Alþýðublaðið - 26.02.1960, Side 5
JÐAMASKUS, 25. febr. (NTB-
Keuter). — Á fjöldafundi hér
í dag varaði Nasser vesturveld-
In við því að halda fast við brí-
veldayfirlýsinguna frá 1950,
þar sem þau tryggðu óbreytt
ástand í Austurlöndum nær.
Hann kvað öll afskipti af þeirra
hálfu mundu verða brotin á
bak aftur. Er ræða þessi talin
harðasta árás, sem Nasser hef-
tir til þessa gert á Bandaríkin,
Bretland og Frakkland.
Við mikil fagnaðarlæti á-
heyrenda lýstj Nasser því ýfir,
að fólkið mundi'ekki re'Sa sig
é. stríðsglæpamenn, sem út-
hella blóði þess. Hann kvað
Arabíska sambandslýðveldið
hafa mátt til að blása ,.heims-
,valdasinnana“ burt úr Austur-
löndum nær. ,,Þessi bjóð, karl-
ar, konur og börn, mun buga
érásina og kippa fótunum und-
an hverjum þeim, sem gerzt
hefur sekur um árás í fortíð-
inni og hverju því vestrænu
ríki, sem undir yfirskini þrí-
veldayfirlýsingarinnar reynir
að ráðast á okkur. Við munum
leyfa þeim að bragða á auð-
mýkingu og vanvirðu", sagði
Nasser.
NEW YOKK, KAIRÓ, TEL
AVIV, — 25. febrúar. (NTB).
— ísraelsmenn sökuðu Arab-
íska sambandslýðveldið í dag
í bréfi til Öryggisráðs SÞ um
að halda uppi aðgerðum, er
augljóslega æsi til stríðs. I
bréfinu, sem sfílað var til for-
manns ráðsins, Sir Pierson
Dixon frá Bretlandi, segir, að
herferð þessi sé orðin hættu-
lega umfangsmikil. „Ef friður
á að haldast á þessu svæði,
verður Arabíska sambandslýð-
veldið að láta af hinni fjand-
samlegu stefnu sinni gagnvart
ísrael“, segir í bréfinu.
Liðsforingjar í varðliði 'SÞ á
Gaza-svæðinu hafa tilkvnnt að
þeir hafi- séð merki 1 ðsflutn-
inga Araba á svæðinu, hefur
Reuter eftir áreiðanlegum
heimildum í aðalstöðvum SÞ
í kvöld. Fréttirnar benda þó
ekki til, að um sé að ræða
verulega mikinn liðssafnað. —
Norski sambandsforinginn á
*Gaza-svæð nu, Hjelle ofursti,
hefur sent yfirstjórn hersins í
Osló skeyti, þar sem segir, að
ástandið í Gaza sé eðlilegt og
engin ástæða til ótta.
Hammarskjöld, framkvæmda
stjóri SÞ, sagði við meðlimi
öryggisráðsins í dag, að ástand
ið í Austurlöndum nær ylli
honum áhyggjum. Hann kvað
mönnum hætta til að ætlast t'l j
að framkvæmdastjórinn gerði
ráðstafanir ,sem öryggisráðinu I
bæri að gera.
Munu fulltrúar vesturveld- 1
anna hafa beðið Hammar-!
skjöld um að gera ekki ráðstaf-
anir til að koma með málið fyr j
ir ráðið, nema því aðeins á-:
standið versni mjög. Telja þeir, |
að í örygg'sráðinu mundi koma ;
til harðorðra deilna um allt
Palestínu-málið á tíma, þegar
umfram allt þyrfti að reyna að
draga úr spennunni.
Góðar heimildir telja, að^
Hammarskjöld hafi samþykkt
að halda áfram að reyna að
draga úr spennu með rólegu
diplómatíi.
Uslajad
X.ONDQN, BONN, MOSKVA,
25. febr. (NTB-Reuter). — Sel-
Vvyn Lloyd, utanríkisráðherra
Bfeta, lýsíi því yfir í neðri
málstofunni í dag, að Vestur-
Þjóðverjum beri að verða sér
úti um hernaðarlega aðstöðu í
NATO-ríkjunum í stað Spán-
at og upplýsti, að Vestur-Þjóð-
verjum hefði verið tilkynnt
þessi afstaða um miðjan janú-
ar, þegar brezka stjórnin fékk
fyrst vitneskju um samninga-
tilraunir Þjóðverja í Madrid.
Jafnframt lýsti Strauss, land
varnaráðherra V-Þýzkalands,
yfir í Bonn, að ráðstafanir V-
Þjóðverja í þessu máli væru
algjörlega réttlættar.
Umbæfut
IIAVANA, 25. feln. (NTB-Reu-
ter). — Castro, forsætisráð-
herra, tilkynnti í dag, að stjórn
hans mundi hrinda í fram-
kvæmd endurreisnaráætlun í
iðnaði landsins, er kosta mundi
152 milljónir dollara, 100 millj.
dollara láii, sím Ir V>a fékk hjá
Rússum n;". •
til breytir.y { iðnaði.
Talið er í Bonn, að þetta
stöðvamál muni nú koma fyrir i
NATO, og halda sumir dipló-j
matar, að málið verði lagt í ís,
en benda jafnframt á, að vegna !
málsins hafi samskipti Bretaí
og V-Þjóðverja versnað að
nýju.
TASS sendi í dag út harð-
orða yfirlýSingu, bar sem sam-
vinnu Hitlers-Þýzkalands við
Franco er líkt við umrætt
stöðvamál. Eru ,,frið-elskandi“
lönd vöruð við samningaum-
leitunum V-Þjóðverja og Spán-
verja.
Strauss kom með yfirlýsingu
sína eftir tveggja tíma fund
lándvarnanefndar þingsins.
Jafnaðaxmenn í nefndinni lýstu
því yfir eftir fundinn, að þeir
væru ekki á sömu skoðun og
ráðherrann, og er búizt við ár-
ásum jaínaðsrmanna ,á stjórn-
ina á þingi vegna málsins.
Lloyd kvaðst mundu svara
spurningum jafnaðarmanna á
mánudag. Við spurningum frá
Gaitskell sagði hann: „Vand-
inn er að vita hvernig staðan
er. Eg t um, að í raun og
veru.liggi fyrir nokkrar tillög-
ur, að ekki sé talað um samn-
ing, um spænskar stöðvar, en
það er víst, að NATO hefur
ekki haft málið til meðferðar.
(í Bonn hélt talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins því fram, að
NATO vissi um allt það, sem
Vestur-Þjóðverjar tækju sér
fyrir hendur erlendis).
Jafnaðarmaðurinn Robert
Edwards spurði hvort ráðherr-
ann vissi, að vinna við þýzkt
framleiðsluver fyrir eldflaugar
nálægt Bilbao væri langt kom-
ið, og hvort ráðherranum væri
ljóst, að Bandaríkjamenn hefðu
þrjár stöðvar á Spáni, sem ekki
væru undir stjórn NATO, og
Bandaríkjamenn hygðust
flvtja stöðvar sínar frá Ma-
rokkó til Spánar. Hann spurði
ráðherrann sömuleiðis, hvort
hann væri sér ekki sammála
um, að ekki væri hægt að verja
frelsi þjóða frá landi, þar sem
það frelsi hefði ekki séð dags-
ins Ijós í 20 ár.
Lloyd kvaðst ekker.t vita um
Bilbao-verið og mundi hann
kanna málið. Um flutning ame-
rísku siöðvanna viidi hann
ekki ræða.
SAO PAOLO, 25. febr. (NTB-
Reuter). — Eisenhower Banda-
ríkjaforseti fékk afar hjartan-
legar móttökur a£ miklum
mannfjölda, er hann kom hing-
að í dag, þó að rigndi. Voru
milli 300.000 og 500.000 manns
saman komin til að veita for-
setanum enn betri móttökur,
en hann fékk í Rio de Janeiro
í gær. Eisenhower stóð í opn-
um bílnum næstum alla leið-
ina, 11 km. frá flugvellinum til
forsetabústaðarins. Þótt hann
gerði mikla skúr stóð fólk
kyrrt og Eisenhower fór í plast-
kápu og setti upp hatt og stóð
áfram í bílnum og móttók
hyllingu fólksins.
Er bíll Eisenhowers kom inn
í miðborgina, rigndi bókstaf-
lega yfir hann „confetti“ úr
skýjakljúfunum. Gerðu íbúar
Sao Paolo sér sérstaklega far
um að veita Eisenhower betri
viðtökur en hann fékk í R o.
í hádegisveizlu, er kaupsýslu
menn héldu forsetanum, not-
aði hann tækifærið til að verja
frjálst framtak einstaklingsins.
„Stuðningsmenn marx-lenin-
ismans reyna að afneita gæð-
um ameríska kerfisins og tala
um arðrán fjöldans, en það er
hlægilegt að halda því fram,
að sama aðstaða sé í amerísku
efnahagslífi í dag og á 18. og
byrjun 19. aldar. Kerfi okkar,
þar sem einstaklingsframtak
og félagslegt öryggi haldast í
hendur, er öllum til góðs, bæði
vinnuveitendum og verka-
mönnum“, sagði hann. AFP
segir, að Eisenhower hafi lofað,
að Bandaríkjamenn mundu
halda áfram að styðja efna-
hagsþróun Brasilíu.
NATO-fundur
PARÍS, 25. febr. (NTB-Reuter)
— Landvarnaráðherrar NATO-
ríkjanna munu halda fund í
París 31. marz og 1. apríl til
að ræða ýmis vandamál í sam-
bandi víð varnir bandalagsins.
Frímerki
TÍMARITIÐ „Frímerki“ mira
nú, sem oft áður, gefa út
„fyrstadags umslög“ fyrir frí»
merkið sem út kemur hinn 1»
marz n. k.
Myndin, sem er á umslagina
er teiknuð af Halldóri Péturs-
syni, listmálara. Verð hvers
umslags er kr.: 2.50.
Umslögin eru til sölu hjá Rit-
föng, Laugavegi 12 og S' g-
mundi Kr. Ágústssyni, Grett-
isgötu 30. Einnig er hægt að
panta þau hjá tímaritinu ,,Frí»
merki'*.
Fiugslys
við Rio
RIO DE JANEIRO, 25. febrúar
(NTB-Reuter). — 59 manns fór-
ust er flutningaflugvél frá
bandaríska flotanum og brasi-
lísk farþegaflugvél rákust á í
lofti og féllu í sjóinn skammt
frá Rio. Aðeins hafa borizt
fregnir af, að 4 hafi komizt af,.
en allir særðir.
44 manns voru í amerísku
vélinni, þar á meðal 19 meðlim-
ir hljómsveitar í landgönguliði
Bandaríkjaflota, er leika átti
við móttöku, sem Eisenhower
forseti ætlaði að halda fyrir
Kubitchek, forseta, í banda-
ríska sendiráðinu í kvöld.
í brasiíísku vélinni voru 25
manns. Meðal þeirra 25 líka,
sem fundizt hafa, er lík af konu
cg þriggja ára barni.
Alþýðublaðið — 26. febr, 1960