Alþýðublaðið - 12.02.1960, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 12.02.1960, Qupperneq 1
■U' . Ríkisstjórninni líkt v/ð 41. árg. — Föstudagur 12. febrúar 1960 — 34. tbl. 99 U mann Jónasson að því spurð- ur, hvort ekki væri rétt að vinstri stjórnin hefði ætlað sér að gefa út hvíta bók um efnahagsmlál og fengið verk- Framhald á 7. síðu. ; -5.« «#4» SVONA lítur hún út bókin, sem öllum gífuryrðunum oili. ísafirði, 9. febrúar. KLUKKAN 17 í dag lagðist Oðinn, hið nýja varðskip Land- helgisgæzlunnar, að bryggju á ísafirði. Ýmsum gestum af ísafirði og nágrenninu var boðið um borð til að skoða skipið. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landheigisgæzlunnar, bauð gesti velkomna og skýrði frá helztu tækjum, sém skipið er * r RÍ KISST J ÓRNINNI var líkt við frímerkjaþjófa í umræðum um „hvítu bókina“ á alþingi í gær. Það var Þórarinn Þórarins son, ritstjóri Tímans, sem lét sér um munn f ara þessa smekklegu ásökun í neðri deild, þar sem hann sagði, að stolið hefði verið úr fjárhirzlum ríkisins fé til útgáfu bókarinnar. Sá forseti deildarinnar, Jó- hann Hafstein, sig tilneyddan til að áminna þingmanninn fyr- ir að nota óþinglegt orðbragð. Líkti Þórarinn útgáfu „Hvítu bókari'nar11 við frímerkjaþjófn' aðinn hjá Póststjórninni og spurði dómsmálaráðherra, — hvort hann hefði fyrirskipað rannsókn á athæfi ríkisstjórn- arinnar! • Bjarni Benediktsson benti Þórarni á, að samkvæmt stjórnarskránni væri alþingi sjálft dómari yfir ráðherrum og væri þar hægt að sækja þá til saka, ef þeir væru sekir um verknað sambærilegan við frí merkjaþjófnaðinn. Þetta ætti Þórarinn að vita, þar sem hann hefði nýlega undirritað eiðstaf að stjórnarskránni. Hvíta bókin, sem ber heitið ,,Viðreisn“ virðist hafa vakið of sareiði st j órnarandstæðinga,. sérstaklega Framsóknav- manna. Kvöddu þeir sér hljóðs utan dagskrár íbáðumdeildum — er þingfundir hófust, og réðust harkalega á stjórni'na fyrir útgáfu þessa „áróðurs- rits“, sem þeir kalla svo. — Töldu þeir það hneyksli, a£ stjórnin gæfi út á ríkisins kostnað rit, sem þeir telja póli t*skt 'áróðursrit. Ráðherrar bentu á það for- dasmi, sem skapað var með bókinni „Verkin tala“, sem Framsóknarráðherra gaf út a ’sínum tíma. Einnig var Her- stig. Hefur hann staðið yfir síð- an síðastliðið vor, að utanríkis- ráðherra skipaði fjölmenna nefnd til að vinna að málinu. Um langt skeið hefur utanríkis þjónusta íslands öll verið starf- andi að þessu máli, og hefur verið haft samband við mikinn fjölda þjóða. Þá var mikið unnið að málinu á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna, þar sem utanríkisráðherrar flestra þjóða voru saman komnir, og ennfremur fjallaði utanríkis- ráðherra, Guðmundur 1. Guð- mundsson, um máhð í ferð sinni til meginlandsins í des- ember, er hann sat ráðherra- fund NATO. Margar fleiri þjóðir hafa einnig lagt mikla vinnu í að kynna og styrkja sinn málstað fvrir Genfarfundinn, og hefur starfsemi þeirra, eins og ís- lendinga, verið nálega öll á diplómatísku sviði. FRUMVARP til laga um reglulegan sanukomudag Alþing is 1960 var afgreitt gegnuin þrjár umræður í efri deild í gær og vísað til neðri deildar með samhljóða atkvæðum. I frumvarpinu segir, að reglu legt Alþingi 1960 skuli koma sarnan mánudaginn 10. okóber, hafi forseti íslands eigi tiltekið annan samkomudag fyrr á ár- inu. SJÚKUR | Fangi í Rússl andi? LIONEL Crabb, froskmað urinn, sem hvarf fyrir fjórum árum þegar Krús- tjov og Búlganin heim- sóttu England á rússnesku beitiskipi, er aftur kom- inn í fréttirnar. Brezkur blaðaútgefandi telur sig hafa sannanir fyrir því, að Crabb sé fangi Rússa. Eins og menn muna ef til vill, var honum falið að hafa gát á rvissneska skip- inu á meðan það var í brezkri höfn. Hann hvarf meðan á heimsókninni stóð og hefur ekkert til hans spurzt síðan. Þetta er síðasta myndin sem til er af honum. HANS G. ANDERSEN ambassador kemur hingað til lan^s frá París nú fyrir helgina. Stendur heim- sókn hans í sambandi við landhélgismálið, en Hans var aðalfulltrúi íslands á fyrri Genfarfundinum og er aðal sérfræðingur ríkis- stjórnarinnar í landhelgis- málum. Undirbúningur síðari Genf- arfundarins, sem hefst í næsta mánuði, er nú að komast á loka EINS og sagt var frá í fréttum í gær, er H. C. Hansen, forsætisráðherra Danmerkur, hættulega veikur. Hann liggur nú á sjúkrahúsi. Hér er nýjasta myndin af forsætisráðherr anum, tekin síðastliðinn mánudag. — Hann tekur veikindum sínum sýnilega með karlmennsku.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.