Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Page 1
KRISTILEG SMARIT
IIANDA ÍSLENDINGUM.
M 1.
HINN RANGI OG HINN RÉTTI FRIÐUR.
»Hinir óguðlegu hafa engan frið, segir minnguðu.
Hefir þú, kristinn maður, lesið þessi orð í heilagri ritn-
ingu og hefir þú íhugað þann dóm, sem með þeim er
uppkveðinn yfir mörgum, og, ef til vill, yfirþér sjálfum?
I’ú finnur þau hjá Esajasi spámanni, 57, 21 og eg ræð
þér til að hugleiða þau rækilega, þangað til þú veizt
fyrir víst, hvernig þínum friði er varið. Friður við guð
og samvizkuna er dýrmætur kjörgripur, sem ekki fæst
fyrir gull né silfur, og þó má enginn án hans vera,
sem vill lifa vel og verða sáluhólpinn. Jafnvel í tím-
anlegum efnum er friðurinn ómetanlegur dýrgripur.
Þégar friðinn vantar á heimilunum milli hjóna, milli
foreldra og barna, milli systkina, eða milli liúsbænda
og hjiia, þegar friðinn vantar milli nágranna, eða milli
landa og ríkja og allt truflast og eyðist af ófriði og
styrjöld — liversu óttalegt erþá slíkt ástand? oghversu
gott og gleðilegt er það, þegar friður kemst aptur á! En
enn þá óttalegri er ófriður og sundurþykki milli guðs
og manna, og enn þá unaðarfyllri er friður við guð og
samvizkuna, sem er dómstóll guðs í mannlegri sálu.
Sé eg ósáttur við guð skapara himins og jarðar og eigi
eg í ófriði við samvizku mína, sem fylgir mér alstaðar
2. &T.