Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1990, Side 47

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1990, Side 47
KOLEFNISALDURSGREININGAR OG ÍSLENSK FORNLEIFAFRÆÐI 51 lendis. 19 greiningar, eða 24% allra greininga, sem örugglega eru gerðar á íslenskum viði, má ef þær eru notaðar af óvarkárni, túlka sem sönnun fyrir mun eldri búsetu en hefðbundið landnám. 48 greiningar, eða 61 % allra aldursgreininganna, hafa verið gerðar á kolefnisaldurs- greiningarstofu háskólans í Uppsölum. 18 af fyrrnefndum 19 greining- um, eða 95% allra greininga með óvæntan háan aldur hafa einnig verið gerðar í Uppsölum (sjá töflu 1). Athyglisvert er einnig, að allar þær greiningar, sem hafa gefið óvenjulega háan aldur, eru gerðar á viðarsýn- um. Pýðir þctta að hinar háu aldursgreiningar sem rannsóknarstofan í Uppsölum fær, séu vegna þess að stofan notar aðra aðferð við vinnslu sýnanna en aðrar stofur, sem ekki hafa fengið eins margar háar niður- stöður? Pað er varla ástæðan, þótt þann möguleika verði að athuga nánar. Rannsóknarstofunni í Uppsölum hafa hins vegar borist flestar beiðnir um greiningar á íslenskum sýnum. Sýnin hafa á einn eða annan hátt verið tengd landnáminu á fslandi, t.d. vegna þess að þau hafa verið tekin í námunda við landnámslagið. Fornleifafræðingar hafa greint rannsóknarstofunni frá áætluðum aldri sýnisins, sem iðulega hefur verið um eða eftir landnám, og er oft áætlaður út frá meintum vitnisburði gjóskulaga. En nokkrar greiningar hafa sýnt óvæntan aldur og það hefur m.a. fengið Ingrid U. Olsson til að setja fram kenningu um sér- stöðu íslenskra kolefnisaldursgreininga. Það er greinilegt að hin hefðbundna tímasetning landnámsins, hvort sem hún er rétt eða röng, hefur haft áhrif á kenningasmíð Ingrid U. Olsson um sérstök áhrif á íslenskar kolefnisaldursgreiningar. Olsson hefur tekið hina hefðbundnu tímasetningu gilda. En hvernig veit for- stöðumaður kolefnisaldursgreiningarstofu í Svíþjóð, að tímasetning íslenska landnámsins sé rétt? Hún hefur upphaflega fengið tímasetningu landnámsins frá íslenskum jarðfræðingum og fornleifafræðingum og gengur eins og aðrir út frá þeirri vitneskju, sem er fyrir hendi. Þar sem engar fornminjar eru til, sem eru eldri en hefðbundið landnám, er afar eðlilegt að landnámið hafi átt sér stað í lok 9. aldar. En hvernig getum við verið viss um að þær háu aldursgreiningar sem koma frá íslandi og Færeyjum, þar sem landnámið er einnig tímasett að hefð, séu ekki algengar í öðrum löndum, þar sem landnám varð ekki á 9. öld? Meðfram ströndum Noregs eða á írlandi, svo að dæmi séu tekin, gekk lífið sinn vanagang á 9. öld, eins og það hafði gert í mörg þúsund ár. Ef býli á vesturströnd Noregs, þar sem engar aldursgreinanlegar fornminjar hafa fundist er kolefnisaldursgreint til 6. og 7. alda, er þá hægt að mótmæla þeirri greiningu, ef rústirnar eru í raun og veru frá 8. og 9. öld? Það myndi reynast erfitt. Á vesturströnd Noregs hefur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.