkurrar leiðbeiningar, þegar aðra betri leiðbeining vantar, þá skyldi enginn ókunnugur treysta þeim svo, að hann vanræki að fá sjer kunnugan og duglegan fylgðarmann þegar hann á kost á.

x

Bóndi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bóndi
https://timarit.is/publication/76

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.