Alþýðublaðið - 21.02.1960, Page 5
Minnisvarði séra
NÝLEGA birti Morgunblað-
ið viðtal við gamlan og góðan
Vestfirði'ng, Jón Sigurðsson vél
stjóra, sem á heima í Bergen
í Noregi og hefur verið Þar í
tugi ára. Þó að viðtalið sé ekki
lan2t speglar það skemmti-
lega þjóðrækni og tryggð Jóns.
Án þess að blaðamaðurinn
stuðli' á nokkurn hátt að því,
minnist Jón Sigurðsson íþessu
viðtali séra Sigtryggs Guð-
laugssonar á Núpi af fagurri
ræktarsemi. Segir. hann. sem
satt er, að slíkur maður ei'gi
ekki að gleymast og sé verður
minnisvarða, og vísar því máli
til nemenda séra Sigtryggs.
í því tilefni þykir mér rétt
að benda Jóni Sigurðssyni' og
öðrum á tvennt, sem þetta mál
varðar.
Það er þá fyrst, að þegar
séra Sigtryggur Guðlaugsson
var sjötugur var fenginn
mynd höggvari til að móta
brjóstmynd af honum. Sá lista
maður er gamall Dýrfirðingur,
Kristinn Pétursson frá Næfra
nesi'. Það voru nemendur séra
Sigtryggt sem stóðu að þeirri
framkvæmd en samkennari
hans og eftirmaður við skóla-
stjórn, Björn Guðmundsson,
átti þar þó mestan hlut. Þessi
mynd var steypt úr eiri og er
ei'gn skólans á Núpi og hefur
staðið þar, í kennslustof u síð-
an haustið 1932.
Það munu allir mæla, sem
til þekkjia-, að Kristinn Péturs-
son hafi unnið gott verk og
með prýði mótað svip séra Si'g
tryggs í þessa mynd. Hvar
sem henni kann síðar að verða
valinn staður er hún þarna
steypt úr varanlegu efni, —
hvort sem vera skal úti eða
inni.
Hitt er svo miklu býði’ngar-
meira atriði í þessu sambandi.
Séra Sigtryggur hefur sjálf-
ur eftirlátið okkur örugga
vitneskju um Það hverni’g
hann vildi helzt að þeir minnt
ust sín, sem það vildu gera í
verki. Hann hefur skrifað í
bók söguna um garðinn sinn,
Skrúð á Núpi'. Þar eru rakin
tildrög garðsins og saga 'hans
í 40 ár, 1909'—1949. Það er
merkileg saga um hugsjónir
og ræktun. Þar lýsir séra Sig-
tryggur líka hugmyndum sín-
um um það hvað hægt væri
að gera og ætti að gera í garð-
inum og segir síðan:
„Gæti' þá þeissi garður snúizt
rneira að fræðilegum og til-
raunalegum efnum, safnað
því, sem vert er að sýna og
taka eftir á sviði gróðrar —■
verið ofurlítil gróa Vestfjarða
í sambandi við skólann“.
Séra Si'gtryggur notar hér
orðio gróa um það, sem ýmsir
aðrir myndu nefna Góru.
Þegar Sigtryggur hefur lok-
ið 40 ára sögu Skrúðs segir
hann að lokum:
„Það eru eftir allmörg ó-
skrifuð blöð í bók þessari. —
Hvað liggur fyri'r þeim? —
Skyldi það verða ævinleg auðn
— elligulnan og fúnan, af því
að meðfarendum þyki eigi
vert að halda á lofti framhaldi
eða örlögum þess efnis sem
grei'nir frá hér að framan. —
Þungt er mér að hugsa til
þess“.
Sagt hefur verið frá ofur-
lítilli hugsjón, sem varð að
framkvæmd nokkurri en í fá-
tækt frá fleiri hliðum . . . Þó
hefur ávöxtur þessarar hug-
sjónar lifað í 40 ár, þróást og
blessast vonum fremur sé. bor
ið saman vi'ð aðstæðurnar og
verið eigi svo fáum ánægju-
efni. Ætti þá þessi lífsávöxt-
ur nú að deyja út og grafast
í kyrnþey. Vitanlega þarf hann
enn og jafnan eins og allt líf
umhyggju, aðdrætti og að-
búnað til viðhalds, þroska og
og framleiðslu nýrra ávaxta
sinnar tegundar.
Framanskrifuð blöð bókar
þessarar, einkum hin síðustu,
sýna ótvírætt ellimörk og
hrörnan, — bráðum uppgjöf
nokkurra stuðningskrafta um-
rædds gróðrarstafs. Ætti' það
að vera ímynd og sönnun þess
að framkvæmd áðurnefndrar
'hugsjónar sé nú að þrotum
komin? Æ, nei. Því eiga eftir-
farandi rituð blöð skýrt að
mótmæla — sýna og sanna
með útliti og orðum endurnýj-
aðra kraftana í þjónustu
Skrúðs, — endurnýjanda og
gi'ldi, sæmandi þáttur sannrar
viðbætandi fegurð hans og
skólamenntunar á fornfrægu
höfuðbóli:
„Ég hverf bráðum af sjón-
arsviði, en finnist þeim sem
eftir dvelja, nokkurs vert
um komu mína þangað, þá
minnast þeir hennar á mér
kærastan hátt með varð-
veizlu og aukning gróðurs og
náttúruminja í Skrúð, að
hann beri nafn með rentu í
fleiri og fleiri 40 ár og sanni
það að „maðurinn plantar og
sáir en guð gefur ávöxtinn“.
Ég kæri míg ekki um meitl
aðan stein á gröf mína en
þakka innilega þeim, er sýna
í Skrúð fagran gróður náttúr
unnar á áður hrjóstrugum
stað.
Látið bók þessa skýra frá
því liér á eftir og að lokum.“
Séra Sigtryggur vissi það
vel að Skrúður er lifandi minn
isvarði þeirra hjóna. Garður-
i'nn má nú þegar teljast til
hinna merkarisögul'egraminja
á Vestfjörðum auk þess, sem
hann hefur menningarhlut-
verki að gegna frá ári til árs
og kyni til kyns með því að
vera ti'l fróðleiks og vakning- J
ar í ræktunarmálum.
Áður en séra Sigtryggur
lézt samdi han drög að reglu-
gerð fyrir Skrúð og afhenti
skólanefnd Núpsskóla garð-
inn. Hann á að vera sjáilfstæð
stofnun með sjálfstæðu reikn-
ingshaldi en í tengslum við
skólann.
Af framlögum til Skrúðs á
síðari árum myndaði séra Sig-
tryggur sjóð, sem hann neíndi
Skrúðsstuðul. Skrúðsstuðull
stendur straumafframkvæmd
um við garðinn. Ilann er að
sjálfsögðu í vörzlu skólanefnd
ar Núpsskóla.
Það má kalla að þau orð,
sem hér hafa verið tilfærð eft-
ir séra Si'gtrygg, séu síðasta
kveðja hans til nemenda og
annarra samferðamanna. Hitt
munu allir némendur hans
skilja að samboðnast er hon-
um að hans sé minnst í þjóð-
nýtu menningarstarfi.
Æri'n verkefni eru fyrir
höndum í sambandi við Skrúð.
Þeim, sem þar eiga til að sjá,
er vitanlega örvun og gleði að
hverskonar liðveizlu.
Annars sé ég ekki' ástæðu til
að láta fleiri orð frá mér
fylgja Þesasri síðustu kveðjú
séra Sigtryggs Guðlaugsson-
ar.
Halldór Kristjánsson.
STJÓRN og meðlimir Sölu-
samlags ísl. fiskframleiðenda
hafa að undanförnu athugað
rækilega möguleikann á því, að
breyta Iögum SÍF, þannig, að
hver framleiðandi fyrir sig beri
skaðann af skemmdri vöru
sinni, en ekki meðlimir í heild,
eins og nú er.
Þetta hefur áður verið mikið
rætt innan SÍF, en þegar í ljós
kom, að saltfiskur sem seldur
var fyrir nokkru til Jamaica
hafði skemmst mikið, var aftur
tekið að athuga, hvort breyta
skyldi lögum félagsins um
skaðabótaskyldu.
Ákvörðun, sem þessa, er ekki
hægt að taka nema á aðalfundi,
en hann verður haldinn í júní-
mánuði n. k. Búizt er við, að
breyting verði látin ná til árs-
framleiðslunnar 1960, nái hún
samþykki aðalfundarins.
Fiskimatið er framkvæmt af
matsmanni, sem launaður er af
hinu opinbera. Það er hann tcm
tekur ákvörðun um flokkun og
þurrkstig fisksins, en ekki
framleiðandinn. Þess vegna he£
ur ekki þótt rétt, að framleið-
andinn beri einn. skaðann af
skemmdum.
Merkjasala S. V.F. I.
verður / daa
HINN ÁRLEGI merkjasölu-
dagur Kvennadeildar SVFÍ fer
fram í dag. — Þennan sama dag
er einnig kaffisala í Sjálfstæð-
ishúsinu á vegum félagsins.
ins.
Kvennadeild SVFÍ var stofn-
uð fyrir tæpum 30 árum, þann
28. apríl 1930. Frá árinu 1944
hefur merkja- og kaffi'salan far
ið fram á fyrsta góudegi ár
hvert.
Slysavarnafélagið hefur ekki
annan tekjustofn en frjáls fram
lög fólksins, og hjá Kvenna-
deildinni starfa ávallt þrjár
nefndir til fjáröflunar: Hluta-
veltunefnd, merkjasölunefnd
og kaffisölunefnd.
Ágóði af fyrstu merkjasölu
deildarinnar er var árið 1930
var 630 kr., og þótti góður. —
Síðasta góudag varð ágóði af
merkja- og kaffisölunni 53 þús.
krónur. Að sjálfsögðu byggist
Sjómenn
Framhald af 1. síðu.
eð þar geta þeir haft betra upp
úr sér.
Talið er, að vandamálið í
sambandi við menn á bátana
muni aukazt eftir því sem fleiri
bátar hefja netaveitar. Er
greinilegt, að þetta vandamál
á eftir að koma hart niður á
togurunum, þar eð kjörin eru
nú betri á hátunurn en togur-
unum.
þessi mi'kli ágóði á því að öll
vinna, efni og leiguhúsnæði er
gefið, og eins fyrir þær sakir,
hve bæjarbúar bregðazt alltaf
vel við.
Merki' félagsins verða af-
greidd í dag á eftirtöldum stöð-
um: Grófin 1, Melaskólanum,
Vesturbæjarbarnaskólanum
(gamli Stýrimannaskólinn) —
Austurbæjarbarnaskólanum, —
Laugarnesskólanum, Langholts
skólanum, Vogaskólanum, Rétt
arholtsskólanum, Háagerðis-
skóla, Sjómannals'kólanum og
Ásgarði 1.
*VVWWWMWMMMMMMMMW
Þetta þarftu
oð vita um ii
AÐALFUNDUR félagsins ís
land—Noregur var hald'nn í
Háskólanum 15. febr. 1960 og
fóru þar fram venjuleg aðal-
fundarstörf. I stjórn félagsins
voru kjörnir Hákon Bjarnason
skógræktarstjóri, formaður,
Kristmánn Guðmundsson rit-
höfundur, Gunnar Dal skáld,
Eggert Guðmundsson listmál-
ari og Hannes Jónsson fyrrv.
alþingismaður. Varamenn voru
kjörnir Guðmundur Marteins-
son, verkfræðingur, Ásmundur
uGðmundsspn, fyrrv. biskup og
Árni Bcðvarsson cand. mag.
eru tvær
þangað til dregið verður!
um fyrsta bílinn í HÆB;
(Happdrætti Alþýðublaðs-
ins) —- spáuýjan Volbs-
wagen.
Hér eru nokkur HAB;
umboð:
RAFHA, Vesturveri (sími; -
10322).
Öndvegi, Laugavegi 133;;
(sími 14707).
Drangey, Laugav. 58 (sími!
13111).
Ritföng,. Laugavegi 12.
Hlíðaturninn, Drápuhlíð 1.; '
Alþýðublaðið, afgreiðsla! í
(sími 14900).
Bókaverzlun Olivers SteinsJ!
Hafnarfirði (sími 50045).!
Þetta þurfið þið að at-
huga. sem enn hafið ekki
keypt miða í HAB:
Það koma SEX nýir
Volkswagen á HAB-mark-;
aðinn á þessu ári!
Það verður dregið um
nýjan HÆB-híl annan
hvorn mánuð það sem eft-
ir er ársins!
eru aðeins
í HAB.
5.000! I
Það
númer
Þó kostar miðinn aðeinsí
100 krónur.
Og auk bilanna sex eru
„uppbótarvinningar“, fexðáj
lög til iitlanda, húsgögn og;
, heimilistæki fyrix tug.il
þúsunda.
HAB er stærsta bílahapi
drætti landsins
Vinningsmöguleikarnir;
eru hvergi meiri
Hafið þetta hugfast:
ÞAÐ ERIJ ADEINS 5.000
NIIMER í HAB.
Alþýðublaðið — 21. febr. 1960 jg