Kristileg smárit handa Íslendingum - 02.01.1866, Side 9
9
heyrum vér dóm, sem kveðinn var upp yflr liinum trúa
þjón, að hann skyldi ganga inn í fögnuð síns herra og
verða settur ylir mikið, af því liann liefði verið trúr yíir
hinu litla (Matt. 25, 21). Hin stóra alheimsbygging,
sem mannlegur skilningur ekki getur fullskilið, er þó
einungis stór, af því hún saman stendur af hinu smáa.
Ilið mikla œtlunarverk mannsins hér á jörðinni verður
heldur ekkileystaf liendi, nemameð ítrekuðum skyldu-
störfum, nema með stöðugri hlýðni við kröfur þeirra
skyldna, sem á oss liggja, ncma með stöðugri gát og
hirðingu jafnvel i hinu smærsta. Af því menn opt eru
ótrúir í liinu smáa, hverfur og missist opt drottins
blessun í hinu stóra; vér sjáum opt marga vinna og
afla mikils í hinu stóra, en af því þá vantar sívakandi
eplirlit í hinu smáa, þá verður opt lítið úr aðdráttum
þeirra; vér sjáum marga sækjast eptir liárri stöðu og
auknum arði og vera óánægða með þann sess, sem
þeir eru settir í, en af því þeim ferst ekki vel úr hendi
með hið minna, ferst þeim það heldur ekki með hið
meira. Ilið lilla, sem svo er kallað, reynir einkum á
trúmennsku vora, sem kristinna manna. tað sýnir ekki
kristindóm þinn til hlítar, þó þú getir sett upp hýru-
svip við þá menn, sem umgangast þig í svipinn, eða
sem varla verður sagt annað um, en að þeir einungis
komi og fari, en það er þar á móti vottur þíns krist-
indóms, ef þú ert stöðuglega blíður, umhyggjusamur og
ástríkur, við þá, sem umgangast þig daglega, eru þínir
förunautar á vegi lífsins; það er litill vottur um krist-
indóm þinn, þó þú sért höfðinglegur og stórgjöfull við
tækifæri, þegar annaðlivort liggur vel á þér, af því ein-
hver hamingja hefir borið þér að höndum, ellegar til
þess að gefa, af því aðrir gefa, heldur erþað votturtrú-