Alþýðublaðið - 26.02.1960, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 26.02.1960, Blaðsíða 2
©tgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson. — Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. •— Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906 — Að- | *etur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10. —» Áskriftargjald: kr. 35,00 á mánuði. Framsókn vill gefa land- búnaðinum 160 l™ljidnir! HVERT mannsbarn skilur, að bankar geta ekki greitt hærri vexti fyrir sparifé en þeir fá fyr- ir útlán sín. Eins getur enginn sjóður til lengdar tekið minna fyrir það fé, sem hann fær til umráða, en hann greiðir sjálfur fyrir þetta sama fé. Það er ótrúlegt en satt, að hér á landi hafa nokkrir mjög mikilvægir sjóðir árum saman gert . einmitt þetta. Það eru ræktunarsjóður og bygg- ingasjóður sveitanna, og einhverjir fleiri fjárfest- ingarsjóðir munu undir sömu sökum seldir. Þessir sjóðir hafa tekið lán, oftast erlend lán, og síðan endurlánað þau til aðila innanlands, sjávarútvegi og fleiri greinum. Þeir hafa greitt hinum útlendu 'lánveitendum IIÆRRI vexti en þeir taka af þeim, sem lánin fá innanlands. Árangurinn er sá, að land búnaðarráðherra segir áðurnefnda sjóði vera gjald þrota, og þeir hafa verið reknir með milljónatapi. Framsóknarflokkurinn hefur nú birt úrræði sitt til lausnar þessu vandamáii. Hann vill, að ríkið taki hreinlega á sér að greiða allar afborganir og alla vexti að 160 milljón króna lánum, sem land- búnaðarsjóðirnir hafa tekið erlendis. Ríkið á að gefa landbúnaðinum 160 milljónir og vexti að auki — eða, sem nemur um 26.600 krónur á hvert býli í landinu auk vaxtanna. Þetta er fyrir utan allan þann sjálfsagða stuðning, sem ríkið veitir árlega á f járlögum til landbúnaðarins. Framsókn leggur ekki til, að sjávarútvegi, iðn aði eða öðrum atvinnugreinum séu gefnar slíkar gjafir. Hún leggur ekki til, að ríkið taki að sér öll erlend lán fyrir skipakaup eða vélakaup til iðnað- arins. En í hinni ábyrgðarlausu yfirboðapólitísk, sem Framsókn þykir hæfa stjórnarímdstöðu, hefur flokkurinn slegið öll fyrri met með þessari tillögu. \ Það má merkilegt heita, ef bændur landsins gang- ast upp við slíkt ábyrgðarleysi, eða telja þetta rétta fjármálastefnu fyrir þjóðina. Þeir eru vanir að leggja hart að sér til að standa við sínar skuld- bindmgar, en velta þeim ekki yfir á aðra. Er við því að búast, að fjármál þjóðarinnar séu í góðu lagi, þegar næst stærsti flokkur lands- ins hugsar þannig? Er von, að annað gangi vel, þegar slíkur flokkur telur það eðlilega stefnu að taka erlend lán, lána þau út innanlands með lægri vöxtum, en velta svo öilu yfir á ríkið? Áugiýsingasími blaðsins er 14996 ysta söngkab KARLAKÓRINN Fóstbræð- ur hefur nú í undirbúningi söngkabarett, og mun sá fyrsti fara fram n. k. sunnudag. Margt nýstárlegt kemur fram á þessum kabarett, en megin uppistaða hans er, að 16 manna kór syngur öll vinsælustu lög- in úr söngleiknum My Fair Lady. Söngleikur þessi hefur v|farið sigurför um allap heim, og lögin úr honum eru á hvers manns vörum. Kristinn Halls- son og Eygló Viggósdótt’.r svngja ,,sólóa“ j lögunum. Karl Guðmundsson kemur einnig fram með nýjan þátt. Á kaþarettnum verður upp- fært þjórkjallaraatriði þar senij sungin verða ýmis vinsæl íög, ^ m. a. úr söngleiknum Porky. and Bess. Sungið verður nýttj lag eftir Sigfús Halldórsson og : Gestur Þorgrímsson flytur| skemmtiþátt. i Eins og sjá má af þessari i upptalningu er vel vandað til skemmtiatr'ða, og er ekki að efa að þarna finnur hver at- riði fvrir sinn smekk. Hljómsveit Björns R. Einars- sonar og Carl Billich munu annast undirleik, en Ævar Kvaran hefur séð um uppsetn- ingu á kabarettnum. Einnig mun kórinn allur syngja. Kórinn hyggur á Norður landaferð um miðjan maí n. k. Og er kabarett þessi einn liður í áætlun kórsins til peninga- söfnunar fyrir utanferðina. Karlakórinn Fóstbræður hef ur nú starfað í tæp fimmtíu ár. Söngstjóri hans er Ragnar Björnsson, og hefur hann stjórnað kórnum síðan 1954. AMWMMUmMWtWiMMUU Endanlegt samkomuiag EINS og Alþýðublaðið náðsfc samkomulag í sex- mannanefndinni í grund- hafði áður skýrt frá, hafði vallaratriðum. Laust fyrir kl. 5 í gær- dag var svo gengið frá end anlegu samkomulagi í nefndinni. Er væntanleg í dag fréttatilkynning frá ncfnd innhþar sem skýrt verður nánar frá þessu máli. Geymdir til 18 LONDON, 25. febr. (NTB-Reu- ter). — Stjórn brezka jafnaðar- mannaflokksins sendi í dag út yfirlýsingu, þar sem segir, aS flokkurinn harmi það mjög, a<S ungversk yfirvöld skuli entt vera að taka af lífi fólk, sem tók þált í uppreisninni 1956, Einkum ógnar flokknum, a<S unglingar skuli vera teknir a£ lífi, þegar þeir fylla 18 ár; eft- jr að hafa setið árum saman i fangelsi. , ZWICKAU, 25. febr. (NTB- Reuter). — Vonir fara nú ótt minnkandi um að ná megi þeim 76 námamönnum, sem síðan á mánudag hafa verið innilok* aðir í Karl Marx-koianámunni, Hingað til hafa 48 lík náðst, Eftir fjögurra daga baráttM gegn logunum og liíshættuleg- um gastegundum í námugöng- unum eru dauðþréyttir björg- unarmennirnir rnjög svartsýnií á möguleikana á að ná hinum innilokuðu mönnum. 1-^- ÞARNA sjáið þið ís- lenzka flokkinn við inn- göngu þjóðanna á setning- ardag Olympíuleikanna. - ÚRSLITAKEPPNI Skák- þings Reykjavíkur 1960 hefst á suunudaginn kl. 2 e. h. í Breiðfirðingabúð. Keppendur verða 8, Efstu menn úr undan- rásum keppninnar urðu Björn Þorsteinsson, Benóný Bene- diktsson, Jónas Þorvaldsson, Bragi Þorbergsson, Halldór Jónsson og Guðmundur Lárus- son. Þessir sex tefla nú til úrslita um titilinn Skákmeistari Rvík- ur 1960 ásamt þeim Friðriki Olafssyn; stórmeistara og Inga R. Jóhannssvni, sem hefur ver- ið Skákmeistari Reykjavíkur undanfarin ár. Dregið hefur verið um röð keppenda og er hún þessi: 1. Benóný, 2. Jónas, 3. Halldór, 4 Björn, 5. Bragi, 6. Ingi R., 7. Friðrik og 8. Guðmundur. í fyrstu umferð tefla nr. 1 og 8, 2 og 7, 3 og 6, og 4 og 5. Tryggingamiðstöðin h.f. hef- ur gefið glæsilegan bikar til keppninnar og verður hann til sýnis á mótsstað. Þar sem bú- ast má við mikilli aðsókn á- horfenda, verður fyrirkomu- lag þannig, að sem þægilegasf verði að fylgjast með keppn- inni, j fsbr. 1960Alþjðublaðií

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.