Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1867, Side 14

Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1867, Side 14
14 týgjum, sem ein geta geflð von um sigur. Hugfestið þetta, kristnu vinir, að svo framarlega sem þér viljið bera sigur úr býtum í stríðinu við syndina, þá hljótið þér að vera vissir um fyrirgefningu synda yðvarra, og í þessu trausti íklæðast hinum nýja manni, hinum nýja vilja, sem vill gjöra Guðs vilja. Hvernig vinnum vér þá sigur yflr syndinni? Yér svörum hiklaust: fyrir trúna á Iírist, því að þetta trúnaðartraust veitir oss nýja krapta og von um sigur. Vanti oss trúna áKrist, hljótum vér að skoða syndina sem óviðráðanlegan óvin, er leggur alla veröldina undir sig, og sem nú einnig ræðst á oss; og það er ekki í fyrsta sinni, sem hann veitir oss árásir, því að vort umliðna líf sýnir það, að hann lieflr einatt sigrazt á oss, og undir eins og hann sýnir sig, finnur hann vini og vandamenn í vorum eigin björtum. Og vér eigum að ganga á hólm við þetta ógurlega vald. Og hvaða krapt höfura vér til að beita gegn því? Ekki annan en þann veika viljakrapt, sem opt hefir beðið ósigur í þessu stríði; ekki annan en þær góðu hugarhræringar og áform, sem hafa hreift sér hjá oss á einstöku iðrunarstundum; ekki annan en vort tviskipta, eða þó réttara sagt, vort margskipta hjarta, sem er sundurslitið af margskonar innvortis á- stríðum. l’egar vér nú ekki höfum öðrum krapti að beita en þessum í stríðinu við syndina, þá er ekki við öðru að búast, en að vörnin verði lítil og veik. En allt öðruvísi er þessu varið þegarkristinn maður byrjar striðið í trúnni á Krist; þá er hann viss um sigur, og þessi vissa dregur aíl úr syndinni, og veitir honum nýjan krapt, sem er studdur af hinum almáttuga sigur- vegara, sem heflr sigrað synd og dauða. Sá sann- kristni berst trúarinnar góðu haráttu; hann trúir því,

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.