Alþýðublaðið - 21.02.1960, Blaðsíða 3
ma verð
smiúrinu
FIMMTÍU tonn af dönsku
smjöri, sem Viðskiptamálaráðu
neytið hefur keypt, koma hing-
að til lands með Gullfossi á
morgun. Uppskipun hefst í
fyrsta lagi síðdegis á morgun
og er ekki að búast við smjör-
Stjórnarkjör í
Múrarafélaginu.
STJÓRNARKJÖR fer fram í
Múrarafélagi Reykjavíkur nú
úm helgina. Verður kosið í
skrifstofu félagsins kl. 1-10 í
dag. A-listi stjórnar og trúnað-
armannaráðs er skipaður þess-
um mönnurri: Form. Einar Jóns
son, varaform. Jón G. S. Jóns-
son, ritari Stefán Einarsson,
förm. félagssjóðs Hilmar Guð
laugsson, formaður styrktar-
stjóðs Pétur Þorgeirsson og
varastjórn: Baldvin Haralds-
son, Jón V. Tryggvason og Ein
inu í verzlunum fyrr en á
þriðjudag seint eða jafnvel ekki
fyrr en á miðvikudag.
Samkvæmt upplýsingum
Osta- og smjörsölunnar s.f.,
sem annast dreifingu á danska
smjörinu, er hér um að ræða
pakkasmjör af þeirri tegund,
sem Danir selja á heimsmark-
aðnum, svo að varan hlýtur að
vera góð.
SAMA VERÐ.
Danska smjörið mun kosta
um 8 kr. danskar (gamla geng-
ið), en hér verður það selt á
sama verði og íslenzkt smjör
og fyrirkomulag sölunnar það
sama, þ. e. mun ódýrara gegn
miðum.
Flestar búðir eru nú orðnar
smjör- og smjörlíkislausar, svo
að margir munu fagna danska
smjörinu. Áætlað er að þessi
50 tonn endist í rúman hálfan
mánuð, en önnur 50 tonn munu
koma á markaðinn frá Dan-
mörku um miðjan marz-mán.
MWMMMWWMWMMMWW
Verðandi
sjómenn
STARFRÆKT hefur ver-
ið í vetur sjóvinnunám-
skeið fyrir drengi á aldr-
inum 12—16 ára, á vegum
Æskulýðsráðs. Aðsókii
hefur verið mikil og eru
þar nú um 100 strákar,
seip lsera að ríða net,
splæsa kaðla og víra og
sitthvað það sem að sjó-
mennsku lýtur. í vor verð
ur síðan reynt að koma
þeim sem vilja í skips-
rúm og auðvitað ætla þeir
allir á sjóinn. Strákarnir
hérna eru að æfa sig í að
hnýta hnúta.
IMMMMMMMMMMMMMMMW
Kamp-
mann
Haf in framleiösla tekur
Eftir tilraunir i 5 ár:
Trúnaðarbréf
afhent
HINN nýi ambassador Dana
á íslandi, herra Bjarne W.
Paulson, afhenti í dag forseta
íslands trúnaðarbréf sltt við
hátíðlega athöfn á Bessastöð-
um. Viðstaddur athöfnina var
utanríkisráðherra.
Vegna andláts H. C. Han-
sens, forsætisráðherra Dan-
merkur, var hádegisverðarboði
fyrir hinn nýja ambassador og
frú hans aflýst.
á bíialakki hér
FYRIR nokkru hóf Málning-
arverksmiðjan Harpa h.f. fram-
leiðslu á bílalökkum. Fram-
leiðsla þessi er algjör nýlunda
hér á landi, og er Harpa fyrsta
málningarverksmiðjan hérlend-
is, sem framleiðir slík lökk.
Málningarverksmiðjan Harpa
hefur starfað í 23 ár, og er hún
stærsti' málningarframleiðand-
inn hérlendis. Verksmiðjan
framleiðir um 80% af heildar-
framleiðslu málningar hér á
landi. Starfslið verksmi'ðjunnar
er að jafnaði rúmlega 70 manns.
Þar af vinna að staðaldri 9
manns eingöngu við rannsókn-
ir.
TILRAUNIR.
Tilraunir að framleiðslu á
bílalakkinu hófust fyrir fimm
árum, og hafa haldið áfram stöð
ugt isíðan. í lakkið munu fara
15—20 teg. af hráefnum, en hrá
efnin sem notuð eru, hafa verið
fengin frá Bandaríkjunum. —
Fyrsti' bíllinn. sem var málaður
með lakki þessu, var málaður
í marz 1955 og hefur lakkið á
honum reynst prýðilega.
Lakkið er nýkomið á mark-
aðinn, og eykst eftirspurnin dag
frá degi. Bílasmiðjan h.f. hef-
ur notað lakk þetta á nokkrar
bi'freiðar, sem þar hefur verið
byggt yfir. Vel er látið af lakk-
inu hvað snertir eiginleika þess
við notkun. -Lakkið hefur verið
framleitt í fjórum höfuðlitum,
en ráðgerð er framleiðsia á
fleiri litum.
FLEIRI GERÐIR.
í sambandi við framleiðslu á
la'kki þessu er einnig framleidd
ur riðvarnargrunnur og lakk-
grunnur, og er hvorttveggja
notað við málningu á bílum. Nú
hafa komið á markaði'nn af
hinu nýja lakki rúm 4 tonn.
VERKSMIÐJUR.
Hér á landi eru nú 3 máln-
ingaverksmiðjur fyrir utan
Hörpu h.f. það er Málning h.f,
Sjöfn á Akureyri og Sliþpurinn,
sem nær eingöngu framleiðir
grófa skipamálningu.
viö
ÞAÐ var tilkynnt í Kaup-
mannahöfn í gær, áð Viggo
Kampmann f j ármálaráðherra
Danmerkur mundi taka við sem
forsætisráðhera af H. C. Han-
sen, er lézt í fyrrakvöld. Þá
hefur verið boðaður fundur í
miðstjórn dianska Alþýðuflokks
ins til þess iað kjósa nýjan for-
mann flokksins.
FORSETINN
SENDIR
SAMÚÐAR-
KVEÐJUR
í TILEFNI af andláti H.
C. Hansens, forsætisráð-
herra Dana, hefur forseti
fslands sent Friðrik Dana
konungi samúðarskeyti.
Ennfremur hafa forseta-
hjónin sent ekkju forsæt-
isráðherrans, frú Gerda
Hansen, persónulega sam-
úðarkveðju.
Kveðjuorð
Ólafs Thors
VEGNA fráfalls H. C. Han- I
sen, forsætisráðherra, flutti Ól-1
afur Thors, forsætisráðherra,
efti'farandi kveðjuorð í hádegis-
útvarpinu í gær:
„Aðeins rúm fimm ár eru um-
liðin frá því, að forsætisráð-
herra Dana, Hans Hedtoft féll
frá á bezta aldursskeiði, rúm-
lega fimmtugur. Sá mæti og
mikilhæfi maður var öllum
harmdauði, sem hann þekktu.
Enn hefur dauðinn kvatt dyra
hjá Dönum og kallað brott for-
sætisráðherra þeirra, H. C. Han-
sen, sem andaðist í fyrrakvöld
á bezta aldursskeiði, tæplega
fimmtíu og f jögurra ára gamall.
Ég hafði lítil persónuleg
kynni af hinum látna forsætis-
ráðherra, en nóg til þess að
vita, að hann hafði hlotið ó-
venju fjölhæfar og ágætar gáf-
ur í vöggugjöf. Og af afspurn
veit ég einnig, iað hann var
drengur góður og sérstaklega
farsæll í starfi, enda naut hann
trausts og virðingar þjóðar sinn
ar.
Eg flyt okkar dönsku vina-
þjóð dýpstu samúðarkveðjur,
er hún á nú á bak að sjá einum
sinna ágætustu sona. Veit ég,
að ég nyæli þar fyrir munn allra
íslendinga, sem þakka einlæg-
an vinarhug hans til íslenzku
þjóðarinnar.
Á þessari stundu hugsum við
öll hlýtt til þjóðar hans og ætt-
jarðar og ekki sízt til ekkju
hans og ástvina allra og biðjum
þeim öllum blessunar“.
SMJÖRLÍKIS-
LAUST
SM J ÖRLÍKIS-gerðirnar í
Reykjavík eru búnar með hrá-
efnisbirgðir sínar, og hlýtur því
að verða verðhækkun á smjör-
líki þegar í þessari viku. Hrá-
efni er til í landinu, en yfir-
færslur fyrir því fengust ekki
fyrir ráðstafanir og það var því
ekki tollafigreitt. Hefur verið
alveg smjörlíkislaust síðustu
daga og mikil óánægja ríkt með
al húsmæðra.
Verðgæzlustjóri skýrði AI-
þýðublaðinu frá því í gær, að
skrifstofa hans fylgdi'st að
vanda með birgðum verksmiðj-
anna, og væri engin ástæða til
að ætla, að þær lumuðu á göml
um hráefnisbirgðum.
Alþýðublaðið — 21. febr. 1960 3