Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Side 14
14
og fyrir vorra synda sakir lemstraður; hegningin lá á
lionum, svo vér hefðum frið og yrðum heilbrigðir fyrir
hans benjar« (Es. 53, 3). Hjá lionum flnnur þú frið-
inn og fyrir honum verður þú að úthella þínu særða
og sorgmædda hjarta. Verið getur, að þú segist opt
hafa leitað hans, bæði í guðsorði og bæninni; en þó
hafir þú ekki fundið frið. Þetta hafa margir orðið að
reyna, en það er ekki honum að kenna, heldur þér.
Fyrir því er ekki ráð gjörandi, að þú leitir friðarius, en
viljir þó ekki segja skilið við syndina, heldur hinu, að
hjarta þitt sé einlægt og að þú viljir verða sannur Jesú
lærisveinn; sé það nú svo og þú getir þó ekki fundið
frið, þá er það því að kenna, að trú þín á Iírists frið-
þægingu er enn þá vcik. Ef þú af öllu hjarta tryðir
því, ii að guð hefir í Kristi friðþægt hciminu við sjálfan
sig og tilreiknar ekki mönnunum afbrot þeirra«, þá
fengir þú frið, því réttlætingin af trúnni hefir i för með
sér frið við guð fyrir drottinn vorn Jesúm Krist. Leita
þú réttlætiugar þinnar í Jesú Kristi og treystu honum
af hjarta, og þá muntu finna frið, þvi að einnig til þín
ná þessi orð hans: »frið læt eg eptir hjá yður; minn
frið gef egyður; ekki eins og heimurinn gefur, gef eg
yður. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðistu (Jóh. 14,
27). Já, friðarins guð mun þá ekki til lengdar byrgja
sitt náðarauglit fyrir þér, heldur senda friðargeisla sína
niður í þitt lirelda hjarta og sannfæra þig um, að þú
ert tekinn lil náðar af honum fyrir Jesúm Krist, að
hann er þinn friðþægður faðir og þú hans barn, sem
með fullu trausti til hans eilífu mískunar getur beðið
og sagt: faðir vor, þú sem ert á himnuni.