Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1990, Page 71

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1990, Page 71
OKAKER, STOKKAKER 75 horfnar þar í héraði. Einar H. Einarsson bóndi og fræðimaður á Skamma- dalshóli í Mýrdal (f. 1912) minntist þess að rétt eftir 1940 var rifm gömul smiðja þar á bæ. í árefti hennar voru tveir sérkennilegir, grannir raftar, heflaðir á allar hliðar og með augum á endum. Einar spurði föður sinn, Einar Þorsteinsson, hvað viða það væri. Hann kvað það oka af okakeri er smíðað hafði afi hans, Jón Þórðarson í Skammadal (f. 1801, d. 1879), og var fangamark hans. J.Þ., rist vel á annan raftinn. Ekki var þeim haldið til haga og saga þeirra er öll.14 Um þessar mundir kynntist ég gömlum bónda og búsgagnasmiði, Guðmundi Guðmundssyni frá Brekkum í Mýrdal (f. 1867 d. 1964), langminnugum og greinargóðum. Okaker mundi hann vel frá æsku sinni og tilnefndi einkum eitt ker sem hann hafði séð í búi frænku sinnar, Elínar Þórðardóttur á Loftsölum (f. 1830). Hún notaði það sem skyrker. Guðmundur lýsti því svo að það hefði verið ámóta og gjarða- ker á hæð, ferkantað, jafnvítt upp frá botni, girt með þremur okum, við brún, urn miðju og botn. Það var með áfelldum hlemmi og okar neðan á botni. Okarnir voru festir þannig saman á hornum að tveir voru gegnboraðir með gati eða auga til beggja enda og aðrir tveir felldir þar í, festir með trénöglum svo úr varð ferkantaður rammi. Guðmundur taldi einnig að til hefði verið að tengja oka saman með því að stalla þá hálft í hálft til enda og festa með trénöglum en móti því mælir það að þá var engin leið að herða á eða slaka á okum sem gat verið nauðsyn t.d. ef ílátið gisnaði aðeins við að standa tómt. Guðmundur smíðaði fyrir mig líkan af okakeri árið 1962 og stallaði okafestingar saman. Laggir gerði hann að gömlum hætti, miðað við einlaggað ílát. Okaker lifði í minnum fólks á Suðurlandi langt fram um aldamótin 1900. Margir muna enn (1990) glöggt umferðakonuna Vigdísi Ingva- dóttur (Viggu Ingva) í Mýrdal (f. 1864, d. 1957). Hún var um allt sérstæð, orðhög og orðheppin. Samlíkinguna okaker notaði hún um konur „sem miklar voru á þverveginn,“ sagði þær „eins og okaker.“ Um konu sem hafði nýalið barn sagði hún: „Þetta varð að vera, belg- urinn á henni var eins og okaker!“ Á seinni hluta 19. aldar áttu Skaftfellingar sér ferkantaðar, fóðraðar húfur úr lambsskinni eða hundsskinni, með engum uppslögum og nefndu okakershúfur eftir líkingu þeirra við okaker.'5 Jón Ólafsson bóndi í Pétursey í Mýrdal gekk með slíka húfu fyrir Árna Gíslason sýslumann á manntalsþingi í Loftsalahelli vorið 1872 og sýndi sýslumanni ekki þá 14. Munnleg heimild frá Einari H. Einarssyni. 15. Munnleg heimild frá Sigurjóni Runólfssyni (f. 1879).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.