Alþýðublaðið - 26.02.1960, Blaðsíða 16
unnar
S'QUAW VALLEY, 25. febr..
■fc NORÐMENN voru í dag
eimni skíðalengd og átfa tíundu
hlutum úr sekúndu frá því að
fá sín fyrstu gullverðlaun í boð-
göngu á skíðum, þegar jöfnustu
skíðaboðgöngu skíðasögunnar
3jauk með því, að skíðakóngur-
inn Veikko Hakulinen frá Finn
iandi sigraði í áköfu einvígi við
Norðmanninn Brusveen á síð-
>asta spöli göngunnar. Rússar
fengu bronzið og Svíar urðu í
f jórða sæti.
Það vakti almennan fögnuð,
er Finnar hlutu þarna sín fyrstu
gullverðlaun Ojr norsku skíða-
iriennirnir voru meðal hinna
fyrstu, sem óskuðu þeim til ham
ingju.
Finnar og Norðmenn báru af
í boðgöngunni d dag og eftir
annan spölinn var Ijóst, að
vænta mátti finnsk-norsks ein-
■ vígis. Hræðilegar ófarir hentu
.S.vía, er Janni Stefansson
sprengdi sig á að reyna að
tlialda í við Brenden og Mathyr-
anta á öðrum spretti. Rússar
oippiifðu nokkuð svipað, en
náðu sér og tóku bronzið.
Brusveen ’hélt forskoti sínu
alla gönguna, þar til um hálfan
kílómeter var í mark og um af-
líðandi' brekku og keyrslu að
ræða. En það var einmitt á þess
úm 500 metrum, sem Hakulinen
tþkst að tryggja sér sigurinn og
kom í mark með Norðmanninn
alveg á hælum sér. Um 50 m.
frá marki virti’st Brusveen ætla
að takast að ná Finnanum aftur,
en þá „spýtti Hakulinen í“ og
náði þeim sentimetrum, sein
þurfti.
Hakulinen reyndí að brosa til
Ijósmyndaranna, en brast í grát
af taugaæsingnum.
ÚRSLITIN:
Tímar landanna voru þessi:
Finnland 2 tímar 18,45,6, Nor-
egur 2:18,46,6, Rússland 2:21,
21,6, Svíþjóð 2:21,31,8, ftalía
2:22,32,5, Pólland 2:26,25,3,
Frakkland 2:26,30,8
Beztu tímar einstaklinga á
vherjum spretti voru: 1) Haku-
Rússar unnu s/
6. gulIverðlau
Sqaw Valley, 25. febr. (NTB.
RÚSSAR tryggðu sér enn
eln gullverðlaun á skautum í
dag, er Viktor Kositsjki vann
VICTOR KOSITSJKIN
5000 m. hlaupið á 7:51,3 og
bætti sitt persónulega met «m
22 sek. Annar varð Knut Jo-
hannesen, Noregi á 8:00,8 og
bronzið fékk Pesman, Hollandi
á 8:05,1. Þeir hlupu saman í
riðli Kositsjki og Pesman og
kom það mönnum mjög á óvart,
er Pesman v;arð hvorki meira
né minna en 200 metrum á eft-
ir.
Fjórði maður var Torstein
Seiersten, Noregi' á 8:05,3 og
kom mjög á óvart. Annars var
röðin þessi: 5) Kotov, Rússl.,
8:05,4, 6) Gontjsarenko, Rússl.,
8:06,6, 7) Ivar Nilsson, Svíþjóð
8:09,1, 8) K. Tapiovaara, Finn-
land,. 8:09,1, 9) Kouprianoff,
Frakkl., 8:10,4, 10) Raymond
Gilloz, Frakkl., 8:11,5.
Hitinn var um 0 gráður, er
hlaupið hófst kl. 8 í morgun eft
ir staðartíma. ísirin var eins og
bezt.varð á kosið, en nokkur
vindur var og snjókoma. Það
■sást strax á fyrstu mönnunum,
sem hlupu, að ekki gat orðið
um hei'msmet að ræða
linen 33.56.6, 2) Jernberg 34.
07,5, 3) Brusveen 34.17.4, 4)
Vaganof 34.22.0, 5) Anikin 34.
31.0, 6) Brenden 34.41.0, 7) Öst-
bý 34.41.0, 8) Larsson 34.44.0,
9) Mantyranta 34.45.0, 10) Ohl-
son 34.56.0.
■ Sést af þessu að þei'r þrír, sem
náðu beztum tíma í dag, voru
allir endamenn.
í boðgöngunni var gengið á
sléttu fyrstu 200 metrana, en
þá var upp bratta brekku að
fara en verstu brekkurnar lágu
á milli 3 og 4 km. og 5 og 6,5
km. frá startinu. Síðasti hluti
brautarinnar hallaði úndan
fæti og var bein keyrsla í mark.
Ohlson startaði fyrir Svía, A.
Seljukhin fyrir Rússa, Alatalo
fyrir Finna og Harald Grönn-
ingen fyrir Norðmenn.
Ohlson var svo óheppinn að
missa annan stafinn í startinu
og varð að snúa við og sækja
hann. Rússinn náði beztu starti
og var fyrstur er komið var
upp á skógarhálsinn, sem sást
til frá startinu.
Eftir 5 km. var Altalo Fi'nnl.,
orðinn fyrstur á 17.56, þá Ohl-
son á 18.08. Síðan komu Grönn
ingen á 18.19, Mateja, PólL,
18.32, de Florian, Ítalíu, 18.33,
Seljukhin á 18.48. Síðan komu
Bahdaríkin og Frakkland með
18.54, Sviss með 18.55, ÞýzkaL
með 19.13 og Japan með 20.22,
Við fyrstu skiptingu, eftir 10
km., var Ohlson kominn fram
úr Finnanum og var 50 m. á
undan. Grönningen var aðeins
25 m. á eftir Alatalo í skipting-
unni’. Síðan komu Xtalir. Undr-
un vakti hve illa Seljukhin stóð
sig. Hann var orðinn 8., þegar
skipt var, á eftir Póllandi,
Frakklandi og USA.
Þeir, sem gengu annan spöl-
inn fyrir Norðurlöndin voru: —
Framhald á 7. síðu.
41. árg. — Föstudagur 26. febrúar 1960 — 46. tbl.
Rússland: 6 gull, 3 silfur, 7
bronz. Þýzkal.: 3 g., 3 s. Svíþj.:
2 g., .2 s. Sviss: 2 g. USA: 1 g.
3 s., 3 b. Noregur: 1 g., 3 s. Aust
urríki: 1 g., 2 s., 2 b. Finnland:
1 g., ls., 2 b. Frakkland: 1 g., 2
b. Kanada: 1 g. Holland 1 s., 1 b.
Ítalía 1 b.
Eysteinn
12. / jbrí-
keppni!
Nánar morqun
Eysteinn á fullri ferð.
nd á á
amenn,
segir Setteberg í fréttabréfi
Squaw Valley, 20. feb.
■^ HVAÐ skal segja um
Squaw Valley eftir 3
daga? Mín skoðun er á
þessa Ieið: Ég álít að þetta
séu þeir stórfenglegustu
Vetrar-olympíuleikar, sem
haldnir hafa verið. Undir-
ritaður horfði á leikana í
Garmisch-Partenkirchen,
Þýzkalandi 1936. Þegar ég
kom heim til Svíþjóðar —
sýndi ég kvikmyndir og
flutti fyrirlestra um ævin-
týrið í Garmisch, eins og
ég kallaði það. Fyrirlestr-
ar mínir enduðu venjulega
á bessum orðum: — Slika
vetrarolympíuleiki — sem
leikina í Garmisch-Parten-
kirchen, fáum við ekki aft-
ur í okkar lífi.
Nú eru að fara fram vetr
arleikirnir 1960 og enn er-
um við á.lífi og þessir leik-
ar taka öllu öðru fram um
skipulag, afrek og aðbún-
að. Ef veður er slæmt, eins
og var setningardaginn, og
flytja þarf einhverja í-
þróttagrein til, þessvegna,
er það gert fyrirhafnar-
laust. Möguleikarnir eru
geysilegir í Bandaríkjun-
um og þeir geta allt.
í dag hitti ég Eystein
Þórðarson, ykkar ágæta
skíðamann, sem er mun
betri skíðamaður, en mér
var sagt meðan á minni
stuttu viðdvöl stóð í Rvík
á leiðinni til Squaw Val-
ley. Eysteinn, Jóhann og
Kristinn eru allir prýðis-
góðir íþróttamenn, sem
sómi er að. Við Eysteinn og
sænski skíðamaðurinn
Bengt-Erik-Grahn fengum
okkur göngutúr í olymp-
íubænum í dag, en Grahn
er með, hendina í fatla og
getur ekki keppt. Hann var
eini keppandi Svía í alpa-
greihum.
Eystein var mér sam-
mála um, að þessir Olymp-
íuleikir væru stórkostlegir.
Veðrið dásamlegt, dag eft-
ir dag, logn og heiðblár
himinn. — Það er ævin-
týri fyrir okkur fslending-
ana að vera hér, sagði Ey-
steinn.
Dagarnir hér í Squaw
Valley líða alltof fljótt, —
hélt Eysteinn áfram, dag-
skráin og skipulagið er frá
bært. Við förum á fætur kl.
6 á morgnanna og fáum
okkur þá bað og morgun-
verð. Kl. 12 er hádegis-
verður og síðan hvíld til
kl. 14, en þá hefst æfing til
17. MiRi 17 og 19 er hægt
að dansa eða fara í kvik-
myndahús. Kvöldverður
kl. 19.30. Til kojs er farið
kl. 22. Eitt kvöld vikunn-
ar er dansað lengur og þá
koma fram ýmsir frægir
skemmtikraftar.
Hér eru um það bil 800
blaðamenn frá ýmsum
fleiri löndum en senda þátt
takendur til leikanna.
23. FEBRÚAR.
Einn daginn ræddi ég
um æfingaskilyrði við ís-
Iendingana og þá sögðu
þeir mér frá hinum slæmu
Framhald á 10. síðu.